Morgunblaðið - 17.05.1966, Síða 4
4
MORGU N BLADIÐ
Þriðjudagur 17. maí 1966
Bí LALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bíloleignn
Ing-ólfsstrætí 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
SAHÐARÁRSTÍG 31
SlMl 22022
Volkswagen 1965 og ’66.
BIFREIÐALEIGAItt
VECFERD
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
FjOLVIRKAR SKURÐGRdFUR
I
Ö /*
I ÁVALT TIL REIGU.
Sími: 40450
Magnús Thorlacius
hæstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.
ION EVSXllINSSON
lögíræðingur
Laugavegi 11. — Sími 21516.
BOSCH
Þurrkumótorar
x
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9. — Sími 38820.
■Jt Útlendingar
í vinnu
í framhaldi af bréfi
Grikkja eins, sem birtist hér í
dálkunum fyrir helgi og fjall-
aði að mestu um atvinnuleyfi
hér á landi, hefur Velvakandi
fengið þá vitneskju, að vinnu-
veitendum er óheimilt að ráða
útlendinga til starfa hjá sér
hafi hinir síðarnefndu ekki
fengið atvinnuleyfi hjá stjórn-
arvöldunum.
Vinnuveitendum er því bent
á að hafi þeir hug á að ráða
útlendinga í þjónustu sína ber
þeim að krefja hina erlendu
um atvinnuleyfi áður en ráðn-
ingin fer fram. Svo mæla lands
ins lög fyrir — og það er vinnu
veitandinn, sem er ábyrgur fyr
ir að farið sé að lögum, var okk
ur tjáð.
★ Sjómannadagurinn
Veðrið hefði getað verið
betra á sjómannadaginn. Samt
var það ekki afleitt og fleiri
hefðu sjálfsagt fylgzt með há-
tíðahöldum dagsins, e< ekki
væri sömu sögu að segja um
sjómannadaginn og flesta aðra
hátíðisdaga okkar — þar með-
talda þjóðhátiðina: Ár eftir ár,
einn áratug af öðrum, eru þessi
hátíðahöld nákvæmlega eins
að formi. Nú orðið er það svo
margt, sem dregur hugann —
já, margt nýstárlegt, að ekki
er hægt að búast við því að
fólk hafi beinlínis brennandi
á'huga á þessum sömu gömlu
dagskráratriðum.
Verið retur, að margt skyn-
samlegt og fróðlegt hafi komið
fram í ræðum dagsins. En þær
einar nægja ekki til þess að
laða fólkið að.
■Jr Umferðarstöð
Jón Helgason við Skóla-
vörðustíg skrifar:
„Hvers vegna endilega Um-
ferðarmiðstöð? Af hverju er
ekki nóg að kalla fyrirtækið
Umf erðarstöð? “
Fuglaskoðun
1 gær hringdi kona nokk-
ur, sem farið hafði með Fugla-
verndunarfélaginu í skoðunar-
ferð um Suðurnes um helgina.
Var bún það ánægð með ferð-
ina, að hún átti engin orð til
að lýsa henni, sagði hún. Það
var Árni Waag, þekktur áhuga-
maður um fugla og allt þar að
lútandi, var leiðsögumaður.
Hófst ferðin kl. 9 að morgni og
komið var í bæinn aftur kl. 8
að kveldi. Voru ferðalangarn-
ir 30 talsins, höfðu með sér
nesti, en greiddu kr. 250,— fyr-
ir ferðina (fullorðnir). Ungling
ar greiddu helmingi minna.
Vildi konan þakka Fugla-
verndunarfélaginu fyrir mjög
ánægjulega og fróðlega ferð og
kvaðst vona, að slíkum skoð-
unarferðum yrði haldið áfram.
„Ég varð einkar ánægð að sjá,
að í hópnum var allmargt .ungs
fólks — svo að ekki liggur það
allt á sjoppunum", sagði hún.
Nei, vonandi ekki.
■Jr Lögreglustöðin
Um helgina gat ég þess
hér í dálkunum, að margar nýj
ar byggingar hefðu verið tekn-
ar í notkun í vor — éða væru
að komast 1 gagnið. Hér var
ekki aðeins átt við það, sem
hið opinbera er með á sínum
snærum, heldur líka aðra aðila
— og má þá t.d. ekki gleyma
Loftleiðahótelinu.
Um helgina ók ég um borg-
ina eins og margir aðrir og sá
það, að lögreglustöðin nýja
virðist langt komin. í>etta verð
ur enginn smákofi og ég er
hræddur um, að lögreglan, sem
býr nú orðið það þröngt, að
henni má líkja við mann í efri
koju, verði beinlínis feimin í
nýju húsakynnunum. I>að er
sannarelga ánægjulegt að lög-
reglan á nú von á stórbættum
starfsskilyrðum.
■Jr Skemmdaræðið
Grétar Fells skrifar okk-
ur eftirfarandi:
„Einatt hefur undirrit-
aður furðað sig á skemmdar-
fýsn þeirri, sem gerir vart við
sig í fari unglinga hér á landi.
Jafnvel svokallaðir „fullorðn-
ir“ menn eru ekki alltaf sak-
lausir af ónáttúru þessari og
sennilega eiga þeir nú mesta
sökina á því hve unglingarnir
haga sér oft leiðinlega í þessu
efni. Látum svo vera að ung-
lingarnir hafi frelsi til þess að
láta sér vaxa hár og láta rélt
eins og villimenn (,,bítlarnir“)
en hitt er verra, þegar þeir
fara að valda spjöllum á um-
hverfi sínu, skemma eignir
manna og eyðileggja verð-
mæti, sem stundum eru meiri
en svo, að metin verði til fjár,
er skörin vissulega farin að
færast upp í bekkinn.
Spurnir hef ég af því, að
krakkalýður leiki sér stundum
að því að laumast inn í garð-
inn, sem umlykur listasafn
Einars Jónssonar á Skólavörðu
holti, og með eigin augum hef
ég séð þau spjöll, sem þar hafa
unnin verið ekki alls fyrir
löngu. Vatnsleiðslur utan á hús
inu hafa verið skemmdar, girð
ing rofin, steinhleðsla innan
garðsins brotin niður og fleiri
skemmdarverk unnin. Oftast
mun þetta vera gert að kvöldi
dags, um fimm leytið eða síð-
ar að kvöldi. hað er tillaga mín
að lögreglan hafi vakandi auga
á þessu og láti sem oftast sjá
sig á þessum slóðum — og sömu
leiðis væri æskiiegt að Ibú-
ar nálægra húsa fylgdust með
ferðum og atferli unglinga, sem
eru á vakki í kring um lista-
safnshúsið á holtinu. Minning
Einars Jónssonar á það sizt af
öllu skilið, að hin göfuga
ekkja hans þurfi að hafa
áhyggjur út af því, að hin d/ýr-
mæta arfleifð hahs, islenzku
þjóðinni til handa, fái ekki að
vera í friði fyrir óábyrgum
skemmdarvörgum.
— Grétar Fells“.
■+C Flugfélag með
Norðmönnum
Áhugamaður um flugmál
skrifar eftirfarandi:
„Kæri Velvakandi.
Athygli héfur vakið í frétt-
um undanfarna daga, að Norð
menn hafa reynst SAS óstýri-
látir. f>etta er ekki í fyrsta
skipti að Norðmenn brjóta í
bága við óskir hinna sænsku
og dönsku félaga sinna í SAS,
enda hefur þetta flugfélag jafn
an verið fremur óvinsælt í
Noregi. Norðmenn hafa setið á
hakanum hjá félaginu, eða það
finnst þeim a.m.k. — og m.a.
þess vegna hafa þeir jafnan
stutt Braathen dyggilega.
Ef einhverjar horfur eru á
að upp úr samvinnu Norð-
manna og hinna Norðurlanda-
þjóðanna í SAS slitni — ætt-
um við íslendingar að vera
reiðubúnir til að stofna með
Norðmönnum flugfélag. Við
ættum að steypa okkar félög-
um saman og mynda með Norð
mönnum eitt stórt félag — og
er ekki ólíklegt, að við gætum
þá náð lengra á sviði loftsigl-
inga en okkur hefur nokkru
sinni órað fyrir.
— Flugmálamaður.“
Smjörfjallið
Hér er bréf um smjörið:
„Kæri Velvakandi.
Hjartað í konunni minni
hoppaði áf kæti, þegar hún
heyrði, að blessaðir bændurn-
ir okkar ætluðu að fara að
láta okkur hafa smjörið sama
sem „gratis“. Nú ætlar hún að
baka dag og nótt meðan fjall-
ið endist, skilst mér. Nú verð-
ur smjör í smjörkökunum
(kannski líka hjá bakaríun-
um?)
En meðal annarra orða; Hvar
ætla þeir að byrja að grafa
í smjörfjallið? Efst eða neðst?
Hve gamalt verður smjörið,
sem við fáum „gratis?“
— Einn á mölinni.“
★ Sérstæð sýning
Gestur skrifar:
„Um þessar mundir stendur
yfir í Bogasal Þjóðminjasafns
hússins, mjög svo hrifandi mál
verkasýning, eftir Guðmund
Karl Ásbjörnsson. Þetta er
fyrsta sjálfstæða sýning hans.
Og hvað er svona hrífandi,
hugsar ef til vill einhver? Eru
þarna á ferðinni abstrakt mynd
ir, sem enginn skilur? Þarna
eru til sýnis báeði mannamynd
ir og landslagsmyndir. Lands
lagsmyndirnar hrifu mig inn i
töfrandi, unurfagra veröld,
sem virðist liggja opinn fyrir
augum þessa unga listamanns,
ef til vill þann heim sem liggur
að baki þessum og ekki allra
augu sjá.
Ég er ekki dómbær á hvem
ig listamaðurinn hefur unnið
sitt verk, en ég vil eindregið
hvetja alla unnendur fagurra
lista, unga sem gamla, að
leggja leið sína á þessa sýningu
því hún göfgar og er þroskandi.
Kennarar ættu að vekja at
hygli barna og unglinga á að
sjá þessi fögru listaverk.
— Gestur.**
Hópferðabíll
Þessi hópferðabíll er til sölu. Bíllinn er 26 manna,
með svefnsætum, nýupptekinni vél og í góðu
standi. — Upplýsingar gefur
JÚLÍUS KRISTINSSON
Kirkuteig 7, Keflavík
Sími 1876.
Afgreiðslustúlka
Reglusöm stúlka ekki yngri en 20 ára óskast nú
þegar hálfan daginn til afgreiðslustarfa í tóbaks- og
sælgætisverzlun í miðbænum. Einnig vantar aðstoð-
arstúlku 2—3 tíma á dag svo og til afleysinga vegna
sumarleyfa í júlí og hluta af ágúst. Tilboð er greini
aldur og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins fyrir
n.k. fimmtudagskvöld, merkt: „Vön — 9076“,