Morgunblaðið - 17.05.1966, Síða 5
Þriðjudagur 17. ma! 1966
MORGUNBLAÐIÐ
r 5
i
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
í GÆR átti hálfrar aldar
starfsafmæli Jón Hafliðason,
ifulltrúi hjá Timburverksmiðj
unni Völundi. Við hittum Jón
að máli á heimili hans að
Ljósheimum 4, þar sem hann
býr ásamt konu sinni, Arn-
björgu Stefánsdóttur, á 7.
hæð.
— Hér er fagurt útsýni og
sést vítt og breitt um allt
norðanvert Faxaflóasvæðið,
segir Jón, þegar við fáum okk
ur sæti í smekklega búinni
stofunni úti við gtuggann.
— Fyrst fannst mér að vísu
dálítið óiþægiiegt að horfa nið
ur úr þessari hæð, en nú hef
ég fyrir löngu sigrazt á því og
gæti sjálfsagt kli'frað niður
utanhúss, ef þess þyrfti með,
— og hann hlær.
— Það er orðinn langur
starfsdagur, 50 ár, hjá sama
fyrirtæki?
— Já, ég byrjaði 24 ára
gamail sem gjaldkeri og vann
við það þar til ég var gerður
að fulltrúa 10 árum síðar. Á
þessiun árum hefur að sjálf-
sögðu orðið mikil breyting,
bærinn hefur vaxið og rekst-
ur fyrirtækisins færzt í ný-
tízku horf. Þegar ég hóf störf
hjá Völundi var fyrirtækið
skuldum vafið, en skömmu
síðar var kvaddur frá Kaup-
mannahöfn, Sveinn M. Sveins
son og var hann framkvæmd
arstjóri lengst af. Sveinn var
sérstakur öðlingsmaður, sem
hóf fyrirtækið úr skuldum
með fádæma dugnaði og reglu
semi. Og þá verð ég að segja,
að ekki get ég kvartað undan
sonum hans, sem nú hafa tek
ið við stjómartaumum. Þeir
bræður eru mjög góðir hús-
foændur, svo að á betra verð-
ur ekki kosið .Þá hafa vinnu
félagarnir verið margir og
góðir. Á árum fyrri heims-
styrjaldarinnar hafði fyrir-
tækið að vísu ekki ráð á að
hafa marga í vinnu. Þá var
almennt fjármagnsleysi og
flestir áttu í erfiðleikum. En
á þessum 50 ára tíma munu
vinnufélagarnir vera orðnir
æði margir, og hafa sumir
unnið allt fram til dánardæg-
urs.
— Hefur timbumotkun
landsmanna ekki breytzt mik
ið?
— Jú, mjög mikið. Nú
kaupa menn miklu meira af
alls konar góðviðartegundum.
Allar hurðir, sem áður voru
t.d. úr furu eru nú spónlagð-
ar og eftirspurnin eftir slík-
um hurðum er ekki minni
Jón Hafliðason og kona hans Arnbjörg Stefánsdóttir. (Ljósm.
Ól. K. Magnússon).
Ég hefði ekki getað valið
mér betra ævistarÉ
— Rætt við Jón Hafliðason,
sem starfað hefur hjá Timb-
urverksmiðjunni Völundi
í 50 ár
hlutfallslega úti á landi en
hér í Reykjavík og nágrenni.
— Það eru margvísleg
störfin innan fyrirtækisins?
— Já, á styrjaldarárunum
fyrri var t.d. rekin tunnu-
verksmiðja á vegum fyrirtæk
isins, en hún hætti vegna
þess, að ekki var unnt að
keppa við Norðmenn um
tunnuverðið. Þá keypti fyrir-
tækið einu sinni fjórsiglda
skonnortu og stundaði útgerð
í félagi við SÍS og Kaupfélag
Borgfirðinga en skonnortuna
rak síðan upp í ofsaveðri við
Laugarnes, þar sem hún ó-
nýttist.
— Ertu Reykvíkingur að
uppruna?
— Nei, ég er fæddur að
Jófríðarstöðum við Hafnar-
fjörð. Þar bjó faðir minn,
Hafliði Þorvaldsson, áður en
hann fluttist vestur til
Patreksfjarðar um aldamótin.
Ég fór í Flensborgarskólann
árið 1905, síðan íVerzlunar
skólann, en þaðan lauk ég
prófi árið 1913. Þá var Verzl-
unarskólinn í Kolasundi og
sátum við saman, ég og Árni
Óla, blaðamaður og ritstjóri.
Við vorum bekkjarbræður í
1. bekk, en hann lauk prófi
ári á undan mér, þar eð ég
//
sleppti einu ári úr til þess að
geta unnið mér inn peninga.
Síðara árið mitt í skólanum
var hann á Vesturgötu í húsi
Geirs Zoega útgerðarmanns.
Það voru margir góðir kenn-
arar við skólann. T.d. man ég
eftir að Jón Ófeigsson og
Ágúst H. Bjamason kenndu
mér báðir. Já, þetta voru
skemmtilegir tímar, — og Jón
brosir.
— Þú hefur mikið starfað
að félagsmálum?
— Já. Ég er bæði Odd-
fellow og Góðtemplari. Ég
gekk fyrst í bindindisfélag á
Vestfjörðum; en það gliðnaði
mjög fljótlega og var þá stofn
uð upp úr því stúka. Sam-
heldnin hefur alltaf reynzt
meiri í stúkum, en þær eru
að miklu leyti byggðar á trú-
arlegum grunni. Allir fundir
hefjast t.d. á bæn og söng.
Ég hef aldrei skilið hvers
vegna templarar eru svo illa
liðnir meðal margra. Iðulega
heyrir maður, að þeir hafi
eitthvert vald í röðum stjórn-
málamannanna, en þetta er
mesti misskilningur. Sannleik
urinn er sá að stjórnmála-
mennirnir eru innst inni
templarar sjálfir. Þessi skoð-
un á líklega rætur sínar að
rekja til þess tíma, er templ-
arar áttu 2 menn í bæjarstjórn
en nú er sá tími löngu liðinn.
— Hvaða embættum gegnir
þú innan reglunnar?
— Ég er stórgjaldkeri auk
þess að vera gjaldkeri húsa
reglunnar. Þetta er að vísu
orðið töluvert starf fyrir mig
svo aldraðan, en ungu menn
irnir vilja ekki taka við. Þeg-
ar ég ljæ máls á því, að nú
vilji ég fara að hætta hlusta
þeir varla á mig, — og Jón
brosir með sjálfum sér.
— Hvernig lízt þér á æsk-
una nú á dögum?
— Hún er myndarleg og
falleg. Þegar ég hugsa um
æskuna eins og hún var, þeg-
ar ég taldist til hennar, finnst
mér hún hafa verið heldur
kauðaleg. En það var svo sem
ekki nema von. Ungiingarnir
voru almennt látnir vinna erf
iðisvinnu áður en þeir tóku út
fullan vöxt og að sjálfsögðu
spillti það oft útlitinu. Hins
vegar finnst mér leitt, hve
fátt ungt fólk gengur í Góð-
templararegluna. Þó eru starf
andi unglingastúkur og finnst
mér það eitt hið jákvæðasta
innan reglunnar nú.
Æskan er allt of dýrmæt
til þess að hún verði áfenginu
að bráð, það gerir ef til vill
ekki svo mikið til þótt fólk
bragði áfengi, geri það það í
hófi og gæti þess að verða
ekki ekki ölvað, segir Jón.
— Viltu taka eitthvað fram
að lokum?
— Já. Ég er sannfærður um
að ég hefði ekki getað valið
mér betra ævistarf. Það hef-
ur kannski oft verið erfitt, en
hvers vixði er lífið ón erfið-
leikanna. Ekkert er ánægju-
legra, en þegar sigur vinnst á
Iþeim og því skyldi maður þá
kvarta undan þeim. Hús-
bændur mínir hafa verið mér
góðir og það er ég viss um að
það er leitun að öðrum eins,
sagði Jón Hafliðason um
leið og við kvöddum hann.
Nemendamót
verður haldið að Húsmæðraskólanum á Varmalandi
sunnudaginn 12. júní kl. 14. — Þátttaka tilkynnist til
Steinunnar Ingimundardóttur, skólastjóra, Varma-
landi eða Guðrúnar Pálsdóttur, handavinnukennara,
síma 36855, Reykjavík fyrir 1. júní nk.
Hópferð verður frá Umferðamiðstöðinni í Reykja-
vík sama dag kl. 8,30. — Allir fyrrverandi kennarar
eru sérstaklega boðnir velkomnir.
STJÓRNIN.
KAU PM AN N ASAMTÖK
ÍSLANDS
Aðalfundur
Kaupfélags Hafnarfjarðar 1966 verður haldinn
þriðjudaginn 17. maí að Maragötu 2 Reykjavík og
hefst hann kl. 8,30.
. D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
STJÓRNIN.
tlótel - Starfsstiílkur
Eitt af stærstu hótelum í
Kaupmannahöfn óskar eftir
nokkrum ungum stúlkum,
sem stofustúlkum. Auk launa-
bjóðum við frían vinnufatnað
og fæði í vinnutíma.
Getum útvegað herbergi.
Ungar stúlkur sem geta hugs-
eð sér að dvelja í Danmörku
í sambandi við nefndar stöð-
ur.Vinsamlega skrifið
Oldfrue fru. H. Caspersen
KDAK
IMERIAL HOTEL
Vester Farimagsgade 9,
Kobenhavn V.
Ibúð til leigu
Tvö hei’bergi, eldhús og bað.
Sérinngangur og sérhiti (hita-
veita). Aðeins eldri hjón
koma til greina. Ársfyrirfram
greiðsla áskilin. Tilb. sendist
blaðinu fyrir 17. þ. m., merkt
„1. júní — 9078“.
Húseigendafélag Reykjavíkur
Skrifstofa á Grundarstig 2 A.
Sími 15659. Opin kl. 5—7-alla
virka daga nema laugardaga.
Málflutningsskrifstofa
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11 — Simi 19406.
Að gefnu tilefni
vilja dóms- og kirkjumálaráðuneytið og skipulags-
nefnd kirkjugarða vekja athygli á ákvæði 1. máls
greinar 15. greinar kirkjugarðslaga, nr. 21, 23. apríl
1963, málsgreinin er svohljóðandi:
„Öll leiði í kirkjugarði, sem þekkt eru, skulu auð-
kennd með tölumerki, er samsvarar tölu þeirra á
legstaðaskrá. Sá, er setja vill minnismerki á leiði,
skal fá til þess leyfi kirkjugarðsstjórnar, sem ber að
sjá um, að minnismerkið sé traust og fari vel. Eigi
má setja girðingar úr steini, málmi eða timbri um
einstök leiði eða fjölskyldugrafreiti. Eigi má gera
grafhýsi í kirkjugarði“.
Reykjavík, 13. maí 1966.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Skipulagsnefnd kirkjugarða.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Jóhanns Ragnarssonar, hdl., og að und-
angengnum fjárnámum 22. apríl sl. verður síldar-
nót, eign Byrs h.f., Flateyri, sem geymd er hjá Nóta
stöðinni h.f. á Akranesi, seld á opinberu uppboði,
sem fram fer í Nótastöðinni á Akranesi, mánudag
inn 23. maí nk. kl. 16.00 til lúkningar skuld að fjár
hæð kr. 244.145,36, ásamt vöxtum og kostnaði.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akranesi, 10. maí 1966.
Þórhallur Sæmundsson.