Morgunblaðið - 01.10.1966, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.10.1966, Qupperneq 4
4 MORGU N BLAÐIÐ Laugardagur 1. okt. 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDUM * MAGNÚSAR SKIPHOITI 21 SÍMAR21190 eftirlokun simi 40381 sím' 1-44-44 mufíoiR Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 Bifreiðaleigan Vegferi SÍMI - 23900 BÍLALEIG4IM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. B O S C H Háspennukefli Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9. —* Sínu 38820. Farþegar og þvottavélar Stutt bréf frá Eimskip: „Vegna gagnrýni Velvak- anda þriðjudaginn 2i7. þ.m., varðandi léleg vinnúbrögð við farþegaafgreiðslu við komu „Gullfoss", viljum vér koma á framfæri eftirfarandi athuga- semdum. Tilfelli það, sem Velvak- andi gerir að umræðuefni er ekki tengt afgreiðslu far- þegafarangurs, sem svo er nefndur, og jafnan er af- greiddur til farþega strax eftir komu til Reykjavíkur. Hér er um sendingu að ræða (þvotta- vél), sem ekki lýtur sömu af- greiðslu og almennur farþega- farangur. Sendingin kom ekki heldur til landsins með sömu skipsferð og eigandinn, sem var farþegi með „Gullfossi“ heldur með skipsferð 10 dög- um síðar. Var því ekki um að ræða að hún lægi í geymslu hjá Eimskipafélaginu. Þegar Eimskipafélaginu barst til- kynning um seinkunina og upplýsingar um með hvaða skipsferð sendingin kæmi, var eiganda hennar gert viðvart og honum veittar skýringar á seinkuninni, sem var vegna tafa við afgreiðslu erlendis. Hefði Velvakanda verið hægt um vik að leita réttra upp- lýsinga um málavexti áður en hann felldi dóm sinn. Því verður hins vegar ekki á móti mælt, að þegar „Gull- foss“ kemur til Reykjavikur fullskipaður af farþegum verð- ur því ekki komið við að allir farþegarnir getr fyrstir fengið afgreiðslu á farangri sínum sem stundum er allmikill, en að jafnaði tekur tollafgreiðsla farangursins um það bil hálfan annan klukkutíma. í*etta skilja farþegarnir yfirleitt vel. Það færi líklega ekki illa á því, að Velvakandi væri spar- ari á óréttláta gagnrýni um farþegaþjónustu Éimskipafél- agsins, og minntist þess, að sérhver sá, sem kenna vill öðr- um, skyldi fyrst tileinka sér það sem rétt er. Virðingarfyllst, f.h. Eimskipafélags íslands V. Hákonarson". Skeytið er móttekið. Um- rædd athugasemd Velvakanda var birt vegna tilmæla manns (sem reyndar var nafngreind- ur) — og var þetta gert í beinu framhaldi af bréfi, sem birtist hér í dálkunum frá honum (líka undir fullu nafni) skömmu áður. Þar eð Velvakandi hefur orðið þess áskynja, að dómbær- ir menn töldu fyrrnefnt bréf sanngjarnt og túnabært, taldi hann líklegt, að viðbótarat- hugasemd væri í samá dúr. Maðurinn gat þess ekki, að farangurinn, sem hann ekki sagðist hafa fengið, hefði verið þvöttavél — en sagðí hins veg- ar, að fleiri biðu eftir farangri SÍnum, viku eftir skipskomu. Ljóst er því, að þörfin fyrir þvottavélar er alltaf jafnmikil. Vissulega vill Velvakandi hafa það, sem sanhara reynist — og gerir það m.a. með þvi að birta allar leiðréttingar eða athugasemdir, sem sendar eru vegna frásagna í bréfum les- enda. Sem betur fer er slíkra leiðréttinga sjaldan þörf. En þeir, sem þurfa þó að koma með athugasemd, gera það af mestu háttvísi. Samkv. því, sem fram hefur komið í þessu máli held ég, að þrátt fyrir allt ættu Eimskip og Tollgæzlan að taka saman höndum um að athuga, hvort einhver leið væri til þess að greiða fyrir afgreiðslunni. Enginn ætlast þó til að þvotta- vélarnar verði látnar sitja í fyrirrúmi, þótt góðar séu. Hestamenn og áfengi Hestamaðurinn ZX skrif- ar: „Heiðraði Velvakandi! í dálkum yðar hinn 28. 9. birtist bréf er undirritað var dulnefninu XXX. Kennir þar ýmissa grasa og margt hefur bréfritari til síns máls. Að einu leyti þykir mér hann þó taka fulldjúpt í árinni og er það þegar hann segir að taka skyldi hestinn af knapa, undir áhrifum áfengis, og selja hann, en sekta reiðmanninn. Vissu- lega er ég XXX sammála að drukkinn maður á hestbaki, er ekki ýkja skemmtileg sjón, en ekki get ég séð að áfengið hafi neinar alvarlegar afleiðingar ef þess er ekki neitt í því meira óhófi, t.d. þannig að um illa meðferð á hestinum sé að ræða, eða slík óvarkárni sé viðhöfð að skaði geti hlotizt þar af. í slíku tilfelli væri sjálfsagt að beita sektum hafi ekkert alvarlegt gerzt. Sektin gæti verið viðvörun um nauð- syn á meiri aðgæzlu. Sé hins vegar um alvarlegri atvik að ræða, slys eða viðlíka, þá væri sjálfsagt að grípa til frekari ráðstafana. En vonandi kemur ekki til þess, enda ekki mikil ástæða til að ætla að svo fari. Skoðanir XXX og mínar stangast mjög á er hann telur verra að sjá knapa _ undir áhrifum en bílstjóra. Ég tel fullvist, að slys þau er knapar undir áhrifum hafa valdið séu hverfandi fá, og mér liggur við að halda að þau hafi ekk- ert samkeppnisþol miðað við slys er hlotizt hafa af áfengi og akstri. A.m.k. hef ég ekki það ég man, heyrt um langan tíma minnst á slys af völdum ofnotkunar á áfengi við hesta- mennsku, en ekki er ýkja langt um liðið síðan alþjóð var felmtri slegin yfir hörmulegu slysi af völdum drukkins manns við stýri. En svo vikið sé að öðru, er einnig hefur oft verið til um- ræðu, þá vildi ég beina þeirri athugasemd til ökumanna, að sýna hestamönnum tillitssemi er hin ólíku farartæki þeirra mætast, því þó ekki sé farið með nein ósannindi þegar tal- að er um að reiðmenn leggi oft undir sig meiri hluta veg- anna er brýn nauðsyn væri fyrir þá. brennur hitt engu að síður oft við að þeim er sýnt svo ótakmarkað tillitsleysi og mér liggur við að segja ókurteisi, að flestum hlýtur að blöskra er á horfa. Þetta vildi ég segja að kæmi oftar fyrir en átroðsla frá hendi knapanná. Ekki vil ég hins vegar bera á móti því að fjöl- margir eru einnig þeir bifreiða stjórar er sýna þessari gömlu íþrótt staka kurteisi og ber að virða. Hestamennska hefur enn ekki verið bönnuð innan lögsagnarumdæmis Reykjavík- ur svo menn verða einfaldlega að sætta sig við hana. Við XXX vildi ég segja, að sennilega hefur þeirri spurn- ingu skotið upp hjá yður, hvort ritari brés þessa sé ekki í hópi hestamapna- og kvenna, til- gátan er rétt. Ég fylli flokk hinna síðarnefndu. Ég hefði ekki hreyft hönd né fót er ég las bréf yðar, ef þér hefðuð ekki talið knapa, drukkinn, leiðinlegri sjón en bílstjóra undir sömu áhrifum. Þykir mér hið síðarnefnda öllu leið- inlegri sjón ef hugleitt er hvað af því getur hlotizt. Og einnig það að stinga upp á að taka hestinn af knapanum og selja, í stað þess að taka hann t.d. af honum. í viku eða mán- uð eftir því hversu alvarlegt málið væri, og selja síðan hest- inn ef til frekari málareksturs kæmi. Hygg ég að það yrði flestum sönnum hestamönnum næg viðvörun, því margt er það og sennilega meira en menn byggja, sem hestamaður vill fara á mis við svo lengi sem hann hefur hestinn sinn. Vissulega má oft segja að vín og þetta eða hitt eigi illa sam- leið, en hver treystir sér til að gefa nákvæmt yfirlit yfir við- eigandi staði, stund o.s.frv.? Ekki sú er þetta ritar. Má þá ekki líka segja að vin sé óvið- eigandi í fermingarveizlum, brúðkaupum o.fl.? Sá hugsunarháttur er hér of algengur, að vín sé einhvers konar „bannvara“ í óeiginlegri merkingu þess orðs, og hygg ég að áfengismálum hér í landi verði vart komið í viðunandi horf fyrr en þessi fásinna hef- ur verið upprætt, og fólki gert ljóst að eignist það flösku, er hún ekki hlutur, sem bezt er að pukra með og ljúka strax úr. Má ég svo benda mönnum á þá staðreynd að hér fást fleiri áfengistegundir en brennivín, genever, vodka og whisky? ZX“. Vélritun Stúlka óskast til vélritunarstarfa á opinberri skrif- stofu. — Góð laun. — Tilboð er greini menntun, ald ur og fyrri störf, sendist afgr. Mbl., merkt: „Hraði — 4431“. VINNA Reglusamir menn, sem hafa þjálfun í logskurði og vinnu með járnklippum og pressu, óskast. til starfa í brotajámsporti okkar. Langur vinnutimi, ef óskað er. — Upplýsingar hjá verkstjórai.um hjá Sindra í Borgartúni. Saumastúlkur, helzt vanar, óskast nú þegar. Ytra-Kirkjusandi. — Simi 33542. Austurstræti 14. — Sími 20-6-20. Fulltruastaða Fyrirtæki með umfangsmikla útflutningsverzlun óskar eftir að ráða duglegan, ungan mann í full- trúastöðu. — Starfið krefst staðgoðrar þekkingar á bókhaldi, þar sem um yfirumsjón á því yrð’ að ræða. Ennfremur góðrar þekkingar á almennum skrif- stofustörfum. — Starfið er vel iaunað: Umsóknir, er tilereini menntun, aldur og fyrri störf óskast sendar afgr. Mbl. fyrir 6. október nk., merkt- ar: „Fulltrúastaða — 4397“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.