Morgunblaðið - 17.05.1966, Side 14
14
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 17. maí 1966
EINN kunnasti kjötkaup-
maður höfuðborgarinnar
skipar 11. sæti á lista Sjálf-
stæðismanna við borgar-
stjórnarkosningarnar. Er
það Þorbjörn Jóhannesson,
sem lengstaf er kenndur við
Kjötbúðina Borg. Mikill
fjöldi Reykvíkinga þekkir
Þorbjöm í Borg og velflestir
hafa haft við hann meiri og
minni viðskipti. Allir þekkja
því hæfni 'nans sem ágæts
verzlunarmanns. En það er
ekki aðeins kaupmennska og
þjónusta með „mannsins
megin“, matinn, sem Þor-
björn er þekktur fyrir. Hann
hefir löngum tekið mikmn
þátt bæði í félagslífi ýmis-
konar og stjórnmálalifi borg-
arbúa. Hann hefir tekið virk
an þátt í starfi dýravernd-
unarfélaga og er í dag for-
maður Sambands dýravernd-
imarfélaga landsins. í sókn
sinni, Háteigssókn, hefir
Frú Sigríður og Þorbjörn heima.
í borginni er þörf fulikom-
innar kjötmiöstöövar
Rætt við Þorbjörn í Borg 11. mann
á lista Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavik
Þorbjörn haft mikil umsvif
og er formaður sóknarnefnd-
arinnar, en eitt af verkum
hennar er hin nýja og glæsi-
lega kirkja sóknarinnar.
Við bregðum okkur heim
til Þorbjörns í Borg eina
kvöldstund og röbbum við
hann ofurlitla stund. Raun-
ar verður að játa að samtal
okkar snerist mun meira um
annað en beinlinis borgar-
málin og kosningabaráttuna
nú fyrir næstu borgarstjórn-
arkosningar.
Því verður ekki neitað að
eitt af þýðingarmestu málum
borgara Reykjavíkur er að
matvæladreifing sé í sem full
komnustu lagi og sem auð-
veldust borgurunum, sem ó-
dýrust og að þar sé sinnt
fyllstu heilbrigðiskröfum og
hagsýni viðhöfð 1 hvívetna.
Þorbjörn Jóhannesson er
borinn og barnfæddur Reyk-
víkingur, en faðir hans var
trésmiður og komst Þorbjörn
því á unga aldri í nána
snertingu við byggingarmál,
enda maður áhugasamur um
þau, þótt hann gerði þau
ekki að iifsstarfi sínu.
Þorbjöm hefir nú verið
varafulltrúi í borgarstjórn
allt frá 1954, en löngum set-
ið fundi borgarstjórnar. Ung
ur byrjaði Þorbjörn verzlun-
arstörf, eða um fermingu
fyrst hjá öðrum um 5 ára
skeið, en tók sjálfur að reka
verzlun fyrir eigin reikning
lagfæra og bæta matardreif-
inguna í borginni án þess að
binda það einvörðungu \ið
hagsmuni sinnar eigin verzl-
unar.
í fjölda mörg ár hefir Þor-
björn verið framarlega í
flokki þeirra, sem viljað hafa
koma upp hér í borg kjöt-
miðstöð, en stofnun slíks
fyrirtækis er undirstaða und
ir bættri meðferð á kjötvör-
um og aukinni fjölbreytni i
kjötvinnslu. Stofnun slíks
fyrirtækis mundi einnig
stuðla að hagstæðari dreif-
ingu á þessum vörum um
borgina og þá er þetta eitt
grundvallarskilyrði þess að
hægt sé að koma við full-
kominni heilbrigðisþjónustu
og heilbrigðiseftirliti með
FRAMBJÓÐENDUR
19 ára gamall og hefir síðan
verið sjálfs sín húsbóndi í
35 ár.
Snemma fór Þorbjörn að
taka þátt í stjórnmálum og
féagsmálum og þá fyrst og
fremst félagsmálum kjötsaia
í borginni. Hann hefir löng-
um haft mikinn áhuga á að
Við vinnu sína í Borg.
hinum mjög svo viðkvæmu
vörum, sem kjötvörurnar
eru.
Fyrir mörgum árum voru
allmargir kjötkaupmenn
borgarinnar búnir að safna
verulegu fjármagni til stofn-
unar kjötmiðstöðvar, en þá
strandaði málið á samvinnu
allra aðila, sem með kjöt
verzla hér í höfuðborginni.
Þorbjörn kvað því ekki að
neita að þeir, sem að þessu
fyrirtæki vildu standa, höfðu
í huga að hér ætti eftir að
rísa upp allsherjar kjötmið-
stöð eins og tíðkast í velflest
um menningarborgum heims
og munu allmargir íslending
ar kannast við svipaðar stofn
anir t.d. bæði í Kaupmanna-
höfn og London.
Tal okkar snýst nú mjög
um kjötmeðferð og kjötfram
leiðslu hér á landi. Því er
ekki að neita að allmikill
skortur er á skilningi á hinni
brýnu þörf fyrir fjölbreytt-
ari og betri kjötvörur, en við
eigum völ á í dag. Öll með-
ferð og verkun á kjoti er
mjög mikið nákvæmniverk
og hér hafa ekki verið gerð-
ar þær kröfur til bæði fram-
leiðslugæða og margháttaðr-
ar verkunar, sem ajálfsögð
þykir víðast hvar erlendis.'
Löngum hefir þó verið ákveð
inn hópur manna hér í höf-
uðborginni og raunar víðar
um landið, sem kann full
skil á því hvað er úrvals-
vara og gerir kröfu til að fá
hana. Það hefir verið leit-
ast við að sinna því eftir
föngum, en því miður heíir
skort á samvinnu milli þeirra
aðila, sem framleiða vöruna,
selja hana, og þeirra, sem
kenna um meðferð hennar
t.d. í skólum landsins. Auð-
vitað ætti hér að vera náin
samvinna þar sem gagn-
kvæmur skilningur ríkti
milli framleiðenda, sölufyrir-
tækja þeirra og síðan þjón-
ustufyrirtækjanna við neyt-
endúr svo og kjötmatsmanna
og fræðimanna á sviði kjót-
iðnaðar. Þar sem skortur er
á þessu vill svo fara að hver
er með sitt í sínu horni, en
síður er hugsað um heildina.
Því er oft erfitt fyrir neyí-
andann að vita hvaða vöru
hann má treysta og hvaða
vöru ekki. Oft getur hráefn-
ið verið ágætt, en fær í með-
ferðinni ekki rétta meðhöndl
an. Þorbjörn bendir okkur á
að mjög algeng sé hér á iandi
ofsuða á mat, sem gerir það
að verkum að ljúfengasta
efni er eyðilagt við suðuna.
í annan stað kemur svo til
að maturinn hefir ekki feng-
ið rétta meðferð fyrir suð-
una og verður því ekki eins
og vera á þrátt fyrir að sá
sem matreiðir geri það á rétt-
an hátt.
Vera kann að þessi mál
heyri ekki beint borgarstjórn
armálefnum til, en hitt er
vitað að hér er um að ræða
bæði stórkostlegt hagsmuna-
mál fólks almennt og mál
sem hafa mjög mikið og fræð
andi gildi fyrir almenning.
Kjötmiðstöð er að sjálfsögðu
borgarstjórnarlegt málefni
og verður að takast upp í
borgarstjórn, eigi málið að
komast farsællega í höfn.
Það er því nauðsynlegt að
borgarstjórn eigi kost fróðra
kunnáttumanna svo sem
Þorbjarnar í Borg þegar að
því kemur að ráða þessu
máli til lykta.
Eins og að framan segir
fékk Þorbjörn þegar á unga
aldri áíhuga íyrir byggingar-
málum. Hann hefir allt frá
því Innkaupastofnun Reykja-
víkurborgar var endurskipuð
árið 1959 verið stjórnarmað-
ur í henni. í því starfi hefir
hann orðið að kynna sér
mörg þau mál er snúast um
byggingarmál borgarinnar
og stórframkvæmdir. Stjórn-
armenn Innkaupastofunarinn
ar verða að kynna sér öll út-
boð og framkvæmdir á veg-
um borgarinnar, því þau fara
í gegnum þessa stofnun. Þá
verða þeir að kynna sér og
hafa þekkingu á hvað sé nýj-
ast á hinum ýmsu sviðurn
framkvæmdanna og hvað
hagkvæmast muni vera fyrir
borgarfélagið að gera hverju
sinni. Það er því vissulega
margt og mikið sem Inn-
kaupastofnunin verður að
leysa, og það er mikið fjár-
hagslegt atriði fyrir borgar-
sjóð að starf hennar fari vel
úr hendi.
Hér hefir aðeins verið lít-
illega drepið á þau mál er
Þorbjörn í Borg hefir mest
látið sig skipta. Þetta átti
öðrum þræði áð, vera kynn-
ingargrein um hann sjálfan.
Þorbjörn er kvæntur Sigríði
Einarsdóttur og eiga þau
hjón þrjú uppkomin börn,
Elínu, sem er gift Óttari
Hanssyni, sem er starfsmað-
ur Sölumiðstöðvar hraðfrysti
húsanna í London, Einar,
verkfræðing, sem er við
framhaldsnám í Þýzkalandi
kvæntur Astrid Kofoed-Han-
sen og Svanhildur sem er gift
Guðmundi Friðrikssyni bif-
reiðastjóra hér í Reykjavík.
Þau hjón frú Sigríður og
Þorbjörn eiga sér hlýlegt og
glæsilegt heimili að Flóka-
götu 59 hér í borg. Þar er
gjarna gestkvæmt, þar sem
húsbóndinn hefir svo marg-
háttuð afskipti af félagsmái
um, enda er þarigað gott að
koma og þægilegt að vera.