Morgunblaðið - 19.08.1966, Side 21

Morgunblaðið - 19.08.1966, Side 21
Fostuðagur 19. ágúst 1966 MORCUNBLAÐIÐ 21 — Ufan úr heimi ' Framhald af bls. 14 „að sjávarlífið fer eftir hita- stiginu. Sumar fisktegundir iifa í köldu vatni aðrar í heit- ara. Þegar breytingar verða á Golfstraumnum, breytist einn- ig lífið í sjónum. >ví meira sem við vitum um breytingar á Golfstraumnum, (þeim mun meiri vitneskja höfum við um fiskgengd". Áhrif á veðurfar f>á hefur Golfstraumurinn mjög mikil áhrif á veðurfar. Ekki svo mjög í Norður- Ameríku, heldur aðallega í Norðvestur-Evrópu. Yfirborðs hiti Golfstraumsins við upp- tök hans á Mexíkóflóa er um 26—27 stig. Rétt er að mikill hiti tapast á ferð straumsins um Atlantshafið, en engu að siður eru áhrif hans gífurleg. Sem dæmi bendir dr. Stewart á að meðalhitinn í Noregi í janúar sé 25 stigum hærri en eðlilegt væri á þeim breiddar- gráðum. Og án áhrifa Golf- straumsins væri ísland með svipað veðurfar og Labrador, en bæði löndin eru á sömu breiddargráðu. Erfitt er að kortleggja Golf- strauminn, segir dr. Stewart, því hann er stöðugt að breyta um stefnu, og angar eða kvíslar frá honum breytast í sífellu. Þannig var það til dæmis í marz sl. að eftirlits- skip fann anga frá Golf- straumnum úti í hafi um þúsund km fyrir austan Bost- on. Hafði angi þessi losnað frá straumnum og myndað röst af heitum sjó um 80 kíló- metra í þvermál. En þrátt fyrir stöðugar breytingar er eðalstraumurinn þó það stöð- ugur að unnt er að fylgjast með honum. Og standa vonir til að með þeirri rannsókn, sem nú er lokið, fáist upp- lýsingar um hvað veldur breytingunum, eða hvort þær séu reglubundnar á einhvern hátt. Auðvelt er að finna Golf- strauminn, að sögn dr. Stew- arts. Hann er öðruvísi á litinn en hafið umhverfis, miklu fagurblárri. Og nálægt upp- tökunum freyðir oft á mótum straums og hafs, auk þess sem oft er mikið um margskonar reka á jöðrunum. Sólin og snúningur jarðar Hvað veldur Golfstraumn- um — þessu hlýja fljóti, sem rennur um kalt úthaf? Dr. Stewart segir að straumurinn myndist bersýnilega af hita sólarinnar, snúningi jarðar og þeim vindum sem þessi öfl skapa. „Loftið við miðbaug þenst út og stígur upp vegna hita sólarinnar", segir hann. „í stað þessa lofts kemur kaldara loft úr norðri. Snún- ingur jarðar gripur hluta þessa kaldara lofts, sem ann- ars héldi áfram suður á bóg- inn, og beinir því til austurs. Þessi loftstraumur hrífur svo með sér vatnsmagnið á Mexíkóflóa, beinir því út fló- ann og norður með strönd Ameríku. Stefnan fer eftir ítefnu vindanna og hraða þeirra, strandlínunni og sjáv- arbotninum". Var það meðal annars tilgangur nýafstað- inna rannsókna að kanna hve mikil áhrif hvert þessara at- riða hefðu á strauminn, og hvernig þau breytast eftir érstíðum. Verður fróðlegt að kynnast niðurstöðunum, þegar þær liggja endanlega fyrir. Lervis þvottovél með suðu og rafmagnsvindu til sölu. Einnig tækifæriskjóll, stærð 42. Upplýsingau: í síma 41488. Byggingarland 'óskast Höfum kaupanda að byggingarlandi í Reykjavík, Hafnarfirði, Garðahreppi eða Kópavogi. Skip & fasteignir Austurstræti 18, sími 21735 eftir lokun 36329. 2ja herb. íbúð við Víðimel Til sölu er góð 2ja herb. kjallaraíbúð við Víðimel. Upplýsingar veita: BJARNI BEINTEINSSON, hdl. Austurstræti 17. — Sími 17466 og málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar. Aðalstræti 6. — Símar 1-2002 og 1-3202. Til leigu Góð 3ja herb. íbúð í Hlíðunum til leigu frá 15. september nk. Árs fyrirframgreiðsla. Góðrar umgengni verður krafist. — Tilboð sendist til afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, merkt: „Fámennt — 4653“. Iðnaðarhusnæði Höfum til sölu rúmlega 400 ferm. vörugeymslu eða iðnaðarhúsnæði við Grensásveg. Nýja fasteignasalan Laugavegi 12 — Sími 24300. 2ja herb. íbúðir i Vesturbœ Höfum til sölu tvær tveggja herbergja íbúðir á góðum stað í Vesturbænum. íbúðirnar eru nýstand- settar með nýjum eldhúsinnréttingum, harðvið- arhurðum, nýjum hreinlætistækjum, mosaik á baði. Ný teppi á gólfum. — Sér inngangur — sér hiti. — Lausar strax. 77/ sölu við Kleppsveg Falleg 3—4 herb. íbúð á jaiðhæð í sambýlishúsi. íbúðin, sem er næstum ný, er mjög vandlega innréttuð og með teppum á öllum gólfum. Rúm- góð geymsla fylgir. Geiur verið Jaus 1. septem- ber. ARBÆJARHVERFI Höfum til sölu -íbúðir af flestum stærðum við Hraunbæ. Seljast tilbúnar undir treverk og málningu, með frágenginni sameign. Ennfremur eina fokhelda íbúð við Hraunbæ. FASTEIGNA SKRIFSTOFAN i AUSTURSTRÆTI 17 (HllS SILLA OG VALOA) SÍMI 17466 JAMES BOND of Eftii IAN FLEMING James Bond fe’- iýíý first’caíIv&E BV IAN FLLMING OIAWING BV JOHN McLUSXY IHN McLUSXY yj _ AT ÚATTOKI SAR.DEN. A YARD CAR DCOVi MB TTjEBE Fyrsta heimsókn mín var til Hatton Garden Bifreið frá Scotland Yard ók mér þangað. Yard-maðurinn spurði hr. Saye nokk- urra spurninga. J'ÖMBð Hr. Saye, við höfum áhuga á að leita uppi nokkra týnda demanta — einn 20 karata Wesselton, tvo fagra hvítbláa, einn 30 karata gulan Premier, einn 15 karata T.C. og tvo 15 karata C.U. . -X- Því miður, ég get ekki hjálpað yður. Nú þetta sannar dálítið. Ég skil ekki, líðþjálfi. Hr. Saye er ekki demantakaupmaður. Það eru ekki til neinir demantar með nöfnunum gulur Premier eða C.U. Teiknari: J. M O R A Skipstjórinn og Júmbó þramma til baka. — Gamli maðurinn var himinlif- andi yfir að Álfur og félagar skyldu vera horfnir, og honnm þótti síður en svo leið- inlegt, að við verðum að fiýta okkur á eftir þeim, segir Júmbó. Nú koma þeir auga á hellisopið. — Ég er alveg viss um að Spori er enn ekki kom- inn á fætur, segir skipstjórinn. — Nei, það lítur ekki út fyrir það, svarar Júmbó. . . . En nú skal ég svo sannarlega koma honum á fætur! Júmbó hleypur inn í hell- inn til að segja Spora frá öllum þeim spennandi atvikum sem hann er búinn að missa af. Hann kemur samstundis þjótandi út aftur. — Spori er horfinn! Hann er ailur á bak og burt og öllu hefur verið rænt!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.