Morgunblaðið - 15.09.1966, Page 23
Fimmtudagur 15. sept. 1968
MOR.CU N BLAÐIÐ
23
KAUPUM ÍSLENZKA IDNAÐARVÖRU
IÐNISÝNINGIN
w
Bjorn Jónsson:
PRENTUN er elzta iðngrein á
íslandi — fyrsta prentsmiðjan
var sett upp um 1530 á Hólum
í Hjaltadal, og vár Jón biskup
Arason frumkvöðull þess. Þegar
einangrun iandsins og fólksfæð
er höfð í huga er það furðu
snemma sem hér er farið að
prenta — í Danmörku kom
prentsmiðja um 1482, en Norð-
menn fengu fyrstu prentsmiðju
sína ekki íyrr en 1643, eða rúmri
öld eftir að prentsmiðjan var
sett upp á Hólum.
Framan af var prentsmiðjan
ekki nema ein og átti oft erfitt
uppdráttar. Upp úr siðaskiptum
var prentsmiðjan flytt að Breiða
bólsstað í Vesturhópi, og þaðan
er elzta íslenzka bókin sem enn
er til, Passio eftir Antonius Cor-
vinus, sem Oddur Gottskálksson
hafði þýtt. Guðbrandur Þorláks-
son lét fiytja prentsmiðjuna
aftur að Kóium árið 1572 og
þar var hún til 1685, er hún var
flutt suður að Skálholti. Þaðan
var hún fiutt aftur að Hólum
árið 1703 og var þar til 1799.
Á þessari fyrstu hálfu þriðju
öld íslenzku prentsmiðjunnar
var ekkert prentað annað en
bókmennUr guðfræðilegs eðlis.
Á þessu varð breyting þegar
Hrappseyjarprentsmiðja tók til
starfa 1773, en þar voru prent-
aðar bækúr um hagnýtari efni:
landafræði, búskap, lögfræði, en
auk þess skemmtiefni svo sem
rímur og sögur. Ekki stóð prent-
smiðjan sig samt vel fjárhags-
lega, enda dundu þá Skaftár-
eldar yfir og fylgdi þeim mesta
hallæri sem sögur fara af hér.
1795 var prentsmiðjan flutt úr
Hrappsey að Leirárgörðum og
þaðan 1819 í Viðey, þar sem hún
var til 1844. Það ái var hún flutt
til Reykjavíkur og nefndist
Landsprentsmiðjan- fram til 1876
er Einar Þórðarson, prentari,
eignaðist hana og rak áfram í
10 ár.
Þegar hér er kon ið sögu fer
nútiminn að halda innreið sína,
a.m.k. hvað nöfnum prentsmiðju
fyrirtækjanna viðvíkur. Árið
1877 stofnaði Björn Jónsson, rit-
stjóri, síðar ráðherra, ísafoldar-
prentsmiðju. Niu árum síðar
keypti hann prentsmiðju Einars
Þórðarsonar og sameinaði sinni,
og má þessvegna með nokkrum
rétti segja, að sú smiðja geti
rakið ætt sína til hinnar fyrstu
prentsmiðju á Hólum.
Af prentsmiðjum sem enn
starfa eru þessar elztar auk ísa-
foldarprentsmið]u: Prentsmiðja
Björns Jónssonar, Akureyri
(1879), Félagsprentsmiðjan
(1890), Prentverk Odds Björns-
sonar, Akureyri (1901) og Prent-
smiðjan Gutenberg (1905). Ekki
er staður hér til þess að rekja
þessa sögu lengri. en eftir því
sem afkon.’P. landsmanna hefur
batnað, hafa verkefni smiðjanna
aukist og hefur það orðið grund-
völlur að stofnun rnargra fyrir-
tækja, einkum á árunum eftir
síðari heimsstvrjöld. Hafa sum
þessara yngri fynrtækja sérhæft
sig á þröngum og oft nýjum
sviðum, en önnur haslað sér völl
á breiðari grundvelli. Mikil
gróska er nú í iðninni, og hafa
íslenzkar prentsmiðjur getað
bætt mjög tækni sina og starfs-
menn þeirra kunnáttu sína, eins
og hvað skýrast kemur fram
hvað snertir lit- og myndprent-
un, sömuleiðis hefur leturúrval
og uppsetuing prentgripa yfir-
ÞETTA ER
RO Y AL
K AK A
leitt tekið roiklum framförum.
Ekki verður skilizt við þetta
efni án þess að geta þeirrar ein-
kennilegu staðreyndar, að þessi
elzta iðngrem landsmanna mun
ein af fáum iðngreinum í heimi,
sem una verður því, að full-
unnar frainieiðsluvórur erlendra
keppinauta hennar eru fluttar
algerlega toiifrjálst til landsins,
á sama tíma og fjárfestingar-
vörur innlendra framleiðenda
og hráefm bera há aðflutnings-
gjöld. Að vísu segja tollskrár-
lögin, að verulegur tollur eigi
að vera á íslenzku máli, en und-
anþágur frá því ákvæði munu
auðfegnar.
Vonandi kemur að því, að ís-
lenzkum prentsmiðjum verði
búin betri aðstaða hvað þetta
misrétti snertir, svo að þeim
verði gert kleift, að tileinka sér
framvegis sem hingað til nýj-
ustu tækr.i. Annars gæti svo
farið, að þessi mikilsverði þáttur
nútíma fjelrniðlunar yrði allt i (
einu ekki semkeppnisfær við er-
lenda aðila eftir að hafa verið
það í rúm 400 ái. Væri þá illa
komið málum, jafn tengdur og
hann er íslenzkri menningu.
Björu Jónsson.
Rafn Hafnfjörð:
OFFSETPRENTUN
LITHOGRAFÍ AN var fundin upp
árið 1798 af Þjóðverjanum Alois
Senefelder og hefur þessi frum-
stæða prentaðferð verið notuð æ
síðan af mörgum þekktustu list-
málurum veraldar.
Prentaðferð þessi byggist á því
einfalda lögmáli að fita hrindir
frá sér vatni og öfugt. Gömlu
meistararnir teiknuðu með fitu-
kenndri krít á þar til gerða
steina, struku síðan votum
svampi yfir, báru svo lit á mynd-
flötinn og prentuðu þannig nokk
ur eintök eftir hverjum steini.
Offsetprentun, sem fundin var
upp árið 1905 af Ameríkumann-
inum W. Rubel, er í grundvallar-
atriðum eins og lithografían. Þar
kemur aðeins gúmmidúkur til
viðbótar og svo vélin sjálf. í stað
in fyrir steininn eru nú komnar
álþynnur, sem mydin er yfirfærð
á með sérstakri ljósmynda-
tækni. Af álþynnunni sezt
myndin á gúmmídúkinn og af
gúmmídúknum á pappírinn. Eru
þessar yfirfærslur skýring á al-
þjóðaorðinu offset .
Árið 1937 hefst nýr þáttur í
sögu prentlistarinnar á íslandi,
með því að þeir Guðmundur Jó-
hannsson og Einar Þorgrímsson
kaupa fyrstu offsetprentvélina til
landsins og stofnuðu þar með
fyrstu offsetprentsmiðjuna, Lit-
hoprent. Höfðu þeir báðir dvalíð
lengi í Bandaríkjunum og orðið
þar varir við framgang offset-
prentunar og hugðu því gott til
glóðarinnar hér heima. Rak Guð
mundur þá prentmyndagerð í
Reykjavík og kom sú reynsla
hans sér vel við undirbúnings-
vinnuna.
Fyrsta verkið sem þeir offset-
prentuðu var vaxtareikningsbók,
sem enn er í góðu gildi og tók
síðan við allskonar umbúða og
smáprentun. Eftir um það bil
eins árs erfitt brautryðjandastarf
slitnaði upp úr samstarfi þeirra
og sneri Guðmundur sér þá að
venjulegri prentun, en Einar hélt
baslinu áfram og fékk offset-
prentun löggilda sem sérstaka
iðngrein 6. nóvember 1943. Verð-
ur hann því talinn faðir offset-
prentunar á íslandi.
Rak Einar Lithoprent til dauða
dags (1950) og hafði þá útskrif-
að 9 offsetprentnema.
Offsetprentarafélag íslands var
stofnað 1951 og árið 1960 var
iðninni skipt í 2 greinar, offset-
mynda og plötugerð, og offset-
prentun. Starfandi menn í iðn-
inni eru nú 41 og þar af eru
16 nemar, en tala offsetprent-
smiðja er 7 með um 15 offset-
prentvélum.
Verkefnin
Umbúðaprentun er stærsti þátt
ur offsetprentunar hér á landi.
Má segja að nálega allar niður-
niðursuðudósir beri offsetprent-
aða vörumiða og flestar gos-
drykkjaflöskur, einnig eru alls-
konar pappaöskjur offsetprent-
aðar, sælgætispakkar, leikfanga-
kassar og síðast en ekki sízt fisk-
umbúðir. Nú í seinni tíð nefur
farið mjög í vöxt, að gefa út lit-
prentuð auglýsinga og kynninga
rit, og hefur mikill hluti þessara
rita verið offsetprentaður. Einnig
er stór hluti kennslubóka offset-
prentaðar, sérstaklega þeirra
sem mikið eru myndskreyttar,
en það fer mjög í vöxt hér á
landi sem anftarstaðar. Enn frem
ur eru flest litprentuð símskeyti
og dagatöl offsetprentuð. Megin
þorri landsmanna handleikur því
offsetprentun í einhverri mynd,
nærri daglega.
Framtíðin
Það sem háð hefur offsetprent
un hérlendis einna mest, er öll
meiriháttar setning á letri. Hafa
offsetpretsmiðjurnar þurft að
leita á náðir prentsmiðjanna í
þessu efni og þurfa sjálfsagt enn
um sinn. Það hlýtur því að vera
draumur allra offsetprentsmióju
eigenda að geta verið sjálfum
sér nógir í þessum efnum og
geta sett allt sitt lesmál sjálfir,
með þeirri allra fullkomnustu
setningartækni sem boðið er
uppá í dag, „foto“-setningarað-
ferðinni. Að vísu hafa flestar
offsetprentsmiðjur haft um ára-
bil „foto“-handsetningartæki, en
nú nýverið hefur Lithoprent
komið sér upp mjög fullkom-
inni „foto“-setningarvél og er
það vel, að elzta offsetprent-
smiðjan ryðji einnig brautina á
þessu sviði.
Hafa þegar komið á markað-
inn nokkur verk úr þessari vél
og má sjá eitt slíkt á iðnsýning-
unni, er það sýnishorn úr bók-
inni Hófadynur, sem offsetprent-
smiðjan Litbrá áýnir. Hefur þessi
setningaraðferð rutt sér mjög til
rúms á síðari árum og ýmis stór
verk verið gerð á slíkar vélar,
svo sem orðabækur, símaskrár
og bibliur, og einnig hafa nokk-
ur vikublöð og dagblöð tekið
upp þessa nýju aðferð.
Svo framarlega sem íslenzkar
offsetprentsmiðjur geta haldið
velli, í samkeppni við tollfrjáls-
an innflutning á ýmiskonar prerit
verki, þá er það „foto“-setning-
araðferðin sem einna mest verð-
ur byggt á í framtíðinni, ásamt
margvíslegri litprentun.
ÞAÐ ER
AUÐFUNDIÐ
HUSMÆÐUR:
notid Avallt
BEZTU HRAEE
I BAKSTURINN
PRENTIÐNAÐUR