Morgunblaðið - 17.05.1966, Side 16

Morgunblaðið - 17.05.1966, Side 16
16 MOHGUHBLAÐIÐ Þriðjudagur 17. maí 1968 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúl: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstr-æti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 5.00 eintakið. LOÐAMAL í REYKJA VÍK ¥Tin öra uppbygging Heykja-' víkurborgar hefur orðið til þess, að vaxandi kröfur hafa verið gerðar á hendur borginni um lóðaúthlutanir. Þessi eftirspurn hefur verið svo mikil, að erfitt hefur reynzt að anna henni full- feomlega, en nú er svo komið, að síðan 1964 hefur verið hægt að fullnægja óskum ^allra, sem sótt hafa um fjöl- býlishús og uppfylla þau skil- yrði sem sett hafa verið. Þessar upplýsingar komu fram í víðtali við Helga V. Jónsson, skrifstofustjóra borg arverkfræðings, í Morgun- blaðinu síðastliðinn laugar- dag. í viðtali þessu kemur fram að 1960 var úthlutað lóð um fyrir 725 fbúðir, 1961 fyr- ir 255 íbúðir, 1962 fyrir 708 íbúðir, 1963 fyrir 543 í'búðir, 1964 fyrir 1221 íbúð, en tölur ársins 1965 liggja enn ekki fyrirj en þá munu hafa verið um 1405 íbúðir í byggingu. Þá kemur ennfremur fram í viðtali við skrifstofustjóra borgarverkfræðings, að gert er ráð fyrir, að á þessu ári verði úthlutað lóðum fyrir u.þ.b. 2000 fbúðir, eða fyrir um 8 þúsund fbúa. Lóðaút- hlutun sú, sem fyrir dyrum stendur, er á Fossvogssvæð- inu og í Breiðholtshverfinu, þar sem gert er ráð fyrir að risin verði um 20 þúsund manna bær fyrir 1983. Af þessum tölum er Ijóst, að mjög hefur stefnt í rétta átt í lóðaúthlutun Reykjavík- urborgar. Að vísu hefur ekki reynzt unnt að fullnægja eft- irspurn eftir lóðum fyrir ein- býlishús, en þess ber að gæta, að kostnaður við að gera lóð undir einbýlishús byggingar- hæfa er sex sinnum méiri en kostnaður við lóð í íbúð í f jöl- býlishúsi. Auðvitað ber að stefna að því að menn geti fengið lóðir undir þá húsagerð sem þeir óska, þegar þeir fara fram á það, og væntanlega mun að því koma eftir að skipulags- mál Reykjavíkurborgar hafa verið tekin svo föstum tökum, sem raun ber vitni. En upp- bygging Reykjavíkur hefur verið ör og eftirspurnin eftir lóðum svo mikil, að ógerlegt hefur verið fyrir borgaryfir- Völd til þessa að anna eftir- spurn, enda hefur vérið byggt , miklu meira í Reykjavík en sem svarar fólksfjölgun, og byggist það á því, að fólk hef- ur nú rýmra um sig en áður. En borgarbúar allir munu fagna því stórátaki sem gert hefuf verið og í undirbún- ingi er í lóðamálum borgar- innar. VERNDUN FISKSTOFNSINSi ikla athygli mun vekja, að á ársfundi alþjóðanefnd- ar um fiskveiðar á norðaust- ur-Atlantshafi hefur náðst samkomulag um að auka möskvastærð á svæðinu aust- ur í Barentshaf, en þar hef- ur möskvastærð verið 130 mm. Þótt ísleridingar hafi ekki að fullu fengið óskum sínum framgengt í þessum efnum, verður að telja þessa aukn- ingu möskvastærðar mikil- vægt spor til verndunar fisk- stofni við ísland. I þessum efnum er rík ástæða til að taka tillit til álits og skoðana vísindamannanna á þessu sviði,. og það mun einmitt hafa verið fyrir vísinda- legt samstarf, sem samkomu- lag um þessa aukningu möskvastærðarinnar komst á. Brezkir vísindamenn munu hafa komizt að raun um, að brezkir togarar hafa gengið of nærri fiskstofninum á Norður-Atlantshafi, og af þeim sökum munu þeir, ekki síður en íslendingar, hafa beitt sér fyrir þessari aukn- ingu möskvastærðarinnar. NÝJA SLÖKKVISTÖÐIN C|lökkvilið Reykjavíkur flutti ^ í ný húsakynni sl. laug- ardag. Þau eru í alla staði hin glæsilegustu og mjög full- komin, og munu stuðla að tryggari brunavörnum í höf- uðborginni. í ræðu, sem borgarstjóri, Geir Hallgrímssort, hélt er hann afhenti Valgarð Thor- oddsen, slökkviliðsstjóra, hin glæsilegu mannvirki til af- nota fyrir slökkvilið og bruna varnir borgarinnar og ná- grannasveitarfélaga, þakkaði borgarstjóri fyrir hönd borg- arstjórnar öllum þeim, sem að brunavörnum hafa unnið á vegum Reykjavíkurborgar, og gegnt hafa starfi sínu með þeirri prýði, sem raun ber vitni um. Borgarstjóri vakti athygli á því að Húsatrygg- ingasjóður Reykjavíkurborg- ar mun standa undir bygg- ingarkostnaði hinnar nýju: slökkvistöðvar, og að honum er það kleift, meðal annars vegna hlútfallslega lítilla brunatjóna, sem borgarstjóri kvaðst staðhæfa að stöfuðu af góðum brunavörnum og vask- legri framgöngu slökkviliðs. Hin riýja slökkvistöð mun Síðastliðinn föstudag fór fram í einum hallarfarði Vatíkansins í Róm, þeim er kenndur er við Damaskus, eiðtaka tuttugu nýrra lifvarða páfa. Fyrr á öldum hafð'i páfi hálft annað hundrað lífvarða, en nú telur liðið ekki nema hálfan sjöunda tug. Myndin sýnir hvar einn lifvarðana nýju sver við fána lívarðasveitarinnar að veita páfa „alla þá vernd er ég má allt til dauðans". Búningar lífvarðarsveitarinnar hafa lítið breytzt síðan fyrstu lífverðirnir komu suður til Rómar frá Sviss fyrir mörgum öldum og eru hinir skrautlegustu, eius og sjá má. Sjálfir eru lífverðirnir enn valdir úr hópi hinna vöskustu manna þótt sjaldan reyni nú á fræknleik þeirra, en óneitanlega sópar af þessum fulltrúum horfins tíma þar sem þeir verja hlið öll á höllum Páfagarðs. bæta mjög alla aðstöðu slökkviliðsins til brunavarna í borginni, og þessu mikla átaki á þessu sviði ber að fagna. TRÚARVAKNING Dænadagur þjóðkirkjunnar 99 var sl. sunnudag, og höf- uðbænarefni dagsins trúar- vakning. Allt frá kristnitöku hefur kirkja og kristni staðið djúp- um rótum í íslenzku þjóðlífi. Hún hefur verið farvegur menningarstrauma og mennta og um eitt skeið öflugt mót- vægi gegn erlendum drottn- urum. Því er hins vegar ekki að leyna, að breyttar þjóðfélags- aðstæður hafa skapað kirkj- unni hér á landi ýmsa erfið- leika, og henni hefur ekki tekizt að aðlaga sig breyttum aðstæðum þjóðfélags, sem byggist ekki lengur á sveita- menningu, heldur þéttbýli borgar og kaupstaða. Þess vegna hlýtur það að vera meginverkefni kirkj- unnar á næstunni og undan- fari þeirrar trúarvakningar, sem hún berst fyrir, að kirkj- an og þjónar hennar aðlagi Sig nýjúm tímum og breyti starfsháttum sínum í sam- ræmi við það. Er vonandi að vel takist ..til í þeim efnum, svo að ' trúarlíf þjóðarinnar megi éflast og aukást — Vietnam Framhald af bls. 2 en Van Thieu, hershöfðingi, sagði í útvarpsræðu til allra lands- manna á sunnudag, að aðgerð- irnar í Danang miðuðu að því að koma í veg fyrir áhrif kommún- ista og tryggja frjálsar kosning- ar. Skoraði hann á þjóðina að fylkja sér um Saigonstjórnina. Ástandið versnar enn Ástandið í S-Víetnam versnaði enn árdegis á mánudag, er yfir- menn 1. og 2. fótgönguliðsher- fylkja Saigonstjórnarinnar hvöttu til allsherjaruppreisnar gegn stjócn Ky’s í Saigon. Phan Xuan Nhuan, hershöfð- ingi, réðist í ræðu hatramlega að Ky, fyrir aðgerðirnar í Dan- arig á sunnudag, og lýsti því yfir að Ky hefði sent landgönguliða sína og blóðhunda þangað til þess að leysa borgarastyrjöld úr læðingi. Nguyen Xuan Lam, hershöfðingi, yfirmaður 2. her- fylkisins, tók í sama streng og lýsti því yfir fyrir sitt leyti, að herinn yrði að gera uppreisn, og treysta á bandamenn síha, eink- um Bandaríkjamenn. Hershöfð- ingjarnir tveir sendu út áskorán- ir sínar frá Hué. I dag, mánudag, var nánast. styrjaldarástand í Hué. Stúdent- ar og aðrir skólamenn mynduðu „sjálfsmorðssveitir" og vopnum var útbýtt tiL þeirra. Víggirðing- um og tálmunum hefur verið komið upp á öllum vegum, sem liggja til bæjarins, einkum á aðal veginum frá Danang. Það voru leiðtogar Búddatrú- armanha í Saigon, sem birtu í dag uppreisnaráskorun hers- höfðingjanria tveggja í Húé. í áskoruninni er sagt, að allir hets- höfðingjar á svonefnda fyrsta hersvaeði séú á móti aðgérðúnum1 í Danarig'óg að þeir iriuni beita valdi til þess áð kóma í veg fýrir áform Saigonstjórnar. Saigonstjórnin setti af i dag yfirmann setuliðsins í Danang, Ton That Dinh, hershöfðingja, og settu kaþólskan hershöfðingja I hans stað. Dinh, hershöfðingi, flúði frá Danang er stjórnarher- menn héldu inn í borgina, en hann sendi síðar út áskorun um útvarpið í Hué, og hvatti her- menn sína til hollustu við sig. Hinn nýi yfirmaður í Danang er Huynh Van Cao, hershöfðingi. Stjórnarhermenn gerðu í dag húsleit víða í Danang. í Saigon gerðu 50.000 verka- menn verkfall í dag, og lagðist öll vinna við höfnina niður, allir flutningar stöðvuðust, svo og verksmiðjur. Verkfallið er gert til þess að mótmæla harkalegum aðförum lögreglunnar gagnvart konum í verkalýðssamtökunum. Kom Washington á óvart Aðgerðir Ky’s gegn Búddatrú- armönnum í Danang komu Bandaríkjastjórn mjög á óvart, að því ér fréttir frá Washington herma. Hefur Bandaríkjastjórn gefið embættismönnum sínum í Saigon fyritmæli um að gera allt, sem í þeirra valdi stendúr, til að koma á sáttum með hinum deilandi öflum í S-Víetnam. Johnson, forseti, átti bæði á sunnudag. og í dag fund með helztu ráðgjöfum sínum um á- standið í S-Víetnam. Meðal þeirra, sem forsetinn ræddi við, var Henry Cabot Dodge, sendi- herra Bandaríkjanna í S-Víe't- nam. Lodge heldur áleiðis til Sai- gon á morgun. Talsmenn utanríkisráðuneytis- ins 1 Washington skýrðu frá því í dag, að Jóhnson forseta hafi á sunudag borizt bréf fná Thich Tri Qúang, munki og helzta leið- togá Búddatrúarmanna. Ekkért hefúí verið látið uppi um efni bréfsins, eri talið er að Tri Quang hafi beðið forsetann að skakka leikinn í S-Váetnam. tt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.