Morgunblaðið - 03.12.1966, Page 3

Morgunblaðið - 03.12.1966, Page 3
Laugardagur 3. des. 196C MORGUNBLAÐIÐ 3 Aikureyri 2. desernber. STJÓRN Sana hf bauð frétta- mönnum í dag til fagnaðar i verksmiðjuhúsinu, sýndi þeim allan vélabúnað og gaf þeim fyrstum manna að bragða hið nýja Thule-öl, sem er að koma á markaðinn nú næstu daga. Var það samhljóða úrskurður allra að það væri hinn ágætasti drykk ur, mildur og ljúffengur. Það skal tekið fram, að aðeins tvær tegundir voru á borðum, lageröl og maltöl, þar sem Thule-export- öl (4,6%) verður aðeins fram- leitt til útflutnings. Yfirmenn Sanaverksmiðjunnar með sýnishorn af framleiðslu sinni. T. v. Magnús Þórissson, Henning Nielsen, Börkur Eiríksson, Eysteinn Árnason, Eyþór Tómasson og Jón M. Jónsson. Thuleölið er að koma Sana gefur framleitt 9 milfljón flóskur á ári Fonmaður félagsstjórnar, Ey- þor Tomasson, ávarpaöi gesti en Eysteinn Arnason framkvæmda- Stjóri og Henning Nielsen, öl- gerðanmeistari og tæknifræðinig- ur, lýstu framkvæmdum og fram leiðsiuiháttum. Henning Nielsen sagði m. a. að ölgerðin gæti rfamileitt níu milljón flöskur á ári, en nú er miðað við að framleiða 3 milljón flöskur á ári (öll inn- lend ölsala er nú um 5 milljón flöskur á ári). Unnt er áð tappa á 40 þúsund flöskur af öli og gosdrykkjum á dag. Verksmiðjan (ölgerðin) er reist á mettkna, framkvæmdír hófust seint í apríl þetta ár. Konráð Árnason hefur annazt alla trésmíði, en Gunnar Óskars- son, múrverk. Alfred Jörgensens Laboratorium í Kaupmannahöfn hefur séð um val tækja og véla, og uppsetningu þeirra, og er all- ur búnaður af nýjuistu og full- feomnustu gerð. Flestir snertiflet- ir eru úr ryðfriu stáli eða áli, og allir dauðhreinsaðir, enda er fullkomið hreinlæti algert skil- yrði þess að ölið verði góð vara. Thule-öl fer frá verksmiðjunni í plastkössum, sem taka 24 flös'k- ur hver, og eru þeir algjör nýjung hér á landi. Auk ölsins framleiðir Sana sjö tegundir gos- drykkja, og ýmsar efnagerðar- vör-ur, allt úr beztu hráefnum sem fáanleg eru. Dreifingarkerfi Sana er mjög víðtækt. Umboðsmenn eru víðs- vegar um land, í Reykjavík verzlunin Hvannafell. Sölustj óri er Börfeur Eiríksson. Verkstjóri og ölgerðarmeistari verður Magnús Þórisson, sem er útlærður hjá Alfred Jörgensen. Honum til fulltingis fyrst um stað verður Henning Nielsen, starfsmaður sama fyrirtækis, sem er þefekt víða um heim, og vinn- ur að uppsetningu ölgerða víðs- vegar, nú um þessar mundir til að mynda í Frakklandi og Eþíópíu. — Sv. P. Nokkrir forráðamenn verksmið junnar í sal þeim er geymarnir eru í Birta niöurstöður gæöamats erlendis Sjálfvirkar k>vottavélar fyrst á dagskrá Neytendasamtökin munu nú taka upp þá nýbreytni að birta niðurstöður gæðamatsrannsóknar er systursamtök þeirra erlendis hafa framkvæmt. • Hér er um mikið hagsmuna mál að ræða fyrir neytendur, sem þannig geta kynnt sár eigin leika varanna, áður en kaup eru gerð, en þær vörur eru einmitt teknar tii rannsóknar, sem eru það flóknar að gerð, að þær verða eigi dæmdar án sérfræði legrar athugunar. Astæðan til þess, að þetta hefur ekki verið kleift hingað til, er sú, að sú regla gildir innan Alþjóðasambands Neyt- endasamtaka að slíkar greinar séu birtar í heild. Samkvæmt sérstakrr heimild verða niður- stöðurnar einar birtar í Neyt- endablaðinu, en forsendurnar og lýsingar á rannsóknunum sjálf- um munu liggja frammi á skrifstofu Neytendasamtakanna. Sjálfvirkar þvottavélar fyrstar : Fyrstar fyrir valinu verða j sjálfvirkar þvottavélar, sem hér eru á markaði, að þesu sinni 9 tegundir þeirra, og hafa rann- sóknir farið fram á þessu ári Mikill fjöldi fyrirspurna berast samtökunum vegna þeirra. Þess- ar upplýsingar verða birtar í næsta tölublaði JSfey tendasam- takanna, sem kemur út í þess- um mánuði. Vegna mikilla anna hjá Neytendasamtökunnum und- anfarið hefur útgáfan tafizt um tvær vikur. Endurprentun á þessum upp- lýsingum Neytendablaðsins er stranglega bönnuð sem og öll notkun þeirra í auglýsingaskyni. Er þetta algild regla Neytenda samtaka. Innritunarsími Neyt- endasamtakanna er 1 97 22, og verður svarað í símann allan laugardaginn og sunnudaginn 3. og 4. des. Til að tryggja sér blaðið, um leið og það kemur út ættu menn að innrita sig sem fyrst. (Frá Neytendasamtökunum) STáKSTEINáR Rekstrargjöld og fjárfesting Á fundi borgarstjórnar Keykja víkur sl. fimmtudag deildu full- trúar minnihlutaflokkanna á borgarstjórnarmeirihlutann fyr- ir það, að hlutfallið milli rekstr- arútgjalda og fjárfestingagjalda borgarinnar yrði sífellt óhag- stæðara, rekstrargjöldin ykjust en framlög tíl fjárfestinga minnkuðu. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, gerði þessar full- yrðingar minnihlutaflokkanna nokkuð að umræðuefni. Sagði hann, að það væri ekki rétt, að hlutfall rekstrargjalda hefði farið hækkandi þvert á móti hefði hlutfall framkvæmdafjár aukizt á undanförnum árum. Kvaðst hann hafa tekið skýrt fram fyrir kosningarnar í vor, að búast mætti við því, að hlut- fall reksturskostnaðar mundi aukast á næstu árum. Það væri eðlileg afleiðing þess, að ýms- ar framkvæmdir, sem unnið hefði verið að á undanförnum ár um væru að komast í notkun og hefði það í för með sér auk- in rekstursútgjöld. Óhjákvæmileg aukning rekstrargjalda Borgarstjóri bentí á, að af ýmsum ástæðum væri aukning rekstrargjalda alveg óhjákvæmi leg. Lögreglumönnum fjölgax, slökkviliðsmönnum fjölgar, kennurum fjölgar, bókakaup aukast, leikstarfsemi er efld, allt þetta leiðir til aukins rekst urskostnaðar. Gæzluvöllum fjölg ar, þar af leiðandi eykst kostn- aður við fjölgun gæzlukvenna, Heilbrigðiseftirlitið eykst, ný fjölskylduheimili, dagheimili og vistheimili eru tekin í notkun og af þem leiðir aukinn reksturs- kostnað. Benti borgarstjóri á, aS jafnan þegar fulltrúar minni- hlutaflokkanna flyttu tillögur í borgarstjórn um ýmsar, i sjálfu sér nytsamar framk væmdir, væru þeir jafnframt að leggja grundvöll að auknum rekstrar- útgjöldum. Það væri því síður en svo, að aukin rekstrarútgjöld væru merki einhverrar eyðslu- stefnu borgarstjórnarmeirihlut- ans heldur væru þau óhjá- kvæmileg afleiðing mikilla og aukinna framkvæmda á undan- förnum árum. Skattpíningaílokkai Að vísu hafa ekki enn komið fram breytingartillögur minni- hlutaflokkanna við fjárhagsáætl unarfrumvarp borgarinnar, en ef marka má ræður þær, sem fulltrúar Framsóknarflokksins og Kommúnista fluttu á borgar- stjórnarfundi sl. fimmtudag, virðast þeir þrátt fyrir allar að- stæður ætla að halda áfram upp teknum hættí, krefjast aukinna framkvæmda, sem óhjákvæmi- lega hafa í för með sér aukna skattlagningu. Þess vegna er nauðsynlegt, að hafa það í huga, þegar fjallað er um hækkunar- tillögur minnihlutaflokkanna, að í þeim felst raunverulega ekkert annað en ómenguð skatt- píningarstefna. Borgarstjórnar- meirihlutinn hefur hins vegar talið, að með tilliti til allra að- stæðna nú, yrði að fara sér- staklega varlega í auknar álög- ur eða hækkanir á upphæðum útsvars og aðstöðugjalda, og þess vegna er hækkun þessara liða svo og ýmissa gjalda, tii fjár- festinga minni heldur en áður. En ef marka má ræður full- trúa Framsóknarmanna og kommúnista við fyrstu umræðu um fjárhagsáætlunina hyggjast þeir ekki skeyta neinu þessum sérstöku viðhorfum og leika enn einu sinni þann ábyrgðarlausa leik, sem þeir hafa jafnan haft í frammi við umræður um fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.