Morgunblaðið - 05.05.1966, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 05.05.1966, Qupperneq 23
Ytmmtudagur 5. maí 1966 MORGUNBLAÐID 23 Ályktanir ÁRSÞING iðrírekenda 1966 vísar til þess veigamikla hlutverks, sem íslenzkur iðnaður gegnir í þjóðarbúskapnum. í sókn þjóð- arinnar til bættra lífskjara og með ört vaxandi íbúafjölda mun þýðing hans fara enn vaxandi. Ber því að treysta þann grund- völl, sem þegar hefur verið lagð- ur, og tryggja . þannig atvinnu- öryggi og batnandi lífskjör allra landsmanna. Með tilliti til þessa vill árs- þing iðnrekenda 1966 beina at- hygli ríkisstjórnarinnar, Alþingis og allra landsmanna að eftir- farandi: Með þeirri stefnu ríkisstjórn- arinnar, sem mörkuð hefur ver- ið, þ.e. lækkun tolla og aukið frelsi utanríkisviðskipta, telur ársþingið ástæðu til að ítreka fyrri samþykktir um að fram- kvæmd þeirrar stefnu fari ein- ungis fram eftir fyrirfram gerð- um áaetlunum og á eigi skemrori tíma en 10 árum, þó þannig, að tollur á hráefnum verði lækkað- ur a.m.k. einu þrepi á undan fullunnum vörum. Verði áætlanir miðaðar við að gera ljóst hver þróunin verði, þannig að framleiðendur fái tíma og aðstæður til að beina kröftum sínum og fjármagni að þeim rekstri, sem útlit er fyrir að hag kvæmastur sé miðað við hinar breyttu aðstæður. Ársþingiíj telur það ófrávíkj- anlegt skilyrði af hálfu iðnaðar- ins, að jafnframt því, sem slíkar áætlanir verða lagðar fram, verði um leið lagðar fram áætlanir um markvissar ráðstafanir til þess að auðvelda iðnaðinum aðlögun að hinum breyttu aðstæðum. Árs- þingið vekur þá jafnframt at- hygli á því, að þær ráðstafanir eru engu að síður tímabærar þótt tollalækkanir komi ekki til fram kvæmda á næstunni. Þær ráð- stafanir, sem ársþingið leggur einna mesta áherziu á í þessu sambandi eru: tJM ÞESSAR mundir er blóma- eýning í Mokkakaffi við Skóla- vörðustig. Myndirnar, sem eru þurrkuð íslenzk blóm, sett mjög Bmekklega upp undir gler, svo og nokkrar olíumyndir, eru eftir Sigríði Oddsdóttur, sem er frá Stóra-Laugardal vestur í Tálkna firði. Nokkrar myndanna eru seldar. Þær verða til sýnis í Mokka a.tn.k. út þessa viku alla. ársþings iðnrekenda 1. Að stofnlán iðnaðarins verði aukin. Fagnar ársþingið í því sambandi lögum sem sam- þykkt hafa verið um eflingu Iðnlánasjóðs og beinir þeim til- mælum til ríkisstjórnar og vænt anlegrar stjórnar Framkvæmda- sjóðs íslands, að Iðnlánasjóði verði gert kleift að nýta þær lán- tökuheimilidir, sem honum eru veittar. 2. Að eigi dragist lengur að settar verði og framkvæmdar á- kveðnar reglur um endurkaup Seðlabankans á iðnaðarvíxlum. 3. Að iðnaðurinn verði Xát- inn njóta sömu vaxtarkjara um fjárfestingarlán og reksturslán, sem landbúnaðar og sjávarút- vegur hafa. 4. Að lækkaðir verði nú þegar tollar af iðnaðarvélum í 1S%, og á allan hátt að því unnið, að fjárfestingarkostnaður iðnaðar- ins verði eigi hærri en sambæri- legt er hjá erlendum fyrirtækj- um, er íslenzkur iðnaður á við að keppa. 5. Að iðnaðinum verði ekki íþyngt með sköttum og launa- greiðslum, sem byggjast á verð- uppbótum annarra atvinnuvsga. 6. Að auka hagnýtar rann- sóknir í þágu iðnaðarins og fagnar ársþingið í því sambandi lögum um starfsemi Rannsókn- arstofnunar iðnaðarins. 7. Að afnumin verði nú þegar opinber afskipti um verðlags- ákvarðanir íslenzks iðnvarnings. 8. Að þeim iðnfyrirtækjum, sem leita þurfa sérfræðilegrar að stoðar, verði gert það kleift með því að veittur verði sérstakur opinber stuðningur til viðkom- andi stofnana til þess að standa straum af þeim kostnaði, sem Kosningaskrjfstoíur SjálfstæðisflokksZns SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofur utan Reykjavikur á eftirtöldum stöðum: AKRANESI Vesturgötu 47, sími: 2240 opin kl. 10—12 og 14—22. ÍSAFIRÐI S jálfstæðishúsinu II. hæð, sími 537 og 232 opin kl. 10—19. SAUÐÁRKRÓKI Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18. SIGLUFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, sími 71154 opin kl. 13—19. AKUREYRI Hafnarstræti 101, sími 11578 opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22. VESTMANNAEYJUM Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, sími 2233 opin kl. 10—22. SELFOSSI Hafnartúni, sími 291 opin kl. 9—17 og 19,30—21. KEFLAVIK Sjálfstæðishúsinu, simi 2021 opin kl. 10—19. HAFNARFIRÐI Sjálfstæðishúsinu, simi 50228 opin kl. 9—22. GARÐAIIREPPI Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341 opin kl. 15—18 og 20—22, laugardaga og sunnudaga kl. 14—18. KÓPAVOGI Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708 opin kl. 9—22. slíkar leiðbeiningar hafa í för með sér. 7. Að kannað verði hvort auk ið samstarf fyrirtækja í skyldum greinum eða samruni geti leitt til aukinnar samkeppnishæfni og sé svo talið verði gerðar ráð- stafanir til að örva slíkt. Jafn- framt varar ársþingið við, að stofnaðar verði nýjar verksmiðj- ur í þeim greinum, sem nú eru búnar nægum vélakosti. 10. Að lögð verði aukin á- herzla á könnun markaða fyrir íslenzkar iðnaðarvörur erlend- is og einkaaðilum veitt hæfileg aðstoð í því sambandi. 11. Að efld verði hagræð- ing- og ráðunautastarfsemi á vegum samtaka iðnaðarins til samræmis við aðra atvinnuvegi þjóðarinnar. 12. Að neytt verði allra ráða til stöðvunar þeirrar verðbólgu sem rí'kt hefur á þriðja áratug og torveldað rekstur og upp- byggingu iðnfyrirtækja. Heilbrigð þróun i(5naðarins verður ekki tryggð nema fullur skilningur ríkisvalds og allra landsmanna sé fyrir hendi. Árs- þing iðnrekenda felur því stjóm Félags íslenzkra iðnrekenda að standa hvarvetna vel á verði um hagsmunamál iðnaðarins - og fylgja þeim málefnum, sem hér hefur verið drepið á, fast eftir við viðkomandi aðila. er að linni ENN er Bændahöllin og Hótel Saga á dagskrá og enn sýnist sitt hverjum. Við nýjar umræður rifjast upp það, sem áður er skeð og því við- eigandi að málið sé stuttlega rakið frá upphafi. Árið 1952 var öllum hreppa- búnaðarfélögum á landinu, sent erindi frá B. í. þar sem farið er fram á að samþykkt verði hækk- un • á svokölluðu búnaðarmála- sjóðsgjaldi, úr %% í %% og rynni hækkunin í húsbyggingar- sjóð B. í. Ekki er mér kunnugt að beiðni þessi hafi sætt nokkr- um andmælum enda þörfin brýn, að bæta húsakost félagsins, bæði sökum þrengsla og brunahættu. Var máli þessu því mjög vel tek- ið þar sem ég þekkti til. En Adam var ekki lengi i Paradís. Hvort forráðamenn B.I. hafa etið af skilningstré góðs og ills og séð að án hótels væru þeir naktir (andlega?) eða hvað hefir komið til, er mér ekki ljóst en að fáum árum liðnum, er nýrri hækkun búnaðarmálasjóðs- gjalds, varpað inn á búnaðar- þing og hún keyrð þar í gegn, og einnig á Alþingi nú eru þeir, sem borga eiga brúsann — bænd- ur og búalið ekki aðspurðir þótt hækkað sé í 1%, enda á nú að byggja stórhótel og skrifstofuhöll fyrir fleiri en Búnaðarfélagið sjálft. Gjaldið er lögfest og byggingin rís. Vert er að skjóta því hér inn, að í ræðu, sem formaður B. í. flutti í risgjöldum hallarinnar, þakkaði hann bændum innvirðu- lega fyrir fórnarlund þá er þeir hefðu sýnt með fjárframlögum sínum. Mjög minnir þessi háttvísi Þor- steins á Vatnsleysu (því ekki Vitleysu?) á stigamann, sem rænt hefir fróman ferðalang Hóf Nemendasa Verzlunarskóla NEMENDASAMBAND Verzl- unarskóla íslands hélt sitt árlega j hóf að Hótel Sögu 29. apríl s.l. j Var samkvæmi þetta í senn ! glæsilegt og fjölmennt. Veizlu- stjóri var Sigurbjörn Þorbjörns- son, ríkisskattstjóri, formaður Nemendasambands Verzlunar- skóla íslands. Sérstakur heiðursgestur að þessu sinni var Sigurður Guð- jónsson ,kennari, er Nemenda- sambandið vildi heiðra á þennan hátt af því tilefni, að hann er nú að láta af störfum við skólann fyrir aldurs sakir. Aðrir gestir Nemendasambandsins að þessu sinni voru form. Verzlunarráðs íslands, Magnús J. Brynjólfsson og frú, fyrrv. skólastjóri, Vil- hjálmur Þ. Gíslason og frú, for- maður skólanefndar, Gunnar Ásgeirsson stórkaupmaður og frú, Jón Gíslason, skólastjóri, o.fl. Sigurbjörn Þorbjörnsson setti hófið og stjórnaði því. Undir borðum voru margar ræður fluttar. Kvöddu sér hljóðs fulltrúar hinna ýmsu afmælis- árganga hver af öðrum: J'ón Árni Björnsson fyrir 50 ára, Óttar Möller fyrir 30 ára, Sigurður Njálsson fyrir 25 ára, Jón Rafn Guðmundsson fyrir 20 ára, Guð- mundur Gíslason fyrir 15 ára, Ólafur Bjarki Ragnarsson fyrir 10 ára og Finnbogi Örn Jónsson fyrir 5 ára. Fóru ræðumenn viður kenningarorðum um starf skól- ans og kunnu honum þakkir fyr ir gott veganesti. Allir þessir ár- gangar færðu skólanum einnig ágætar gjafir, nytsöm kennslu- tæki, listaverk eða peninga. Vilhjálmur Þ. Gíslason flutti skemmtilega ræðu um hin fjöl- mörgu verkefni er gamlir nem- endur hefðu tekið sér fyrir hend ur á ýmsum sviðum. Þá fór hann einnig hlýjum viðurkenningar- orðum um starf Sigurðar Guð- jónssonar við skólann. Þá tilkynnti Sigurbjörn Þor- björnsson að Nemendasamband Verzlunarskóla íslands hefði á- kveðið að sæma Sigurð Guðjóns son gjöf í þakklætisskyni fyrir mbands ÆT Islands langt og heilladrjúgt kennslu starf. Er Sigurður hatfði veitt gjöfinni viðtöku, silfurskríni á' letruðu, flutti hann ræðu og þakkaði þennan fagra vott rækt- arsemi og vináttu. Gunnar Ásgeirsson, stórkaup- maður, nýkjörinn formaður skóia nefndar, skýrði frá ýmsum fram tíðaráætlunum í sambandi við skólann og fræðslustarf hans. Að lokum talaði skólastjóri, dr. Jón Gíslason. Þakkaði hann í nafni skólans fyrir alla heima miklu vinsemd og hollustu, er gamlir ríemendur hefðu sýnt Verzlunarskólanum bæði fyrr og síðar. Þá náði hátíðin hámarki, er hinir nýútskrifuðu verzlunar- prófsmenn gengu fylktu iiði í salinn. Ávarpaði þá með ræðu Njáll Símonarson, framkvæmda- stjóri. Síðan var dans stiginn fram eftir nóttu af miklu fjöri. Voru allir sammála um að samkvæmi þetta hefði tekizt með ágætum. farareyri sínum. Hneigir sig svo að loknu afreki og færir þakkir. Mikil kurteisi það. Árið 1952 er svo liðið það tíma- bil sem umrætt gjald var lögfest. Enn er lagt í nýjan róður og hvítur fáni sakleysisins dreginn að hún. Því er lofað hátíðlega að eigi verði oftar vegið í þennan knérunn. Enn er gjaldið lögfest og enn verða bændur að borga milljónir á ári um fjögurra ára skeið. Sumir hugsa sitt í kyrhþey, en hinar trúuðu sálir grunar ekkert — Loforðin hljóta að standa. Árin líða og í ljós kemur að hótelið ber sig illa. Vitur maður er sæti á, á búnaðarþingi, ber þar fram tillögu, um sölu á þeim hluta hallarinnar sem hótelið nýtir. Hún er svæfð í nefnd og kemur ekki til atkvæða, en hún hefir sín áhrif samt. Menn taka að hugsa og ræða málið á ný, og einn skeleggasti málsvari bænda, Sveinn á Egilsstöðum, skrifar um það í blöðin. Hann sýnir fram á, með ljósum rökum, hve óþarft það var fyrir bændur, að róta sér inn i hótelbyggingu í Reykjavík og þó einkum hótel- rekstur. Leggur hann til að fjár- söfnun verði hafin meðal hinna skattelskandi velunnara hótelsins og dugi það ekki. leggi Reykja- víkurbær og ríkið fram það, sem á vantar, sökum hagsmuna þeirra er þau hafa að gæta. Að lokum leggur hann til, dugi ekki áður- greind rað, að leitazt verði við að selja hótelið ásamt innbúi og áhöldum. Lítið er mér um styrkjaleiðina. Tel að þegar sé nóg af eftirtöld- um styrkjum. Auðsýnt virðist því að selja hótelið, sé það unnt, og losa bændur þannig við hít þá, er gleypir fjármuni þeirra. Annað betra er með þá að gera. Enn er sagan ekki öll. Nú er komin á kreik í hinu háa Allþingi okkar sama Skottan, sem þar hefir skotið upp kollinum á fjög- urra ára fresti. Frumvarp, út- ungað af meiri hluta búnaðar- þings, um nýja framlengingu búnaðarmálasjóðsgjalds. Fjögur ár enn skulu bændur bonga í höllina, varla minna en 12 millj. kr. árlega. Öljóst er hvort Alþingi ber gæfu ti-1, eða, hefir getu að kveða afturgönguna niður, má vera að tími kraftaskáldanna sé liðinn. Fari svo, sem líklegt má telja, heldur skollaleikurinn áfram og enginn veit nær enda tekur. „Án er ills gengi nema heiman hafi“ og má það vel heimfærast upp á allt þetta Bændahallar- brask. F ramálið bændasamtakanna hefir frá upyhafi vega haft for- ustuna og ber því ábyrgðina (sé hún-einhver til). Það bjó upp á lestina, áður en lagt var á Ódáðahraunið. Öðru- megin var látið loforð og gylling, hinurr.egin vanefndir og fjárlát. Ofanímilli er svo stungið smá- skjöttum af smjaðri til bragð- bætis. Er ekki mál að linni, þögn og þolinmæði bænda gagnvart nlík- um ferðabúnaði og forustuliði? Leysingjastöðum síðasta vetrardag Halldór IwKann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.