Morgunblaðið - 07.03.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
SfAff 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km.
SENDU M
IVIAGIMUSAR
skipholti21 símar21190
eftir lokun simí 40381
sím. 1.44-44
\mium
Só&zéeúý-cZ'
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
bíloleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstsett leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Siiti/ 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir iokun 34936 og 36217.
f-]===*aUA If/GAM
l&MLwær
RAUÐARARSTlG 31 SlMI 22022
22-1-75
Hópferðab'ilar
allar staerðir
iS^Esnarr----------
Fjaðrir, fjaðrablöð, hJjoðkutar
púströr o.fl. varahlutir
i margar gcrðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
GÓLPTÍPPI
WILTOM
TíPPADREGLAK
TEPPALAGNIK
EFTIK HAÁLl
iLaugavegi 31 - Simi 11822.
• Sjórinn og útiveran
Iþróttamaður skrifar:
„Kæri Velvakandi,
Að undanförnu hefur verið
sæmilegur skíðasnjór hér í ná-
grenni Reykjavíkur, en fyrir
norðan og vestan munu þeir
hafa nógan snjó, ef ekki of mik
inn.
Fólk er aldrei of mikið hvatt
til þess að stunda skíðaferðir,
og útilíf, þegar vel viðrar að
vetrinum. Ef allt væri með
felldu ætti fólk að þyrpast á
skíði um helgar, en svo er því
miður ekki.
Reykvíkingar eru of væru-
kærir, þeir nenna ekki að fara
lengra en bíllinn getur borið
þá — hafa ekki framtak til
þess að koma sér út úr bíln-
um — út i náttúruna og njóta
hennar. En það vantar ekki
nema herzlumuninn.. Og um
leið og fólkið er komið á skíði
og byrjar að njóta útilífsins
þakkar það sínu sæla — og
undrast deyfðina og framtaks-
leysið í hinum.
Fólk þarf ekki einu sinni
skiði til þess að njóta fjallanna
að vetrarlagi. Þó það geri ekki
annað en að búa sig sæmilega
og fara með börnin sín (það,
sem á börn) á sleða upp brekk-
ur í nágrenni bæjarins — t.d.
við Skíðaskálann þá fer það
heim mun hressara og ánægð-
ara en áður. Viltu ekki kvetja
fólk til þess að nota snjóinn,
Velvakandi?
Og svo er það svellið — og
skautarnir. Undanfarna sunnu-
daga hefur íþróttaþáttur sjón-
varpsins sýnt okkur ísknatt-
leik. Þetta er vafalaust mjög
skemmtileg iþrótt. En hún er
aðeins fyrir nokkra útvalda,
þetta er keppnisgrein — ekki
fyrir fjöldann. Samt væri mjög
þarft að búa skautamönnum að
stöðu til þess að iðka ísknatt-
leik. Mun mikilvægara væri að
búa öllu almenningi aðstöðu til
þess að renna sér á skautum til
ánægju og upplyftingar.
Vildu ekki íþróttasamtökin
vekja máls á þessu? Verið get
ur að rætt hafi verið um þetta
innan samtakanna, en það hef-
ur þá ekki verið nógu mikið.
Eitt er víst, ekkert hefur verið
gert í þessum málum.
Við þurfum að eiga skauta-
svell, helzt undir þaki — einn
ig að hægt verði að iðka skauta
ferðir allan ársins hring. Ég ef-
ast ekki um að slíku yrði vel
tekið af ölum amlenningi. Auk
þess munu slík svell vera
grundvöllur fyrir æfingar og
keppni í ríkara mæli en verið
hefur.
Nú höfum við fengið íþrótta
höll, við höfum fengið stóran
íþróttaleikvang — og stór sund
laug verður á næstunni tekin
í notkun hér í höfuðstaðnum.
Látum næsta verkefnið verða
skautahöll. — íþróttamaður“.
• Grænlandsflug
Lesandi skrifar:
„Ahöfn skíðavélarinnar, sem
bilaði í Grænlandi, er nú kom
in heim heilu og höldnu. í raun
inni var þetta ekki alvarlegt
slys að því er virtist — og
fyrsta óhappið hjá Flugfélags-
mönnum í margra ára Græn-
landsflugi.
Ég held að vert sé að vekja
athygli á því hve giftusamlega
Flugfélagið hefur annazt Græn
landsferðir í nær tvo áratugi
Flugfélagsmenn eru ekki ein
ir um óhöppin þarna vestra og
er þá skemmst að minnast
bandarisku hervélarinnar, sem
lenti á jöklinum og komst ekki
upp aftur. Svipað gerðist á
Vatnajökli forðum, eins og við
munum.
Bandaríkjamenn hafa oft
veitt ómetanlega aðstoð við
leit og björgun hér um slóðir.
Á það er yfirleitt ekki minnst,
þegar nærveru þeirra ber á
góma. — Lesandi“.
• Vertíðin
Annar lesandi skrifar:
„Vetrarvertíðin ætlað að
vera með rýrasta móti — a.m.
k. hefur hún verið æði slöpp
það, sem af er.
Mættu menn þá gjarnan hafa
í huga það, sem Jón Jónsson,
fiskifræðingur, sagði í sjón-
varpsviðtali fyrir skemmstu:
Við getum ekki búizt við vax-
andi þorskafla hér um slóðir
á næstunni — og við getum
frekar átt von á auknum afia
með því að minnka sóknina
fremur en að auka hana. Þetta
sagði fiskifræðingurinn.
Skoðun hans er mjög athygl
isverð og ég er í rauninni hissa
á því að þessi mál skuli ekki
vera tekin föstum tökum af
hálfu þeirra, sem gera út —
og stjórnenda sjávarútvegsins
í heild.
Eðlil^gt er, að við landkrabb
arnir spyrjum hvað ráðlegast
sé að gera. Ekki hefur borið á
neinum samræmdum aðgerð-
um, sem byggðar eru á raun-
hæfu mati á aðstæðum.
Væri ekki eðlilegt, að sjó-
sóknin væri skipulögð meira en
nú er — aðeitthvað heildar-
skipulag kæmist á í þessum efn
um?
Gunnar Guðjónsson, formað
xxr stjórnar Sölumiðstöðvarinn-
ar, sagði við sama tækifæri, að
fengist fiskurinn ekki hér við
strendur landsins yrðum við að
sækja hann lengra. Frystihús-
in yrðu að fá meira hráefni.
Eru einhverjar ráðstafanir
undirbúnar til þess að sækja
fiskinn á fjarlæg mið? Hvar á
að byrja — eða, hver vill
byrja?
Ef ljóst er, að fiskur fer ört
minnkandi í hafinu umhverfis
Island — geta menn setið og
beðið eftir því að síðasti fisk-
urinn komi á land? — R. S.“
• Sjónvarpið líka fyr-
ir fullorðna
Og hér kemur enn eitt bréfið:
„Velvakandi góður,
Fólk hefur verið að skrifa
þér og rífast yfir myndunum í
sjónvarpinu — m.a. Dýrlingn-
um o. fl. — Segir þetta fólk,
að myndir þessar séu skaðleg-
ar fyrir börn og því eigi sjón-
varpið ekki að sýna þær. Ýms
ir hafa tekið svo djúpt í ár-
inni að segja, að þessar erlendu
myndir séu blettur á sjónvarp-
inn.
Mig langar til þess að spyrja:
Á að miða allt sjónvarpsefni við
börn og unglinga? Er ekki hægt
að treysta foreldrum til þess
að reka börn sín í háttinn þótt
sjónvarpið sé opið? Hefur
venjulegur háttatími barna
verið felldur niður? A sjón-
varpið að ala upp börn lands-
manna?
Ef allt efni í sjónvarpi á að
miða við börn og unglinga —•
held ég að jafngott sé að
hætta kvöldsendingunum þeg-
ar í stað. Sjónvarpið ætti þá
að senda út fyrir kvöldmat —
eins og á sxmnudögum.
Menn rjúka upp til handa og
fóta yfir öllu milli himins og
jarðar, ef það er ekki ætlað
börnum og unglingum — eins
og foreldrum sé alls ekki treyst
andi til þess að gæta barna
sinna. Rökrétt væri að spyrja
þetta blessaða fólk hvort það
sé ekki á móti kvöldsýningum
kvikmyndahúsa — hvort ekki
sé óþarfi að hafa leiksýningar
á kvöldin? Úr því að ekkert
er gott, sem ætlað er fullorðnu
fólki eingöngu — þá er eins
gott að leggja allt slíkt niður
— og taka upp barnasýningar
og barnaskemmtanir einvörð-
ungu.
í öllum bænum hættir þessu
rövli út af sjónvarpinu. Þessar
erlendu myndir eru ágætar,
spennandi og skemmtilegar
margar hverjar. Ef foreldrun-
um er ekki treystandi til þess
að ala upp börn sín, þá er
engum treystandi til þess. Og
enginn óskar þess í raun og
veru að sjónvarpið verði ein-
hvers konar sunnudagaskóli —
alla vikuna. — Faðir.“
er stílhrein, sterk og ódýr.
JAPY fæst með o gán dálkistillis.
JAPY hentar jafnt fyrir heimili, skóla
skrifstofu, ferðalög o.fl.
2 gerðir fyrirliggjandi.
Einkaumboð: Hannes Þorsteinsson, heild-
verzlun.
Söluumboð í Reykjavík:
Bókhalds- og skrifstofuvélar, Laugavegi
53.
•' A .» V
ferðaritvélin
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka óskast í bókaverzlun 15.
marz. Góð mála- og vélritunarkunnátta.
nauðsynleg.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf sendist í pósthólf 124.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast um að bora og sprengja
15.000 ferkm. af klöpp í grjótnáminu við
Köllunarklett.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri,
Vonarstræti 8.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800