Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.10.1966, Blaðsíða 7
MiSvikuda.sa’r 1-9. okt. 1968 MORCUNBLAÐID flaustsýning í Bammagerðinni l'M þessar mundir stendur yfir haustsýning hjá Ramma- gerðinni Hafnarstræti 5 á list munum ýmsum, sem sérstak- lega eru ætiaðir til minja- gripa fyrir ferðamenn, en auð vitað er þarna um varnig að ræða, sem hentar vei til gjafa innanlands. Sýningin er í hinu rúmgóðu húsakynnum verzlunarinnar í gamla Mjólk urféiagshúsinu og verður opin til sunnudagskvölds. Verður opið bæði á laugardagskvöld og sunnudagskvöld. Við gengum um húsakynn- in á mánudag með fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, Hauki Gunnarssyni, og var þar margt skemmtilegt að sjá, og er sýningin einskonar yfirlitssýning um íslenzka minj agripaframleiðslu. „Tilgangurinn með þessari haustsýningu“, sagði Haukur, „er einkum sá, að vekja at- hygli á því, sem við höfum að bjóða, bæði heimilisiðnað og verksmiðjuunnar vörur. Ennfremur vonum við að geta með henni vakið athygli þeirra, sem eitthvað þessu líkt framleiða, t.d. i heimahús- um, að við erum tilbúnir að koma fallegum munum á framfæri. Ullarvörur eru uppistaðan í þessari sýningu, lopapeysur, vettlingar, treflar, húfur, sjöl og hyrnur, allt handunnið. Handvefnaður er hér í fjöl- breyttu úrvali, svo sem borð- treflar, og pils. Þessi vefn- aður er unnin af Geirlaugu Jónsdóttur, Borgarnesi, Guð- rúnu Vigfúsdóttur, ísafirði, Karólínu Guðmundsdóttur, Reykjavík og Kristínu Jóns- dóttur, sama stað og fleirum. Svo er verksmiðjuiðnaður- SEÐ til dyra á haustsýningunni við eftir Sólveigu Eggerz, ofna og Karólínu Guðmundsdóttur, inn: Loðsútuð gæruskinn frá Vinnufatagerðinni, bæði í náttúrlegum litum og lituð, sem eru mjög eftirsótt er- lendis. Ýfð og stílhrein teppi frá Álafossi og Gefjun, sem eru flutt út í stórum stíl. Peysur á alla fjölskylduna úr íslenzkri upp frá Heklu á Akureyri. Erlendir ferðamenn eru í vaxandi mæli að læra að meta íslenzku ullarvör- urnar, enda er íslenzka ullin sennilega gædd fleiri góðum eiginleikum, en nokkur önn- ur ull í heiminum í dag. Einnig sýnum við hér klippt skinn, gæruskinn, kálfsskinn, trippaskinn og hestaskinn frá Iðunni á Akureyri, einnig vesti úr sútuðum skinnum fyrir dömur og herra. Ég má til með að vekja athygli á pelsum úr klipptum gæruskinnum, sem ef til vill verða taldir nauðsynlegir ís- lenzkum konum í framtíð- inni. Hér eru einnig til sýnis gull- og silfurmunir frá mörg- um gullsmiðum, smelti — og skartgripir frá Bárði Jóhann- essyni skartgripir frá Jóni Dalmannssyni, víravirki frá Jóni Björnssyni, men með is- lenzkum steinum frá Þórarni Gunnarssyni, svo að eitthvað sé nefnt. Leirmunir frá Glit og Funa, að ógleymdum hin- HÉR má sjá smeltimuni Bárðar Jóhannessonar, leirmuni frá Glit og Guðmundi Einarssyni og Batíkmyndir Katrínar. Fremst má sjá málverk á reka- hluti eftir Guðlaugu Jónsdóttur um sígildu styttum Guðmund ar frá Miðdal. Sólveig Eggers sýnir hér skemmtilegt safn af málverk- um máluðum á rekavið. Eiga þessar myndir mjög vaxandi vinsældum að fagna, og hafa útlendingar mikið keypt þær. Batikmyndir Katrínar Ágústs dóttur vekja einnig mikla athygli. Friðrik Friðleifsson á þarna rokka og gestabækur úr skinni og öðrum efnum, og Guðvaldur Jonsson heíur skorið út aska af mörgum stærðum. Minjagripa iðnaður á fs- landi er mjög ung listgrein, en margt er hér athyglisvert og mjög vel gert og stenst fyllilega samanburð við það, sem boðið er víða erlendis, bæði hvað verð og gæði snert ir. Þó að erlendir ferðamenn komi hingað í vaxandi mæli ár hvert, þá er ferðamanna- tíminn svo stuttur, að sölu- tími á minjagripum er aðal- lega þrjá mánuði á ári. Við önnumst smærri og stærri sendingar bæði utan- lands og innan, án sérstaks aukagjalds fyrir pakkningu, og mun það vart þekkjast í öðrum löndum. Allar send- ingar eru tryggðar. Það er ástæða til að minna fólk á, að sendingaf, jafnvel með flugi, taka oft lengri tíma, en það reiknar með. Við bjóðum yður velkominn á „Haustsýningu" okkar til að athuga í tíma, hvort við höf- um ekki jólagjafirnar, sem þér óskið að gefa vinum yð- ar erlendis og heima. Verzlunarstjóri í verzlun- inni, Hafnarstræti 5 er Kol- brún Jóhannesdóttur, en eig- andi hennar er Jóhannes Bjarnason“, sagði Haukur Gunnarsson framkvæmda- stjóri að lokum, um leið og við gengum út af haustsýn- ingunni. Blsið og timarit FAXI, septemberblað, 26. árg. ’66 hefur nýverið borizt blaðinu, 16 eíður að stærð, fjölbreytt að efni. Útgefandi er málfundafélagið Faxi í Keflavík, og ritstjóri þess er Hallgrímur Th. Björnsson, kennari. Af efni blaðsins má nefna grein um kappreiðar Mána, eamtal við Ellert Eiríksson um framkvæmdir Keflavíkurbæjar, þýzkt knattspyrnulið í heimsókn til ÍBK, grein eftir Hallgrím Sig wrðsson; Út úr Paradís. Mynd af rússnesku iistamönnunum. Minn inagargreinar og minningaljós. Samtal við Guðmund A. Finn- bogason um Innri Njarðvíkur- kirkju 80 ára, afmælisgreinar, — nýtt skip til Grindavíkur, frétt um gullbrúðkaup, þátturinn Úr flæðarmálinu og fleira. Minningarspjöld Minningarsjóður Guðrúnar Bergsveinsdóttur. Minningar- spjöld eru seld í Skátabúðinni við Snorrabraut, Áslaugu Frið- riksdóttur, Mávahlíð 13, Guð- rúnu J óhannsdóttur, Grundar- gerði 4 og Borghildi Strange, Barðavogi 38. Kvenskátafélag Reykjavíkur. Minningarspjöld Háteigskirkju eru afgreidd hjá Ágústu Jóhanns dóttur, Flókagötu 3ö, sími 11813; Áslaugu Sveinsdóttur, Barmahlíð 28; Gróu Guðjónsdóttur, Háa- leitisbraut 47; Guðrúnu Karls- dóttur, Stigahlíð 4; Guðrúnu Þorsteinsdóttur, Stangarholti 32; Sigríði Benónýsdóttur, Stigahlíð 49, og Bókabúðinni Hlíðar, Miklu braut 68. Minningarspjöld Ekknasjóðs lækna fást á eftirtöldum stöðum: Skrifstofum læknafélags Reykja- víkur, Domus Medica, Egilsgötu, skrifstofu borgarlæknis, Heilsu- verndarstöðinni, Reykjavíkurapó teki, Siúkrasamlagi Kópavogs og Hafnarf j arðarapóteki. Minningarspjöld Ekknasjóðs Reykja vfkur eru til sölu á eftirtöldum stöð- Bræðraborgarstíg 1. Geirs Zöega, Vest- urgötu 7. Guðmundar Guðjónssonar, Skólavörðustíg 21 A Búrið. Hjallaveg Minningarspjöld Heilsuhælis- sjóðs Náttúrulækningafélags fs- Iands fást í Hafnarfirði hjá Jóni Sigurgeirssyni sími 50433, og í Garðahreppi hjá Erlu Jónsdóttur, Smáraflöt 37, sími 51637. Spakmœli dagsins Grunnhygginn maður er gá- laus, en brjálaður maður bilað tæki. — Kristín Sigfúsdóttir. >f Gengið Reykjavík 13. október 1966. Kaup Sala 1 Sterlingspund 119,88 120,18 1 Bandar. dollar 42.95 43.06 1 Kanadadollar 39,80 39,91 100 Danskar krónur 622,30 623,90 100 Norskar krónur 600,64 602.18 100 Sænskar krónur 830,46 832,60 100 Finsk mörk 1.335.30 1.338.72 100 Fr. frankar 868,95 871,19 100 Ðelg. frankar 85,93 86,15 100 Svisen. frankar 990,50 993,05 100 Gyllini 1.186,44 1.186,90 100 Tékkn kr. 506,40 996,00 100 v-þýak mörk 1.076,44 1,079,20 100 Austurr. sch. 106.1« 106.00 100 Pesetar 71,00 71,00 Hús til sölu Lítið hús til sölu og flutn- ings. Þarf viðgerðar við. Tilvalið sem sumarbústað- ur. Uppl. í síma 60032. Til sölu Burðarrúm, og sem nýr Allvin barnavagn. Upplýs- ingar í síma 7019, Garði. Hafnfirðingar Lagtækur maður óskast til iðnaðarstarfa. Framtíðarat- vinna. Uppl. í símum 13992 Reykjávík og 51869 Hafnar firði. íbúð óskast Hjón með tvö börn óska eftir íbúð í nokkra mán- uði. Upplýsingar ’ síma 11947. Hópferðabifreið til sölu Til sölu 36 manna Ford, árg. 1954. Upplýsingar I síma 1740, Keflavík, næstu daga. Tapað Ný, dökkblá drengjaúlpa, tapaðist í nágrenni Breiða- gerðisskóla. Vinsamlegast hringið í síma 32623 eða 38966. Fundarlaun. Tökum að okkur aukakennslu í tungumál- um. Uppl. í síma 15918, frá kl. 13 til 15,30. Maður óskast til gæzlu á snyrti- herbergjum o. fl. Uppl. í skrifstofunni kl. 2—5 í dag og næstu daga. — Sigtún. íbúð óskast Vegna viðgerðar á eigin húsi, óskast búð til leigu um 5—6 vikna skeið. Sími 24537 milli kl. 10—12 og 2—5. Kona óskast til að gæta 4ra ára telpu frá kl. 12,30 til 5,30, alla virka daga nema laugar- daga til hádegis. Upplýs- ingar í síma 11679 eftir kl. 6 e.h. Fyrirliggjandi stólagrindur (rennibraut- ir). Trésmiðja Austurbæj- ar h.f., Skipholti 25. Sími 19016. Útihurðir í Oregonpine, fyrirliggj- andi. Trésmiðja Austur- bæjar h.f., Skipholti 25. — Sími 19016. Bílskúr óskast til leigu í Austurborginni. Upplýsingar í síma 34530. Ford 1954 Ford fólksbifreið í góðu standi, nýskoðuð, til sölu. Uppl. í Bifreiðastöð Stein- dórs, sími 11588 og 18585. Herbergi óskast til leigu fyrir tvo pilta utan af landi. Uppl. í síma 41357. Sambyggð trésmíðavél - þriggja fasa, samanstend- ur af hjólsög, afréttara og borplani, — til sölu. Lítið notuð. Upplýsingar í síma 40533. Keflavík — Njarðvík Vantar íbúð um mánaðar- tíma. Erum á götunni. Sími 18971 eða 2508, Keflavík. Barnagæzla Get tekið að mér að gæta 5—6 ára telpu frá kl. 9—18 eða eftir samkomulagi. Upp lýsingar í síma 35225. Opinberan starfsmann vantar eitt eða tvö herb. strax, í úthverfi borgar- innar. Tilb. sendist Mbl., merkt: „Opinber starfsmað ur — 8004“. Fullorðinn maður óskar eftir þrifalegri inni- vinnu. Upplýsingar í síma 40138. íbúð til leigu 4ra herb. íbúð í Háaleitis- hverfinu til leigu. Tilboð sendist Mbl. fyrir föstudag, merkt: „Austurborg — 4823“. Píanó Mjög fallegt píanó til sölu. Upplýsingar í síma 15603. Er vön barnagæzlu Vil taka 1—2 börn % eða allan daginn. Vinsamlegast leggið nöfn og símanúmer inn á afgr. Mbl. merkt: „Háteigsvegur — 9907“. Starfsstúlkur óskast í eldhús Landakotsspítala. Uppl. á skrifstofunni. Keflavík Forstofuherbergi til leigu á Garðavegi 6, uppi. Upp- lýsingar í síma 2565. Lítið einbýlishús 3 herb. o geldhús í Mið- bænum, til leigu, nýstand sett með teppum á stofum. Fyrirframgreiðsla æskileg. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Einbýlishús — 4355“. Til sölu Consul, árg. "55. Upplýs- ingar í síma 60121. íbúð óskast Óska eftir að taka á leígu íbúð, 3—4ra herb. Engin börn. Algjör reglusemi. — Uppl. í síma 36730. Vantar stúlkur I saumaskap Upplýsingar ekki í síma. — Vísað inn hjá verzl- uninni Edinborg Laugavegi 89.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.