Morgunblaðið - 01.05.1966, Side 21

Morgunblaðið - 01.05.1966, Side 21
ffcmnudagur 1. maí 1966 MORGU NBLAÐIÐ 21 — Ræba Sveins Framhald aí bls. 13 mokkuð jafnt til ársins 1955 en Ihefur verið mjög stöðugt síðan og er nú nálægt 23.500 tonnið. í>essi verð eru miðuð við málm inn óunninn eins og hann kemur ctrá álbræðslunni, eða í því formi sem ráðgert er að ísal hafi leyfi itil að framleiða hann, hér á landi. Næsta framleiðslustig ál- vinnslu er að forma málminn á mismunandi hátt til þess að gera hann hæfan, til smíða, eða fram- leiða úr honum fullunna vöru. Eins og fram kemur í 11. gr. eamningsins við Alusuiesse þá takmarkast rekstur ísals við ál- bræðsluna eina og hefur félagið ekki leyfi til að takast á hendur vinnslu úr áli né nokkra aðra etarfsemi, nema sérstaklega sé um það samið. Ef um frekari vinnslu málms- ins yrði að ræða hér á landi, þá gæti alveg eins farið svo, að það yrði í höndum íslendinga eða að eamstarf tækist við hið svissneska íélag, Alusuiesse. í 37. gr. samningsins eru mik- ilsverð ákvæði svohljóðandi: Alusuisse og ísal eru reiðu- búin, til að aðstoða íslenzka iðn- aðaraðilja, við þróun úrvinnslu úr áli á íslandi, með því að, ieggja fram tæknikunnáttu og aðstoð og með fjárhagslegri þátt- töku í slíkum framkvæmdum. Þarna er beinlínis gert ráð fyrir, að til frekari vinnslu geti komið sér á landi. Það sem hér kæmi aðallega til greina, er ný aðferð til völsunar á plötum, en slík verksmiðja af iminnstu gerð er talin kosta 50 rnillj. kr. Einnig má, ætla að til greina kæmi verksmiðja sem formaði allskonar smíðastengur, profila. Er talið að slík verksmiðja sem afkastaði 2000 tonnum á ári myndi kosta 100 millj. kr. og þyrfti 70 manna starfslið. Ef það reyndist mögulegt fyr- ir íslendinga að koma upp slík- um fyrirtækjum til úrvinnslu á þessum þýðingarmikla málmi þá «ná segja, að við í þessum efnum stæðum jafnfætis mörgum beztu iðnaðarþjóðum álfunnar. Er ekki að efa að þetta yrði hin mesta lyftistöng, fyrir íslenzk •n málmiðnað. Það er heldur ekki að efa, að þjóð sem á málm í landi sínu og hefur tök á að ntýa hann, eins og ég nú hef drepið á, hún hefur margfallt betri möguleika, til að tileinka sér nútíma tækni á mörg «m sviðum og á þann veg bæta lífsafkomu þjóðarinnar. Fátækt okkar lands, af málm- tim í jörðu, hafa haldið íslenzku þjóðinni í fátækt, ekki síður en ánauð erlendra ríkja. ' Bafmagnsmálin Áður en ég skil við rafmagns- málin, vil ég svo að lokum benda á til viðbótar. 1. Tekjurnar af álbræðslunni eru í dollurum og nægja til þess að standa undir öllum erlendum lánum. íslendingar fá því hina miklu orku, sem Búrfellsvirkjun framleiðir til almenningsþarfa án ábyrgða vegna lána í erlendum gjald- eyri. Tekjur Búrfellsvirkjun- ar eru verðtryggðar. 2. Samningurinn greiðir stór- lega fyrir lántökum til virkj- unarinnar samtímis því, sem Alusuisse tekur að verulegu leyti áhættuna af hinum er- lendu lánum sem aftur þýðir, að lánstraust íslenzka ríkisins er í rauninni ekki notað. Af I því leiðir að hægt er að taka meiri erlend lán til annarra þarfa, en ef ráðizt væri í Búr- fellsvirkjun án álbræðslu. 3. Eftir 25 ár eru lán Búrfells- virkjunar að fullu greidd. Eftir þann tíma fást árlega um 100 millj. kr. netto-tekjur frá álbræðslunni í gjaldeyri. Mengun 12. gr. aðalsamnings fjallar um tjón sem kynni að hljótast af gastegundum og reyk frá bræðsl unni. Ekki er gert ráð fyrir að þörf sé á sérstökum hreinsun- artækjum hér á landi, vegna vindasamrar veðráttu. Þó gerir 12. gr. samningsins ráð fyrir að fsal sé skylt að hafa hemil á og draga úr skaðlegum áhrifum af rekstri bræðslunnar í samræmi við góðar venjur í iðnaði annars staðar. Ef tjón yrði af þessum sökum á eignum eða hagsmunum manna þá ber ísal fulla ábyrgð og skal bæta tjón að fullu. Einnig ber ís- al í samvinnu við íslenzka rann- sóknarstofnun að framkvæma reglulegar athuganir á mengun í nágrenni bræðslunnar. ísal greiðir þessar rannsóknir. Á bls. 217 í samningnum er afskrift af skýrslu sem Rann- sóknarstofnun iðnaðarins hefur gert varðandi athugun á þessu atriði, sem fram fór á vegum stofnunarinnar að beiðni hæst- virts iðnaðarmálaráðherra. Þessi skýrsla hefur verið nokk- uð véfengd í umræðunum hér á hæstvirtu Alþingi. En eins og segir í niðurlagi skýrslunnar, með leyfi hæstvirts forseta. „Aðstæður til rannsókna voru engar hér á landi og varð að styðjast við reynslu og aðstæð- ur, er fyrir voru í Noregi og Ameríku. Landfræðilegar og veð urfræðilegar aðstæður eru þar öllu óhagstæðari en hér og átti það eitt að tryggja að hættu- mörkin eru sennilega mun þrengri. Það er góð regla að fullyrða ekki meira en maður getur staðið við og sú regla virðist viðhöfð hér. En það er líka annar aðili sem hefir úttalað sig um hættu á mengun frá álbræðslunni. Stein- grímur Hermannsson, verkfræð- ingur, forstjóri Rannsóknarráðs ríkisins hefir farið margar ferðir utan og kynnt sér þessi mál öllu foetur en flestir aðrir. .1 skýrslu St. Hermannssonar dags. 15. nóv. 1965 segir svo um þetta atriði. „Niðurstaða mín er sú, að ekki sé nauðsynlegt að krefjast hreins unarbækja í bræðslunni til að byrja með, en hinsvegar sjálfsagt að eiga kost á slíku ef um tjón er að ræða. Jafnframt legg ég áherzlu á, að Svisslendingar verði látnir greiða kostnað við að taka reglulegar prufur svipað og Norðmenn hafa gert og séu til þess valdir sérfræðingar eða rannsóknarstofnun“. Hér í þessari samningagerð hefir því verið farið nákvæmlega eftir tillögum Steingríms Her- mannssonar. í beinu framhaldi af iþessu má nefna að 13. gr. samnings kveður á um, að ísal skuli háð öllum öryggis- og heilbrigðisreglum sem gilda, eða sem síðar yrðu lögfestar á íslandi, gildir þetta jafnt fyrir öryggi við atvinnu- reksturinn, heilbrigði og hrein- læti. Höfnin í Straumsvík og hf. Samkvæmt hafnar- og lóðar- samningi sem fylgir aðalsamn- ingnum er ger t ráð fyrir að foræðslulóðin við Straumsvík verði 37 ha., en ekki verði þó ráðstafað nærliggjandi svæði þó án skuldbindingar. Gengið er út frá, að Hafnar- fjarðarkaupstaður byggi höfnina, en ísla endurgreiði allan bygg- ingakostnaðinn ásamt vöxtum á 25 árum. Til þessara hafnarfram- kvæmda veitir ríkið því engan styrk eða framlag, en samkvæmt lögum nr. 29 frá 1946 þá greiðir ríkissjóður 40% af kostnaði ann- arra hafnarmannvirkja. Höfnin í Straumsvík verður al- gjörlega undir stjórn Hafnar- fjarðarhafnar og verður til af- nota fyrir aðra en Isal, enda skal álfélagið tilkynna með minnst 5 daga fyrirvara um skipakomur á 'þeirra vegum. Eftir að höfnin í Straumsvík er að fullu greidd af ísal ásamt vöxtum á 25 ára tíma, þá hefst greiðsla, sem skal ákvarðast sem vörugjald miðað við flutning um höfnina, eða 0,1% af álverði mið- að við 60.000 tonna framleiðslu. Nemur þetta fyrir Hafnarfjarðar- höfn 1,3 millj. króna, en bæði þetta gjald og eins uppgreiðsla byggingarkostnaðar hafnarinnar á 25 ára tímafoilinu, greiðist í dollurum og má því segja full- komlega verðtryggt. Auk þessara hafnargjalda þá skal Hafnarfjarðarfoær fá greitt frá ísal 1,5 millj. kr. í byggingar- leyfisgjald og 3,5 millj. kr. í gatnagerðargjald. Samkvæmt lagafrumvarpi sem nú liggur fyrir hv. Allþingi þá skal ráðstafa framleiðslugjaldi álforæðslunnar svo að Hafnar- fjarðarkaupstaður fái í sinn hlut V.i hluta fyrstu 9 árin, en % hluta eftir þann tíma. Hér eru því um veruleg hlunn- indi og greiðslur að ræða til þessa foæjarfélags og er þess að vænta að það verði bænum mikil lyftistöng. Hv. 5. þingmaður Reykjanes- kjördæmis las fyrir þessari hv. þingdeild við 1. umræður máls- ins, úr fornum ritum þegar forezkir togaraútegrðarmenn sett- Sl. miðvikudag mælti Jónas Pétursson fyrir þingsályktunar- tillögu er hann flutti ásamt þrem öðrum þingmönnum. Fjallar til- lagan um að lögum um almanna- varnir verði breytt og þau gerð víðtækari. Hér á eftir er nokkuð rakin framsöguræða Jónasar í málinu: Meigintilgangur laga um al- mannavarnir frá 1962 var að skapa viðbúnað gegn hernaðar- hættu. Þó var í 1. grein þeirra laga gert ráð fyrir víðtækara verks-viði og um það fjallar þessi tillaga. Til nátt- úruhamfara heyrðu jarð skjáJlftar, eld- gos og hafís. Væri það um hafísinn að segja að viðráðanlegast virtist að hafa viðfoúnað til að mæta hættum hans. Þar væri um að ræða birgðasöfnun á lífsnauðsynjum fólksins fyrst og fremst. Áhrif hafíss væru m.a. lík umsáturs- hers, hann lokaði samgönguleið- um á sjó og ef til vill lokaðist landleiðin líka. Það væri fyrir- fram vitað, hvaða landsvæði væru í mestri hættu af hafbönn- um hafíssins, og auk þess hætta einnig fyrst og fremst bundin við vissan árstíma. Öðru máli gegndi hinsvegar um eldgos og jarðskjálfta. Framsögumaður kvaðst ekki vilja draga úr gildi almannavarna vegna hernaðarhættu, en sér virtist skynsamlegt að getfa meiri gaum en áður hættum náttúru- hamfaranna og skipa vörnium gegn þeim í nokkurt kerfi í lög- gjafinni sjálfri. Gera t.d. við búnað gegn hafíshættunni að föistum árlegum lið í starfi al- mannavama. í greinargerð tii- lögunnar væri bent sérstaklega á olíuna, sem líf fólksins væri orðið svo háð. Segja mætti, að Riffli og hagla- byssu stolið AÐFARANÓTT laugardags var brotizt inn í sportvöruverzlun Búa Petersens að Bankastræti 4. Stolið var Remington hagla- byssu, cal. 12, magnum, svo og Sako-riffli, cal. 222, veiðihjóli og prímusi. Aðfaranótt laugardags var einnig brotizt inn í hjá A. Jóhannssyni & Smith, Brautar- holti 4. Þar var tekin rúða úr glugga og farið þar inn. Innforotsþjófurinn leitaði í skúffum og öðrum hirzlum, en fann ekkert sem hann girntist. ust að í Hafnarfirði á fyrstu ár- um þessarar aldar. Þetta var að vísu fróðlegur lestur, en þó hefði ekki skaðað, að með hefði fylgt nokkur lesning um íslenzka tog- araútgerð frá Hafnarfirði nú sein ustu árin. Sannleikur málsins er sá, að það er fáum bæjarfélögum meiri þörf en Hafnarfirði nú, að fá iþróttmikinn atvinnuveg, sem veitt gæti fólkinu stöðuga at- vinnu til framfoúðar, veitt fjár- magni af rekstrinum inn í foæjar- kassann og orðið til iþess að styðja að öðrum atvinnugreinum í foænum. Ekki er ólíklegt, að hluti þeirra 450 manna sem koma til að starfa við álforæðsluna þegar hún er fullbyggð, hafi aðsetur í Hafnar- tfirði og nágrenni. Þetta orsakar einmitt það, að meira framboð matvörufoirgðir ættu að vera númer eitt í öryggismálum. Þess bæri þó að gæta að nú orðið væri auðveldara að bæta úr matvœla- skorti eftir ýmsum leiðum, auk þess, sem varúð i þeim efnum væru íslendingum ennþá frem- ur í blóð borin. En magn olíu væri svo mikið, að þvi fylgdi a.m.k. mikill kostnðarauki, ef ekki væri hægt að fullnægja olíuþörfinni með eðlilegum leið um . Jónas sagði, að ef til vill gæti sumum virst, að með tillögu þess ari væri ætlast til ráðstatfana, sem gætu valdið ríkissjóði veru- legum nýjum útgjöldum. Slíkt vekti þó ekki fyrir flutnings- mönnum tillögunnar. Enginn vafi væri á, að með heildarytfirsýn um birgðastöðvar fyrir olíu mætti koma þeim málum fyrir á hagkvæmari hátt en nú væri. Samvinna þeirra sem verzLuðu með olíu og forstöðu almanna- varna væri nauðsynleg, sjálfsögð og eðlileg. Þar kæmi til beint hagsmunaatriði auk öryggis fyrir alla aðila. Þá væri samráð við sveitastjórnir sjáltfsagt í þessum efnum. Jónas sagði það skoðun sína að hér væri um að ræða þátt í tryggingarkerfi. Þjóðfélagið væri nú að þróast til meiri félags- hyggju og öryggið væri að verða einkenni nútímans. Það væri vandi löggjafans að þræða hinn rétta meðalveg í þessum efnum. Verkanir skynsamlegra lagafyr- irmæla og framkvæmda í anda þeirra til öryggis gegn hættum, t.d. etf hafís mundi fremur verka til örfunar á sjálfsbjargarvið- leitni í þeim byggðarlögum sem byggju við hafísahættuna. Að- eins sá andi sem lýsti sér á Al- þingi við setningu löggjafar, sem styddi viðbúnað gegn þessari vá og öðrum hefði jákvæð áhritf á fólkið. Aðrar náttúruhamfarir en nefndar hefðu verið kæmu einn ig til greina. Þanni'g mætti t.d. nefna fannfergi sem lokaði veg um og öllum venjulegum bílum. Kæmu þá til snjóbílar, sem væri nú víðast í eigu héraðanna sjáltfra eða einstaklinga. Vel gæti þó komið til mála að nokkur við búnaður kæmi til af hálfu hins opinbera í þessum efnum. Sem opinfoeran aðila mætti t.d. benda á vegagerð ríkisins. Til hennar væru gerðar sífelldar kröfur um snjómokstur. Það væri spurning hvort ekki kæmi til mála að eðlilegra væri að vegagerðin ræki snjófoíl. Þá mætti einnig nefna til nýtt samgöngutæki, þyrl una. Kvaðst framsögumaður hafa rætt við forstjóra landhelg isgæzlunnar um gildi þyrlunnar sem öryggistækis t.d. við sam- verði í Hafnarfirði á vinnu- krafti kvenna og unglinga en nú er. Ganga má út frá því að tals- vert af fjölskyldumeðlimum ál- bræðslumanna sækist eftir at- vinnu utan heimilis og þá að sjálfsögðu fyrst og fremst í Hafn arfirði. Mér hefur einmitt skilizt að þörf væri fyrir aukið vinnu- afl í Hafnarfirði til léttari starfa. Væntanlega á niðursuðuverk- smiðjan Norðurstjarnan eftir að hefja aftur vinnslu og tekur hún þá til sín 60—80 konur. í Hafnarfirði er eina raftækja- verksmiðja landsins, sem þarfn- ast mjög fólks til léttari starfa, svo má nefna frystihúsin og margskonar iðnað sem þar er staðsettur. Mín spá er því sú, að það verði ekki sízt öðrum at- vinnufyrirtækjum í Hafnarfirði og nágrenni til góðs að £á ál- bræðsluna til sín. \ gönguerfiðleika atf fannfergi eða öðrum ástæðum og hefði hann haft mikla trú á að þær gætu leyst úr vanda í þeim efnum, sem örðugt væri á annan hátt. Þetta væri atriði sem einnig þyrfti að rannsaka við endurskoðun lag- anna. Að lokum vék Jónas að hjálpar sveitum. Þær hefðu verið stofn- aðar á nokkrum stöðum. Væru þær skipaðar áhugamönnum og veittu oft ómetanlegt gagn. Þær þyrftu að vera sem víðast og væri nokkur þjáltfun þeirra nauð synleg svo og að þær hefðu nokkum útbúnað. Kæmi vel til greina að tengja starfsemi þess- ara sveita við almannavarnir og því bentu flutningsmenn til lögunnar á að þetta atriði yrði einnig tekið til athugunar við endurskoðun laga um almanna- varnir. - Úr öllum áftum Framhald af bls. 5 vestra að æskilegt þykir að tilflutningur á hráefni og vöru fari fram lóðrétt milli hæða en sem minnst lárétt. Starfsmenn Ieeland Prod- ucts eru 50 talsins, þar af 4 íslendingar. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins er Sverr- ir H. Magnússon, framleiðslu- stjóri er Mr. W. Bramibring, sölustjórar eru Þórir Grönd- al og Robert Kennedy.“ f ræðu, sem Erlendur Ein- arsson, forstjóri SÍS, flutti við vígslu verksmiðjunnar sagði hann m.a.: „Þótt sjávarafurðir séu að- eins einn af mörgum þáttum í sölustarfsemi SfS, hafa þær orðið mikilvægari með hverju ári. Sjávarafurðadeild okkar seldi fiskafurðir á sl. ári fyrir 20 milljónir dollara (860 millj. kr.) til ýmissa landa og var stærsta deild Sambandsins“. „Þegar við íhugum, að fisk- veiðar og fiskverkun er aðal- atvinnuvegurinn á Íslandi, þá er það skiljanlegt, hvers vegna við, sem komnir eru frá íslandi, erum svo ánægðir að sjá þessa nýju verksmiðju, þar sem aukið magn íslenzks fisks verður notað til fram- leiðslunnar og p>akkað til sölu á hinum stóra bandaríska markaði“. „Er ég hef tekið á móti lyklum þessarar nýju bygg- ingar, aðalstöðva Iceland Products og Iceland Food Terminal, er það mér mikil ánægja að flytja öllum þeim þakkir, sem hafa hjálpað okkur til að hrinda málinu í framkvæmd. Við erum sann- arlega þakklátir fyrir hinn ríka skilning og þá aðstoð sem við höfum hlotið frá mörgum mönnum og stofn- unum“ Lög um almannavarnir verii gerð víðtækari — ÞingsálYktunartillaga frá Jónasi Péturssyni og fleirum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.