Morgunblaðið - 17.05.1966, Síða 16
16
MOHGUHBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. maí 1968
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúl: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstr-æti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
LOÐAMAL
í REYKJA VÍK
¥Tin öra uppbygging Heykja-'
víkurborgar hefur orðið
til þess, að vaxandi kröfur
hafa verið gerðar á hendur
borginni um lóðaúthlutanir.
Þessi eftirspurn hefur verið
svo mikil, að erfitt hefur
reynzt að anna henni full-
feomlega, en nú er svo komið,
að síðan 1964 hefur verið
hægt að fullnægja óskum
^allra, sem sótt hafa um fjöl-
býlishús og uppfylla þau skil-
yrði sem sett hafa verið.
Þessar upplýsingar komu
fram í víðtali við Helga V.
Jónsson, skrifstofustjóra borg
arverkfræðings, í Morgun-
blaðinu síðastliðinn laugar-
dag. í viðtali þessu kemur
fram að 1960 var úthlutað lóð
um fyrir 725 fbúðir, 1961 fyr-
ir 255 íbúðir, 1962 fyrir 708
íbúðir, 1963 fyrir 543 í'búðir,
1964 fyrir 1221 íbúð, en tölur
ársins 1965 liggja enn ekki
fyrirj en þá munu hafa verið
um 1405 íbúðir í byggingu.
Þá kemur ennfremur fram í
viðtali við skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, að gert
er ráð fyrir, að á þessu ári
verði úthlutað lóðum fyrir
u.þ.b. 2000 fbúðir, eða fyrir
um 8 þúsund fbúa. Lóðaút-
hlutun sú, sem fyrir dyrum
stendur, er á Fossvogssvæð-
inu og í Breiðholtshverfinu,
þar sem gert er ráð fyrir að
risin verði um 20 þúsund
manna bær fyrir 1983.
Af þessum tölum er Ijóst,
að mjög hefur stefnt í rétta
átt í lóðaúthlutun Reykjavík-
urborgar. Að vísu hefur ekki
reynzt unnt að fullnægja eft-
irspurn eftir lóðum fyrir ein-
býlishús, en þess ber að gæta,
að kostnaður við að gera lóð
undir einbýlishús byggingar-
hæfa er sex sinnum méiri en
kostnaður við lóð í íbúð í f jöl-
býlishúsi.
Auðvitað ber að stefna að
því að menn geti fengið lóðir
undir þá húsagerð sem þeir
óska, þegar þeir fara fram á
það, og væntanlega mun að
því koma eftir að skipulags-
mál Reykjavíkurborgar hafa
verið tekin svo föstum tökum,
sem raun ber vitni. En upp-
bygging Reykjavíkur hefur
verið ör og eftirspurnin eftir
lóðum svo mikil, að ógerlegt
hefur verið fyrir borgaryfir-
Völd til þessa að anna eftir-
spurn, enda hefur vérið byggt
, miklu meira í Reykjavík en
sem svarar fólksfjölgun, og
byggist það á því, að fólk hef-
ur nú rýmra um sig en áður.
En borgarbúar allir munu
fagna því stórátaki sem gert
hefuf verið og í undirbún-
ingi er í lóðamálum borgar-
innar.
VERNDUN
FISKSTOFNSINSi
ikla athygli mun vekja, að
á ársfundi alþjóðanefnd-
ar um fiskveiðar á norðaust-
ur-Atlantshafi hefur náðst
samkomulag um að auka
möskvastærð á svæðinu aust-
ur í Barentshaf, en þar hef-
ur möskvastærð verið 130
mm.
Þótt ísleridingar hafi ekki
að fullu fengið óskum sínum
framgengt í þessum efnum,
verður að telja þessa aukn-
ingu möskvastærðar mikil-
vægt spor til verndunar fisk-
stofni við ísland. I þessum
efnum er rík ástæða til að
taka tillit til álits og skoðana
vísindamannanna á þessu
sviði,. og það mun einmitt
hafa verið fyrir vísinda-
legt samstarf, sem samkomu-
lag um þessa aukningu
möskvastærðarinnar komst
á. Brezkir vísindamenn munu
hafa komizt að raun um, að
brezkir togarar hafa gengið
of nærri fiskstofninum á
Norður-Atlantshafi, og af
þeim sökum munu þeir, ekki
síður en íslendingar, hafa
beitt sér fyrir þessari aukn-
ingu möskvastærðarinnar.
NÝJA
SLÖKKVISTÖÐIN
C|lökkvilið Reykjavíkur flutti
^ í ný húsakynni sl. laug-
ardag. Þau eru í alla staði hin
glæsilegustu og mjög full-
komin, og munu stuðla að
tryggari brunavörnum í höf-
uðborginni.
í ræðu, sem borgarstjóri,
Geir Hallgrímssort, hélt er
hann afhenti Valgarð Thor-
oddsen, slökkviliðsstjóra, hin
glæsilegu mannvirki til af-
nota fyrir slökkvilið og bruna
varnir borgarinnar og ná-
grannasveitarfélaga, þakkaði
borgarstjóri fyrir hönd borg-
arstjórnar öllum þeim, sem
að brunavörnum hafa unnið
á vegum Reykjavíkurborgar,
og gegnt hafa starfi sínu með
þeirri prýði, sem raun ber
vitni um. Borgarstjóri vakti
athygli á því að Húsatrygg-
ingasjóður Reykjavíkurborg-
ar mun standa undir bygg-
ingarkostnaði hinnar nýju:
slökkvistöðvar, og að honum
er það kleift, meðal annars
vegna hlútfallslega lítilla
brunatjóna, sem borgarstjóri
kvaðst staðhæfa að stöfuðu af
góðum brunavörnum og vask-
legri framgöngu slökkviliðs.
Hin riýja slökkvistöð mun
Síðastliðinn föstudag fór fram í einum hallarfarði Vatíkansins í Róm, þeim er kenndur er
við Damaskus, eiðtaka tuttugu nýrra lifvarða páfa. Fyrr á öldum hafð'i páfi hálft annað
hundrað lífvarða, en nú telur liðið ekki nema hálfan sjöunda tug. Myndin sýnir hvar einn
lifvarðana nýju sver við fána lívarðasveitarinnar að veita páfa „alla þá vernd er ég má allt
til dauðans". Búningar lífvarðarsveitarinnar hafa lítið breytzt síðan fyrstu lífverðirnir komu
suður til Rómar frá Sviss fyrir mörgum öldum og eru hinir skrautlegustu, eius og sjá má.
Sjálfir eru lífverðirnir enn valdir úr hópi hinna vöskustu manna þótt sjaldan reyni nú á
fræknleik þeirra, en óneitanlega sópar af þessum fulltrúum horfins tíma þar sem þeir verja
hlið öll á höllum Páfagarðs.
bæta mjög alla aðstöðu
slökkviliðsins til brunavarna
í borginni, og þessu mikla
átaki á þessu sviði ber að
fagna.
TRÚARVAKNING
Dænadagur þjóðkirkjunnar
99 var sl. sunnudag, og höf-
uðbænarefni dagsins trúar-
vakning.
Allt frá kristnitöku hefur
kirkja og kristni staðið djúp-
um rótum í íslenzku þjóðlífi.
Hún hefur verið farvegur
menningarstrauma og mennta
og um eitt skeið öflugt mót-
vægi gegn erlendum drottn-
urum.
Því er hins vegar ekki að
leyna, að breyttar þjóðfélags-
aðstæður hafa skapað kirkj-
unni hér á landi ýmsa erfið-
leika, og henni hefur ekki
tekizt að aðlaga sig breyttum
aðstæðum þjóðfélags, sem
byggist ekki lengur á sveita-
menningu, heldur þéttbýli
borgar og kaupstaða.
Þess vegna hlýtur það að
vera meginverkefni kirkj-
unnar á næstunni og undan-
fari þeirrar trúarvakningar,
sem hún berst fyrir, að kirkj-
an og þjónar hennar aðlagi
Sig nýjúm tímum og breyti
starfsháttum sínum í sam-
ræmi við það. Er vonandi að
vel takist ..til í þeim efnum,
svo að ' trúarlíf þjóðarinnar
megi éflast og aukást
— Vietnam
Framhald af bls. 2
en Van Thieu, hershöfðingi, sagði
í útvarpsræðu til allra lands-
manna á sunnudag, að aðgerð-
irnar í Danang miðuðu að því að
koma í veg fyrir áhrif kommún-
ista og tryggja frjálsar kosning-
ar. Skoraði hann á þjóðina að
fylkja sér um Saigonstjórnina.
Ástandið versnar enn
Ástandið í S-Víetnam versnaði
enn árdegis á mánudag, er yfir-
menn 1. og 2. fótgönguliðsher-
fylkja Saigonstjórnarinnar hvöttu
til allsherjaruppreisnar gegn
stjócn Ky’s í Saigon.
Phan Xuan Nhuan, hershöfð-
ingi, réðist í ræðu hatramlega
að Ky, fyrir aðgerðirnar í Dan-
arig á sunnudag, og lýsti því yfir
að Ky hefði sent landgönguliða
sína og blóðhunda þangað til
þess að leysa borgarastyrjöld úr
læðingi. Nguyen Xuan Lam,
hershöfðingi, yfirmaður 2. her-
fylkisins, tók í sama streng og
lýsti því yfir fyrir sitt leyti, að
herinn yrði að gera uppreisn, og
treysta á bandamenn síha, eink-
um Bandaríkjamenn. Hershöfð-
ingjarnir tveir sendu út áskorán-
ir sínar frá Hué.
I dag, mánudag, var nánast.
styrjaldarástand í Hué. Stúdent-
ar og aðrir skólamenn mynduðu
„sjálfsmorðssveitir" og vopnum
var útbýtt tiL þeirra. Víggirðing-
um og tálmunum hefur verið
komið upp á öllum vegum, sem
liggja til bæjarins, einkum á aðal
veginum frá Danang.
Það voru leiðtogar Búddatrú-
armanha í Saigon, sem birtu í
dag uppreisnaráskorun hers-
höfðingjanria tveggja í Húé. í
áskoruninni er sagt, að allir hets-
höfðingjar á svonefnda fyrsta
hersvaeði séú á móti aðgérðúnum1
í Danarig'óg að þeir iriuni beita
valdi til þess áð kóma í veg fýrir
áform Saigonstjórnar.
Saigonstjórnin setti af i dag
yfirmann setuliðsins í Danang,
Ton That Dinh, hershöfðingja, og
settu kaþólskan hershöfðingja I
hans stað. Dinh, hershöfðingi,
flúði frá Danang er stjórnarher-
menn héldu inn í borgina, en
hann sendi síðar út áskorun um
útvarpið í Hué, og hvatti her-
menn sína til hollustu við sig.
Hinn nýi yfirmaður í Danang er
Huynh Van Cao, hershöfðingi.
Stjórnarhermenn gerðu í dag
húsleit víða í Danang.
í Saigon gerðu 50.000 verka-
menn verkfall í dag, og lagðist
öll vinna við höfnina niður, allir
flutningar stöðvuðust, svo og
verksmiðjur. Verkfallið er gert
til þess að mótmæla harkalegum
aðförum lögreglunnar gagnvart
konum í verkalýðssamtökunum.
Kom Washington á óvart
Aðgerðir Ky’s gegn Búddatrú-
armönnum í Danang komu
Bandaríkjastjórn mjög á óvart,
að því ér fréttir frá Washington
herma. Hefur Bandaríkjastjórn
gefið embættismönnum sínum í
Saigon fyritmæli um að gera
allt, sem í þeirra valdi stendúr,
til að koma á sáttum með hinum
deilandi öflum í S-Víetnam.
Johnson, forseti, átti bæði á
sunnudag. og í dag fund með
helztu ráðgjöfum sínum um á-
standið í S-Víetnam. Meðal
þeirra, sem forsetinn ræddi við,
var Henry Cabot Dodge, sendi-
herra Bandaríkjanna í S-Víe't-
nam. Lodge heldur áleiðis til Sai-
gon á morgun.
Talsmenn utanríkisráðuneytis-
ins 1 Washington skýrðu frá því
í dag, að Jóhnson forseta hafi á
sunudag borizt bréf fná Thich
Tri Qúang, munki og helzta leið-
togá Búddatrúarmanna. Ekkért
hefúí verið látið uppi um efni
bréfsins, eri talið er að Tri Quang
hafi beðið forsetann að skakka
leikinn í S-Váetnam.
tt