Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 6

Morgunblaðið - 19.10.1966, Síða 6
6 MORCUNBLADIÐ Miðvikudagur 19. okt. 196( Ford 1954 Ford fólksbifreið í góðu standi, nýskoðuð til sölu. Uppl. í Bifreiðastöð Stein- dórs, sími 11588 og 18985. Efnalaugin Lindin Hreinsum samdægurs. EFNAXAUGIN LJNDIN Skúlagötu 5. Góð bílastæði. V élritunarnámskeið verður haldið hér í bænum og í Hafnarfirði. Innritun hefst nú þegar. Til viðals í síma 37771 frá kl. 9—12 og 8—10 e.h. Cecilia Helga- son, Hvassaleiti 22, 3. h., t.v. D — 8 Jarðýta af gerðinni Cater- pillar D-8 (2C) er til sölu. Upplýsingar í síma 30828. Stúlka óskast á gott heimili í Englandi frá 15. nóv. eða 1. des. — Vinsamlegast skrifið til Mrs. Sweeney 4 Michleham Down Woodside Park, London N 12 Maðurinn> sem fann peningaveskið 5. okt .og hringdi í síma 32666, er beðinn að gjöra svo vel að hringja aftur. Reglusöm stúlka sem vinnur úti, óskar eftir hérbergi með eldhúsað- gangi eða lítilli íbúð. Barna gæzla kemur til greina. Upplýsingar í síma 19845 eftir kl. 5 í dag. Kjólskyrtur Við þvoum allar skyrtur, vesti, flibba og sloppa. — Þvottahúsið Drífa, Baldurs götu 7. Sími 12337. Drífið þvottinn í Þvottahúsið Drífu, Baldursgötu 7. Sími 12337. Til sölu ný A.E.G. eldavélahella. Sporöskjulöguð. Upplýsing ar í síma 52248. Herbergi óskast Einhleypur maður óskar eftir herbergi, helzt með eldunarplássi, sem næst Miðbænum. Upplýsingar í síma 13203, eftir kl. 8 e.h. Mótatimbur Mótatimbur 1x6 og 1x4, til sölu. Uppl. í síma 33836, Framkvæmdamenn Vanur bifvélavirki óskar eftir sambandi við mann eða fyrirtæki, sem hefur að stöðu til viðgerða. Tilboð merkt: „Bílar — Vinnu- vélar“ sendist Mbl. sem fyrst. Kennarar Nemendaskrá fyrir kenn- ara, er aftur komin í bóka verzlanir. Fæst í Bóka- verzlun KRON; Bókaverzl un ísafoldar; Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. — Send í póstkröfu út um allt land. Málverknsýning í Mbl. glugga UM þessar mundir sýnir í glugga Morgunblaðsins Gunn- ar Hjaltason úr Hafnarfirði nokkur vatnslita- og pastel- málverk. Sýning þessi er sölu sýning, og geta menn fengið upplýsingar um verð hjá aug- lýsingadeild blaðsins. Við hittum Gunnar Hjalta- son að máli á mánudaginn, og spurðum hann um nám hans og starf. „Ég lærði hjá þeim ágætu listamönnum, Birni Björns- syni og Marteini Guðmunds- syni, sem hér ráku þá teikni skóla. Þetta var um 1933, og var ég viðloðandi hjá þeim í nokkur ár. Svo lærði ég gullsmíði hjá þeim Leifi Kal- dal og Guðmundi Guðnasyni, föður Bjarna blaðafulltrúa og þeirra bræðra. Ég hafði geysigott að hvorutveggja þessu námi. Þetta voru prýð- iskennarar allir fjórir, hver á sínu sviði. Síðan má segja, að ég hafi alltaf annað slagið verið að mála, svona með hvíldum, samhliða lífsstarfi mínu sem gullsmiður. Ég er fæddur 1920 og á heima við Gunnarssund í Hafnarfirði. Nei, blessaður vertu, þeir skírðu það ekki eftir mér, heldur mun það kallað eftir föðurbróður Egils Vilhjálmssonar, sem bjó, þar sem hét Gunnarsbær. Ég hef smá búðarholu við Gunnars- sund, þar sem ég sel smíðis- gripi mína, en þeir kalla það nú raunar Hverfisgötu 30, af einhverjum annarlegum ástæð um . Ég mála eingöngu lands- lagsmyndir. Abstraktlist á ekki við skapferli mitt. Ég Gunnar Hjaltason. mála eingöngu landslagsmynd ir. Abstraktlist á ekki við skapferli mitt. Ég mála mynd- irnar yfirleitt á staðnum, en fullvinn þær svo heima. Mynd irnar í glugganum eru ýmist málaðar með vatnslitum (þekjulitum) og pastellitum, og þær eru allar málaðar á árinu 1966“, sagði Gunnar að lokum. Sýning Gunnars mun standa í glugganum fram í næstu viku. ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ 50 ára er í dag Einar Skúla- son, bryti, Álftamýri 18. Verður í dag staddur á Miðbraut 22* Seltjarnarnesi. Nýlega hafa opinberað trú- lofun sína ungfrú Guðrún Sig- urðardóttir Otrateig 5, og Dan- íel Guðjón Óskarsson, Stigahlíð 36. FRETTIR Kristniboðssambandið. Almenn samkoma í kvöld kl. 8:30 í Bet- aniu. Halla Bachmann talar. All- ir velkomnir. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra. Kvennadeildin heldur fyrsta fund vetrarins í Tjarnar- búð uppi fimmtudaginn 20. okt. kl. 9. Stjórnin. Gestamóttaka fyrir Svövu Þór- leifsdóttur fyrrv. skólastjóra Akranesi verður í tilefni af 80 ára afmæli hennar fimmtudag- inn 20. okt. í Silfurtúnglinu frá kl. 4—6 síðdegis. Er þess vænzt, að kunningjar og vinir heiðrl afmælisbarnið með nærveru sinni. Kaffimiðar við inngang- inn. Kvenréttindafélag íslands. Kristileg samkoma verður í samkomusalnum Mjóuhlíð 16 í kvöld kl. 8. Allt fólk hjartanlega velkomið. Konur í Styrktarfélagi vangef- inna halda fund fimmtudaginn 20. þm. kl. 8:30 að Bárugötu 11. Dagskrá: Félagsmál, Sigríður Thorlacius flytur erindi. Kvenfélag Neskirkju heldur fund miðvikudaginn 19. okt. kl. 8.30 í Félagsheimilinu. Skemmti- atriði. Kaffi. Stjórnin. Grensásprestakall Unglingar, munið kvöldvök- una í Breiðagerðisskóla fimmtu- daginn 20. október. kl. 8. síð- degis. Séra Felix ólafsson. Kvenfélag Lágafellssóknar Viljum minna félagskonur og aðra velunnara félagsins á bas- arinn, sem verður sunnudaginn 30. okt. í Hlégarði. Dalakonur. Fíladelfía, Reykjavík Þessa viku talar Jóhann Páls- son frá Akureyri í Fíladelfíu. Biblíulestur í dag kl. 5 og kl. 8:30 að Hátúni 2. Allir velkomn- ir. Kvenfélagskonur, Sandgerði Munið basar kvenfélagsins 23. október. Vinsamlegast komið munum til eftirtalinna kvenna: Fanney Snæbjömsdóttur, Tungu Hólmfríður Björnsdóttur, Tún- götu 1, Þorbjargar Tómasdóttur, Borg. Kvenfélag Langholtssafnaðar heldur basar 12. nóvember. Kon- EN ef einhvern yðar hreztur vizku, l>á hiðji hann Guð, sem gefur öli- um örlátlega og átölulaust, og mun honum gefast (Jak. 1,5). f DAG er miðvikudagur 19. októher og er það 292 dagur ársins 1966. Eftir lifa 73 dagar. Balthasar. Tungl lægst á lofti. Árdegisháflæði kl. 9:40. Siðdegisháflæði kl. 22:07. Orð lifsins svara 1 sima 10000. Upplýsingar um læknapjón- ustu í borginni gefnar í sím- svara Læknafélags Reykjavíkur, Siminn er 18888. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni. Opin allan sólarhring inn — aðeins móttaka slasaðra — sími: 2-12-30. Kvöidvakt í lyfjabúðum I Reykjavík vikuna 15. okt. til 20. okt. er í Vesturbæjarapóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Næturlæknir í Hafnarfirði að- fararnótt 20. okt. er Kristján Jó- hannesson sími 50056. Næturlæknir í Keflavík 14. þm. er Guðjón Klemenzson sími 1567, J5—16 þm. er Kjartan Ólafsson sími 1700. 17—18 þm. er Arn- björn Ólafsson sími 1840, 19—20 þm. er Guðjón Klemenzson sími 1567. Apótek Keflavíkur er opið 9—7 laugardag kl. 9—2 helgidaga kl. 1—3. Hafnarfjarðarapótek og Kópa- vogsapótek eru opin alla daga frá kl. 9 — 7 nema laugardaga frá kl. 9 — 2, helga daga frá kl. 2 — 4. Framvegis verður tekfð á mótl þelm, er gefa vilja blóð i Bióðbankann, sena hér segir: Mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl *—11 f.h. og 2—4 eJ». MlÐVlKUDAOa frá ki. 2—S e.h. Laugardaga frá kl. 9—II f.h. Sérstök athygii skal vakin á mið- vikudögum, vegna kvöldtimans. Bilanasfmi Rafmagnsveitu Reykja- víkur á skrifstofutima 1S222. Nætuf- og helgidagavarzia 18230. Reykjavíkurdeild A.A.-samtakanna Fundir alla miðvikudaga ki. 21 Óð- insgötu 7, efstu hæð. RMR-19-10-20-HRS-MT-HT I.O.O.F. 7 = 14810198% = 9 H. I.O.O.F. 9 = 14810198% = IXl HELGAFELL 596610197 VI. 2. ur, nú er kominn tími til að fara að hannyrða eða safna til að sýna einu sinni enn, hvað við getum. Konur í basarnefnd, haf- ið vinsamlega samband við: Vil- helmina Biering, sími 34064, Odd- rún Elíasdóttir, sími 34041 og Sólveig Magnúsdóttir síma 34599. Kvenfélag Keflavíkur Munið basarinn í Tjarnarlundi kl. 3. sunnudaginn 30. okt. Kvenfélag Háteigssóknar: Hinn árlegí basar Kvenfélags Háteigssóknar, verður haldinn mánudaginn 7. nóvember n.k. í „GUTTÓ“ eins og venjulega og hefst kl .2 e.h. Félagskonur og aðrir velunnarar kvenfélagsins, eru beðnir að koma gjöfum til: Láru Böðvarsdóttur, Barmahlíð 54, Vilhelmínu Viihjálmsdóttur, Stigahlíð 4, Sólveigar Jónsdótt- ur .Stórholti 17, Maríu Hálfdánar dóttur, Barmahlíð 36, Línu Grön- dal, Flókagötu 58 og Laufeyjar Guðjónsdóttur, Safamýri 34. Nefndin. VÍSIJKORIM Rísa út við Arnarhól, öldur fagurskyggðar. Þar sem yljar auðnusól, íslands fyrstu byggðar. Kjartan Ólafsson. GAMALT og GOTT „Bið ég Maria bjargi mér“ eftir Scheving. KVÖLD- OG MORGUNVERS Bið ég Maria bjargi mér burt úr öllum nauðum, annars heims og einnig hér, ástmær guðs, ég treysti þér, bið þú fyrir mér bæði lífs <>g dauðum. sá N/EST bezti „Dansið þér ekki svona hart við mig, ég er í sorg“, sagói ung ekkja við mann, sem hún var að dansa við. Prentnemar! Kjör fulltrúa á 24. þing I.N.S.Í., (sem fer fram dag- ana 28. okt. til 30. okt. 1966), fer fram í Félagsheimili prentara, Hverfisgötu 21, í kvöld, miðvikudaginn 19. okt. ki. 17,15. Mjög áríðandi að félagsmenn mæti. Stjórnin. Hval rak á fjörur kominúnlsfa og Framsóknar Greiðsluerfiðleikar Borgarinnar um þéssar mundir er þeím eins og hvalreki í harðindum “ .:i, y (VelVakandi 13. okt. 1966.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.