Morgunblaðið - 05.10.1966, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.10.1966, Qupperneq 15
Miðvikudagur 5. október 198t MORGUNBLADIÐ 15 Með lofthreinsun innanhúss fæst góð lykt en falskt öryggi Viðtal við dr. Jón Sigurðsson borgarlækni ÞEGAR nýjungar koma á þess- ari tækniöld á almenningur oft erfitt með að átta sig á þeim. T.d. er nú farið að bera hér nokk uð á svokölluðum lofthreinsi- tækjum, sem nota á innanhúss. Hvað er nú það? Á hverju skyldi lofthreinsun í herbergjum byggj- ast, ef hún er framkvæmd með öðrum hætti en að opna glugga og fá þetta kunna gamalreynda ferska loft inn? Við spurðum borgarlækni, Jón Sigurðsson, þessara spurninga, til að átta okkur á því hvort þetta væri eitt hvað sem þyrfti að gjalda var- hug við eða þá tæki, sem gæti losað okkur við að fá rokið inn í stofuna hjá okkur um opna glugga. — Þessi tæki byggjast yfir- leitt á myndun ozonlofts og breyt ingum á rafeindainnihaldi lofts- ins, svaraði hann. — Þessi loft- tegund, ozon, er í litlu magni í loftinu. Hún myndazt úr súrefni fyrir áhrif sólarljóss eða útfjólu blárra geisla, og m.a. við raf- suðu og notkun kolbogaljósa eða „háfjallasólar". Ozon hefur um langt skeið verið notað til „loft- hreinsunar" til sótthreinsunar á vatni, til að bleikja hveiti og til fleiri hluta. Og í seinni tíð eru komin á markaðinn tæki af þessu tagi, sem ætluð eru til lofthreins unar í húsum, bæði heima og í skrifstofu- og samkomuhúsum. „Lofthreinsunin" er í því fólgin að ozonið dregur úr lyktarskyni og felur því lyktina fyrir mönn- um, en eyðir ekki ryki, reyk eða öðrum skaðlegum efnum og gefur því „lyktareyðingunni” falskt öryggi um hreinsun eða endurnýjun á inniloftinu, þannig að hætta er á að fólk vanræki raunhæfa loftræstingu. — Þegar ozonmagn í lofti nem ur 0,01—0,015 ppm. (þ.e. þessir rúmmálshlutar í milljón rúm- málshlutum lofts), þá finnst ozonlykt, sem menn kannast við frá ljósböðum. En við magnið 0,1 ppm ertir það slímhúð í nefi og hálsi og við meira magn kem- ur höfuðverkur, hósti og þaðan af alvarlegri einkenni. Sumir vísindamenn telja að ekki eigi að leyfa meira ozon en sem svar ar 0,04 ppm., þar sem dvalið er til lengdar. Aðrir setja mörkin hærra. En lofttegund þessi er talin eitt af sterkustu eiturefn- um sem þekkt eru. — Getur þetta efni þá verið lífshættulegt? — Já, já, ef magnið er það mikið, sem ekki gerizt við venju legar aðstæður, sem betur fer. — Er ekki eitthvað eða ein- hver, sem fylgist með og tryggir að ekki sé notað óæskilegt magn af þessu efni? — Ekkert sérstakt eftirlit er með þessum tækjum hér, en persónulega vildi ég ekki ráða til að nota þau, og byggi það á ályktunum m.a. merkra heil- brigðisstofnana. Notkun ozons til lykteyðingar er sennilega hættu- laust út af fyrir sig með þeim tækjum, sem að ofan greinir. En hún er, eins og ég sagði áðan, skaðleg að því leyti að hætt er við að af henni leiði vanræksla á raunhæfri loftræstingu. Og ef tæki er látið standa stöðugt í her bergi, sem ekki er loftræst, er það varhugavert. Að minnsta kosti er ekki ráðlegt að magnið fari yfir 0,04 ppm. í heimahús- eins og það er í náttúrunni, er hluti af okkar daglega lífi og sennilegast það sem okkur hent- ar bezt. Ætti því að hugsa fyrst og fremst um að fá ferskt loft að utan. — Getið þið í heilbrigðisnefnd eða þér sem borgarlæknir lagt bann við notkun slíkra hluta, sem þér teljið óæskilega? — Engar ákveðnar reglur eru til um þetta, nema í almennu orðalagi í heilbrigðissamþykkt fyrir Reykjavík. Heilbrigðisnefnd in á þó, samkvæmt þeirri sömu samþykkt, að vera á verði um allt, er varðar heilbrigði og holl- ustuháttu. En almennt orðalag af þessu tagi reynizt oft hald- lítið fyrir^dómstólum, ef til þess kemur. Reglur um þetta efni ættu þó eðlilega að gilda fyrir allt landið. Dr. Jón Sigurðsson um. — Þér minntust á rafeinda- innihald loftsins. í hvaða sam- bandi stendur það við líðan eða heilsu fólks? — Það er langt síðan menn veittu því athygli að rafmagn í loftinu hefur áhrif á líðan fólks, og stendur það í sambandi við rafeinda-innihald lofts, sem menn anda að sér. Rafeindir eru sem kunnugt er ýmist jákvæðar eða neikvæðar og hlutfallið milli þeirra í loftinu skiptir miklu máli. Ef mjög lítið er af rafeindum í andrúmsloftinu, finnst flestum vera þungt. Sé þar aftur á móti mikið af rafeindum, bæði já- kvæðum og neikvæðum, þykir það vera ferskt og létt. Ef marg- ar jákvæðar rafeindir eru en fáar neikvæðar, finnst mönnum loftið vera mollulegt. En séu neikvæðar rafeindir í meiri- hluta, telja menn andrúmsloftið létt og svalt. Það er þó misjafnt hve mikil áhrif þetta hefur á einstaklinginn. Menn eru mis- næmir fyrir breytingunni. Þess- ar reglur eru því ekki algildar. Maður ætti að gjalda varhug við að vera að rugla rafeindainni- haldi loftsins og breyta því frá því sem er utanhúss, Ef andrúms loftinu er breytt af mannavöld- um, veit maður ekki hvað maður hefur. Andrúmsloftið, breytilegt Stétt úr fornum gðngum grafin upp á Reyðarfelli Samtal við Þorkel Grímsson ÞORKELL Grímsson, forn- leifafræðingur, var í sumar í 6 vikur uppi í Borgarfirði, þar sem hann vann við áfram haldandi uppgröft á bæjar- rústunum á Reyðarfelli. Er þetta 6. sumarið, sem þar er grafið, og er uppgröfturinn orðinn með þeim umfangs- mestu sem hér hafa verið framkvæmdir, og er honum ekki lokið enn. Við hittum Þorkel að máli og spurðum hann um árangurinn í sumar og uppgröftinn í heild. — Reyðarfell er í landi Húsafells, eins og kunnugt' er, svaraði Þorkell. Bærinn stóð í hlíðinni um kílómeter vestan við Húsafell. Byggð þar er talinn hafa lagzt í eyði árið 1503. Við uppgröft á þessum stað hefur í raun- inni margt komið fram í dags ljósið eða um 20 hús. Eins og þið vitið getur hús merkt herbergi að gömlum sið. Hef Þorkell Grímsiion, fornleifa- fræðits -tr Járnofn, fundinn í Reyffarfellsrústum. Hefur veriff gerffur þverskurffur á einum ofnanna og sjást storknaðar bræðsluleif ar. Rústir agnga, sem legiff hafa aff húsi undir skálanum, sem áffur var búiff aff grafa upp. Vfir stéttina fremmst liggur stein brún úr hlaði, sein síðar liefur verið gert á þessum staff fram an viff bæinn. ur bæjarstæðið verið þarna lengi á sama stað og húsa- rústirnar eru því hver ofan á annarri. Uppgreftrarsvæðið er orðið geysistórt. Það mun vera um 40 m. á lengd frá austri til vesturs og um 30 m. frá norðri til suðurs. Hef- ur komið í ljós þar miklu meira en búizt var við, enda bæirnir frá ýmsum tímum. — Hvað var það merki- legasta í sumar? — í sumar bættust upplýs- ingar við þær sem áður voru fengnar. Merkilegust er stétt, sem mun vera úr göngum er virðast hafa legið að húsi. En það hús er undir skál- anum, sem áður var búið að grafa upp. Göngin eru um 3 m. á lengd, og sést steina- lögð stéttin. Torfveggir hafa svo verið báðum megin við hana. 1 hægri veggnum eru ekki leifar af grjóti, svo skýrt megi teljast, en stórar hellur eru í ytri hlið vinstri veggjar. Halli er á svæðinu og liggur gangurinn upp hallann. Hellulagningin virð ist vera á óhreyfðu, svo og húsið sem gangurinn liggur Framhald á bls. 21 , o Hvað segja þeir í fréttum ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.