Morgunblaðið - 11.03.1967, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1967.
Ræður og starfsbækur sr. Bjarna brunnu
- tvö Kjarvalsmálverk og 3 eftir Ásgrím
Frú Áslaug Ágústsdóttir ekkja séra Bjarna með eina af fjórum myndum, sem björguðust úr
búi hennar. (Allar myndirnar tók Sv. Þorm., nema myndina af rústum húss séra Bjarna með
kirkjuturninn í baksýn. Hana tók Ól. K. m.).
SVO sem sagt er frá á for-
síðu Mbl. í dag varð ein-
hver mesti eldsvoði í tvo
til þrjá áratugi í Reykja-
vík í gærmorgun. Fimm
hús við Lækjargötu og
Vonarstræti brunnu —
þrjú timburhús til kaldra
kola, Iðnaðarbankahúsið
stórskemmdist og er tjón-
ið á því einu tugmilljónir
króna, og bakhús, sem
Blöndalskaffi notaði, stór-
skemmdist, en stendur þó
að mestu leyti uppi enn.
Mikið af verðmætum, sem
verða eigi metin til fjár,
brunnu einnig, s. s. heim-
ili séra Bjarna heitins Jóns
sonar, vígslubiskups, heim
ili Sigurðar Kristjánsson-
ar, fyrrum alþingismanns,
heimili Ólafs Jónssonar
forstjóra og fleiri.
í viðtali, sem Mbl. átti
við frú Áslaugu og kemur
hér á eftir sagði hún m. a.,
að margt merkilegra gripa
hafi hrunnið í eldsvoðan-
um og er það ómetanlegt
tjón. Einnig sagði Sigurð-
ur Kristjánsson, en viðtal
við hann fylgir hér einnig
með, að hann hefði ekki
húizt við því að eldurinn
læsti sig í hús sitt og því
hófst hann of seint handa
um að bjarga húslóð sinni.
Slökkviliðinu var tilkynnt
um eldinn um klukkan 5.30
og þegar blaðamaður MbL
kom á staðinn skömmu á eft-
ir slökkviliðinu var húsið
Lækjargata 12A alelda að inn
an og skíðlogaðL Voru þá
slökkviliðsmenn þegar farnir
að gera ráðstafanir til þess
að hefta útbreiðslu eldsins.
Töluverður strekkingur var
af austri og magnaðist eldur-
inn geysifljótt og barst fljót-
lega í hús séra Bjarna heitins,
sem er'nr. 12B og áfast hús-
inu nr. 12A. Skipti engum tog
um að bæði húsin urðu al-
elda á um það bil 15 mínút-
um, þrátt fyrir vasklega fram
göngu slökkviliðsmannanna. í
strekkingnum mynduðust við
framhlið húsanna hvirfilstrók
ar, sem soguðu eldtungurnar
upp með gafli Iðnaðarbanka-
hússins og molnaði múrhúðun
á gaflinum og féll á götuna,
svo að slökkviliðsmenn máttu
gæta sín að verða eigi fyrir.
Stóðu eldtungurnar, sem
mynduðust þannig hátt í loft
upp og nóðu á stundum hátt
upp fyrir þakskegg Iðnaðar-
bankans, sem þó er fimm
hæða hús.
Á gafli Iðnaðarbankahúss-
ins voru gluggaraðir, þétt upp
við hin brennandi hús. Brotn-
uðu glerin í gluggunum af
hitanum og soguðust eldtung-
urnar, er húsið opnaðist og
súgur í því myndaðist, inn á
allar hæðir, nema neðstu hæð
ina, þar sem engir gluggar
voru.
Skömmu síðar var eldurinn
kominn í húsið nr. 2 við Von-
arstrætL Varð hann strax
mjög magnaður í því húsi, því
að eldtungurnar stóðu af húsi
séra Bjarna og léku um aust-
urgafl hússins. Logaði þá svo
glatt í húsunum, að slökkvi-
liðið átti fullt í fangi með að
verja gamla Iðnskólann og
þar með Iðnó, sem standa
handan Vonarstrætis. Voru
þessi tvö hús um tíma í mik-
illi hættu og sviðnaði þak-
skegg Iðnskólans.
Þegar klukkan nálgaðist 7
tóku húsin að hrynja hvert
af öðru og var þá sem blásið
væri í glæður, því að eldtung-
urnar mögnuðust um allan
helming — neistaflugið þeytt-
ist í allar áttir og barst yfir
Iðnó, en slökkviliðsmenn
höfðu gert ráðstafanir til þess
að verja ýmsan eldfiman varn
ing, sem var í porti Leikfélags
ins. Breiddu þeir yfir varn-
inginn eldtrausta dúka, svo að
varningnum væri eigi hætta
búin.
Sprautað var á hús Verzl-
unarmannafélagsins í Vonar-
stræti 4, en gafl hússins var
steyptur og gluggalaus, svo að
því húsi var ekki svo mikil
hætta búin. í Vonarstrætinu,
þar sem slökkviliðsmenn voru
og börðust við eldhafið var
sem í víti og var varla unnt
að draga andann fyrir reyk-
kófL
Um klukkan átta voru öll
húsin fallin, nema Blöndals-
húsið, sem stóð að húsabaki
Lækjargötu 12A og vestur-
gafl Vonarstrætis 2 og var
eldurinn í rústunum þá tek-
inn að dvína. Enn logaði þá
vel í bankanum. Hafði slökkvi
liðsstjóri fengið að láni tvær
bifreiðar hjá Rafmagnsveit-
unni og eina hjá Arthuri
Sveinssyni og voru þessar bif-
reiðar með svokölluðum pall-
lyfturum og komu ásamt
stigabílum í mjög góðar þarf-
ir.
Slökkviliðsmenn börðust
enn við eldinn um kl. 10, en
upp úr því tókst þeim að
slökkva í Iðnaðarbankanum.
Hafði þá eldurinn geisað um
allar hæðir hússins og mun
tjón á húsinu og verðmætum,
sem í því voru nema tugmill-
jónum króna.
Fyrri brunar
Um klukkan 10, þegar hægj
ast fór um hjá slökkviliðs-
mönnum tókum við nokkra
þeirra tali, bæði úr slökkvi-
liðinu á Reykjavíkurflugvelli,
sem komið höfðu slökkvilið-
inu í Reykjavík til aðstoðar
svo og aðra, sem á brunastað
voru. Hjalti Benediktsson,
sem verið hefur í slökkvilið-
inu í áratugi, sagði:
— Þett er stórbruni. Brun-
inn mikli á Amtmannsstíg, var
að vísu víðtækari og mjög
erfiður, en ég minnist þess
varla að eldur hafi breiðzt
svo fljótt út sem nú, Hótel
íslandsbruninn árið 1944 var
einnig mjög mikilb en það
sem bjargaði okkur þá var
Rústir húss séra Bjarna. Á bak við trónar turn Dómkirkjunnar. kirkjunnar sem hann helgaði starfskrafta sína. (Ljósm Ól.K.)