Morgunblaðið - 28.04.1966, Síða 30

Morgunblaðið - 28.04.1966, Síða 30
80 MORCU NBLADID i Fimmtudagur 28. apríl 1968 Hjónakeppni á skíðum við skíðaskálann 1. maí EINS og form. S.K.f. Stefán Kristjánsson gat um er hann af- henti verðlaun fyrir „Skólamót Skíðaskólans“ um s.l. áramót ætlar Skíðaskálinn í Hveradölum að halda skíðamót fyrir „Eldri áhugamenn og konur svo og hjón á öllum aldri“. Mót þetta er nú ákveðið að halda sunnu- daginn 1. mai kl. 14:00. Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum: Karlar: 35 — 50 ára 50 ára og eldri. Konur: 30 — 40 ára 40 ára og eldri. Hjónaflokkur: (Sameiginlegur tími hjóna) Hjón á öllum aldri. Heimild til þátttöku hafa allir hvar sem er af landinu félags- bundnir sem ófélagsfundnir, ef þeir hafa ekki tekið þátt í opin- beru móti s.l. 2 vetur (1964/65 og 65/66), er þar átt við öll mót haldin á vegum Skíðaráða og Skíðafélaga, önnur en innanfé- lagsmót, páskamót o.s.frv. Hjóna flokkur er þó undanþeginn. þessu. Gert er ráð fyrir að í hjónaflokki leggi hjónin samtím is af stað frá sama rásmarki, fari sitt hvora braut að sama marki. Jón Árnason TBR varð badm intonmeistari Reykjavíkur í ein liðaleik á nýafstöðnu Rvíkurmóti. Sigraði hann Óskar Guð- mundsson KR eftir skemmtilegan leik. t tvíliðaleik kvenna sigruðu Hulda Guðmundsdóttir og Lovísa Sigurðardóttir. í einliðaleik kvenna vann Lovísa Sigurðardóttir og í tvíliðaleik unnu Jón og Óskar. t tvennd arkeppni sigruðu Jón og Lovísa. Handknattleiksmótið: M0LAR Enska liðið Chélsea hefur keypt Charlie Cooke innherja af skozka liðinu Dundee fyrir um 9 millj. ísl. kr. Það er hæsta sala knattspyrnumanns í ár og aðeins um 900 þús. kr. lægri upphæð en hæst er þekkt í sögu ensku knatt- spyrnunnar. Norðmaðurinn Bunæs náði athyglisverðum árangri f Miinchen í gær. Hann vann 300 m á 34.0 sek. og hljóp 200 m á 21.8. * Islands- cjlíman 1966 ÍSLANDSG'LÍMAN 1966 verður háð í Reykjavík sunnudaginn 8. maí n.k. Glímudeild Ármanns sér um framkvæmd keppninnar að þessu sinni. Þátttökutilkynn- ingar þurfa að berast _ til for- manns Glímudeildar Ármanns, Harðar Gunnarssonar, pósthólf 104, Reykjavík, skriflega fyrir 1. maí n.k. Fram sigraði í fjdrum flokkum — og Víkingar í hinum fimmta Sumorbúðir í KR-shúlonum EINS og undanfarin sumur verða sumarbúðir í skíðaskála okkar í Skálafelli. í sumar er ákveðið að hafa 2 tveggja vikna námskeið, hið fyrirra fyrir drengi á aldrinum 7 til 11 ára á tímabilinu 18. júní til 2. júlí. Hið síðara verður fyrir telpur, 7 til 11 ára, og verður það á tímabilinu 2. júlí til 16. júlí. Hannes Ingibergsson kennari og frú Jónina Halldórsdóttir munu veita námskeiðunum for- stöðu, eins og undanfarin ár. Börnin dveljast við íþróttir, úti og innileiki eftir veðri. Skipu lögð verður létt vinna og göngu- ferðir um nágrennið, t. d. gengið á Skálafell og að Tröllafossi. Kvöldvökur verða og fastur liður, þar sem börnin skemmta sjálf, auk þess sem þeim verða sýndar kvikmyndir. Frekari upplýsingar eru veitt- ar í síma 24523. Skemmtifundur frjálsíþrótta- fólks ÍR FRJ ÁLSÍÞRÓTT ADEILD ÍR efnir til skemmtifundar í Tjarn- arbúð í kvöld, fimmtudag, kl. 8,30. Þar mun Ómar Ragnars- son skemmta en hann er í stjórn deildarinnar og Karl Hólm ræðu um mót sumarsins. SIÐUSTU leikir mótsins fara fram að Hálogalandi fimmtu- daginn 28. apríl og hefst keppn- in kl. 7.15. Fyrst leika ÍR og KR í m.fl. kvenna. Það er eini leikurinn í þessum flokki og er því jafn- framt úrslitaleikur. Siðan leika ÍKF og KFR í 1. deild. KFR hefur tvö stig en ÍKF verður að vinna þennan leik, vilji þeir haldast í 1. deild. Síðasti leikur mótsins verður milli hinna gömlu keppinauta ÍR og KR í fyrstu deild. Þessi leik- ur hefur reyndar ekkert að III. flokkur karla Víkingur — Valur 11:8 Til úrslita mættust lið Vík- ings og Vals í þessum flokki, en lið þessi höfðu unnið alla sína keppinauta í riðlunum. Liðin mættu til leiks með alla sína beztu menn og var greini- legt að ekki hafði verið slegið slöku við hjá þeim í sambandi við undirbúning að leik þessum. Strax er leikurinn hófst mátti merkja það á leik beggja liða að mikill taugaspenningur var í strákunum. Hvað um það, Víkingarnir skoruðu fyrsta mark leiksins upp úr fríkasti þegar á fyrstu mínútu. Eftir það sóttu Valsararnir stíft og á þriðju mínútu tekst Geir- harði að jafna fyrir Val. Við mark þetta færðist mikil harka í leikinn á báða bóga. Valsmenn irnir eru mun ákveðnari og ná að skora þrjú mörk til viðbótar án þess að Víkingunum takist að rétta hlut sinn. Sjöunda mínúta varð Valsmönnunum örlagarík því þá grípur dómari leiksins Sveinn Kristjánsson til þeirrar ráðstöfunar að fækka Valsmönn- um um einn í tvær mínútur og varð Stefán máttarstólpi liðsins fyrir valinu. Á þeim'tíma tókst Víkingunum að laga markatöl- una og ná því að skora þrjú mörk á meðan. Segja má að sóknarleikur Vals með einum manni færri hafi verið of gráð- ugur á þessum tíma. Á síðustu segja um úrslitin, því KR hefur þegar tryggt sér örugga forystu í mótinu. Það má samt búast við skemmtilegri keppni nú sem fyrr. ★ Mótinu mun síðan verða slitið á skemmtun, sem haldin verður í Lídó þetta kvöld. Þar mun fara fram verðlaunaafhending o. fl., en húsið verður opnað kl. 9. Athygli skal vakin á >vi, að keppnin hefst kl. 7.15 en ekki 8.15 eins og verið hefur. mín. fyrri hálfleiks skorar Guð- mundur fimmta mark Víkings og kemur þeim þar með yfir, en þessu kunni Stefán illa eftir að hann var kominn inn á aftur og tókst að jafna fyrir hlé. Stað- an var því í hálfleik 5:5. Síðari hálfleikur var öllu harð ari sérstaklega í sambandi við varnarleikinn. Guðmundur kem- ur Víking yfir á þriðju mínútu síðari hálfleiks og Georg bætir við marki af línu, eftir að hafa verið hindraður. Staðan er nú orðin 7:5 og greinilegt að Vík- ingarnir eru komnir með sigur- inn í hendurnar. Enda fóru þeir heldur að gæta sín í sókn. Sig- fús bætir við 8. marki Víkings af línu, og strax þar á eftir skor- ar Einar 6. mark Vals af línu. Og eru nú aðeins þrjár mínútur til leiksloka. Enn er Valsmanni vilcið af velli. Guðmundur skor- ar tvö mörk til • viðbótar fyrir Viking á sama tíma skorar Ólafur tvö fyrir Val. Staðan er 10:8 fyrir Víking og ein mínúta til leiksloka. Georg skorar 11. mark Víkings úr vítakasti. Leikn um lokið og sigur Víkings tryggð ur og þar með fer bikarinn aftur upp í Bústaðahverfi, þrátt fyrir góða tilraun Valsmanna að koma honum til geymslu í Hlíðarenda. Þetta var skemmtilegur leikur og nokkuð harður. Keppendur beggja liða fengu óspart áminn- ingar frá dómara, þó svo að þær kæmu öllu harðara niður á Vals- mönnum. Beztu menn voru hjá Víking þeir Guðmundur sem er örv- hentur og gengur vörnum lið- anna erfiðlega að átta sig á hon- um svo og Georg hinn eitilharði keppnismaður. Hjá Val voru þeir Geirharður, Ólafur og Sefán beztu menn. Víkingsliðið er vel að sigri þessum komið, og hefur það sýnt beztu leiki af öllum liðum III. flokks í vetur. Valsliðið hefur sótt sig gífurlega á frá því í haust, og var sannarlega gaman að horfa á leik þéirra nú sérstaklega í fyrri hálfleik. H. flokkur karla Fram — Víkingur 14:10 Til úrslita mættust í þessum flokki Fram og Víkingur, en lið þessi unnu sína riðla. Lið þessi Unglingalandsliðinu, Víkingur höfðu innanborðs fjóra drengi úr þrjá og Fram einn. Þetta var í byrjun nokkuð erfitt fyrir bæði lið því tauga- spennings gætti hjá þeim ekki síður en þriðja flokks strákun- um. Arnar byrjaði á því að skora fyrir mark leiksins fyrir Fram. Einar jafnaði mínútu síðar fyrir Víking. Kom nú heldur meira skipulag á sóknir liðanna. Jón (Nóni) skorar annað mark Fram með langskoti. Sigurbergur skor- ar fyrir Fram af línu, og Einar sendir á sömu mínútu þrumu- skot í mark Fram og er staðan nú orðin 3:2 Víkingarnir ná bolt anum litlu síðar og sækja nú ákaft á mark Fram, en eru ekki nógu gætnir og missa boltann í hendurnar á Sigurbergi sem ekki var lengi að notfæra sér aðstöðu sína og brunar upp völl- inn og skorar þar með fjórða mark Fram. Nú eru Iiðnar sex mínútur af leiknum. Víkingarnir taka sig nú til og skora á næstu tveim mínútum tvö mörk, annað af línu hitt úr vítakasti. Nú er orðið jafntefli 4:4. Færist nú mikið fjör í leikinn, og dreng- irnir hvattir óspart af sínum áhangendum. Sigurbergur brýst í gegnum vörn Víking og skorar af línu, og þar með er Fram komnir . yfir aftur, þetta er nú samt skammgóður vermir. Rúnar jafnar fyrir Víking með marki af línu. Enn er orðið jafntefli 5:5. Eftir eru fimm mínútur af hálfleiknum og Framarnir nota sér þær með tveim mörkum, á móti einu frá Víking, og staðan í hálfleik 7:6 Fram í vil. Fyrstu fjórar mínútur síðari hálfleiks urðu örlagaríkar fyrir Víking, því á þeim tíma skora Framarnir þrjú mörk án þess svo að Víking takist að skora, og eru Framarnir þar með komn ir með fjögurra marka forskot sem með góðum leik getur dug- að þeim til sigurs. Jón Hjalta- lín í Víking sér til þess að dreng- hnokkarnir sem markatöflunni stjórna þurfi að færa töluna 7 hjá Víking og sömuleiðis fer með töluna 8. Ekki þótti þetta víst nógu gott, því nafni hans í Fram lætur nú ekki við svo búið standa og læðir inn 11. marki Fram. Einar kemur Viking á blað aítur og skorar með föstu skoti 9. mark Víkings og er nú aðeins Orðinn tveggja marka munur og sjö mínútur eftir af leiknum. Það er ekki fyrr en á elleftu mínútu sem næsta mark kemur og er þar að verki hinn dugmikli linumaður þeirra Fram ara Pétur. Þar með eru Fram- ararnir komnir í þriggja marka mun aftur. Einar sendir boltann í netið hjá Fram strax á sömu mínútu, og var það síðasta orð þeirra Víkinga í þessum leik. Framarnir bæta við sig tveim mörkum, og dómari flautar leik- inn af. Þar með er sigúr Fram í móti þessu orðinn að veruleika, með markatölunni 14:10. Framliðið átti í þessum leik margar skemmtilegar sóknir, en vörn liðsins var aftur á móti frekar slöpp. Beztir voru þeir Arnar, Sigurbergur og Pétur. Víkingarnir voru nokkuð ákveðnir í leik sínum, en vörnin var eins og hjá Fram slöpp. Beztir af þeim voru Jón Hjalta- lín og Einar og þeir skoruðu jafnframt megnið af mörkum Víkings. Keppnin í þessum flokki karla hefur verið frekar jöfn, en ekkert lið átti frekar skilið að vinna mótið en Fram. n. flokkur kvenna Fram — Valur 9:6 f þessum flokki kvenna mættust til úrslita Fram og Valur. Eins og áður hefur verið sagt sigruðu lið þessi í riðlakeppninni. Fram- stúlkurnar hófu leikinn og þegar á fyrstu mínútu skoruðu þær mark. Og litlu síðar bættu þær við öðru markinu. Valsstúlkurn- ar urðu að vonum órólegar við þessa byrjun Framstúlknanna og misstu boltann í fljótfærnij ýmist út af eða til Framstúlkn- anna. Eftir þetta jafnaðist leik- urinn heldur og skoruðu bæði lið tvö mörk fyrir_ híé. Hafði Fram því yfir í hálfleik 4:2. í síðari hálfleik héldust sömu yfirburðir Fram og áttu þær ekki í neinum vandræðum með að komast í gegnum hina hrip- leku Valsvörn. Framstúlkurnar skoruðu fimm mörk til viðbótar meðan Valsstúlkurnar bættu við sig fjórum. Leiknum lauk eins og áður er sagt með sigri Fram 9:6. Ekki verður annað sagt að leik þessum loknum en að Fram- Framhald á bls. 11 Úrslit í körfubolta í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.