Morgunblaðið - 26.10.1966, Síða 26
26
MORGUNBLADIÐ
Miðvikudagur 26. okt. 1966
17. nóv. í
Reykjavík
23. í IVfílanó
EINS og áður hefur verið
skýrt frá leika KR-ingar við
Evrópumeistarana Simment-
hal frá Milano i 1. umferð
keppninnar um Evrópubikar
í, körfuknattleik. Italarnir
hafa nú, að því er AP frétta-
stofan hermir stungið upp á
því að fyrri leikurinn verði
í Reykjavík 17. nóvember en
hinn síðari í Milano 23. nóv-
ember.
Samkvæmt frétt AP frétta
stofunnar verða tveir Banda
ríkjamenn í liðinu er það
kemur hingað. þeir Steve
Chubin frá San Francisco og
Austin Robbins sem áður lék
með háskóialiði Tennesee.
I GÆRKVÖLDI komu
hingað til lands dönsku fim-
leikamennirnir frá Ollerup
íþróttalýðháskólanum. Sýna
þeir í Iþróttahöllinni í kvöld
kl. 20.15 og aðra sýningu hef
ur flokkurinn á morgun,
fimmtudag, á sama tíma og
er hún ætluð skólanemend-
um. Hafði sú sýning áður
verið tilkynnt kl. 17.30 á
morgun, en sýningartíma
hefur verið breytt og er kl.
20.15.
Hinn danski flokkur hef-
ur verið í sýningarferð um
Bandaríkin að undanförnu
og getið sér hins bezta orðs.
Hefur flokkurinn sýnt fyrir
eitthvað á annað hundrað
þúsund manns í förinni.
Fimleikar hafa verið í
nokkrum öldudal hér á Iandi
undanfarið en vonandi stuðl-
ar koma hins danska flokks
að því að áhugi fólks vakni
á ný og fimleikum vaxi ás-
megin og geta á næstu árum.
Við hvetjum alla sem kost
eiga á til að sjá sýningu þessa
ágæta flokks.
Danski flokkurinn sýnir í kvöld
46 milljónir íþróttaiðk-
endur í Sovétríkjunum
En árangurinn ekki jafngóður
og áður hjá „toppmönnumM
17M 46 milljónir manna eru á
einn eða annan hátt tengdar
íþróttalífi í Sovétríkjunum. Á sl.
7 árum hafa 32 millj. manna
unnið til „iþróttamerkisins“ þar
í landi í hinum ýmsu greinum
íþrótta og samtals hafa um 35
þús. manns hlotið heiðurstitil-
inn „íþróttameistari“.
Sérstök áherzla er nú lögð á
það í Sovétríkjunum að auka
íþróttaiðkun meðal barna og
einnig líkamlega þjálfun í alþýðu
skólum.
Á árinu 1965 voru 300 rússnesk
met endurbætt og Rússar settu
97 heimsmet í ýmsum greinum.
Á 2i2 mótum þar sem keppt var
um heimsmeistaratitla unnu
Sovétborgarar 71 gullpening.
Á ýmsum sviðum hefur sovézk
um íþróttamönnum gengið betur
á s.l. ári en áður, en á öðrum
miður. Á það t.d. við um lyft-
ingamennina, sem árum saman
hafa verið „toppmenn“ í sinni
grein, en töpuðu nú bæði í Ev-
rópumeistaramótinu og heims-
meistaramótinu. í nútíma fimmt
arþraut, siglingum, skotfimi, hjól
reiðum svo og í skauta- og skíða
íþróttum, hefur Sovétmönnum
vegnað ver en áður og náð lé-
legri árangri. Og þó Rússar
reyndust vera sterkasta frjáls-
íþróttaþjóð Evrópu á Evrópu-
meistarammótinu í frjálsum
íþróttum, varð árangurinn til von
brigða fyrir rússneska íþrótta-
leiðtoga.
Gífurleg áherzla er nú lögð
á undirbúning Olympíuleikanna
í Mexico og í Grenoble og hafa
þegar verið valdir íþróttamenn
til æfinga sérstaklega í 126 obrg-
um og bæjum.
— Subandrio
Framhald af bls. 1
vlð land og þjóð með því að
hylma yfir fyrirætlanir um bylt
ingu, og siðar valdatöku komm
únista í landinu.
Réttarhöld þessi hafa vakið
mikla athygli viða um heim, því
að Dr. Subandrio var lengi tal-
inn ganga næstur Sukarno, for-
seta, að völdum.
Valdaferill Dr. Subandrios var
hins vegar á enda, er byltingar-
tilraun kommúnista fór út um
þúfur. Tilraunin vakti almenn-
ing í Indónesíu mjög til umhugs-
unar um, hve litlu hefði munað,
að landið lenti til frambúðar í
klóm Pekingsinnaðra kommún-
ista. Þeir stóðu að baki bylting-
artilrauninni.
Keflvíkingar unnu IBH
5-1 og Breiðablik 3-0
Enska knattspyrnan
ÞAR sem tveir landsleikir fóru
fram á Bretlandi sl. laugardag,
varð að fresta mörgum leikjum
í 1. og 2. deild, en úrslit þeirra
leikja er fram fóru urðu þessi:
1. deild:
Arsenal — W.B.A. 2-3
Aston Villa — Sheffield U. 0-0
Blackpool — Newcastle 6-0
Sheffield W. — Fulham 1-1
2. deild:
Blackburn — Norwich 0-0
Bolton — Coventry 1-1
Carlisle — Birmingham 2-0
Charlton — Bury 4-0
Crystal Palace — Rotherham i-1
Derby — Preston 5-1
Huddersfield — Millwall 2-0
Ipswich — Hull 5-4
Wolverhampton — Plymouth 2-1
í Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Dundee — Motherwell 3-0
Hibernian — Dundee U. 2-2
Stirling — St. Mirren 3-2
Staðan er þessi: 1. deild:
1. STOKE 18 —
2. CHELSEA 17 —
3. BURNLEY 17 —
3. BURNLEY 17
4. TOTTENHAM 17 —
2. deild:
1. IPSWICH 19 —
2. HU'LL 18
3. BOLTON 18 —
4, C. PALACE 18 —
LÆGÐIN, sem var fyrir norð
an land í fyrradag var í gær
við Færeyjar og komin norð
an átt aftur hér á landi. Élja
veður var á N- og NA landi
en bjart veður á Suðurströnd
inni og vestanlands. Snrúsél
voru þó við ísafjarðardjúp.
Veður var versnandi á síldir
miðunum fyrir austan, norð-
an áttin að aukast.
TVEIR leikir „Litlu bikar-
keppninnar" voru leiknir um
helgina og er þá keppninni svo
komið að aðeins einn leikur er
óleikinn, en sá leikur ræður úr-
slitum keppninnar.
Leikirnir tveir um helgina
voru milli Keflvíkinga og Hafn-
firðinga og unnu Keflvíkingar
þann leik með 5 mörkum gegn
1. Á sunnudaginn léku Keflvík-
ingar við Breiðablik í Kópa-
vogi og fóru leikar svo að Kefla
vík vann 3-0.
í Litlu bikarkeppninni er
keppt um bikar er þeir Albert
Guðmundsson og Axel Kristjáns
son hafa gefið. Hlýtur það lið er
sigrar bikar til eignar, en gef-
endur gefa nýjan bikar.
Nú, er einum leik keppninn-
ar ólokið er staðan þannig:
Keflavík 5 4 0 1 18-3 8
Akranes 5 3 1 1 22-6 7
ÍBH 6 2 2 2 9-17 6
Breiðablik 6 0 1 5 4-27 1
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Kommúnistaflokkur Indónesíu
sem var þriðji stærsti kommún-
istaflokkur heims, var bannaður,
eftir að tilraunin hafði farið út
um þúfur.
Miklar blóðsúthellingar fylgdu
í kjölfar hennar.
Helzta vörn Dr. Subandrios
var sú, að hann hefði ekki tek-
ið alvarlega þann orðróm, sem
uppi var á sínum tíma um vænt-
anlega tilraun komrr.úmsta til
byltingar, og því láðst að skýra
Sukarno, forseta, frá henni,
Sukarno er enn við völd, að
nafninu til, þótt valda sól hans
sé nú ekki hátt á himni Indó-
nesa.
Herrrétturinn gaf Dr. Suband-
rio 30 daga frest til að leita náð-
unar — hjá Sukarno, íorseta.
Innilega þakka ég börnum mínum, tengdabörntxm,
barnabörnum og öðrum vinum og vandamönnum fyrir
heimsóknir, gjafir og hlýhug, mér auðsýnt á 75 ára af-
mælisdegi mínum 18. þ.m.
María Eyjólfsdóttir
Bankastræti 14.
Innilegar þakkir færi ég vandamönnum, vinum og
öðrum aðilum, sem heiðruðu mig á sjötíu ára afmæli
mínu með heimsóknum, árnaðaróskum og góðum gjöf-
um, hinn 12. okt. síðastliðinn.
Kærar kveðjur. Lifið heil.
Gunnlaugur Jósefsson,
Sandgerði.