Morgunblaðið - 28.05.1966, Side 17

Morgunblaðið - 28.05.1966, Side 17
T,W*g8rt?dagur 26. maí 1966 MORGUNBLAÐID 17 ALLT frá því áð háskólinn 1 Yale birti Vínlandskortið sitt síðastliðið haust, hefur sú vika ekki liðið, að Vínlands væri ekki einhvers staðar getið í brezkum blöðum. Og stundum hafa blöðin birt um þetta dag- legar fréttir. Mun vafalaust vera hægt að staðhæfa þáð, að ekkert afrek íslendinga að fornu eða nýju hefur hlotið jafnmikla frægð í Bretlandi og Vínlandsfundurinn forðum. Þó getum við ekki stillt okkur að minnast þess, að Vínland mun éður fyrr hafa vakið athygli á Bretlandi, þegar farmenn frá Bristol stunduðu ólöglega verzl Leiðangursmenn á Griffin, fr á vinstri: John Andersen, Peter Haward, Allister Mslntosh, Tim Lee, Peter Comber og Reg Garrod. um degi sendir áhöfnin fréttir af siglingunni, og þær birtast svo reglulega í Guardian, sem lætur þær sitja fyrir öðrum stórviðburðum. Blaðið hefur einnig ráðizt í að efna til samkeppni í skólum um gervallt Bretland. Nemend- um hefur verið boðið að senda ritgeröir, teikningar, kvæði, málverk og allt hvað heita hef- ur, — um leiðangurinn sjálfan og það sem hann varðar. Og háskólastúdentum hefur einnig verið boðið að taka þátt í keppni, og verða fyrstu verð- launin hálfsmánaðar dvöl fyrir tvo í Noregi. Stúdenar eitga að skrifa 1000-orða frásögn í ís- lendingasagnastíl um ieiðang- urinn. (Innan sviga verð ég að geta þess, að stúdentum er ráð- lagt að kynna sér stílinn á Vín- lendinga sögum í þýðingu okk- ar Hermanns Pálssonar, en hún kom út á vegum Pengin Class- ics í fyrra, og hefur nú verið gefin út af New York Uni- versity Press). Vínlandsför in nýja un á íslandi á sfðara hluta 15. aldar og lögðu svo út þaðan í leit að Vínlandi, nokkrum vetr- um á undan Kolumbusi. Deilur um Vínlandskortið hafa verið háðar sleitulaust síð- an það kom út. Og nýlega hafa kunnir sérfræðingar í korta- sögu og kortagerð á miðöldum komið fram með þung rök, sem ef til vill eiga eftir a’ð ríða kortinu að fullu. En áhugi manna um þetta leyti á Vín- landi hefur vaknað að nýju við það, að brezka blaðið Guardian hefur nú sent lítið skip í leit að Vínlandi vestur um Atlants- haf. Blaðið sjálft kostar alla út- gerðina. Núna þegar ég er áð hripa þessar línur, er Gammurinn (The Griffin). en svo heitir þetta litla sjóskip, á leið sinni frá Færeyjum til fslands. — Gammurinn er gamall af skipi að vera, eða tæplega þrítugur að aldrL Þetta er kútter, 45 feta langur. Bátinn á Norðmað- ur einn, sem lánar Guardian far kostinn. Skipverjar eru sex: íoringi leiðangursins, John And erson, sem skrifar um kappsigl- ingar fyrir Guardian og er einn ig aðstoðarritstjóri blaðsins; en með honum eru fimm menn. Bandarísk stúlka hafði boðizt til áð sigla með þeim og ann- ast matselda fyrir þá, en þetta var ekki þegið, þar sem bátur- inn er í rauninni of lítill fyrir sex menn. Þó eru þeir farnir að sjá eftir því að hafa ekki tekið boði stúlkunnar. En hvers vegna er nú verið að ráðast í slíka hættuför vest- ur um haf? Og hvernig ætla þeir að finna Vínlandið góða? Áhugi manna á Vínlandi hefur að sjálfsögðu hrundi'ð þessu fyr irtæki af stað. í Bretlandi hef- ur alltaf verið til eitthvað af mönnum, sem láta sér ekki að lesa um sögulega atburði, heldur vilja þeir einnig reyna þá sjálfir. Hugmyndin á bak við leiðangurinn er sú, að þeg- ar bátúfinn er kominn á tiltek- inn stað fyrir vesturströnd Grænlands, þá á að láta vinda og strauma bera hann í kjölfar Leifs heppna og annarra far- manna, sem sigldu frá Græn- landi til Vínlands að fornu. — Ekki er ætlunin sú a'ð sanna neit um vesturfarir og Vínlands fundi, því að allir þátttakend- ur trúa því að óreyndu, að Vín- land hafi fundizt. Heldur vakir hitt fyrir þeim að láta náttúr- una hjálpa þeim til að finna landið. Þeir ætla sér ekki að sanna neina sérstaka kenningu um legu Vínlands, en þó er það einsætt, að þeir gefa lítinn gaum að hugmyndum Helga Ingstads, sem telur sig hafa fundið merki um norrænar byggðir á Nýfundnalandi. — Miklu fremur munu þeir hall- ast að kenningum Nor'ðmanns eins, sem heitir J. Kr. Tornöe og heldur því fram, að Vín- land sé þar sem nú er New York. Þetta hefur allt vakið mikla kátínu og skemmtun. Þegar Gammurinn lét í haf, gekk geysimikið á, og jók það ekki sízt á viðhöfnina, að yfirvöld- in í Skarðsborg (Scarborough) á austurströnd Englands buðu skipinu að hefja þessa sögulegu sjóferð úr höfninni þaðan! — Ástæðan er sú, áð Skarðaborg ætlar nú í ár að halda hátíð- lega þúsund ára minningu um stofnun borgarinnar. Sumum þykir nú þetta helzti vafasamt, að Skarðsborg geti með neinum sanni vitað aldur sinn. Hug- myndin um stofnun staðarins er sótt til Kormáks sögu, sem er frægári fyrir mansöngva en trausta tímatalsfræði, en í Kormáks sögu segir, að Kor- mákur og Þorgils skarði bróðir hans hafi fyrst sett virki það, sem Skarðaborg heitir. Þessu trúa nú þeir menn einir, sem vilja hafa eitthvað ákveðið að miða við. En hvað sem því líð- ur, þá jók þetta allt á viðhöfn- ina og gerði brottför Gamms- ins enn hátíðlegri en ella hefði orði'ð. Bærinn var svo krökkur af blaðamönnum og kvikmynda tökurum, að hvergi var þver- fótað fyrir. Síðan að aflokinni veizlu með borgarstjóra, lætur Gammurinn í haf og skríður norður um kaldan og þokusæl- an Norðursjóinn. Þeir höfðu ætlað sér, að seglin myndu duga, en brátt urðu þeir að grípa til mótorsins, og þannig komust þeir til Færeyja með brotið stýri. Gammurinn hefur Marconi Kesterl radíósíma, og á hverj- Blaðið Guardian tekur þetta allt ósköp hátíðlega, en ein- hvern veginn er ég ekki svo viss um, að þeim Leifi nokkrum Eiríkssyni og Þorfinni karls- efni myndi hafa getizt sérstak- lega vel að þessu brölti. Þó má vel vera, að þeim hefði orðið skemmt. Að lokum get ég ekki stillt mig um að vekja athygli á því, að íslendingar hafa verið und- arlega daufir við að hagíiýta sér sögurnar til landkynningar. í Þeim flaumi af bókum, rit- gerðum og greinum, sem birzt hafa að undanförnu um Vín- land, þá er auðsætt, að oft er miðað við Noreg fremur en ís- land, þegar rætt er um Vín- lands-fundinn. Norðmenn eru og miklu einbeittari að koma hugmyndum sínum á framfæri, og þeir hika ekki við að not- færa sér áhuga manna á Vín- landi. Ef til vill gengur þeim ívið betur að selja fisk eða síld til Bandaríkjanna, af þeim sök- um, hve margir vestra telja Leif hafa verið norskan. Eins og áð- ur er getfð, þá verða fyrstu verð launin fyrir sögu-brotið um Vínlandsförina nýju hálfsmán- aðardvöl í Noregi. Þetta er ekki svo undarlegt. þar sem siglt verður vestur í norskum báti. Magnús Magnússon. Tjónabætur Samvinnu- trygyinga 149 millj. kr. AÐALFUNDIR Samvinnutrygg inga og Líftryggingafélagsins Andvöku voru haldnir á Blöndu- ósi 10. maí. Fundinn sátu 12 full- trúar víðsvegar að af landinu, auk stjórnar og nokkurra starfs- jnanna félaganna. í upphafi fundarins minntist formaður stjórnarinnar, Erlend- ur Einarsson, þriggja forystu- manna félaganna, sem látizt höfðu frá því fiíðasti aðalfundur var haldinn, þeirra Guðmundar Ásmundssonar, hrl., Sverris Jóns sonar, flugstjóra, og Oddgeirs Kristjánssonar, tónskálds. Formaður stjórnar, Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu etjórnarinnar, en Ásgeir Magnús son, framkvæmdastjóri félag- anna, skýrði reikninga þeirra. Á árinu 1965 opnuðu Samvinnu tryggingar nýjar umboðsskrif- atofur með Samvinnubankanum í Keflavík og á Húsavík og sölu- skrifstofu í Bankastræti 7 í Reykjavík. Á árinu 1965 gengust Sam- vinnutryggingar fyrir stofnun klúbbanna „Öruggúr akstur“, »em hafa það að markmiði að stuðla að auknu umferðaröryggi og betri umferðarmenningu í yiðkomandi byggðarlögum. Heildariðgjaldatekjur Sam- vinnutrygginga námu á árinu 1965, sem var 19. reiknisár þeirra kr. 186,535,339.— og höfðu ið- gjöldin aukizt um kr. 31.566.099 eða 20.37% frá árinu 1964. Er um ®ð ræða iðgjaldaaukningu í öll- íua tryggingagreinum. Heildartjón Samvinnutrygg- inga námu á áriiiu kr. 149.086.479 og höfðu aukizt um kr. 4.578.397 frá árinu 1964. Er tjónaprósent- an 79.92% af iðgjöldum á móti 93.25% 1964. Nettóhagnaður af rekstri Sam vinnutrygginga 1965 nam kr. 479.111.51 eftir að endurgreidd- ur hafði verið tekjuafgangur til tryggingartakanna að fjárhæð kr. 5.553.000 og eru þá endur- greiðslur tekjuafgangs frá upp- hafi orðnar kr. 61.723.736. Bónus greiðslur til bifreiðaeigenda fyr- ir tjónlausar tryggingar námu kr. 12.780.000. Iðgjaldatekjur Líftryggingafé- lagsins Andvöku námu kr. 2.290.489. Tryggingastofn nýrra líftrygginga á árinu nam kr. 4.685.000 og var tryggingastofn- inn í árslok kr. 114.193.729. Trygginga- og bónussjóðir félags ins námu í árslok 1965 tæpum kr. 30.000.000. Úr stjórn áttu að ganga ísleif- ur Högnason og Ragnar Guðleifs son, en þeir voru báðir endur- kjörnir. Að lokum aðalfundi hélt stjórn in fulltrúum og allmörgum gest um úr Húnaþingi og Skagafjarð- arsýslu hóf í félagsheimilinu á Blönduósi. Stjórn félaganna skipa: Erlend ur Einarsson, forstjóri, formaður, ísleifur Högnason, Jakob Frí- mannsson, Karvel Ögmundsson og Ragnar Guðleifsson. Framkvæmdastjóri félaganna er Ásgeir Magnússon. Fóstrurnar nýbrautskráðu ása mt skólastjóra Fóstruskólans, fr ú Valborgu Sigurðardóttur. 22 fóstrur brautskr. FÓSTRUSKÓLA Sumargjafar var sagt upp laugardag 21. maí s.l. Brautskráðar voru 22 fóstrur. Skólastjórinn, frú Valborg Sigurð ardóttir, minntist þess í skóla- slitaræðu sinni, að 20 ár eru nú liðin síðan skólinn var stofnað- ur. Hafa alls 149 fóstrur hlotið menntun sína við skólann. Nöfn hinna nýbrautskráðu fóstra fara hér á eftir: Aðalheiður Dröfn Gísladóttir, Skagafirði, Anna Þuríður Krist- björgsdóttir, Reykjavík, Ása Margrét Finnsdóttir, Mýrarsýslu, Ásta Sigríður Alfonsdóttir, Kópavogi, Brynhildur Sigurðar- dóttir, Reykjavík, Guðrún Val- garðsdóttir, Reykjavík, Halldóra H. Hálfdánardóttir, Reykjavík, Helga Magnúsdóttir, Borgarfirði Helga J. Stefánsdóttir, Húsaví'k, Hjördis Hannesdóttir, Borgar- firði, Hrefna Óskars Óskarsdótt- ir, Vestmahnaeyjum, Ingigerður Þorsteinsdóttir, Reykjavík, Mar- grét Steinþórsdóttir, Árnessýslu, María Bjarnadóttir, Neskaupstað, María Þorgrímsdóttir, Húsavík, Sigríður Hauksdóttir, Seltjarnar nesi, Sigríður Kristinsdóttir, Reykjavík, Sólveig Björnsdóttir, N-Múlasýslu, Sólveig Ólafsdóttir Reykjavík, Stefanía Jóhannsdótt ir, Siglufirði, Þórelfur Jónsdóttir, Akranesi, Þuríður Sigurðardóttir Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.