Morgunblaðið - 25.02.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1967.
5
Með álfaþjóð — þú kemur á gleðina í bolabás, er það ekki
— okkur sýnist það ekki leyna sér að Dögg álfamær muni
ætla á gleðina þá. — Sigurður Steinþórsson og Rakel Guð-
mundsdóttir í hlutverkum sinum.
LEIKFELAG Kópavogs frum
sýnir föstudaginn 24. febrúar
banraleikritið Ó AMMA
(Ljósm. Gísli Gestsson)
BÍNA, eftir Ólöfu Árnadóttur.
Er þetta annað leikritið, sem
sett er á svið eftir Ölöfu, hið
fyrra var Almansor konungs-
son, sem leikið var hjá Leik-
félagi Reykjavikur í hitteð-
fyrra. Leikstjóri var Helga
Bachman og var það í fyrsta
sinn, sem hún tók að sér leik-
stjórn. — Ólöf Árnadóttir er
vel kunn börnunum, hafa ver-
ið leikin eftir hana leikrit i
, ' . - '* _’í‘ • -Ji.lf Siðan ei amma gamla
AUir lnk;li ;ii mr i'ru ur
?£ t •' 'ktélagi K'v ■ 'g>. i-ii li'ik
mfr L. a.im i er i-'io-i i >:.. Með
P- JV onnur hlunck lara Bryn-
Bffifc, ' hildur Ing.ialdsdotl ír. se-m
leikur Ommu gomlu. Liney
I• Bentsdóttir og Sigriður Ein-
arsdóttir. leika vinkunur
Dk C’jHHHHBr » éw 'IiLcShBÍ^H gómlu konunnar. l’rofasts-
^ '' ^%i hj<»nin a l>ingvollum eru leik-
Jk»: é m a 1 Mariu Vilhjálmsdótlur
fel » aéL mOfí t'.uómundi (; 1-la-y m I leik
nlimi er falleg tonlist ei'tir
i óolundinn
• .|»lJP:<dEar^r:(JhHHHWMHH (’.unnvor Si.gði að hyr.jað
f .Jut .1^ AySHBBBK ]BjH| v;en að æ!a t vo leikrit. sem
^umV HH s>nc* yú'* '* na'stunm. ..læn-
'2r 4 JhB hard fógeta" eftir Emar H.
Ktf,l vlIiypBliB^lflHHBBiÉ Kvaran, leikstj. Baldvin Hall-
Er að lögreglan? — við erum alveg að sálast úr hræðslu — dórsson, — og „Boeing, bo-
það er kominn innbrotsþjófur í húsið. — Líney Bentsdóttir eing“, eftir Marc Canoletti,
og Sigríður Einarsdóttir i hlutverkum sínum. leikstj. er Klemens Jónsson.
- STUÐLAR OG Framhald af bls. 17 - HANDRITAST.
Framh. af bls. 52
stofnunar mætti breyta í kennslu
deildir fyrir Háskólann, ef að
því kæmi, að Handritastofnun
íslands yrði ætlað húsnæði á öðr
um stað, t.d. í sambandi við
nýja bókasafnsbyggingu. Hó-
skólaráð hafði fyrir sitt leyti ó-
kveðið, að í húsinu yrði m. a.
ætlað rúm fyrir alla kennslu í
íslenzkum fræðum“.
>á sagði dr. Jóhannes enn-
fremur:
„Um einstök atriði og fyrir-
komulag innan byggingarinnar
er þetta helzt að segja: Húsið er
fjórar hæðir annars vegar en
þrjár hæðir að Suðurgötu. Sam-
anlagður grunnflötur hússins alls
er um 3300 fermetrar, en rúmir
11000 teningsmetrar.
Húsnæði Handritastofnunar ís
lands er að mestu á 1. hæð, þar
sem m.a. er lestrarsalur og vinnu
herbergi, en á jarðhæð eru
handrita- og bókageymslur, ljós-
myndun, viðgerðir og bókband.
Samanlagður grunnflötur Hand-
ritastofnunarinnar er um 900
fermetrar auk sameiginlegs
rýmis eða sem svarar tæpum
þriðjungi af heildar grunnflatar-
máli hússins.
Háskóli íslands fær mikið nýtt
kennslurými í húsinu, og er þar
gert ráð fyrir kennslustofum
bæði til fyrirlestrarhalds og við-
ræðuflokka (seminör). Á efstu
hæð hússins verða vinnuher-
Lestina rekur John Betjeman og sendir handskriíað kort,
ekki læsilegt um of en auðskilið, yfirlætislausa og hlýlega
kveðju til þessa fornvinar síns á sextugsafmælinu.
Sovézkur Gyðingur
dæmdur fyrir njósnir
Moskvu, 23. febr.
SXJÓRNARBLAÐIÐ „Izvestija“
Fyrir rétti í
Leningrad
Moskvu, 23. febr. NTB.
• Brezkur sjómaður, John Wath-
herley að nafni, 22 ára að aldri,
var í dag færður fyrir rétt í
Leningrad, sakaður um að hafa
leitt til slagsmála í brúðkaups-
veizlu á „Hotel Evropeiska*', sem
er eitt helzta gisti- og veitingahús
borgarinnar.
Brúðurin meiddist í áflogun-
um, sem urðu 20. janúar sl. en
síðan hefur Watíherley verið í
fangelsi. Mjög er tekið hart á
slíkum afeburðum í Sovétríkjun-
um, en e.t.v. verður það mann-
inum trl einihverra málsbóta, að
hann var drukkinn.
Heldur Powell
þingsæti sínu?
Washington, 23. ferbúar — AP
NÍU manna nefnd fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings sem skipuð
var í máli Adams Clayton Powll
lét í dag frá sér fara ályktun
þess efnis að hún mælti með því
að Powell héldi sæti sínu í deild
inni en yrði víttur fyrir fjár-
málaóeirðu og önnur embættis-
afglöp. Aðeins einn nefndar-
manna vildi að Powell yrði svipt
ur þingsæti sínu, hinir töldu all-
ir að þingmanninum væri yfrið
nóg hegning í vítunum. Full-
trúadeildin mun taka ályktun
nefndarinnar til umræðu n.k.
miðvikudag.
skýrði svo frá í dag, að sovézkur
Gyðingur, Salomon Dolnik að
nafni, hefði verið leiddur fyrir
rétt og sekur fundinn um njósn-
ir fyrir ísrael. Ilafi hann verið
svikari og fengið makleg mála-
gjöld, „svo sem hann hafði til
unnið“, eins og blaðið kemst að
orði. Ekki er tilgreint hver refs-
ingin var, en mesta refsing fyrir
njósnir í Sovétríkjunum er dauða
refsing.
Sendiráð ísraels hefur ekkert
við Dólnik viljað kannast og lýs-
ir því yfir, að enginn starfsmað-
ur sendiráðsins hafi stundað
ólöglega upplýsingastarfsemi i
Sovétríkjunum, — en að sögn
Izvestija var sendiráðisritarinn
David Gavish, sem vísað var frá
Sovétríkjunum í ágúst sl. flækt-
ur í mál þetta. Einnig er sagt, að
aðrir sovézkir ríkisborgarar hafi
átt þar til að máli.
Viðskipti A- og
V-ÞýzkalaiiTls
VERZLUNARVIÐSKIPTI
Vestur- og Austur-Þýzka-
lands námu 2.9 milljörðum
marka á sl. ári, að því er vest-
ur-þýzka efnahagsmálaráðu-
neytið upplýsir. Nam aukn-
ingin frá árinu 1965 u. þ. b.
20%.
• Kanadiskur togari „Maureen
and Micheal" sökk í Atlantshafið
í dag u.þ.b. 125 mílur undan Ný
fundnalandi. Áhöfnin, átta menn,
bjargaðist um borð í bandarískt
strandgæzluskip. Slæmt veður
var á slysstaðnum, vindhraðinn
um 65 hnútar og ölduhæð um
15 metrar.
bergi fyrir prófessora og aðsetur
Orðabókar Háskólans.
Aðalinngangur í húsið verður
frá Suðurgötu, en frá Háskóla-
lóðinni er sérinngangur í jarð-
hæð fró norðurgafli í greiðu
sambandi við aðalinngang.
Byggingaframkvæmdir verða
hafnar eins fljótt og auðið er, en
ekki er á þessu stigi málsins
hægt að segja um hvenær þeim
lýkur. Væntanlega verður það í
árslok 1968. Kennsla í húsinu
verður varla hafin fyrr en að
hausti árið eftir“.
í>á skýrði háskólarektor, Ár-
mann Snævarr, sem staddur var
á fundinum, frá fyrirkomulagi
og kennslustofutilhögun í eigna-
hluta Háskólans í þessari ný-
byggingu. Á jarðhæð verða þrjár
seminör-stofur auk aðalfata-
geymslu og snyrtiherbergja. Á
götuhæð verður ein kennslu-
stofa. Á þriðju hæð verða fimm
kennslustofur, ein seminar-stofa.
og einn lestrarsalur og á fjórðu
hæð verða vinnustofur 13 pró-,
fessora og 2 lektora; auk þess
húsnæði fyrir Orðabók Háskól-
ans, tvær kennslustofur, kaffi-
stofa o. fl.
Háskólarektor upplýsti, að
kennsla í íslenzkum fræðum
flyttist algjörlega yfir í þessa
nýbyggingu og hefðu nemendur
í íslenzkum fræðum forgangs-
rétt til setu í lestrarsal, en
kennslustofur í byggingunni
verða að sjálfsögðu nýttar til
hins ýtrasta. Sagði rektor, að til-
koma hins nýja húss mundi að
verulegu leyti leýsa húsnæðis-
vandamál Háskólans, en í þau
sex ár, sem hann hefur gegnt
embætti rektors hefur aukning
stúdenta verið nálægt 100%.
í byggingarnefnd Handrita-
stofnunárinnar voru af hennar
háifu skipaðir þeir prófessor Ein
ar Ólafur Sveinsson og Valgarð
Thoroddsen, verkfræðingur, en
af hálfu Háskólans Valgeir
Björnsson, fyrrv. hafnarstjóri,
og Svavar Pálsson, endurskoð-
andi. Formaður er eins og fyrr
segir dr. Jóhannes Nordal og
varaformaður Guðlaugur í>or-
valdsson, ráðuneytisstjóri. Nefnd
in hefur haft náið samstarf við
háskólarektor, Ármann Snævarr,
og háskólaritara, Jóhannes L. 1».
Helgason, sem einnig hefur verið
ritari hennar. Húsameistari ríkis
ins, Herði Bjarnasyni, var íalið
að gera uppdrætti að húsinu.
Afstöðumynd af staðsetningu byggingarinnar.