Morgunblaðið - 07.03.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 19«7.
Útgefandi:: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmúndsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
f lausasölu kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
END URSKOÐ UN
FÉLA GAL ÖGGJAFAR
T> fkisstjórnin hefur nú á-
kveðið að skipa nefnd til
þess að semja drög að nýrri
löggjöf um eftirlit með ein-
okun, hringamyndun og
verðlagi og mun nefndin
starfa að þessu máli í sam-
ráði við danskan sérfræðing,
sem hingað kemur í því
skyni.
I sambandi við mál þetta er
rétt að vekja athygli á því,
að á undanfömum árum hef-
ur verulegt starf verið unnið
að þessum málum og jafn-
framt er nú í undirbúningi
ný félagalöggjöf, en það er
þegar orðið brýnt að endur-
skoða núgildandi löggjöf á
því sviði.
Árið 1961 fól Bjarni Bene-
diktsson, þáverandi dóms-
málaráðherra, próf. Thódór
B. Líndal að undirbúa laga-
frumvarp um eftirlit með
fyrirtækjasamtökum og hindr
un einokunaraðstöðu og var
það frv. samið á grundvelli
norskrar löggjafar um þau
mál. Ekki náðist samstaða
um flutning þess frv. og kom
því ekki til þess, að það yrði
lagt fyrir Alþingi.
í nóv. 1966 fól svo Jóhann
Hafstein, dómsmálaráðherra,
Hirti Torfasyni, hæstaréttar-
lögmanni, endurskoðun lög-
gjafar um hlutafélög og skal
bann við það verk m.a. hafa
til athugunar frv. að lögum
um hlutafélög, sem var til
meðferðar á Alþingi 1952 og
1953 en hlaut þá ekki af-
greiðslu. í erindisbréfi dóms-
málaráðherra til Hjartar
Torfasonar er honum sér-
staklega falið að hafa hlið-
sjón af þeim athugasemdum,
sem gerðar voru við það frv.
er það lá fyrir Alþingi svo
og af niðurstöðum og gögn-
um frá sameiginlegri nefnd
Norðurlandanna, sem unnið
befur að samræmingu lög-
gjafar landanna um þetta
efni nokkurt árabil. Einnig að
ta'ka tillit til þeirra hug-
mynda, sem fram hafa komið
um almenningshlutafélög.
Þá var Hirti Torfasyni
ennfremur falið að athuga í
sambandi við þetta verk,
Kvort nauðsyn væri á laga-
reglum um fyrirtækjasam-
steypur, sem stefna að því að
hindra samkeppni, svo og
hverjar breytingar á annarri
almennri félagalöggjöf, svo
sem um samvinnufélög, sam-
eignarfélög og samlög,
mundu eiga að fylgja slíkri
gagngerri endurskoðun á
hlutafélagalöggjöf. Það er því
ljóst, að ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins hafa á undan-
förnum árum haft frum-
kvæði að verulegu undirbún-
ingsstarfi á þessu sviði enda
eðlilegt, að þörf sé endúrskoð
unar á gildandi löggjöf vegna
stórvaxandi starfsemi á sviði
viðskipta og annars atvinnu-
Iffs og breyttra aðstæðna í
þjóðfélaginu.
GREIDDI
ÚTVARPIÐ
KOSTNAÐINN?
að hefur komið fram í
blaðaskrifum að undan-
förnu, að launaður erindreki
Framsóknarflokksins hefur
9amtímis tekið upp þátt fyrir
Rí'kisútvarpið í Yestmanna-
eyjum og stundað þar erind-
rekstur fyrir Framsóknar-
flokkinn. Áf þessu tilefni er
nauðsynlegt að krefjast upp-
lýsinga um það, hvort Ríkis-
útvarpið hefur staðið straum
af kostnaði við ferð þessa og
þar með veitt fjárhagslegan
stuðning áróðursstarfsemi
Framsóknarflokksins.
Jafnvel þótt svo hafi ekki
verið hlýtur það að vera vafa
samt í meira lagi fyrir Rí'kis-
útvarpið, að stjórnandi þátt-
ar á þess vegum, sem fer út
á land í efnissöfnun, skuli í
sömu ferð reka erindi stjórn-
málaflokks, hver svo sem
hann er.
í þriðja lagi verður að
benda á, að yfirleitt er mjög
hæpið fyrir Ríkisútvarpið að
hafa í þjónustu sinni launað-
an erindreka stjórnmála-
flokks, hvaða flokkur sem
>að er, ekki sízt þegar sá
maður á að annast útvarps-
>átt, sem fjaliar um þjóðmál
og á miklu ríður af þeim sök-
um,- að honum sé stjórnað af
fullkomnu hlutleysi og þess
gætt að öll höfuðsjónarmið í
hverju máli komi fram. Sú
reynsla, sem þegar hefur
fengizt af slíku er slæm, þar
sem sá þáttur, sem um er að
ræða, hefur hlotið þunga
gagnrýni fyrir hludrægni og
sérstaklega í því ti'lviki, þeg-
ar saman fór efnissöfnun fyr-
ir Rí'kisútvarpið og erind-
rekstur fyrir Framsóknar-
flokkinn, en þá var gerð aug-
ljós tilraun til þess fá fram
pólitíska árás á ríkisstjórnina,
jafnvel þótt það tækist ekki.
En það var ekki stjórnanda
þáttarins að þakka.
Nizaminn af Hyd-
erabad er látinn
— talinn einn auðugasti maður heims
Hyderabad, 24. febr., AP.
SAGÐUR er nú látinn Nizaminn
eða furstinn af Hyderabad, sem
lengi var talinn auðugasti mað-
ur heims, eftir nokkurra vikna
vanheilsu, áttræður að aldri.
Furstinn af Hyderabad, sem
■ akti ætt sína allt aftur til spá-
mannsins Múhameðs, var sjö-
undi í röðinni af furstum þeim
er ríkjum réðu í Hyderabad
mann fram af manni allt frá
því er ættin komst þar til valda
árið 1712. Sjálfur réði furstinn
nýlátni fyrir Hyderabad frá 1911
til 1948 er Indland hlaut sjálf-
stæði og indverska stjórnin
svipti hann völdum eftir viku-
langar harðar deilur og beitti til
þess heivaldi.
Á hátindi veldis sins réði Niz-
aminn fyrir 18 milljónum manna
í ríki sem tók yfir tæpa 14 þús-
und ferkílómetra. Hann var flest
um mönnum öðrum á jarðríki
auðugri og af mörgum talinn
þeirra auðugastur meðan hann
héði fyrir ríki sínu.
Frá útför Nizaminns fursta.
á veldisdögum sínum.
Er ahnn var neyddur til þess
að afsala sér völdum fékk hann
þó að halda auðæfum sínum og
hafði auk þess í eftirlaun 10
milljón rúpíur eða 1.33 milljónir
dala á ári. Allt um það saxaðist
töluvert á auð furstans hin síðari
ár, enda fjölskyldan stór og i
mörg horn að líta. Nizaminn var
sagður hafa átt 42 konur og með
þeim 37 börn, en barnabörnin
voru orðin um fimmtfii talsins er
síðast fréttist. Aðeins tveir sona
fyrstans voru þó taldir tiginborn
ir, béðir synir fyrstu konu hans.
Þjóðarsorg er nú í Hyderabad
vegna andláts furstans.
Flytur fyrirlestra
um brúðuleiklist
Frœgur þýzkur prófessor í
fyrirlestraferð hér
þjóðleg brúðuleikshátíð í Braun-
schweig, en það var einmitt fyrir
forgöngu próf. Siegel að þessari
hátíð var komið á, en hana sækja
allir merkustu brúðuleikarar
heims úr allri veröldinni. Þá
mun hann einnig ræða um brúðu
leikhús með hliðsjón af almennri
leiklist, og flytja yfirlit um
brúðuleik í Asíu. Fjölmargar
skuggamyndir verða sýndar með.
KOMINN ER til landsin
þýzki prófessorinn Michael Sieg-
el, en hann er einn af þekktnstu
marionette leikurum (stjórnar
brúðum með böndum) í Evrópu.
Prófessorinn kemur hingað á
vegum Myndlista- og handiða-
skólans, þar sem hann mun
flytja fyrirlestur á vegum skól-
ans, og leikfélaganna tveggja í
bænum um brúðuleikhús nú á
dögum. Verður fyrirlesturinn
haldinn í Lindarbæ fimmtudag
nk. og hefst kl. 4 síðdegis. Er
öllum heimill aðgangur að fyrir-
lestrinum.
Prófessor Siegel hefur verið
kennari við ýmsa listaháskóla í
Þýzkalandi. Hann er m. a. læri-
faðir Kurt Zier, skólastjóra, sem
stjórnaði fyrsta brúðuleiknum á
íslandi veturinn 1940 í Háskóla
íslands. Var þá flutt miðalda-
brúðuleikrit um dr. Faust, en
Myndlista- og handíðaskólinn sá
um sýninguna.
Efni fyrirlestrarins verður sem
306 ára laga-
ákvæði afnumið
Annapolis, Maryland,
4. marz. AP.
j LÖGGJAFARÞINGIÐ í Mary-
land hefur numið úr gildi 306
ára gamalt lagaákvæði, þar sem
kveðið er á um bann við hjú-
skapartengslum hvítra og
svartra. Enn eru eftir 16 ríki í
Bandaríkjunum, þar sem slík
lagaákvæði eru enn í gildi.
hér segir: Þróun brúðuleiklistar I Prófessor Siegel lýkur hér
í hinum ýmsu löndum Evrópu Norðurlandaferð sinni þar sem
eftir síðustu heimsstyrjöld, al- | hann flutti fyrirlestra.
Figúra i strengbrúðuleikhúsi.