Morgunblaðið - 19.08.1966, Side 26

Morgunblaðið - 19.08.1966, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ Fostudagur 19. Sgúst 1966 1 fyrada# sigruðu Framarar Vestmannaeyinga í 2. deild, en leikurinn fór fram í Eyjum. Myndin er frá þeim leik og það er Sævar Tryggvason, sem spyrnir að marki, en Anton Bjarnason er til varnar. Baldur Scheving og Helgi Númason fylgjast spenntir með viður- eigninni. Vonir Framara um að leika úrslitaleikinn við Breiðablik i 2. deild hafa nú mjög vænkast við þennan sigur, þeir eiga þn eitir að mæta Vestmannaeyingum aftur hér í Reykjavík. „Pickles" slær í gegn Hundurinn sem fann Jules Rimet-styttuna, hefur gert eiganda sinn 700 þús. kr. ríkari HAFI hundur einhvern tím- an verið trúr húsbónda sin- um, þá er það örugglega hundur að nafni Pickles, en hann hefur valdið algjörum umskiptum t lífi eiganda sins, David Corbert. Hinn 27. marz gerðizt sá atburður, að Pickles þefaði uppi Jules Rimet-styttuna, sem hafði verið stoiið, og ákaft leitað af lögreglunni. Jules Rimet- styttan er sem kunnugt er sig urverðlaunin i heimsmeistara keppninni í knattspyrnu, og fann Pickles styttuna vafna inn i pappir í garði húsbónda sins. Frá þessum degi hefur Pickles verið eins konar gull- kálfur, og skulum við nú líta stuttlega á feril hans frá að þessi atburður átti sér stað: 28. marz: Pickles fær hiut- l verk í kvikmyndinni „Njósn- arinn með kalda nefið“, og fær fyrir það 25 pund á dag. 29. marz: Pickles hiýtur gullverðlaun frá Alþjóðlega hundaverndunarsambandinu. 30. marz: Aðdáendabréf byrja að streyma og hafa að geyma samtais eitt pund, sem ætlað er til kaupa á nýrri hálsól og bandi, auk boðs um að ferðast um Bret- land með söngleikaflokki. 1. apríl: Pickles fær gull- verðlaun nr. 2. 6. apríl: Pickles hlýtur af- steypu úr gulli af heims- meistarastytunni, auk heið- ursmerkis keppninnar. Auk þess fer hann á mikla sýn- ingu sem heiðursgestur. 19. apríl: fþróttasambandið brezka veitir hundinum út- skorið bein, ásamt ávísun upp á þúsund pund. 20. apríl: Pickles tekur á móti heimsóknartilboðum frá Chile, Brasilíu, V-Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu. 2. maí: Sovézka tímaritið „Krokodil“ birtir heilsiðu- grein um Pickles. 30. júlí: Pickles kemur á fund Wilsons, forsætisráð- herra. 10. ágúst: Kemur í heim- sókn að Downing Street 10, þar sem forsætisráðherrann býr, til þess að ljúka við töku á kvikmyndinni, sem fyrr um getur, og þann dag flyt- ur eigandi hundsins, Corbe'.t, einnig í ákaflega virðulegt hús, í hverfi því sem hinir þekktu bankamenn Lundúna borgar búa. Þess má geta að frá því að Pickles fann bikarinn hefur hann auðgazt um rúmlega 6 þðsund pund (um 700 þús. kr. ísl.), bæði í peningum og alls kyns verðlaunum. Auk þess hefur hann haft dá- góðan skilding upp úr því að koma fram reglulega við ým- is tækifæri — gegn greiðslu auðvitað. Fyrir skömmu sagði eig- andi Pickles: „Ef ég hefði skott þá myndi ég dilla því í þakklætissykni.“ Er það nokkur furða. Svipmynd frá frjálsíþróttamóti: Þorsteinn Þorsteinsson og Val- björn Þorláksson berjast í 400 metrum. á: Afmælisbikar Guðmundar Sigmundssonar Fyrir nokkru var háð hin ár- lega afmæliskeppni G. S. Tvö síðastliðin ár hafa verið leiknar einungis 12 holur, og hefur það mælzt vel fyrir. Svo er mælt fyr- ir í reglugerð gefanda, að bikar þessi sé farandgripur fyrir bezt- an árangur í höggleik með for- gjöf. Til leiks mættu 24 kylf- ingar, þrátt fyrir að veður væri mjög slæmt. ausandi stórrigning af suðaustri, sem næstum hindr- aði allan golfleik. Var því eigi sérstaks árangurs að vænta að þessu sinni. Leikar fóru svo að ungur kylfingur, Markús Jó- hannsson, bar sigur úr býtum. Markús er sonur hins góðkunna kylfings, Jóhanns Eyjólfssonar, og er aðeins 15 ára gamall. Hann hefur verið mjög áhugasamur við æfingar og keppni í sumar, og má áreiðanlega mikils af hon- um vænta í framtíðinni, ef hann leggur slíka alúð við þjálfunina. Ásamt honum hafa nokkrir aðr- ir unglingar æft allvel í sumar og verður gaman að fylgjast með Meistaramóti unglinga, sem háð verður í lok þessa mánaðar. — Úrslit urðu annars, sem hér segir: 1. Markús Jóhannsson 64-20=44 högg 2. Hilmar Pietsch 66-21 = 45 högg 3. Haukur Guðmundsson 60-14= 46 högg 4. Erlendur Einarsson 64-17 = 47 högg 5. Jónatan Ólafsson 73-23=50 högg ★ Olíubikarinn 30. júlí til 6. ágúst Keppnin hófst með „undir- búningskeppni" h. 30. ágúst, sem er úrtökumót fyrir sjálfa aðal- keppnina, sem er útsláttar-holu- ]reppni. Þátttakendur voru 35. Ágætis veður og góð leikskilyrði stuðluðu mjög að þeim góða ár- angri, sem náðist þennan dag. Fjölmargir léku undir forgjöf FRJÁLSÍÞRÖTTAMÓT verður haldið á íþróttaleikvangi Reykja vikurborgar þriðjudaginn 23. ágúst 1966 með þátttöku þýzku tugþrautarrnannanna, sem hér taka þátt í landskeppni um helgina. Keppt verður í þessum grein- um: Karlar: 110 m grindahlaup 100 m hlaup 400 m hlaup 800 m hlaup 100 m boðhlaup kúluvarp, kringlukast, la?;gstökk, hástökk. Konur: 100 m hlaup. Sveinar: 200 m hlaup. Þátttökutilkynningar sendist Þórði Sigurðssyni c/o Landnám ríkisins, s. 21206 (heimasími 32598) í s’ðasta lagi sunnudag- inn 21. ágúst. sinni og sýndu lofsverða fram- för. Undirbúningskeppnin er með forgjöf og vakti það athygli að nokkrir hinna sterkustu kylf- inga klúbbsins skyldu ekki verða meðal þeirra 16, sem kom- ust áfram í aðalkeppnina. Úrslit urðu: Með forgjöf (18 holur): 1. Vilhjálmur Ólafsson 94-36= 58 högg 2. Hilmar Pietsch 88-29=59 högg 3. Helgi Eiriksson 82- 22=60 högg 4. Kári Elíasson 80-19 = 61 högg 5. Ólafur Hafberg 83- 18 = 65 högg Án forgjafar: 1. Kári Elíasson 80 högg 2. Óttar Yngvason 82 — 3. Helgi Eiríksson 82 — 4. Ólafur Hafberg 83 — 5. Jóhann Eyjólfsson 84 — Holukeppnin stóð svo alla næstu viku, unz tveir stóðu eft- ir, þeir Viðar Þorsteinsson yg Kári Elíasson. Kepptu þeir si'ðan til úrslita laugardaginn 6. ágúst. Lauk þeirri viðureign með ör- uggum sigri Viðars, sem er sterkur „holukeppnismaður", og vann hann bikarinn nú í annað sinn á síðastliðnum 3 árum. if „Flugfélagsbikarinn" í golfi Flugfélag íslands hf. hefur sýnt þá rausn að gefa Golfklúbbi Reykjavíkur veglegan verð- launabikar, sem keppt verður ur í fyrsta sinn nk. laugardag og sunnudag á velli G. R. við Graf- arholt, 18 holur hvorn dag (höggleikur). Markmið þessarar keppni er efling starfsemi G. R. og stuðn- ingur við golfíþróttina á íslandL Verðlaunagripurinn er íarand- bikar, en 1. og 2. maður hljóta viðurkenhingar frá Flugfélagi ís lands til minja. Keppnin hefst, eins og áður segir, nk. laugardag 20. ágúst kl. 13.30, en dregfð verður í riðla kl. 13.10. Að þessu sinni verður nægilegt að "tilkynna þátttöku fyrir þann tíma í Golfskálann, Grafarholtsvelli, sími 14981. Það er mjög sérstætt við keppni þessa, að þátttökurétt eiga aðeins fyrrverandi og nú- verandi Islandsmeistarar og klúbbmeistarar viðurkenndra golfklúbba á íslandi (í meistara- flokki). Er þegar fyrirsjáanlegt að allir helztu' meistarar siðast- liðinna ára í golfi verða með í móti þessu, og er því vænzt spennandi og skemmtilegrar keppni. Til athugunar fyrir þá félaga, sem hefja ætla leik upp úr há- degi á laugardag, ber þess að geta, að völlurinn værður lokað- ur frá kl. 13.15—14.30, og einnig á sunnudagsmorgun kl. 8.45— 10.00. Ungverski kúluvarparinn Vilmas Varju setti á sunnu- daginn Evrópumet í kúlu- varpi, varpaði 19.96 m. Gamia metið var 19.58 sett 1962 af Englendingnum Arthur Rowe.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.