Morgunblaðið - 24.05.1966, Síða 30
ou
mUK(J w w " '
« W I w
Priöjuclagur 24. maí 1966
Hermann vann
leikinn fyrir Val
— Skoraði öll þrjú mörk Vals
a móti tveimur mörkum KR
SKEMMTILEGASTI leikurinn í
Reykjavíkurmótinu til þessa fór
fram á Melavellinum í gær-
kvöldi. Þar áttust við KR og
Valur, og var leikurinn mjög
þýðingarmikill í mótinu, því að
bæði liðin höfðu mikla mögu-
leika til sigurs í því. KR var með
þrjú stig fyrir leikinn, en gat
orðið jafnt Þrótti, sem hefur 5
stig, með þí að sigra Val, en hins
vegar ber þess að gæta að Þrótt-
ur á einn leik eftir á móti Fram
Valur hafði hinsvegar mögu-
lekka á að fá C stig ef liðið ynni
KR i þessum leik sem það og
gerði, og orðið sigurvegari í mót
inu, þ.e. ef Þróttur tapaði fyrir
Fram.
Leikurinn í gær var eins og
áður segir, mjög skemmtilegur
og spennandi — þó sérstaklega
síðari hluti hans. Fyrsti stund-
arfjórðungur leiksins var heldur
bragðdaufur, lítið um spennandi
atvik, en mikð um tilgangslaus
hlaup um allan völlinn sem virð
ist vera einkenni vorknattspyrn
unnar hér á landi. En á 15 míúAu
komst Eyleifur í vítateig Vals og
átti skot á markið úr mjög erf-
iðri aðstöðu. Var snúningur á
knettinum, en þó virtist mánni
sem Sigurður ELagsson markvörð
ur Vals ætti að hafa í fullu té
við hann, en hann missti hann
heldur klaufalega inn. 1-0 fyrir
KR.
Valur sótti nú fast, og aðeins
tyeimur mínútum síðar kemst
MOLAR
Santiago — Chile vann
Wales 2-0 í landsleik í knatt
spyrnu á sunnudag. Chile leik
ur í riðli með N-Kóreu, tta-
líu og Sovét í lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar í
Brussel — Sovétríkin unnu
Belgíu í knattspyrnulandsleik
á sunnudag 1-0. 30 þús.
manns sáu leikinn og Jashin
markv. Rússa vann hug og
hjörtu áhorfenda.
Vínarborg — Austurríki
vann írland 1-0 í landsleik á
sunnudag. Fyrri hálfleikur
var markalaus.
Inter Milan. varð ítalíu-
meistari í knattspyrnu með
50 stig. Bologna varð í 2.
sæti með 46. Bæði liðin töp-
uðu 1-3 á sunnudaginn fyrir
Napoli og Vicenza.
Enska liðið West Br. Albion
lék við landslið Uruguay á
sunnudag og skildu liðin jöfn
1-1. Uruguay er í lokakeppni
heimsmeistarakeppninnar.
Leikurinn var svo harður,
að vísa varð tveim af velli,
miðherja Uruguay og mark-
verði WBA.
Kínverski hástökkvarinn
Ni Chin-Chin stökk 2.26 m.
á sunnudaginn að sögn kín-
versku fréttastofunnar. Það
er 2 cm. lægra en en heims-
met Brummels er.
Hermann inn fyrir varnarvegg
KR og var að búa sig undir að
skjóta, er Bjarni Felixson kom
aðvífandi, og tókst að hreinsa
frá. Nú hertu Valsmenn enn sókn
ina og litlu síðar var Ingivar í
dauðafæri, og átti skot á markið
en hinn ungi markvörður KR,
Guðmundur Pétursson, varði
snilldarlega. Valsmenn sóttu
mun meira næstu mínúturnar,
en á 30, mínútu náðu KR-imgar
góðu upphlaupi, og langvarandi
hætta skapaðist fyrir framan
mark Vals, sem Hans tókst að
afstýra að lokum. En tíu mínút
um síðar náðu KR-ingar aftur
ágætu upphlaupi og lauk því
með skoti frá Einari ísfeld.
Knötturinn lenti i varnarmanni
Vals, og inn í markið.
Nú varð staðan orðinn 2:0 KR
í vil og ástandið ekki beisið hjá
Valsmönnum. En á 48. minútu
má segja að Hermanns þáttur
Gunnarsson í leiknum hefjist.
Hann hafði látið fremur lítið að
sér kveða fram að þessu, en nú
sótti hann knöttinn upp að víta-
teigs liðs síns, lék síðan fram
með hann, og sendi hann yfir
til vinstri til Bergsteins. Berg-
steinn lék áfram með knöttinn
upp vinstri væng vallarins, en
Hermann fyigdi í humátt á eftir.
Bergsteinn sendi síðan knöttinn
aftur til Hermanns, sem var
nokkuð fyrir framan vítateig
KR-inga, og skaut hann við-
stöðulaust að marki KR, og
knötturinn lenti efst upp í mark
horninu — óverjandi fyrir Guð-
mund. Fleira bar ekki til tíðinda
í þessum hálfleik, og lauk hon-
um 2:1 KR í vil.
Síðari hálfleikur var áþekkur
fyrri hálfleik að því leyti að
hann var að mestu tíðindalaus
fyrstu 15 mínúturnar. En á 20.
minútu útti Baldvin skot í þver-
slá Vals úr hornspyrnu. Og að-
eins tveimur mínútum síðar ná
Valsmenn ágætu upphlaupi, og
myndaðist mikil þvaga fyrir
framan KR markið. Það lentu
þeir í návígi Hermann og Guð-
mundur, og hafði Hermann bet-
ur, því að knötturinn lenti á lok-
um í netinu. Stðan orðin 2:2.
Nú var skammt stórra högga
á milli — KR-ingar höfðu ekki
fyrr byrjað með knöttinn á vall-
armiðju, en Valsmenn hirtu
hann af þeim aftur. Reynir lék
Framhald á bls. 31.
Henry Cooper og Cassius Clay.
Clay vann Cooper í 6. lotu
CASSIUS Clay hélt heimsmeist
aratitli sínum í þungavigt. Hann
sigraði brezka meistarann og
áskorandann Henry Cooper á
laugardagskvöldið. Var leikur
inn stöðvaður er 1 mín. og 38
sek. voru af 6. lotu. Hafði
opnazt skurður á vinstri auga-
brún Coopers og blóðrennslið
var svo mikið að dómarinn átti
ekki annars úrkosta en stöðva
leikinn.
Clay vakti mikla athygli nú
Vormót
ÍR í kvöld
FYRSTA frjálsíþróttamót
sumarsins er í kvöld. Er það
Vormót ÍR og fer það fram
á Melavellinum.
Keppendur á mótinu verða
30 til 35 talsins og meðal
þeirra Valbjörn Þorláksson,
sem keppir í mörgum grein-
um, Erlendur Valdimarsson
ÍR. Jón Þ. Ólafsson ÍR og í
sleggjukasti má búast við
skemmtilegri keppni milli
Þórðar B. Sigurðssonar og
Jóns Magnússonar ÍR, en Jón
hefur náð 52—53 m köstum
að undanförnu á æfingum.
Islenzku liðin í
2 efstu sætunum
ÍSLENZKA landsliðið í hand-
knattleik sem verið hefur í
Bandaríkjunum kom heim á
mánuck morgun. Á laugardag
tóku liðsmenn þátt í hraðkeppni
í Livingstone New Jersey. Voru
fararstjórarnir tcknir með í leik
inn og mynduð tvö lið, lið hinna
yngri og lið „öldunganna“. fs-
lenzku liðin skipuðu tvö efstu
sætin í hraðkeppninni og fóru
„öldungarnir“ með sigur af
hólmi.
ísl. unglingaliðið vann úrvals
lið New Jersey 17:11. ísl. „öld-
ungarnir" unnu úrvalslið New
York 19:12. Úrvalslið New Jer-
sey vann lið NeZ York 26:6 og
í úrslitaleik unnu ísl. „öldungarn
ir“ ísl. unglingaliðið 15:12
sem fyrr fyrir frábæra fimi
og snerpu. Cooper sótti í upp-
hafi mjög en Clay vatt sér ætíð
undan og Cooper kom fáum
höfuðhöggum á Clay en nokkr-
um skrokkhöggum. Þótti Cooper
standa sig mjög vel og sýnilegt
var að hann hóf í upphafi ör-
væntingafulla sókn í því skyni
að vinna fljótt — eða ella tæk-
ist það ekki.
Hann vann fyrstu 2 loturnar
á stigum, sú þriðja var jöfn, 4.
lotu vann Clay en Cooper hina
fimmtu. f lok 5. lotu þjarmaði
hann allfast að Clay — án þess
þó að sú sókn hefði sýnileg
áhrif.
Clay þótti fara mjög hægt í
sakirnar framan af. Hann hörf-
aði látlaust undan Cooper, vatt
sér ætíð undan höggum er mið-
uðu á höfuðið en fékk skrokk-
högg aliþung og sagði eftir á
að höggin hefðu verið þyngri
en þau litu út fyrir að vera.
í upphafi 6. lotu var Clay sem
annar maður. Hann hóf þegar
sókn og skurðurinn opnaðist á
augabrún Coopers. Blóðið huldi
andlit hans og dómarinn varð
senn að stöðva elikinn.
Þetta er þriðji leikurinn sem
Cooper tapar vegna blóðrennsl-
is frá skurði á v. augabrún. Clay
sagði eftir á að Cooper væri
sóknharður, höggharður og góð-
ur hnefaleikari. Leitt væri
hversu auðveldlega opnuðust
sár á augabrún hans en ef svo
hefði ekki verið hefði án efa
orðið um góðan leika að ræða —
en þá myndi Cooper hafa legið
á rothöggi í 9. eða 10. lotu.
Og Clay hélt áfram:
„Mér leið illa að sjá þenn-
an blóðstraum. Hann hafðl
staðið sig mjög vel. Ég met
hann mikils sem góðan hnefa
leikamenn“.
Uppi voru raddir um það
á leikvanginum og í ýmsum
brezkum blöðum að Clay
hefði ekki opnað skurðinn
með hnefahöggi heldur með
því að „skalla“ Cooper. Kvik
mynd sem tekin var af leikn-
um og sýnir hún og sannar
að það var hægri handar
högg sem opnaði skurðinn á
augabrún Coopers.
Cooper fær mikið hrós
fyrir frammistöðu sína. I
bandarískum blöðum er sagt
að hann þurfi ekki að vera
niðurlútur. Hann sýndi bæði
í 2. og 3. lotu högg sem
Framhald á bls. 31
Fram vann 11-0
Fram og Víkingur mættust í
Reykjavíkurmótiinu á sunnu-
dagskvöldið og lyktaði viður-
eigninni með stórsigri Fram,
sem skoraði 11 mörk gegn engu.
Má með sanni segja að úrslit
leikja í þessu Reykjavíkurmóti
séu æði misjöfn. Þrír næstu leik
ir á undan voru án marka en
svo opnaðist flóðgáttinn heldur
betur er Framarar tóku sig til
á kosningadaginn.
Lið Víkings er jafn óútreiknan
legt og markatölur leikjanna
Vikingar kræktu sér í stig gegn
KR, en komu nú engum vörn-
um við gegn Fram. Áttu fram-
herjar Fram afar auðvelt með
að komast í gegnum vægast sagt
lólega vörn Víkings og mörkin
komu eins og á færibandi. í
hálfleik stóð 6-0 og í síðari
hálfleik bættu Framarar 5 mörk
um við.
Farm hafði í þessum leik al-
gera yfirburði eins og úrslitin
gefa til kynna. En liðið verðu.
ekki dæmt eftir þessum leik, til
þess var mótstaðan of lítil.
Akureyring-
ar töpuðu
4-0
ÚRVALSLIÐ knattspyrnumanna
frá Akureyri er nú í keppnis-'
ferð í Noregi. Léku Akureyr-
ingar við 3. deildarliðið Herd i
Álasundi í gærkveldi (mánu-
dagskvöld) og unnu Norð-
mennirnir með 4:0. í hálfleik
var staðan 1—0.
Akureyringar leika einnig við
2. deildar liðið Aurskog áður en
þeir halda heim.