Morgunblaðið - 19.08.1966, Page 8

Morgunblaðið - 19.08.1966, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fðstudagur 19. ágúst 1966 UTVARP REYKJAVÍK í SÍÐASTA þætti gat ég lítið eitt um óvandaða meðferð á ísl. máli í útvarpinu, einkum í dægurlaga- flutningi. Margir hafa vítt þetta, í ræðum og ritum, en svo virðist sem stjórn ríkisútvarpsins og þá einkum þeir er eiga sérstaklega að sjá um söngva og hljómleika stofnunarinnar láti þetta mjög afskiptalaust. Það er ójþolandi að heyra móðurmálið ár og síð borið skakkt fram, þannig að áherzla er lögð á síðasta atkvæði eða þá jafnt á öll atkvæðin eins og nú er t. d. farið að gera í einu orði í hinu þekkta erindi, „Undir bláum sólarsali", ég á þar við orðið „galaði“ („fagurt galaði fuglinn sá“). Þeir sem yrkja dægurlög, verða að sjá um að málið á vísunum eða erindun- um eigi við tónverkið. Sömuleið- is skáldin er búa til texta við erlend lög. Nú verður stjórn út- varpsins að taka í taumana og hreinsa vel til í sínum húsum, gera ræk þaðan öll þau ljóð og lög sem ekki eru flutt á réttu máli, eftir því sem mögulegt er, — en ekki láta reka á reiðanum eins og hingað til hefur verið gert. Þáttur þeirra Brynju og Hólm- fríðar á laugardaginn 6. þ. m. var með daufara móti. Túskildings- operan svonefnda eftir Kurt Weil (textinn eftir Bertold Brecht) er mjög leiðinlegt og lé- legt tónverk, þótt Því tækist að sefja milljónir manna á sínum tíma og sumir séu, sjálfsagt hrifnir af því enn. Það komst meira að segja á fjalirnar hér á íslandi, en ekki sá undirritaður það né heyrði og man ekki hvernig undirtektir voru. — Þá ræddu þær við Harald Björns son, leikara, 75 ára. Hann hefur farið með 320 hlutverk, ef ég heyrði rétt. Þessi ágæti leikari hefur veitt mörgum lærdómsrík- ar og skemmtilegar stundir með list sinni. Gengið á gleymdar slóðir nefndist þáttur er kom í stað laugardagsleikritsins. Mun séra Kristján Róbertsson hafa samið þáttinn eftir gömlum heimildum og munnmælum en auk þess fluttu Auður Guðjónsdóttir og Aðalgeir Kristjánsson. Fyrir 140 árum fannst ung stúlka Sig- ríður Jónsdóttir helstungin í s k e m m u á Illugastöðum í Fnjóskadal. Var þetta talið sjálfsmorð, en lítið gert eða nær því ekkert að rannsaka málið og alveg óvíst talið, að hér hafi ekki verið um morð að ræða. Þátturinn var vel fluttur og hrollvekjandi, en óvíst að ekki hefði betur látinn sofa í gleymsku, þar sem aldrei verður neitt sannað héðan af hver vald- ur varð að dauða Sigríðar. Stundarkorn með Stefáni Jóns- syni o. fl. var á sunnudagskvöld. Nú vantaði spurningalþáttinn sem hefur verið aðaluppistaðan í þessum þætti. Stefán gat nú um ýms dægurmál, svo sem hagráð, veðrið, ný frímerki, góða lax- gengd í Kollafirði, um veiði- mannasóða við Blöndu norður, er skilja eftir öngla, girni og þ.l. á víð og dreif til stórhættu fyrir sauðfé. — Ambassadorum fjölg- ar. Verzlunarmannahelgin gekk slysalaust að mestu, lítil ölvun en samt aldrei selt meira áfengi en nú. — Þá kom einkennilegt atriði. Var það í því fólgið, að Þorvaldur, veitingamaður í Holti hellti úr 20—30 vínflöskum fyrir útvarpið til þess að hljóðrita gutlið. Heldur fannst mér þetta lítið uppbyggileg skemmtun á bágt með að skilja tilganginn. Þá talaði Stefán við aldraðan mann úr Grindavík, Kristin Jónsson, Brekku, fiskimatsmenn og sjómann. Var það langt mál um sjóróðra fyrr og nú, ekki ófróðlegt en verður ekki rakið hér. Aðeins vil ég leiðrétta það, sem tvisvar var sagt og getur því ekki verið mismæli, að Kálfs- hamarsvík er í Húnavatnssýslu en ekki í Skagafirði. — Ágúst Böðvarsson landmælingamaður hefur gefið út 6 kort af Reykja- vík, hið síðasta nýkomið, tekur yfir svæði er á búa um 100 þús- und manns. — Að lokum kom Einar í Hvalnesi. Hann hefur fundið upp óbrigðult ráð gegn verðbólgunni alræmdu. Sagði hann að Krösus konungur hefði safnað gulli í stað þess að dreifa því út til landsins gagns og nauðsynja og því fór sem fór, á hann var ráðizt og hann tapaði sínu gulli. Seðlabankinn okkar safnar seðlum, sagði Einar, í stað þess að hann á að dreifa seðlun- um út, þar með væri 611 verð- bólga læknuð. Er ekki ólíklegt að stjórn bankans taki þetta til rækilegrar athugunar! Auk þess kvað Einar miklar gull- og silf- urnámur hjá sér í Hvalnesi. Kemur nú til kasta hagfræðinga og jarðfræðinga að meta og vega tillögur og kenningar Einars. Magnús Þórðarson blaðamaður talaði um daginn og veginn 8. þ. m. Bar margt á góma, eins og vera ber. Fór hann með gamalt kvæði eftir Guðmund Friðjóns- son, ágætlega orkt, um heimsvið- burði þeirra tíma, kjarnyrt og mergjað. Þá talaði hann um dóma erlendra manna um ís- lenzka unglinga. Telja þeir okkar unglinga stærri og kraftmeiri, en útlendingana kurteisari og ekki eins heimtufreka. Ég held að þetta sé alls ekki rétt, hygg að íslenzkir æskumenn séu að engu leyti verr siðaðir en unglinga annarra menningarþjóða. Talað er um að ungt fólk frá Reykjavík hagi sér ekki vel er það kemur á samkomur í sveitum. Þó eru þeir hvattir mjög til að koma þangað og eyða þar aurunum sín- um. Dr. Steingrímur Þorsteinsson, prófessor, flutti síðar í vikunni stutta en bráðsnjalla ræðu um stórskáldið Matthías Jochumsson. Hef ég aldrei heyrt skáldinu (skáldskap hans) betur gerð skil í fáum orðum. Eftir það las Jó- hannes úr Kötlum nokkur kvœði Matthíasar, snilldarlega vel. — 11. ágúst voru liðin 175 ár frá dauða séra Jóns Steingrímssonar, prófasts. „Hann var hinn merk- asti maður í öllum greinum" seg- ir dr. Páll Eggert Ólason, m. a. Sjálfsævisaga hans er merkust rita hans, öndvegisrit í ísl. bók- menntum. Séra Gisli Brynjólfs- son flutti ágætt erindi um hann í útvarpinu. Jóhann Hjálmarsson talaði við Geir Kristjánsson um Pasternak og Majakovski. Því miður heyrði ég aðeins upplestur Steindórs Hjörleifssonar leikara á kveð- skap hins síðarnefnda í þýðingu Geirs. Ekki var ég hrifinn af þeim skáldskap, liggur, bæði að kveðandi og hugsun, víðs fjarri því, sem ég hef vanizt í góðum bókmenntum fornum og nýjum. Ef til vill þykir þetta gott í Rúss- landi nú, en varla hefðu þeir hrifizt af því gömlu rússnesku meistararnir. Þorsteinn Jónsson. íbúðir til sölu Höfum til sölu tvær nýtízku íbúðir í Kópavogi. Ibúðirnar verða seldar upp- steyptar frágengnar að ut- an, með verksmiðjugleri. íbúðir óskast til kaups Höfum kaupendur að húseign með 3—4 íbúðum. íbúðirnar mega þarfnast viðgerðar. Uppl. í síma 18105, utan skrif- stofutíma í 36714. Fasteignir og fiskiskip Hafnarstræti 22 BJÖRGVIN JÓNSSON fasteignaviðskipti Til sölu 2ja herb. íbúð við Ljósheima. Útborgun 450—500 þúsund. 2ja herb. góð risíbúð við Nökkvavog. íbúðin er öll ný máluð. 3ja herb. íbúð á 2. hæð við Skipasund. Útb. 500—550 þúsund. Góð íbúð. 3ja hcrb. kjallaraíbúð við Bugðulæk. 3ja herb. góð íbúð í háhýsi við Sólheima, suður og vestur svalir. 3ja herb. 1. hæð við Óðins- götu. íbúðin er nýstandsett og laus nú þegar. Útborgun kr. 300 þús. 3ja herb. 100 ferm. jarðhæð við RauðagerðL 4ra herb. íbúð á 1. hæð við Njálsgötu. 5—6 herb. íbúð (142 ferm.), ásamt herb. í kjallara, við Hvassaleiti. íbúðin er nú þrjú svefnherb. og mjög stór stofa, sem má skipta. í smiðum Mikið úrval af 3ja, 4ra, 5 og 6 herb. íbúðum við Hraun- bæ. íbúðirnar seljast tilbún ar undir tréverk. Meðal þessara íbúða eru nokkrar endaíbúðir. 4ra herb. fokheld 1. hæð, ásamt bílskúr, við Sæviðar- sund (í fjórbýlishúsi). 3ja herb. íbúð í smíðum við Reynimel. 5 herb. íbúð á 3. hæð við Framnesveg. íbúðin er með búri inn af eldhúsi. íbúðin verður tilbúin múrhúðuð um 1. september. Fasteignasala Sigurðar Pálssonar byggingameistara og Gunnars Jónssonar lögmanns. Kambsvegi 32. Símar 34472 og 38414. 19. Húseigendafélag Reykjavíkur Skrifstofa á Bergstaðastr. lla. Sími 15659. Opin kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga Eldhús kollar kr. 198. Miklatorgi. Lokoð í dog eftir kl. 12 vegna jarðarfarar Ingibjargar G. I. Sigurðardóttur, Sigluvogi 12. ■ * Verzlunin Asborg Baldursgötu 39. Til leigu Skí if stof uhúsnæði Þriðja (3ja) hæðin í Hafnarstræti 19 til-leigu fyrir skrifstofur eða léttan iðnað. — Upplýsingar í símum 13024 og 13893. Orðsending / fró Koupfélogi Arnesingu Getum bætt við nemum í ýmsar iðngreinar. Kuupfélag Arnesingu fBrJ I HRINGVER VEFNAÐARVORUVERZLUN Bútasölunni lýkur á morgun AUSTU RSTRÆTI 4 S I MI 1 7 9 00 Atvinna Reglusamur og aðgætinn maður, helzt vanur akstri á vörulyftara, getur fengið atvinnu nú þegar. — Upplýsingar í Coca-Cola verksmiðj- unni í Haga. Verksmiðjan Vifilfell hf ATVINNA Nokkrar stúlkur, ekki yngri en 18 ára geta fengið atvinnu við hreinlegan iðnað. Cudogler hf Skúlagötu 26. Bifreið til vöruflutningn M.A.N.-635, árgerð 1962, með nýrri vél, 145 hö. til sölu. Bifreiðin er lítið keyrð og ekkert hérlendis. Með í kaupunum er stórt vöruflutningahús, í hús- inu eru kæliviftur, sem eru nauðsynlegar fyrir grænmetis- og kjötflutninga. Verðið lágt, greiðslu- skilmálar á hluta verðsins gegn tryggingu. Upplýsingar í síma 10219 frá kl. 9—5, eftir kl. 5 í síma 10969.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.