Morgunblaðið - 10.01.1967, Page 20
r
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1©67.
SKRIFSTOFUSTARF
Viljum ráða
vana stúlku í vellaunað ritarastarf.
Nokkur málakunnátta nauðsynleg.
STA R FSMAIM NAHALD
Fél. heyrnahjálp
getur útvegað símamagnarakerfi (telemagniti An-
læt) fyrir heyrnadaufa í samkomuhús, kirkjur,
skóla og útvarpstæki í heimahúsum. útvarpstæki
til reynslu á skrifstofu félagsins, Ingólfsstræti 16.
Sími 15895.
2/o herbergja íbúðir
Höfum til sölu mjög glæsilega 2ja herb. íbúð
við Safamýri. íbúðin er mjög vönduð, með teak
og gullláms innréttingu, teppi á stofu og holi. —
Stigagangar teppalagðir, þvottahús fullbúið
vélum.
2ja herb. fullbúin íbúð á 3ju hæð í sambýlishúsi
við Hraunbæ. Rúmgott herbergi í kjallara fylgir.
4-5 herbergja íbúðir
Ný 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð við Álfaskeið
í Hafnarfirði.
4ra herbergja íbúðarhæð í tvíbýlishúsi við Kárs-
nesbraut.
Glæsileg 4ra herb. íbúð við Stigahlíð.
4ra—5 herb. endaíbúð við Háaleitisbraut.
4ra—5 herb. parhús við Skólagerði í KópavogL
Parhús við Breiðholtsveg.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
DJARNI BEINTEINSSON HDL JÓNATAN SVEINSSON LÖGFR FTR.
AUSTURSTRÆTI 17 (HÚS SILLA OG VALDA) SÍMI 17466
Bréf til Morgunblaðsins:
Um fiskverðið
Sniðskóli
Berj>ljótar Olafsdóttur
LACG ARNES VEGI 6 2.
Sniðkennsla, námskeið fyrir byrjendur og fram-
haldsnámskeið, hefst 12. þ. m.
Innritun hafi. Sími 34730.
í ÚTVARPSVIÐTALI við Árna
Benediktsson fyrir nokkrum
dögum upplýstist að afkoma
frystihúsanna hafi verið allgóð
í heild síðustu 5 ár, en árið 1965
þó langbezt. Þetta gefur tilefni
til hugleiðinga um fiskverðið,
sem á þessum árum hefur verið
að dragast aftur úr öðru verð-
lagi og ekki fylgt nálægt því
hækkunum á erlendum mörkuð-
um, og árið 1965 sem hagstæðast
er taldi Jónas Haralz útilokað
að verðið gæti hækkað meira en
um 514% og því aðeins að frysti
húsin fengju hagræðingarfé.
Skýrasta dæmið um að fiskverð-
ið hefur verið óeðlilega lágt á
þessum árum er það, að upp hef-
ur risið þvílíkur aragrúi smá-
frystihúsa og fiskverkunarstöðva
og útilokað er að skaffa þeira
öllum verðugt verkefni þó allur
okkar fiskveiðifloti starfaði
með fullum afköstum. Öllum
hlýtur að vera ljóst að útilokað
er að fiskiflotinn sé látinn standa
undir allri þessari fjárfestingu
með óhagstæðu fiskverði. Sem
dæmi um það, sem hér hefur
verið sagt, skal bent á Hafnar-
fjörð. f byrjun vertíðar 1965
voru 25 bátar gerðir þaðan út
en fiskverkunarstöðvar voru 26.
Við teljum að ekki sé of djúpt
tekið í árinni þó fullyrt sé, að
fiskverkunarstöð Jóns Gíslason-
ar og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
hafa tæplega verið fullnýttar af
afla þessara báta. Þegar maður
lítur til Reylcjavíkur kemur
nokkurn veginn það sama upp
á teninginn, héðan róa 45-50
bátar en aðeins 3 stærstu húsin
þurfa sennilega um 20 báta
hvert til að vera skaplega nýtt.
Til glöggvunar þeim, sem ekki
þekkja til skal á það bent að
hér starfa auk þessara þriggja
stærstu 6 eða 7 önnur frystihús
*-elfur
Laugaveg 38.
Okkar árlega útsala hefst
í dag. Mikið af vönduðum
fatnaði selt með miklum
afslætti. Komið strax og
gerið góð kaup.
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgötu 4, 3. hæð
(Sambandshúsið).
Simar 12343 og 23338.
og eru 2 þeirra afkastamikil,
auk aragrúa annarra fiskverk-
unarstöðva. Við höldum að allir
hljóti að vera sammála um að
þessi mál séu komin út í enda-
leysu og nauðsynlegt sé að
spyrna við fæti, og væri þá ekki
eðlilegt að viðhafa þá aðferð að
búa íslenzku frystihúsunum
sömu aðstöðu og í nágranna-
löndunum hvað lánsfé, tolla,
skatta og útgjöld snertir og láta
þau svo borga sambærilegt verð
til fiskflotans, sem þá einnig
nyti sömu hlunninda og fisk-
veiðifloti nágranna okkar. Þetta
gefur tilefni til hugleiðinga um
hvort sildariðnaðurinn sé ekki
að fara 9Ömu leið vegna of lágs
verðs á hráefni. Það skal tekið
fram að þetta er ekki uppsláttur
út í loftið heldur vinsamleg
ábending til viðkomandi aðila, ef
hægt væri að koma í veg fyrir
að fiskveiðar legðust niður á ís-
landi.
Allir landsmenn eru orðnir
fullkunnugir því gegn um blöð
og útvarp,-að togaraútgerð á ís-
landi er löngu vonlaust fyrir-
tæki, bæði sökum þess að fisk-
verð er svo lágt hérlendis og
hitt ef siglt er á erlendan markað
þá eru tollar og annar kostnaður,
sem gleypir fjórðung af afla-
verðmæti. Það er vart hugsan-
legt að aflaaukning gæti orðið
svo mikil, jafnvel þó togarar
fengju að fara inn á flóa og
firði, að nægja myndi til að
um rekstrargrundvöll væri að
ræða með núgildandi fiskverði,
eða þó það hækki um 10% eða
svo. Það sama er orðið um báta-
flotann, endalausar hækkanir
allt í kringum þennan atvinnu-
veg hafa gert hann óstarfhæfan,
þar sem hann er ekki lengur
samkeppnisfær við aðra at-
vinnuvegi um vinnuafl, en ein-
mitt sú hlið málsins hefur aldrei
verið tekin með í reikninginn
eins og vert væri þegar rætt er
um minnkandi aflamagn. Allt
ber því að sama brunni, fisk-
verðið verður að hækka, annars
hlýtur þessi atvinnuvegar að
leggjast niður.
Það hefur verið talið fram til
þessa, að fiskveiðar væru aðal
atvinnuvegur þjóðarinnar, en
skyldi það nú vera svo í raun
og veru. Ætli það hljóti ekki að
vera að aðalatvinnuvegurinn sé
sá, sem flestir landsmenn vinna
við, og þar sem tekjurnar eru
hæstar og vissastar, þangað
streymir kjarninn úr vinnuafl-
inu af eðlilegum orsökum, sér í
lagi ef vinnan er þar að auki
léttari og vosminni en t.d. fisk-
veiðar. Það fer ekki á milli mála,
að á sama tíma, sem fækkað hef-
ur fiskimönnum hefur verzlun-
arfólki fjölgað stórlega og virð-
ast allir hafa þar nóg að gera,
þó er hlutverk þessa fólks lítið
annað en innflutningur og inn-
anlandsvörudreifing, útflutning-
ur afurðanna er á fáum höndum
og ekki fólksfrekur. Þrátt fyrir
auðsæja velmegun verzlunar-
stéttarinnar hefur ekki linnt lát-
um um meiri álagningu og meira
Geymsluhúsnæði
óskast
Óskum eftir að taka á leigu geymslu-
húsnæði helzt sem næst VitatorgL
Verzlunin Nyborg
Hverfisgötu 76 — Sími 12817.
frjálsræði í verzlunarháttum og
er vísast að ef sinnt væri öllum
þeim kröfum mundi enginn mað
ur á íslandi gera annað en að
verzla, hvað sem það gæti stað-
ið lengi. En nú verður manni
spurn, hvernig svo margt fólk
geti haft góðar tekjur af svo til-
tölulega litlu starfi, sem vöru-
dreifingu í 190 þús. hræður.
Og það þarf ekki að kafa djúpt.
Verðlisti frá V-þýzku fyrirtæki,
sem liggur hér fyrir framan
okkur sýnir brot af því, sem hér
er að gerast. Það skal tekið fram
að dæmin eru tekin af grófari
endanum, en einnig til að fyrir-
byggja misskilning að það er
smásöluverð, sem um er að ræða
á verðlista. DM. 4.50 hér í búð
á tæpar kr. 500.000; annað DM.
6.90, hér í búð kr. 380.00. — Það
mætti sennilega fylla nokkur
dagblöð með dæmum svipuðum
þessum, en við látum öðrum það
eftir. Hitt er augljóst að hér fær
einhver krónur fyrir lítið erf-
iði. Við álítum að þarna sé upp-
risinn sá draugur í íslenzku
þjóðlífi, sem eigi eftir að leggja
fiskveiðarnar í auðn takist ekki
að kveða hann niður í tíma og
munu sennilega flestir hryggjast,
ef illa tekst til, nema íslenzkir
fiskimenn, þeir hafa fengið von
um að deyja í bóli sínu 1 stað
þess að drukkna í köldum út-
hafssjónum. |
Okkur langar til að benda á,
með nokkrum orðum, aðstöðu-
mun íslenzka landbúnaðarins og
íslenzka sjávarútvegsins. í raun-
inni ætti landbúnaðurinn að vera
í sömu vandræðum.og sjávarút-
vegurinn, en þar kemur annað
til greina. Fyrir landbúnaðinn
er tilbúið verðlag samkvæmt
gildandi lögum, og er það verð-
lag nú orðið hærra en nokkur
staðar þekkist í veröldinnb á
sama tíma er sjávarútvegurinn
einnig með tilbúið verðlag sam-
kvæmt lögum, og er það verðlag
mikið lægra en nokkurs staðar
þekkist í veröldinni, í báðum til-
fellum er átt við sambærilega
vöru. Þessa tvo lagavanskapnaði
ætti að vera búið að nema úr
gildi fyrir löngu síðan, og væri
þá sennilegt að hlutirnir gætu
verið nær því að vera í lagi
heldur en nú er. Það hlýtur að
vera skylda Alþingis að nema úr
gildi lög, eða breyta þeim, ef
þau reynast þannig í fram-
kvæmd að þau raski eðlilegri
þróun atvinnuveganna og eins
og í þessu tilfelli leiða til ógagn-
legra fjárfestinga í fiskiðnaði,
þar sem gróðravon hefur verið
óeðlilega mikil sökum hins lága
tilbúna fiskverðs.
Til að halda uppi hinu óeðli-
lega háa verði á landbúnaðar-
vöra verður ríkið að greiða
geysi upphæðir í verðuppbætur,
samt er verðlag til neytandans
býsna hátt. Sem dæmi skal
nefnt, að niðurgreiðsla á 1 kg.
af smjöri er kr. 98.80 eftir þvi
sem við vitum bezt, er hægt að
flytja inn fyrir þá upphæð á
milli 2 og 3 kg. af sömu vöru,
Það sjá allir að það er hrein vit-
fyrring að styrkja þessa fram-
leiðslu því hún á engan tilveru*
rétt og er algerlega ónauðsynleg,
f búnaðarþætti nokkru fyrir jól,
sagði flytjandinn, að það væri
verið að tala um að síldveiði-
skipin væru búin að flytja á
land hráefni fyrir 1 milljarð og
þætti mikið, en hann sagði að
bændur hefðu framleitt vörUj
fyrir helmingi hærri upphæð*
1965. Nú langar okkur að spyr'gJ
á hvaða verði þetta sé reiknrð**
Því það er ekki hægt að tala um
annað verð en er á heimsmark-
aði. Það er ef til vill hægt að
leysa vandamál útvegsins með
landbúnaði?
Af því, sem að framan hefur
verið sagt er augljóst að hin
svonefnda viðreisnarvelferð hef-
ur farið rækilega framhjá sjávar
útveginum. Orsökin er sú, að
okkur einum hefur verið gert
með lögum að starfa á verði, sen|
er 50% læra en eðlilegt væri,
Það er alþingismanna að leið-
rétta þetta misræmi, hvar 1
flokki sem þeir standa, því þetta
misræmi hafa þeir kallað yfir
okkur með lagasetningum.
Halldór Bjarnason
n»ihi BinrSiuia.