Morgunblaðið - 10.01.1967, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1087.
Lydia
Ettir
E. V. Cunningham
— Ég veft ekkert .... þið eruð
farin .... ég veit ekkert. Hann
fór með okkur gegn um eldhús-
16, þar sem kokkurinn var að éta
Ar súpuskál og lesa blað, og þar
sem aðstoðarkokkurinn andvarp
aði og hristi höfuðið. Síðan inn
í búr og þaðan út um dyrnar.
— Þið skuluð engar áhyggjur
hafa af því, sem ég kann að
segja þeim sem spyrja, sagði
þjónninn. Þið hafði víst nógar
áhyggjur hvort af öðru. Jæja,
gerið svo vel, hérna er húsagarð
urinn.
Hann lokaði búrdyrunum og
gkildi okkur eftir þarna í myrkr
inM — ekki þó í almyrkri, því
að þarna verður aldrei aldimmt,
en nógu dimmt var nú samt, og
þetta liktist mest djúpum
brunni, þar sem á einstaka stað
sást ljós í glugga fyrir ofan okk-
ur og *vo heyrðist hljóðfæra-
gargið og sáust ljós, sem líktust
mest japönskum pappírsluktum.
Við stóðum þarna þétt saman í
dimmunni, og ég fór áð sjá
skuggamyndina af Lydiu, þegar
augun tóku að venjast þessari
takmörkuðu birtu, og gat rétt
grillt andlitið og svipinn á
henni. Hún hafði náð í handlegg
inn á mér og hékk nú í honum,
og sagðist vera hrædd. — En
ekki fyrr en núna, allt í einu,
Harvey, sagði hún.
Hún tók að skjálfa og ég
gerði það, sem ég hafði ekki
gert við nokkurn mann, árum
saman. Ég þreifaði á enninu á
henni, til þess að finna, hvort
hún væri með hita, en þá rak
hún upp skellihlátur.
— Ætlarðu að fara að verða
palbbi minn, Harvey? spurði
hún.
Ég spurði hana, hvort það
væri ekki einmitt það, sem hún
vildi.
— Nei, fjandinn hafi það. Ég
hef aldrei átt pabba og langar
ekker-t að eiga hann nú. Og ég
vil heldur ekki hr. Krim til eins
KAUPSVSLUMENN
Þúsundir kaupmanna frá öllum löndum
heims gera sér ljóst hvers virði er að heim-
sækja reglulega kaupstefnur og sýningar.
Alþjóðlega Búsáhalda- og Járnvörusýning
in í KÖLN er að þessu sinni dagana 23.—•
26. febrúar. Kölnarsýningin býður upp á
heimsins beztu gæðavörur frá 1650 fram-
leiðendum. Á Búsáhalda- og Járnvöru-
sýningunni í Köln fáið þér allt sem við-
skiptavinurinn kann að óska.
Allar upplýsingar gefnar hjá,
Lönd & Leiðir hf.
Símar 20-800 og 24313 Aðalstræti 8.
MUNIÐ VÖRUSÝNINGAÞJÓNUSTUNA
HJÁ Lönd og Leiðir.
eða neins. Hættu þessvegna að
glápa á mig og við skulum held-
ur reyna að komast yfir þenn-
an vegg þarna.
Hún forðaðist mig. (Ef ég
reyndi að snerta hana eitthvað,
þá hörfaði hún undan.'Ég klifr-
aði uppá vegginn, sem var ein
sjö fet á hæð og sat þar klof-
vega. Þar sem ég sat þar, gat
ég séð húsagarðinn fram undan
og húsið handan við hann. Á
húsinu var há glerhurð en sjálf-
ur húsagarðurinn var lagður
rauðum hellum, og þar voru stól
ar og borð. Inni fyrir glerhurð
inni var fólk að dansa, og mér
fannst það ekki koma ttl mála,
að neinn gæti annað en séð mig,
þar sem ég sat þarna eins og
hrafn á hjallburst.
— Dragðu mig upp, Harvey!
sagði Lydia fyrir neðan mig.
En ein kvensan þarna inni sá
mig og nú kom hún út, grönn
og liðlega vaxin, í hvítum silf-
urlitum kjól og með gljáandi
hár, beint úr hárgreiðslustof-
unni. Karlmaður var með henni
og var að flangsa utan í hana,
bjánalega — en líklega er allt
flangs bjánalegt í augum áhorf-
anda, sem liggur í leyni — og
hún var að reka hann frá sér
rétt eins og atvinnu-golfleikari,
sem er að slá knött fyrir áhorf
endur. En á meðan þetta gerð-
ist, seildist ég niður eftir Lydiu,
og déskotans girðingin ætlaði al
veg að kljúfa mig eftir endi-
löngu — en mér tókst samt að
draga hana upp. Lydia var fim
— engan veginn ein þ^ssara ó-
sjálfbjarga stúlkna — og hún
sveiflaði sér niður af veggnum,
án minnar hjálpar. Sú ljósa
hafði nú gengið til hennar. —
Hver er hann? spurði Ljóska.
Flangsarinn dró hana til baka, og
gaf í skyn, að við værum ein-
hverjir þjófar eða flækingar.
— Æ, þú ferð í taugarnar á
mér, sagði Ljóska við flangsar-
ann. Og vertu ekki neitt að toga
í mig.
— Ég stökk niður.
— Hvernig veiztu, að hann sé
ekki einhver glæpamaður? sagði
flangsarinn. Þetta var heljarstór
úr sér vaxinn og ofalinn ung-
lingur um tvítugt.
— Láttu ekki eins og þú sért
vitlaus, sagði Lydia. — Þetta er
Harvey Krim, spæjarinn mikli.
Við vorum að borða hérna í
næsta húsi.
— Já, auðvitað í ítalska mat-
söluhúsinu, sagði Ljóska, rétt
eins og það væri alveg sjálfsagt,
að allir gestir þar klifruðu yfir
vegginn, en þá mundi feiti ung-
lingurinn eftir því, að hann
hafði hitt I.ydiu í einhverju há-
skólafríi. 0
Lydia glápti bara á hann og
lét hann vita, að hún væri bara
— HJÁLP!
vinnukona. — Hvern fjandann
sjálfan hefði ég átt að gera í
háskólafrí? spurði hún hann og
tók vel uppí sig.
Ljóska var farin að dansa við
mig; að minnsta kosti þrýsti hún
sér upp að mér og hékk utan
í mér og hreyfði sig eftir hljóm-
listinni, sem kom úr húsinu, og
horfði í augu mér.
Viltu ekki líta á fötin mín,
sagði Lydia við fiangsarann, en
hann spurði bara, hvað væri at
hugavert við þau.
Hitt fólkið var nú farið að
tínast út í garðinn.
— Hann er viðhjóðslegur,
sagði Ljóska. — Feitur og linur
og heimskur. >ú ert ekki linur
og heimskur, er það? Og sva
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykja
víkur verður haldinn í Tjarnarbúð, þriðju-
daginn 17. janúar n.k. kl. 20,30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. /
Teppi — Teppi
Landsins ódýrustu nylongólfteppi aðeins
298 kr. ferm. Útvegum fagmenn ef óskað er.
LITAVER LITAVER
Grensásvegi 22 — Símar 30280 og 32262.
VMIFATMMI LAUGAVEH T6
RVIVIIIMGARSALA
AMERÍSKAR ÚLPUR
STÆRÐIR 6—14 kr.
GALLON BLÚSSUR
STÆRÐIR 6—20 , —
VINNUBUXUR
ALLAR STÆRÐIR —
SPORTSKYRTUR —
VINNUSKYRTUR — 95.—
475.— PEYSUR S. M. í. VINNUSOKKAR — 150.—
395.— 3 PÖR í POKA — 100.—
VINNUÚLPUR — 495.—
250.— 195.— SPORTBOLIR 50.—
VINNUFATABÚÐIN
LAUGAVEGI 7 6.