Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 5
MORGXJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967. 5 ■ ■ SéS yfir hinn nýja afgreið lusai Útvegsbankans. Ól. K. Magnússon tók myndirnar í miðjum afgreiðslutíma fyrsta daginn, sem opnað var. w Utvegsbankinn tekur nýjan sal í notkun „ÞAÐ ER ekkert launungarmál, ■ að sparif járeign bankans og aukning hennar er grundvöllur undir allri annarri starfsemi bankans, og þvi þótti okkur rétt, að veglegasti afgreiðslusalurinn yrði valinn til þeirrar starfsemi, bæði til að gera starfsskilyrði starfsfólki betri og ekki sizt til að bæta alla þjónustu við við- skiptavini sparisjóðsdeildar"., sagði Jóhannes Elíasson banka- stjóri við blaðamenn, þegar bankastjórn Útvegsbankans kall ! aði á blaðamenn í tilefni þess, að s.l. þriðjudagsmorgun var tek inn í notkun endurbyggður af- greiðslusalur fyrir sparisjóðs- deildina á 1. hæð bankahússins með inngangi bæði frá Lækjar- ’ torgi og Austurstræti. Er hér um að ræða gamla bankann, þar sem Islandsbanki hóf starfsemi sína i, en ofan á þá gömlu og traustu byggingu voru byggðar 4 hæðir, eins og kunnugt er. „Það er okkar álit“, sagði Jó- hannes Elíasson, „að vel hafi tekizt að sameina gamla og nýja í bankahúsi Útvegsbankans, en það eru mörg ár síðan ákveð- ið var að byggja við gamla bank húsið. Orkaði það nokkuð tví- mælis, hvort gamla húsið skyldi rifið og annað nýtt byggð frá grunni, en eftir að Bolli Thor- oddsen hafði gert burðarþolsút- reikninga á gamla húsinu, var ákveðið að byggja ofan á gamla ; húsið. tslandsbanki flutti í hús- ið árið 1906. Á fyrstu hæð hússins verða 3 afgreiðslusalir, þessi endurbyggð ur fyrir sparisjóðs- og hlaupa- reikningsdeild, svo nýr salur, sem byggður var út í portið, og fara þar fram gjaldeyrisvið- skipti og aígreiðsla erlendra ávís ana, og svo í þeim þriðja, þar sem sparisjóðsdeildin var áður til húsa, og nú er verið að færa £ nútímahorf, fara fram víxla- viðskipti. Mun sá salur verða tek inn í notkun um mánaðamótin maí-júní í ár. Þar með verður endurbyggingu og nýbyggingu bankans lokið, nema að rishæð- in verður látin bíða í bili til að mæta hugsanlegri útþenslu bankastarfseminnar. Arkitektar byggingarinnar voru Eiríkur Einarsson og Hörð- ur Bjarnason í samvinnu við Jón Karlsson. Yfirsmiður var Guð- jón Guðmundsson, rafvirkja- meistari Ólafur Jensen, málara- meistari, ÓJafur Jónsson, marm- aralögn annaðist Sigurður Helga son, dúklögn Ólafur Ólafsson, hitalögn Guðjón Júlíusson, en um loftræstingu sá Blikksmiðj- an Vogur. Adólf Björnsson og Gunnlaug ur Björnsson sáu um bygging- arframkvæmdir í umboði banka stjórnar. Gengu nú blaðamenn um bygg'inguna í fylgd með bankastjórunum Jóhanni Elias- syni og Jónasi G. Rafnar og Finnboga Rút Valdemarssyni, og einnig voru með í þeirri skoð- unarferð Adólf Björnsson og Gunnlaugur Björnsson. Nýi salurinn, endurbyggði er allur hinn glæsilegasti, og Sig- urður Sigurðsson deildarstjóri Sparisjóðsdeildar sagði okl.ur, að öll afgreiðsla gengi mun bet ur, og yrði það til þæginda fyr- ir viðskiptavini, sem ekki þyrftu lengur að bíða lengi eftir af- greiðslu. Þá væru starfsskilyrði starfsfólks mun betri, og þó vant aði ennþá nokkur borð, sem auka myndu á þægindin. Voru forráðamenn bankaiM «• vonum mjög ánægðir með hia> ar íiýju framkvæmdir. Ólafs^irðingar sýna ,,r*1í:nn og konu“ Ólafsfirði, 28. marz. .. ANNAN pasRadag frumsýncH leikfélagið hér sjónleikinn Mann og konu eftir Jón Thoroddsen og var leiknum mjög vel tekiS af áhorfendum. Leikstjóri er Kristján Jónsson. Séra Sigvalda leikur Stefán Ólafsson, Staðar-Gunnu leikur Ásta Axelsdóttir og Hallvarður Hallsson var leikinn af Svein- birni Axelssyni. Leikmynd gerði Magnús Páls- son og var hún fengin frá Fá- skrúðsfirði. Þetta var 50. sýning Leiksfélag* Ólafsfjarðar, en félagið var stufn að 1961. Að lokinni sýningu hélt bæjarstjórinn ræðu og þakkaði leikfélaginu fyrir það menning- arstarf, sem það hefur innt af hendi í bæjarfélaginu. Formað- ur félagsins þakkaði ræðu bæj- arstjóra. — Jakob. Til leigu Óinnréttaður kjallari stærð um 80 ferm. á góðum stað í bænum, til leigu. Tilboð merkt: „Góð geymsla 2406“ sendist afgr. blaðsins. Iljónakiúubur CarðMbrepps Dansleikur næstkomandi laugardag. Aðgöngumið- ar pantaðir í sima 50008 föstudag kl. 4—7 síðd. Stjórnin. Njótið hinnar útfjólubláu geislunar af fjallasnjónum Verið brún - Brennið ekki •'•:.-••••••'••• 'VV:ý<ý/\v . ■ ■ Coppertone er langvinsælasti sólarábu rðurinn í Bandaríkjunum í dag, enda hafði Copperton og Q. T. (Quick Tann- ing) frá Coppertone 77,4% af allri samanlagðri sölu á sólaráburðum þar árið 1966. Fáanlegt af Coppertone vörum eru: Coppertone Lotion, Coppertone Oil, Copperton Oil Spray, Coppertone Shade (fyrir rauðhærða og viðkvæma húð), Coppertone Noskote (til varnar bruna á vörum, nefi, eyrum) og Q. T. (Quick Tanning) frá Coppertone. Útsölustaðir: Herradeild P. & Ó., Gjafa- og snyrtivörubúðin, Ocúlus h.f., Sápuhúsið, Vesturgötu 2, Verzlunin Mirra, Austurstræti 17, Vestur- bæjar Apótek, Holts Apótek, Laugavegs Apótek, Garðs Apótek. Amaró h.f., Akureyri, Kaupfélag Árnesinga, K aupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Héraðsbúa, Kaupfélag ísfirðinga, Parísarbúðin, Vest- mannaeyjum, Sauðkróks Apótek, Hafnarbúð, Hafnarfirði, Verzlunin Edda Keflavík, Apótekið Eskifirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.