Morgunblaðið - 08.10.1966, Qupperneq 2
2
NORCU N BLAÐIÐ
Laugardagur 8. októb'er 1966
*
Verðlækkanir á frystum
fiski á sovéskum markaði
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Mbl. fékk frá Guðmundi
H. Garðarsyni viðskiptafræð
ingi hjá Sölumiðstoð hrað-
frystihúsanna hafa samning-
ar nú tekizt við Sovétríkin
um frekari sölur á frystum
fiski til Sovétríkjanna á
þessu ári. Undanfarið hafa
þeir Árni Finnbjörnsson
sölustjóri hjá S. H. og Bjarni
V. Magnússon, framkvæmda
stjóri sjávarafurðadeildar
S.Í.S. dvalizt í Moskvu við
samningagerð og gengu þeir
frá eftirfarandi sölum í gær:
Seld voru 3,500 tonn af fisk-
flökum, þ. e. þorskur, ýsa, stein
bítur, karfi, ufsi og langa, allt
til afgreiðslu á þessu ári og
ennfremur voru seld 1000 tonn
af heilfrystum fiski. í>ví má
(bsMta við, að þegar er fyrir
hendi 5000 tonna sölusamning-
ur á frystri síld til afgreiðslu
á þessu ári til Sovétrikjanna.
Guðmundur H. Garðarson
sagði ennfremur: Fyrirtæki,
sem selja frystar sjávarafurðir
hvort sem er hérlendis eða er-
lendis tíðka það yfirleitt ekki
að ræða opinberlega um ein-
stök söluverð á hverjum tíma,
þótt hins vegar megi oft gera
sér almenna grein fyrir verð-
laginu úr fréttablöðum og tíma
ritum sjávarútvegs og fiskiðn-
aðar í Evrópu og Ameríku, en
þar sem þessi mál, þ. e. verð-
lag sjávarafurða, hafa mjög ver
ið á dagskrá undanfarið og verð
þróunin verið okkur íslending-
um óhagstæð, er nauðsynlegt að
það komi fram nú, að í samn-
ingnum við Sovétríkin lækkuðu
verðin frá fyrra samningum, t. d.
lækkar verð á þorskflökum (í
7x8 lbs. pakkningu) úr
£ 197-0-0 í £ 185-0-0 per tonn
cif. rússneskar hafnir. Aðrar teg
undir lækka samsvarandi. Verð
i'ð á heilfrysta fiskinum fellur
úr £ 132-10-0 í £ 124-0-0 per
tonn.
Einkaskeyti til Mbl. frá frétta-
ritara þess í Noregi.
AÐALFUNDUR Islendinga-
félagsins í Oslo samþykkti í
fyrrakvöld að félagið festi kaup
á skólabyggingunni Snersrud,
Mbl. birti fyrir skömmu
frétt um verðlagið á banda-
ríska markaðinum. Hvað er
nánar um þann markað að
segja?
— Samkvæmt nýjustu fregn-
um mun sem stendur ekki vera
unnt að fá í Bandaríkjunum
yfir 24-25 cent fyrir pundið
(lb.) af þorskblokkinni. Til sam
anburðar má geta þess, að fyrr
á árinu var söluverð á þessari
tegund af blokk um 24,5 - 30
cent per pund.
Eru þessar verðlækkanir hið
alvarlegasta mál fyrir íslenzk-
an frystiiðnað, sagði Guðmund-
ur H. Garðarsson að lokum.
sem er vestan við Kröderen i
nágrenni skíðalandsins í Nore-
fjell. Félagið ætlar að útbúa
húsið sem sumargististað.
Staðurinn hentar mjög vel
bæði sem sumargististaður og
staður þar sem unnt er að iðka
vetraríþróttir. Húsið er á tveim-
ur hæðum og er gólfflötur 135
fermetrar. í kjallara er unnt að
útbúa eldhús og böð.
Kaupverð greiðist í tvennu
lagi, en það er 40 þúsund norsk-
ar krónur eða 240 þúsund ís-
lenzkar. Gert er ráð fyrir að
breytingarnar á húsinu kosti unj
20 þúsund norskar krónur.
Félagið mun fá kaupverð húss-
ins úr íslendingasjóðnum, sem
stofnaður var fyrir mörgum ár-
um af ljósmyndaranum Ingi-
mundi Eyjólfssyni, er dvaldist
lengi í Noregi.
Sk. Sk.
DAGBLAÐIÐ „Washington Post“
segir í dag, að öldungadeildar-
þingmaðurinn Robert Kennedy
hafi sagt, að hann muni ekki
reyna að komast i framboð.fyrir
flokk demókrata í forsetakosn-
ingunum næstu.
í GÆR var stillt veður um norðan, en yfir 5 stig síðdegis
allt land Víðast var skýjað á Suðurlandi.
um norðurhluta landsins, en Horfur voru á í gær, að veð
léttskýjað sunnan lands. Hiti ur færi blýnandi með suðaust
var náiægt frostmarki fyrir lægri átt í dag og gætu þau
hlýindi varað í nokkra daga.
íslendingafélagið í
Noregi kaupir hús
Herra Juan Serrat afhendir trúnaöarbréf sitt að Bessastöðum.
HERRA Juan Serrat, sem stöddum menntamálaráð-
undanfarið hefur verið sendi- herra, dr. Gylfa Þ. Gíslasyni,
herra Spánar á íslandi af- í fjarveru utanrikisráðherra.
henti forseta fsland trúnaðar-
bréf sitt sem ambassador Reykjavík, 7. okt. 1966.
Spánar á íslandi við hátíðlega (Frá skrifstofu forseta
athöfn á Bessastöðum að við- íslands).
Þórólfur vill
vestur um haf
óskar eftir að hætta hjá
,, Glasgow Rangers 44
Einkaskeyti til Mbl.,
Glasgow, 7. okt. — AP:
ÞÓRÓLFUR BECK, knatt-
spyrnumaður, hefur farið þess
á leit við félag sitt, „Glasgow
Rangers11, að hann verði frjáls
ferða sinna vestur um haf —
til Bandaríkjanna, þar sem
hann hyggst leika framvegis.
Þórólfur lék áður fyrir „St.
Mirren“, sem fyrstir Skota
komu auga á hæfileika hans.
Fyrir tveimur árum tók hann
að leika fyrir „Rangers", sem
urðu að gjalda 20.000 sterlings
pund (tæpa tvær og hálfa
millj. ísl. kr.) fyrir hann.
Þórólfur heíur aðeins tekið
þátt í þremur leikjum á því
leiktímabili, sem nú stendur
yfir.
Þórólfur hefur sjálfur lýst
því yfir, að hann sé ekki á-
nægður, og óski hann eftir því
að verða leystur undan frek-
ari leikskyldu við „Rangers",
svo hann geti haldið vestur um
haf.
Aðolfundur Vurður FUS ú
Akureyri
AÐALFUNDUR Varðar FUS á
Akureyri verður haldinn í Sjálf
stæðishúsmu á Akureyri í dag kl.
2 e.h.
Á fundinum fara fram venju-
leg aðalfundarstörf og lagðar
verða fram tillögur til lagabreyt
inga. Vörður F U S hefur starfað
með mikluin bloma sl. starfsár og
eru félagsmenn hvattir til þess
að fjölmenna á aðalfundinn.
Réttindalaus
ökumaður
í árekstri
HARÐUR árekstur varð á horni
FXókagötu og Rauðarárstígs í
gærkvöldi kl. rúmlega 9. Rákust
þar á Simcabifreið, sem kom
austur Flókagötu og rússnesk
jeppabifreið, sem ók suður Rauð-
arárstíg.
í þessu tilviki átti Simcabif-
reiðin að stanza, en í stað þess
hélt hún áfram og olli árekstrin-
um. í Ijós kom við athugun
götulögreglunar, að ökumaður
jeppabifreiðarinnar var réttinda-
laus. Stúlka, sem var farþegi í
Simcabílnum missti meðvitund
við áreksturinn og var flutt á
Slysavarðstofuna, en síðan leyft
að fara heim. Ökumenn bifreið-
anna sluppu hins vegar með öllu
ómeiddir. Simcabifreiðin er
mjög skemmd að framan, en
jeppinn öllu minna.
• Oddmund Myklebi... fiski-
málaráðherra Noregs, nu
staddur í Moskvu og a..i i dag
viðræður við sovézka lisximáia-
ráðherrann, Alexander Isjkov.
Ræddu þeir meðal annars mögu-
leika á aukinni samvinnu Norð-
manna og Rússa a jí haf-
rannsokna
Er starfsmaður útvarpsins
genginn í sveit Rauðu varðfiianna? {
RÍKISÚTVARPIÐ flutti sl.
föstudagskvóld fréttaauka frá
Peking, þar sem fyrrverandi
fréttamaður utvarpsins, en nú
verandi starfsmaður í dag-
skrárdeild tók sér fyrir hend-
ur að fullyrða, að fregnir,
sem ailar helztu fréttastofn
anir heims. bæði í austri og
vestri, svo og Ríkisútvarpið
sjálft hafa flutt um atburð-
ina í Kína, væru rangar. — f
fréttaauka þessum sagði fyrr
verandi fréttamaður útvarps-
ins m.a.: „Það er rangt, að
erlendum stúdentum hafi
verið visað úr landi eins og
hermt var fyrir nokkrum dög
um í danska kommúnistablað
inu Land og Folk og haft eft-
ir Tass“. f gær oarst Mbl.
frétt frá Moskvu frá norsku
fréttastofunm NTB þess efn-
is að Sovétríkin hefðu skipað
öllum kínverskum stúdentum
í Sovétríkjunum að verða
brott úr landinu fyrir lok
októbermánaðar. Segir frétta
stofan að litið sé á þetta sem
svar -iovétstjórnarinnar við
því að öllum sovézkum stúd-
entum hafi verið vísað á brott
úr Kína um leið og öllum er-
lendum stúdentum í Kína hafi
verið visað úr landi. Segir
fréttastofan að sú ákvörðun
kínverskra yfirvalda hafi ver
ið skýrð með því, að kennar
ar i Kína væru of uppteknir
við ,,menningarbyltinguna“
svo að þeir gætu af þeim sök
um ekki kennt þeim.
Þá sagði þessi fyrrverandi
fréttaniaður utvarpsins: „Það
er ekki rétt að rauðu varð-
liðarnir hafi verið kvaddir á
brott frá Peking. Þeir eru
þar ennþá hundruðum þús-
unda saraan. Og það er fleira,
sem ekki hefur verið rétt
hermt um þa á íslandi ....
cftir því sem ég kemst næst
af viðtölum og lestri, þá fer
varla milli mála að menning-
arbyltingin með Rauðu varð-
liðana í fararbroddi markar
tímamót í stjórnarsögu sósíal
ismans hérna í Kína . . . má
telja hklegt, að tímabil hinn
ar vingjarnlegu fortölu, sé
nú á enda og að kreppt verði
meir en áður að þeim sem tví
stigið hafa á hinum pólitísku
vegamótum. Hér draga menn
ekki dul á það að unga fólk-
inu hafi orðið á ýmis mistök
í framkvæmd menningarbylt
ingarinnar, en mannvíg hafa
ekki orðið . . . hér hafa held-
ur ekki verið framin skemmd-
arverk á fornminjum eða lista
verkum, þótt fyrir hafi kom-
ið, að Rauðu varðliðarnir hafi
hengt bréfmiða með áletraðri
gagnrýni á stöku mynd. Ekki
er mönnum heldur kunnugt
um að nein meiri háttar spjöll
hafi verið unnin á grafreitum
kristinna manna í Peking . . .
en brotinn kross á leiði krist
ins manns hér eystra gæti ■
varla talizt til stórtiðinda í ;
samanburði við framkomu -
kristinna manna í grannrík- ;
inu Víetnam". Z
m
m
Eftir skamma dvöl í Peking I
■
í boði kínverskra stjórnar- :
■
valda og samkvæmt eigin orð Z
um „ólæs, úskrifandi og ómæl ;
andi“, telur þessi maður sig Z
þess umkominn að fullyrða •
að þær fréttir, sem viður- :
kenndar fréttastofnanir um ;
heim allan t AUSTRI OG :
VESTKI. hafa flutt um „menn ;
ingarbyltínguna" í Kína séu ;
rangar. Hann um það. En það ;j
hlýtur að verða forsvarsmönn ■
um fréttastofunnar nokkurt :
umhugsunarefni, hvort þeim ;
sé sæmandi að flytja slíkar:
„fréttir" En kannski stakk ;
þessi fréttaauki ekki eins mik :
ið í staf við mat fréttastof- ;
unnar á heimsfréttum og á- -
stæða væri til að ætla. ;
9