Morgunblaðið - 05.10.1966, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.10.1966, Qupperneq 1
o 28 sföur Myndin svnir Subandríó, fyrrverandi utanríkisráðlierra Indónesíu fyrir herrétti, en hann er sakaður um að hafa veitt kommúnistum stuðning í byltingartilra uninni á dögunum. Hefur hann nú viðurkeunt að hafa vitað um undirbúning tilraunarinnar, en iátið undir höfuð leggjast að láta Súkarnó forseta vita af henni. ísrael óskar auka- aðildar að EBE IJmsóknin var lögð fram í Brússel í gær Brussel, 4. október — NTB ÍSRAEL sótti í dag um auka- aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu, og er umsókninni fylgt úr hlaði með þeim orð- um, að stjórn landsins telji brýna nauðsyn hera til þess að rétta við þann þátt verzl- unarjafnaðarins, sem snýr að bandalagslöndunum. Það var fulltrúi ísraels hjá bandalaginu, Amiel Najar, sem fékk í dag aðalritara ráð herranefndar bandalagsins, Christian Calmes, umsókn- ina. Lét Najar í ljós þó ósk, að þegar yrðu hafnar við- ræður um aðild lands síns. ísrael óskar nú eftir aukaa'ð- ild í stað þess samnings, sem verið hefur í gildi milli lands- ins og bandalagsríkjanna sex, en fellur úr gildi 1. júlí nk. Talsmenn ísraelsstjórnar 1 Brússel benda á, að landið kaupi nú svo mikið af vörum frá löndunum sex, að verzlunar jöfnuðurinn við þau sé óhag- stæður um 5 milljarða ísl. króna árlega. Þá benda þeir jafnframt á, að ytri tollur bandalagsríkj- anna komi til fullrar framkvæmd ar í júlí 1968. Þá hækkar m. a. innflutningstollur í Þýzkalandi og Beneluxlöndunum á appel- sínum, sem eru ein helzta út- flutningsvara ísraels. Framhald á bls. 21. Véfengjn Worren- skýrsiunn Washington, 4. október. NTB. SKOÐANAKÖNNTJN hefur ný- lega leitt í ljós, að mikill hluti Bandaríkjamanna álítur að heim urinn hafi ekki fengið að vita öll atriðin í samabandi við morð- ið á Kennedy Bandaríkjaforseta. Þeir trúa heldur ekki að Lee Harvey Osvald hafi verið einn um morðið. Könnunin, sem birt var i „Washington Post“, sýnir að þrír af hverjum fimm Bandaríkja- mönnum vísi Warrenskýrslunni á bug, en þar segir að sannað þyki að Osvald hafi verið einn að verki. Flestir álita að um samsæri margra aðila hafi verið að ræða, en geta þó ekki nefnt neina sérstaka aðila í því sam- bandi. 11% segjast álíta að það hafi verið kommúnistar, sem stóðu að baki morðinu. „- Enginn mun hlýða á Breta, þegar þeir eru í nauðum staddir -“ Skorinorð ræða Wilson á þingi í Brighton í gær Brighton, 4. október - AP - NTB HAROLD Wilson, forsætis- ráðherra Breta, lýsti því yfir í þingi Verkamannaflokksins í Brighton í dag, að flokkur- inn væri staðráðinn í því að vinna að því að auka álit það, sem erlendir aðilar hefðu á Bretlandi, og bæta efna- hagsástand landsmanna. Til þess að svo mætti verða, yrðu verkamenn að vera við því búnir að skifta um starfa, og tileinka sér nýjar hug- myndir. Sagði Wilson að efnahags- erfiðleikar Breta myndu standa, þar til Bretar hefðu greitt skuldir sínar. Wilson fullyrti, að rá'ðstafan- ir þær, sem stjórn hans beitir sér nú fyrir í efnahagsmálum, muni ekki leiða til almenns at- vinnuleysis. Hins vegar væri launabinding frumskilyrði fyrir þvi, að efnahagur kæmist aftur á réttan kjöl. Væri hér um að ræða síðasta úrræði stjórnarinn- ar til að tryggja réttan fram- gang efnahagsmála. „Þegar allt kemur til alls, þá mun enginn hlýða á Breta, þegar þeir eru Óheillavænleg þróun tlansks efnahagslífs Rýrnandi gildi krónunnar, og erfiðleikar iðnaðar Kaupmannahöfn, 4. október NTB. ÞRiR aðilar i Danmörku hafa lýst áhyggjum sínum yfir þró- un efnahagsmála þar í landi. Þjóðbankinn, Efnahagsráðið, sem er engum stjórnmálaflokki háð, og sérstök deild Efnahags- málaráðsins lýstu skoðunum sín- um á þróun þessari, er þing kom saman í dag. Á fyrsta fundi þingsins lýsti Jens Otto Krag, forsætisráðherra yfir því, að hann hefði ákveðið að senda athugasemdir þessara aðila til þeirra stofnana og aðila, sem mestu réðu á vinnumarkaðin | um. Vildi hann með því kanna , nánar hver orðið gætu frekari áhrif þeirrar stefnu, sem rekin hefði verið til að draga úr óeðli- legri þenslu á peningamarkaðn- um. Þær ráðstafanir voru gerð- ar á sínum tíma, eftir að ríkis- stjórnin hafði ráðgazt við þjóð- bankann. Fyrir um ári var ákveðið að takmarka útgáfu skuldabréfa, en sú ákvörðun virðist hafa valdið talsverðum samdrætti í dönsku efnahagslífi .Krag, forsætisráð- herra ,hefur hins vegar lagt I mikla áherzlu á, að varast verði að gera nokkrar þær breytingar á þessu sviði eða öðrum, sem valdið geti skyndilegri og mikilli aukningu á launatekjum. Hefur hann því sent sérstaka grein^r- gerð með athugasemdum þeim, sem að ofan getur. Þjóðbankinn hefur bent á, að raungildi dönsku krónunnar falli nú hraðar en gengi flests annars gjaldmiðils í V-Evrópu. Þá hafa verzlunarjöfnuður Dana verið ó- hagstæður að staðaldri undan- farin fimm ár, og nemi hallinn Framhald á bls. 21. í nauðum staddir", sagði for- sætisráðherrann. Hann hélt því fram, að Verka- mannaflokkurinn væri flokkur breytinga, ekki stöðnunar, og stefna sú, sem hann fylgdi, myndi hafa í för með sér, að þúsundir verkamanna yrðu að skifta um atvinnu, og læra áð sinna nýjum verkum. Forsætisráðherrann sagði, að afstöðunni, sem ríkt hefði innan verkalýðsfélaga til ýmissa að- kallandi vandamála, yrði að breyta. Það væri ekki til neins að halda sér við gamla túlkun hugtaka, sem orðið hefðu til í iðnbyltingunni á 19. öld. Sagði forsætisráðherrann, að leiðtogar verkalýðsfélaganna mættu ekki Framhald á bls. 21 Stór hvítvoðungur Stokkhólmi, 4. október NTB. BR ljósmæðurnar á Sabbats- bergssjúkrahúsinu í Stokkhólmi komu á næturvakt sl. mánudag brá þeim heldur í brún. Inni á einni stofu fæðingardeildarinnar lá hvítvoðungur og svaf vær- um svefni. Þetta þætti ekki í frásögur færandi, ef strákur hefði ekki vegið rúmlega 320 merkur (80 kíló), og var auk þess hvergi á skrá á fæðingar- deildinni. Lögreglunni var gert viðvart og kom hún von gráðar og flutti metbarnið á brott. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós, áð pilturinn hafði verið á kendiríi og hélt að hann væri kominn heim til sín. Hafði hann snör handtök við að hátta sig og tagðist til svefns. Súkarnó, meðan allt lék í lyndi. Súkarnó til Vínar í BANDARÍSKA tímaritinu Newsweek, dags. 3. október, segir að ef Súkarnó Indónesiu forseti verði sendur í útlegð, muni hann fara til Vínarborg ar. Ástæðan fyrir þessu er sú, að Vinai borg nýtur niikils á- lits, sem lækningamiðstöð. — Gekk Súkarnó þar undir nýrnauppskurð árið 1964, og heppnaðist aðgerðin mjög vei. Blaðið segir að núverandi utanrikisráðherra Indónesiu, Adam Malik, hafi rætt málið við austurnsku stjórnina, og hefur hún lyst því yfir að hún muni veita Súkarnó land vistarleyfi. »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.