Morgunblaðið - 19.10.1966, Page 12

Morgunblaðið - 19.10.1966, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudasciir 19 okt. 1966 Bifreiðainnflutningur lands- manna á yfirstandandi ári num að líkindum slá öll met. Bifreiðaumboðum ber al- mennt saman um að aldrei ! hafi salan verið jafn lífleg. i Fyrstu bifreiðarnar af árgerð inni 1967 komu til landsins fyrir skömmu og á næstu vik um má búast við að straum- urinn aukist. Saab 1967. Nú einnig fáanlegur með 4 gengisvéi. Simca 1501 GSI. Vélin er 4 cyl. 69 eða 81 hö. Dodge Dart. Hægt er að velja um 6 og 8 cylindra véL Margar gerðir hafa tekið gerbreytingum og boðið er upp á ýmsar nýjungar. Banda rískir bifreiðaframleiðendur leggja nú í æ ríkara mæli á- herzlu á fullkomnari öryggis útbúnað enda voru nýlega samþykkt í öldungardeild Bandaríkjaþings lög, sem kveða á um ákveðin skyldu- öryggisútbúnað í bifreiðum framleiddum þarlendis. Ein- hver hækkun verður á verði bandarískra bifreiða, sú fyrsta í 8 ár. Er áætlað að hækkunin nemi um 50-100$. Mbl. mun á næstunni birta myndir af árgerðinni 1967 eft ir því sem þær berast til lands iins. Myndirnar, sem við birt! um í dag eru af bandarísk- um, evrópskum og japörsk- um bifreiðum. Moskvich. Vélin er 4 cyl. 60 hö. Hámarkshraði 120 km/klst. Bandormar koma nú v/ð sögu - í réttarhöldum vegna morðs Toyata Crown de luxe 200 0. Smávægilegar útlitsbreytingar. Vélin: 6 cyl. 110 hö. Verwoerds Ford Taunus 12 m. Hér hafa orðið miklar útlistbreytingar. Vélin 4 eyl. 63 hö. Volvo 144. Vélin er 4. cyl. 85—100 »g 105 hö. Höfðaborg 17. okt. - NTB. SÁLFBÆÐINGUB einn lýsti því yfir í réttinum í Höfðaborg í dag, að Demetrio Tsafendas, hinn 48 ára gamli Grikki sem myrti Verwoerd, forsætisráðherra S- Afríku, vissi naumast hvers vegna hann hefði gert það. Tsaf- endas stakk Verwoerd mörgum hnífsstungum skömmu áður en fundur skyldi hefjast í þingi S- Afriku 6. september sl. Verjandi Tsafendas heldur því fram, að hann hafi ekki verið með sjálfum sér er hann framdi morðið, og var það í sambandi við þetta, sem sálfræðingurinn, Harold Cooper, lét áðurgreind ummæli frá sér fara. Verjandinn hefur tekið skýrt fram, að ekki sé ætlun sín að véfengja þá fullyrðingu sækjand- ans, að Tsafendas hafi valdið dauða Verwoerds með aðgerðum sínum. „Ákærði hefur aldrei neitað þessu“, sagði verjandinn. Rétturinn féllst hinsvegar á, að andlegt ástand Tsafendas yrði rannsakað áður en úrskurður yrði felldur um hvort hann hafi verið með sjálfum sér, er hann framdi morðið. Tíma réttarins í dag var að mestu varið til þess að hlýða á framburð Coopers. „Tsafendas hefur sagt mér, að hann hefði ekki myrt Verwoerd ef ekki hefði verið vegna bandorms, sem hann sjálfur væri með og væri eins og illur í sér“, sagði Cooper. Sálfræðingurinn sagði, að Tsaf- endas hefði leitað til margra lækna vegna ormsins. „Hann var margsinnis lagður inn á sjúkra- hús til rannsóknar, og I sérbvert sinn var honum sagt, að enginn bandormur væri i honum en hann virðist hafa haft þá bjarg- föstu trú, að svo væri“, sagði Cooper. Cooper er einn 30 sérfræðinga, sem rétturinn hefur óskað að yfirheyra í sambandi við málið Fjölsött mynd- listasýning í Vestmanna- eyjum Vestmannaeyjum, 18. okt.: — ÞANN 14. október sl. opnuðu Iistamennirnir, Guðni Hermansen og Páll Steingrímsson sýningu á verkum sín.jm í húsi KFUM 1 Vestmannae/jum. Á sýningunni eru 30 verk. sýnir Guðni þar 15 málverk, en Pall er með 15 mynd ir gerðar úr mulcium bergtegund um. Sýningin vakti mikla at- hygli, og var fjölsótt. Seldi Páll allar myndirnar er á sýningunni voru, en myndir Guðna voru ekki til sölu, par sem hann ætlar að sýna í Reykjavík innan skamms og er að safna í þá sýningu, ef svo má að orði komast. Sýning- unni lauk sl. sunnudagskvöld. — B. Guðm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.