Morgunblaðið - 05.10.1966, Page 24

Morgunblaðið - 05.10.1966, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. október 196« þínum þarna uppi á brekkunni. í»ú verður að koma. Ég skal tryggja þér, að ekki verða þarna nema ekta, fyrstaflokks Kalí- forníubúar neinsstaðar sýnilegir. Svo lækkaði hún ofurlítið rödd- ina: — Ég skal fullvissa þig um, að þú verður fegin eftirá að hafa komi'ð. Edith lét undan. — Vitanlega yrði mér það ánægja að koma. — Ágætt! Kokteil klukkan sjö ■— kvöldverður klukkan átta, níu eða tíu, eftir því, hvernig kokt- eilarnir ganga. — Bless, elskan. Ég verð að fara að máta, annars verð ég skotin. 17. Tom Marshall og kona hans bjuggu í Trousdale í stóru, ný- tízkulegu húsi, hvítu að lit en að nokkru huldu af háum múr- vegg. Þegar George ók heim brautina þangað, gat Edith þeg- ar heyrt hávaða og skvaldur frá kokteilsamkvæminu, og hljóð- færaslátt. Hún varð enn einu sinni gripin hræðslu og George varð að bíða nokkúð eftir henni við opnar bíldyrnar, áður en hún stigi út. Hún fitlaði eitthvað við hanzkana sína og töskuna, með- an hún var að koma taugunum í iag. Þegar hún steig út, varð hún að styðja sig við arm Georges, sem snöggvast, en síðan gekk hún að dyrunum. Hún hringdi dyrabjöllunni, en fékk ekkert svar. Eftir aðra hringinguna voru dyrnar opnaðar og fram kom feitur maður, meðal hár og tæplega miðaldra. And- litið með yfirskegginu varð allt að einu brosi og hann faðmaði hana að sér, en gætti þess samt að sletta ekki úr glasinu, sem hann hélt fyrir aftan bak á henni. — Æ, Maggie, elskan! sagði hann. — Dede sagði mér, að þú mundir koma, en ég vildi ekki trúa því fyrr en ég tæki á. Vel- komin heim til okkar. Og vel- komin aftur til siðmenningarinn- ar. — Þakka þér fyrir, Tom, sagði Edith. Brytinn kom að og Tom skip- aði honum fyrir: — Viski á ís handa frú de Lorca! — Hvar er Dede? spurði Edith og var a'ð vona, að komeist undan vernd af óðamælgi vinkonu sinn- ar. — O, hún flögrar til og frá eins og hún er vön. Komdu og hittu alla gömlu kunningjana. Hann tók í hönd hennar, svo að fingur þeirra fléttuðust saman, og leiddi hana inn. Hún varð snöggvast gripin skelfingu. Þarna inni voru tugir karla og kvenna, skrautbúið fólk í fínum kjólum og smókingföt- um, með glös í höndum og í fjörlegum samræðum. Þarna á meðal voru beztu kunningjar hennar og hún þekkti þá ekki einusinni í sjón! Tom hélc enn í höndina á '< henni, er hann dró hana inn í hópinn, og samstundis gullu við óp, er kurningjainir buðu hana velkomna. — Maggie! sagði hávaxin kona með litað, rautt hár og í gráum kjól. — Ég skyldi kyssa þig, ef ég vildi eyðileggja á þér máln- inguna. Hvað pú lítur dásam- lega út! Og sá indæli kjóll! Er hann ekki frá Scffíu? — Jú, sveraði Edith og brosti. — En hvað ég vissi það! Þeir fara þér svo vei kjólarnir frá henni Soffíu' Heilsaðu honum Freddie! Snyrtilegur burstaklipptur ungur maður hallaði sér að henni og kyssti hana á kinnina. i — Mér er nú sama um alla máln- ; ingu, en ég veró að kyssa þig, Maggie, saaði hann. — Ég er svo feginn, að pú skulir vera komin aftur. — Þakka þér fyrir, Freddie, sagði Edith. — Vissirðu, að hann Billy Boy hennar Dede vann í Holly- wood Park í dag? sagði Tom uppgefinn. — Nei, svei mér þá, sagði Freddie. — En f.vað hún var heppin, sagði Edith. Brytinn kom nú með viskíið hennar og hún tók við glasinu, en dokaði við eina mínútu áður en hún smakkaði á hressingunni, sem hún hafði svo mikla þörf íyrir. Hún var tarin að njóta viskísins, sem var kvölddrykkur Maggie. Hún saup á aftur og fór að Hða betur innan um I þetta bláóki’nnuga fólk, sem hélt' áfram að gefæ sig að henni með vinalátum. Hún svaraði þeim með hlýlegu brosi og tautaði kveðjur ú m !>ti. Enn treysti hún j á ekkjustand sitt, sem nægi- j lega afsökun fyrir fámælgi sinni. [ Og þessi afsökun dugði henni,, og brátt fór hún að kunna vel, við sig innen um allan veizlu- glauminn. Hún fann, að hún skemmti sér bara vel. Það var búið að sfegia henni það oft, hve glæsileg hún væri í bláa kjóln- um. Hún r.aut þess að vera inn- an um þetta káta fólk eftir allan jarðarfararsvipinn á gömlu kon- unni, vikum saman. Svona lífi hefði hún \ iliað lifa sem eigin- kona Franks — heil röð af kvöldboðum, síðdegissamkvæm- um og svo vcðreiðum. og svo um helgar í Ojai eða Lake Arrow- head. — Nú, þarna ertu. Öskubuska, sagði Dede og flýtti sér þaðan sem hún ha*ði verið að eftirlíta matinn. Hún dró svo Edith frá tvennum hjónum, sem höfðu verið í hrókaræðum við hana um t.ennismeistarakeppni og sagði: — Ég verð að fá þessa fallegu stulku lanaða hjá ykkur andartak. — Ætlarðu að sitja hjá okkur við borðið, Maggie? kallaði ann- ar maðurinn á eftir henni. — Ef hún Dede leyfir það, svaraði Edtih og brosti. Dede dró hana fram í gang- inn og stan/.aði til að dást að j útliti henr.ar, þegar þær voru i komnar út úr kallfæri frá hin- um. — Guð mmn góður, hvað i það er gaman að sjá hana Maggie gömlu aftur, sagði hún. — Þú ert beinlínis töírandi og þetta er einmitt .rétti tíminn tii þess. Dede var aftur kominn með þennan laumulega samsæristón, sem Edith hafði orðið svo hissa á. — Ég æt!a að koina þér dá- litið á óvart, eiskan, sagði Dede lágt. — í kompunni minni. Hún kinkaði kolli að dyrum út úr ganginum. Edith hikaði, en hin benti aítur á hurðina og fór síðan aftur til gesta sinna. í fyrstunni sá Edith engan þarna inni í herberginu, sem var skreytt grænt og rautt, með hillum fuUum af reyfurum á einuin veggnum. En er hún lok- aði á eftir sér, reis maður upp af rauða leður-legubekknum, sem var andspænis rennihurð- inni úr gleri, sem vissi út að sundlaugin-.i. Þetta var bráðlaglegur maður, án þess þó að vera neitt smá- fríður. Hann virtist vera þrjár álnir á hæð, og forkunnar vel vaxinn og var í smókingfötum með grær.u vesti úr kínverskú silki, öllu útsaumuðu. Hann virtist vern nokkrum árum yngri en Edith, en hinsvegar erfitt að gic-ina aldur hans, og líklega yrði hann alveg eins út- lits eftir tuttugu ár. Sólbrenndr. andlitið á honum ljómaði af brosi er hann stikaði til Edith. — Maggie elskan! sagði hann. Henni túkst að brosa áður en hann vafði hana örmum og kyssti hana, lengi og með ástríðu. Hút. hélt fast utan um hann og kvssti hann á móti, og reyndi að velta fyrir sér mikil- vægi þess, sem var að gerast. Hann lo.saði takið hægt og greip síðan báðum höndum um andlit hennar. — Ixifðu mér að skoða þig, Maggie, sagði hann. — Þetta er búið að vera heil eilífð! Hann tók eftir því, að hún var orðin b’-eytt og sagði: — Þú hlýtur að hafa átt erfitt, vesl- ings Maggie. Fékkstu orkídeuna frá mér? — Já, vitanlega, sagði hún og fór sér vailega. — Það var fallega gert af þér að muna af- mælið mit.L. Hann brosti. — Ég er fenginn, að þú skyldir fá kveðjuna. — Gaman að vita, hvað konan mín segir um þetta. 13 Sérðu9 Har.n ré+ti fram hand- legginn, til þess að sýna henni ermahnappa úr gulli — Já, þeir eru fallegir, sagði hún, full aðdnunar. — Þeir ættu að vera það, úr því að þú befur sjálf valið þá. — Leikföngin hans Tony — mannstu það? — Vitanlepa man ég það, svaraði hún og var nú smám- saman að komast 1 jafnvægi. — Þér hiýtur að hafa liðið fjandalega, sagði hann og leit j á hana meðaumkunaraugum. — ] Mér leið bölvanlega að láta þig standa í þessu eina Ég kom í! heimsókn undir ems og ég kom i aftur En auðvitað beit Henry j mig af, með sínum venjulega virðuleik. — Ég hef ekki tekið við nein- um heimsóknum undanfarið, sagði hún. Þú heíur ekki hug- mynd um. hvernig það er að vera i sorg þegar maður er de Lorca. — • Fjandinn eigi það allt saman! sagði hann og dró hana að legubekknum. — Ég er búinn að gleyma, hvernig nafnið er stafað. Þau settu*t á iegubekkinn og hann kyssti hana aftur, og nú ákafar en í fyrra skiptið. — Við skulum fara, sagði hann í hálf- um hljóðum og varir þeirra snertust. — Það get ég ekki sagði hún. — Ég var alveg að koma. — Æ, bessi uppgerðarlæti! sagði hann. — Mikið hlakka ég til þegar við getum hætt þeim. Þá eftir kbikkutíma! — Nei, Tony. Ekki f kvöld. Paul Harrison kemur seinna með einhver skjól til bin. — Það var heppilega tíma- sett, eða hitt þó heldur! — Afsakaðu, Tony. Ég vissi ekki, að þú værir að koma heim. Nú verð ég að fara aftur inn í samkvæmið. Hann slcppti henni og stóð upp til að kveikja sér í vindl- ingi. En hann bauð henni ekki vindling. Hann var orðinn ólund- arlegur — Við hittuinst betur seinna, sagði hún, til þess að hann færi ekki að gera uppsteit. Hann sneri ser við og rellu- svipurinn varð altur að brosi. •— Þetta er líklega rétt hjá þér, játaði hanri. — Erum við vel upplögð? — Já, prýðilega, svaraði hún án þess ao haia hugmynd um, hvað hann var að fara. — Hvenær a morgun? spurði hann. — Hringöu til mín í fyrra- málið. Ég skal skipa Henry að gefa þér samband. Hann kyssti hana lauslega og hélt í axlirnar á henni í arms fjarlægð. — Héðan af er það Tony og Maggie, ekki satt? — Satt, svaraði hún. Hún lagaði á sér varalitinn og fór síðan til gestanna aftur. Tony kom fram úr kompunni nokkru seinna. Hann kom ekkert nærri henni, það sem eftir var kvölds- ins, og Dede sagði við hana laumulega: — Þú ferð varlega, elskan! Sfðan var kvöldverðurinn bor- inn fram, og Edith sat hjá hinum gestunum og var hávær, undir áhrifunum frá kokteilunum. En hún heyrði varla, hvað sagt var, svo niðursokkin var hún í hugs- ununum um það, sem gerðist í kompunni. Nú sá hún hina ægilegu svik- semi Margaret. Hún elskaði ekki Frank. Hún átti ser friðil, meðan Frank var enn á lífi — þennan sleikta Tony, sem hafði sýnilega kvennafar að köllun og atvinnu. Og sennilega höfðu aðrir verið á undan Tony — svo vel þekkti hún Margaret. Margaret hafði ekki einusinni borið svo mikla virðingu fyrir Frank að halda þessu sambandi sínu leyndu. Dede vissi fullvel, hvað á seiði var — þa'ð báru lymskulegar glósur hennar fullvel vott um. En hversu margir aðrir höfðu vit að um það? Edith sá Tony sitja hjá ein- hverju fólki við borð, sem stóð við hinn enda sundlaugarinnar. Hann fann, að hún var að horfa á hann og sendi henni undir- furðulegt augnatillit. Það setti hana úr jafnvægi. Hlutverk hennar sem Margaret hafði verið orðið viðráðanlegt og ekkert ó- þægilegt, og farið batnandi eftir því, sem tíminn leið. En nú var hún að komast í meiri vanda en hún hafði nokkurntímaan getað búizt við. Þá stundina, sem Edith gat hugsað rökrétt, varð henni Ijóst, að hún var í yfirvofandi hættu þar sem Tony var. Hún vissi, að hann var ekki einasta hættuleg- ur andlegu jafnvægi hennar, heldur og persónulegu öryggi hennar. En hún var alveg í vand ræðum að finna nokkurt ráð til að losna við hann og — sern verra var — hana langaði ekki til að losna við hann. Henni fannst hann aðlaðandi. Og þó var þetta meira aðdrátt- arafl manns, sem gerði sér það að atvinnu að töfra konur, eink um ef þær voru efnaðar. Edith vissi, að Tony var í rauninni ekkert annað en blóðsuga, en notaði aðeins þessa atvinnu- | vinnumennsku í golf, sem grímu. Og samt gat hún ekki losað sig ] við hann. Þetta hafði verið hinn leyndi þáttur í lífi Margaret, en i nú var það allt líf hennar sálfr- | ar. Edith neyddist til að gera ser ljóst, hvaða afleiðingar það mundi hafa. I En hún lokaði sig ekki af gagn vart Tony, eins og búast hefðl | mátt við í stóru húsi þarsern margt var þjónustufólk. Hún skipaði Henry að láta sig vita, | þegar hann hringdi næsta dag. Tony kom snemma morgun, öruggur í fasi, í hvítum síðbux- um og sportpeysu. Henry var ekkert að leyna óbeit sinni, þegar hann kom til dyra. — Hr. Collins, sagði hann þurrlega. — Hvernig gengur það, Henry, sagði Tony og gekk inn í for- salinn. Hann tók vel eftir því, hve afundinn Henry var, og bætti við: — Það er búist við mér. Vissirðu það ekki, Henry? — Jú, herra minn. — Já, mjög svo búizt við mér. Segðu henni, að ég sé hér. Er það ekki allt í iagi? — Já, herra. Henry hvarf síðan en k >m aftur eftir andartak og sagði: — Frúin kemur strax. — Segðu henm, að ég ve-ði úti á vellinum. Eru kylfurnar á venjulegum stað? — Já, herra. Tony gekk út úr dyrunum en bætti þá við, eins og honum væri nú fyrst að detta það í hug: — Leiðinlegt með hann hr. de Lorca. — Vissulega, savaraði Henry kuldalega. Tony fann kylfurnar og kúl- urnar þar sem hann minntj að þær væru. Hann lagði nokkrar kúlur á grænan grasvöllinn og kíkti á flaggið sem var hundrað skref burtu. Svo valdi hann ser kylfu, athugaði hana en vaidi síðan aðra. Svo liðkaði hann sig vel og vandlega og sló margar kúlur eftir vellinum af mikilli nákvæmni. Edith kom nú innan úr hús- inu, snyrtilega búin og lagleg, í hvítri blússu og gulu pilsi. Hann lézt ekki taka eftir henni og hélt áfram að sjá þangað til kúlan lenti rétt hjá hælnum. Hann sneri sér við og sagði. — Bara að ég gæti gert þetta, þegar mest á ríður í kappleik. Hún brosti til hans og sagði. — Fyrirgefðu, hvað ég var lengi. Nú kom hann nær henm og faðmaði hana að sér. — Hvernig líður stúlkunni minni- sagði hann. — Vel, sagði hún og sleit sig af honum og gekk að borðmu, sem þarna var, tók þar vindling og kveikti í honum. Hann gekk til hennar og brosti glettnislega. — Á ég að trúa mínum eigin augum. Ertu farin að reykja, Maggie? — Ég reykti fyrir mörgum ár um, sagði hún, og bar óðan á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.