Morgunblaðið - 28.05.1966, Síða 31

Morgunblaðið - 28.05.1966, Síða 31
Laugardagur 28. maf 1966 MORGU NBLAÐID 31 Trygging hf.l5ára TRYGGING h.f. er 15 ára um þessar mundir, en það var stofn að 17. maí 1951. Félagið hélt að- alfund sinn hinn 27. maí þ.m. og í skýrslu stjórnarinar kom m.a. þetta fram: Árið 1965 var 15. reikningsár félagsins. Á því ári námu ið- gjaldatekjur þess röskum 29 - Starf Framhald af bls. 5 gefna. En það fer fram í Kópavogshæli, er verklegt og bóklegt, að fyrirkomulagi t.d. svipað og ljósmæðraskólinn. En þessi þjálfun er í svipuðu formi á Norðurlöndum og víðar, þar sem þau hjón þekkja til. Haustið 1958 var hafin kennsla í gæalu og um- önnun vangefinna í Kópa- vogshæli, til að bæta úr brýnni þörf fyrir þjálfað starfslið og hefur síðan ver- ið haldið áfram. 24 stúlkur hafa útskrifast sem gæzlusystur og 'hefur það leyst úr mikil'li vöntun á þjálfuðu starfsliði, segir Ragnhildur Við höfum stúlk urnar þá bæði í tvö ár meðan á námi þeirra stendur, og svo á eftir. 'Kennarar eru Björn Gestsson forstöðumaður hæl- isins og Ragnhildur Ingibergs dóttir, læknir, Vilborg Helga- dóttir, hjúkrunarkona, Árný Kolbeinsdóttir, gæzlusystir og Valborg Böðvarsdóttir, sem hefur námskeið í söng og gít arleik. Verklega námið fer fram á deildunum sem vakta vinna, en bóklega námið er á daginn mánuðina október til maí og fara próf fram á vor- in, þegar bóklegri kennslu lýkur. Sex stúlkur voru nú að ljúka prófum, þær Helga Birna Hermannsdóttir, Helga Ivarsdóttir, Guðrún Karlsdótt ir, Katrín Guðmundsdóttir, Ingibjörg Kolka og Vera Snæ hólm. Þær eiga eitthvað eft- ir af verklegu námi, mismik- ið þó og verða allar búnar í haust. Vinnuvika stúlknanna er 44 stundir, en kenslustund ir falla stundum inn í vaktir. Ætlast er til, að nemar fái æfingu í öllum þeim verkum, sem þær að námi loknu þurfa að segja fyrir um eða leysa af hendi á deildunum. Þar á með al er ætlazt til að þær fái nokkra æfingu í að stjórna hælisdeild. Meðan á náminu ,stendur, búa stúlkurnar í starfsmannabústöðum hælis- ins, eða heima hjá sér, ef þær .eiga heimili nálægt. Fyrstu 3 mánuðir námstím «ns skoðast af beggja hálfu sem reynslutími og við spyrj um Ragnhildi hvort mikil brögð séu að því að stúlkur hætti í námi. Hún segir það ekki vera. Það rétt komi fyr- ir . Meðan þetta samtal fer fram, höfum við flutt okkur frá skrifstofu þeirra hjóna og yfir í nýju deildirnar, sem eru til húsa í nýjum og fall- egum byggingum, þar sem er rúmgott og bjart og vist- mönnum líður sýnilega mjög ve.1. Ung gæzlusystir, Birgitte Guðlaugsdóttir, er þar að hjálpa hópi vistmanna við föndur og prjónaskap. Hún er búin að vera þarna í 3. ár, fyrstu tvö árin sem nemi, og segir starfið ákaflega lifandi og skemmtilegt Hún kom í það af skrifstofu hjá stóru fyrirtæki, og kveðst ekki lcSSÍ'a það að jöfnu hversu miklu ánægjulegra þetta starf sé. Hún er að stofna heimili, en ætlar samt að halda áfram starfinu. Já, þetta er vissulega starf, sem nær langt út fyrir það að vera atvinna, eins og lækn- arnir orðuðu það, bæði til- breytingarríkara og innihalds ríkara en venjuleg vana- vinna. milljónum króna og höfðu auk- izt um 16>8% á árinu. Á þeim 15 árum, sem félagið hefir starfað, hafa iðgjaldatekj- ur þess numið aLls kr. 126.660.000. Þar af hafa verið greidd-tjón að upphæð kr. 77.266.000, til endur tryggjenda hafa runnið kr. 6.814.000 og til umboðsmanna kr. 4.979.000. Varasjóðir iðgjalda og tjóna nema nú kr 11.552.000, almenn- ur varasjóður kr. 423.000 og höf uðstóll kr. 1.039.000. Félagið er til húsa að Lauga- vegi 178 og eru skrifstofur þess hinar vistlegustu Formaður ' félagsstjórnar er Kristján Jóhann Kristjánsson. Með honum í stjórn eru: Þor- steinn Bernharðsson, Othar Ell- ingsen, Óli J. Ólason og Björn Thors. Framkvæmdastjórar fé- lagsins eru: Erling Ellingsen, Hannes O. Johnson og Árni Þorvaldsson. 56. Starfighter- slysið í V-Þýzkalandi í DAG hrapaði til jarðar yfir I Vestur-Þýzkalandi orrustu- I þota af gerðinni Starfighter og fórst flugmaðurinn. Þotur 1 af þessari gerð, sem þýzki flugherinn lét gera breyting- I ar á, eftir að þær voru keypt- ar frá Bandaríkjunum, hafa reynzt ákaflega illa. Slysið í dag er 56. í rdð- inni, sem hent hefur þessar þotur og flugmaðurinn, sem 1 nú fórst, er 31. þotuflugmað- 1 urinn, sem lætur lífið í slys- um þessum. Mikill órói hefur verið í V- 1 Þýzkalandi undanfarið, vegna I slysa þessara, og hafa heyrzt | háværar raddir um, að taka , beri þoturnar úr umferð. IVIistök leiðrétt í gær urðu þau mistök hér í blaðinu, að nafn greinarhöf- undar að minningargrein um Miehael Sivertsen vélstjóra, mis ritaðist. Greinina skrifaði Haf steinn Þorsteinsson (ekki Hann- es Þorsteinsson). Er greinarhöf- undur beðinn afsökunar á mis- tökum þessum. Ragnar Lár.. sýnir á Akranesi RAGNAR Lár mun halda sýn- ingu á svartlistar- og álímingar- myndum í Iðnskólanum á Akra- nesi. Verður hún opnuð í dag kl. 4, og verður opin daglega frá kl. 2-10 fram á þriðjudags- kvöld. Þessa skemmtilegu mynd af hreindýrinu tók Gunnar W. Steindórsson, fréttaritari Mbl. á Eski- firði. Er hún tekin að Baughúsum í Hólmanesi, sem er á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Nokkur dýr hafa að undanförnu leitað niður af háiendinu, og hafa sést nokkur hreindýr á túninu á eyðibýlinu Vesturhú s, sem er skammt frá Eskifirði. Gagnkvæm kennaraboð NORRÆNA félagið í Danmörku býður 15 íslenzkum kennurum 3ja vikna ókeypis námsdvöl í Danmörku í sumar 5.—27. ágúst. Boð þetta er með líku sniði og áður hefur. tíðkazt, en margir íslenzkir kennarar hafa þegar notið þessarar fyrirgeiðslu. Þess er óskað, að þeir kennarar, ssm kenna dönsku, hafi forgangsrétt um þátttöku, en þessi gagn- kvæmu kennaraboð, sem átt hafa sér stað milli þessara tveggja frændþjóða, eru þó enn sem fyrr opin öllum íslenzkum kennurum. Þátttakendur munu flestir Sátfaiundurinn SÁTTAFUNDUR milli vinnu- veitenda og fulltrúa flugvirkja- stóð enn yfir, eT blaðið fór í prentun í gærkveldi, og hafði þá samkomulag ekki náðst. Eins og greint var frá í blaðinu í gær tókust samningar á milli vinnu- veitenda og fulltrúa flugvél- stjóra daginn áður. Sjð innbrot upp- lýst í Kópavogi LÖGREGLAN í Kópavogi hefur haft hendur í hári manns, sem játað hefur á sig flest þau inn- brot, sem framin hafa verið í Kópavogi frá áramótum, en ó- venjulega mikið hafði borið á því að brotizt væri inn í verzl- anir og farið í peningaskápa og skúffur. Mun pilturinn hafa haft 10—20 þúsund krónur upp úr 7 slíkum innbrotum. Er hann í gæzluvarðhaldi og málið er í rannsókn. 1 gær varff harffur árekstur vi hanu valt önnur bifreiffin. Var Cola gosdrykkjagerðinni, og u bifreiffarinnar, (Ljós. ff Umferðarmiffstöffina, og viff þaff flutningabifreið frá Coca- rffu miklar skemmdir á farnii Mbl. Sv. Þorm.) fara með skipi frá Reykjavík 1. ágúst og koma til Kaupmanna- hafnar þánn 5. ágúst. Fyrstu dagana verður dvalið í Höfn og litazt þar um. Næstu 4 daga dvelja þátttakendur á dönskum heimilum utan höfuðborgarinn- ar, en þann 14. ágúst verður haldið til Ry lýðháskólans við Himmelbjerget, dvalið þar í viku og hlýtt á erindi og far- ið í skemmtiferðir um nágrenn- ið. Hinn 20. ágúst er aftur haldið til Kaupmannahafnar, þar sem þátttakendur verða gestir skóla- yfirvalda og kennarasamtaka. Skipulagðar verða heimsóknir í skóla og ýmsar aðrar menning- arstofnanir, efnt til kynningar- kvölda með dönskum kennurum o.fl. Heimleiðis verður farið þann 27. ágúst. Væntanlegir þátttakendur þurfa aðeins að greiða fargjöld með skipinu fram og til baka og sjá sér fyrir vasapeningum. Um- sóknir sendist sem allra fyrst. Nánari upplýsingar um heim- boð verða veittar í Fræðslumála skrifstofunni og af framkvæmda stjóra Norræna félagsins. Þá hefur Norræna félagið á Islandi ákveðið í samráði við ís- lenzk kennarasamtök og fræðslu yfirvöld að bjóða 15 dönskum kennurum ókeypis námsdvöl á íslandi í 3 vikur í júlí í sumar, 10,—31. júlí. Eins og jafnan áður efna Nor- rænu félögin til ýmiss konar námskeiða í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi á árinu 1966, alls um 50 talsins. Mörg þessara námskeiða eru sérstak- lega ætluð kennurum. Nánari upplýsingar veitir Magnús Gísla son, framkvæmdastjóri Norræna félagsins. Sfaðreyndir um dráftarbrautir VEGNA slæmra línubrengla í grein Sigurðar Jónssonar for- stjóra Slippsins, hér í blaðinu í gær, er hér birt aftur máls- grein sú er brenglaðist í grem hans, og hann beðinn afsökunar á mistökunum: „Sömdu við þá strax um bygg ingu dráttarbrautar, sem tók 1500 lesta skip, með þrem hlið- arfærslum fyrir 1000 lesta skip hver. Þessi braut var tekin í notkun í ágústmánuði 1948. Gat aðalbrautin tekið upp stærstu nýsköpunartogarana fullhlaðna, fært þá til hliðar með nokkurri lest innanborðs. Það var stærsta og fullkomnasta dráttarbraut af þessari gerð, sem þá þekktist. Samskonar gerð af dráttarbraut um í Englandi gat ekki fært nýsköpunartogara til hliðar og getur víst ekkr eim. Dræm síld- veiði í gær MJÖG dauft var yfir síldveiff- unum fyrir Austurlandi í gaer- dag og gærkvöldi, aff því er Ás- mundur Jakobsson skipstjóri síld arleitarskipinu Hafþóri tjáffi Mbl. í gær. Voru bátarnir að kasta á svæð- inu 250—260 sjómilur út af Langanesi, norðan við 67. gráðu og austur undir 4. gráðu. Aðeins tveir bátar tilkynntu um afla, og voru það Þorsteinn með 220 tonn og Oddgeir 210 tonn. Síldin var mjög stygg og erfið viður- eignar, en hið bezta veður var á miðunum í gær. Ásmundur upplýsti að lokum, að frá hádegi á fimmtudag og fram á hádegi í gær hefðu 11 bátar fengið samtaLs 1640 tonn, en í hverju tonni er um 10 tunn- ur. — Vietnam Framhald af bls. 1. síðustu stundu tókst a’ð dreita mótmælendum, enda var talin á því hætta, að stúdentar, sem margir hverjir eru ákaflega öfgasinnaðir, myndu ráðast gegn konsúlatinu. Síðdegis í dag kom Nguyen Cao Ky, forsætisráðherra Suður- Víetnam, til Da Nang, og þar lýsti hann því yfir, að hann hefði í hyggju að senda herlið til Hue. Hins vegar vildi hann reyna að komast að samningum við Búdd ista. Forseti Norður-Víetnam, Ho Chi-Minh, er nú í Kína, en hins vegar er ekki að sjá, að fregn- um þeim, sem birtar hafa verið í Kína eða Norður-Víetnam, að forsetinn sé á ferðalagi. Þykir því margt til þess benda, að for- setinn sé á laun að leita aukinn- ar áðstoðar frá Pekingstjórninni. — Iceland Review Framhald af bls. 2 var í Páfagarði með mynd af forseta íslands í heimsókn hjá páfa. Hefur ekki áður verið greint frá þessari útgáfu hér- lendis. Bókaþáttur er í umsjá Sigurðar A. Magnússonar, sem einnig skrifar stutta frásögn af blaðaúgáfu á Islandi. Ennfrem- ur eru hér fróðleiksmolar fyrir erlenda ferðamenn. Af öðru má nefna, að ritstjór arnir skrifa nú „leiðara“ í fyrsta sinn í Iceland Review. Er þar fjallað um árangur þann, er ís- lendingar hafa náð í fiskveiðum —• og ennfremur er Vínlands- kortinu svonefnda gerð skil. Gísli B. Björnsson gerði kápu og sá um útlit, en Setberg prent aði. Ritstjórar eru Haraldur J. Ha;nar og Heimir Hannesson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.