Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967. ÞEIR VAKA YFIR ORYGGI ÞINU JflfNT fl HflTÍDUH SEM VIRKUM DÖGUM Umferðarlögreglan stöðvaði bíla á leið út úr bænum yfir páskana og ráðlagði þeim að snúa aftur vegna ófærðar. ÞAÐ er páskadagur. Þú sit- ur í uppáhalds stólnum þín- um inni í stofu, reykir upp- áhalds pípuna þina og lest í góðri bók. Steikarilminn legg ur frá eldhúsinu og þú hugs- ar með þér að líklega sé bezt að fara að taka upp rauðvins flöskuna. Börnin eru að leika sér á gólfinu og gæta þess að hafa ekki hátt, til þess að trufla ekki pabba á frídegin- um. Úti fyrir er ofsaveður, og það sést ekki í næsta hús fyrir snjófokinu. En það skipt ir þig ekki nokkru máli, i þinni hlýju, notalegu stofu. I annarri stofu, í öðru húsi, sem stendur við Reykjanes- braut spretta menn á fætur og þjóta út í óveðrið þegar hátalari glymur og tilkynnir eldsvoða. I húsi við Snorra- braut spretta menn á fætur og þjóta út þegar bílslys er tilkynnt. í veðurbörðum Landrover á Hellisheiði tekur þreyttur, kaldur maður upp talstöð og sendir tilkynningu frá Vega- þjónustu FÍB, til Slysavarna- félagsins um að tíu bílar séu fastir þar. 1 gráu húsi á Gufu nesi situr enn einn maður við talstöð, tekur við tilkynn- ingunni og kemur henni til réttra aðila. Þetta eru menn- irnir sem vaka þegar aðrir sofa, sem vinna þegar aðrir halda jól eða páska. Og við litum inn til þeirra í gær. Þnrfa að biðja um frí þegar börnin eru fermd. Slys, eldsvoðar og göbb, þetta eru, ef svo má að orði komast, jólagjafir og páska- egg slökkviliðsmanna. Sveinn Ólafsson og Tryggvi Ólafsson eru meðal þeirra Magnús Valdimarsson, framkvæmdastjóri FÍB. sem áttu vakt þesa síðast- liðnu páska. Og þeir eru eft- ir atvikum ánægðir, því að óvenju lítið var að gera um hátíðina. — Við erum ellefu á vakt hverju sinni, segir Sveinn, tíu hérna og einn í gömlu stöðinni niður frá. En um stórhátíðar, jól, nýár og þess háttar eru yfirleitt fjölg að um fjóra a.m.k. Nei, við verðum ekki varir við neina óánægju yfir að þurfa að vinna um hátíðar. Auðvitað vildu menn frekar vera heima hjá ástvinum sínum, en þetta er nokkuð sem verð- ur að vera, vaktirnar verða alltaf að ganga fyrir. Ég get nefnt þér sem dæmi að mín vakt veit þegar hvaða daga hún fær á næstu jólum, og ég get nú varla sagt að við höfum verið yfir okkur glað- ir. Við eigum dagvakt á að- fangadag, dagvakt á jóladag, dagvakt á nýársdag og dag- vakt á annan i nýári Auk þess eigum við aukavakt á aðfangadagskvöld. — Nei, það kom sem betur fer ekkert sérstakt fyrir um þessa síðustu hátíð. Nokkrir smábrunar, eitt gabb, og svo sjúkraflutningar. Sá erfiðasti var í skíðaskála ÍR. Þar hafði drengur fótbrotnað og færð- in uppeftir var fremur slæm. Við höfum sérstaka bifreið í svona ferðalög, hún er með drifi á öllum hjólum. Fram og til baka voru þeir um það bil fjóra tíma. En þetta eru þaulvanir og góðir ökumenn svo að allt gekk vel. — Já, það er töluvert um svona slys í skíðaskálunum um helgar, og um páskahelgina bregzt það aldrei að við þurfum að brjótast eitthvað út fyrir borg ina. Jú, slökkvistarfið er ákaf- lega bindandi. Það er ekki hægt að tala mn nein frí nema sumarfrí Við getum aldrei fengið að bregða okk- ur frá til að snúast eitthvað smávegis, það gæti komið út- kall á meðan. Við myndum heldur ekki kæra okkur um það, þótt það væri leyft. Við skulum segja að þú berir ábyrgð á einhverjum sérstök um bíl, dælubíl, stigabíl eða sjúkrabíl. Þú kærir þig ekki um að hafa það á samvizk- unni að fjarvera þín myndi kannske kosta nokkrar dýr- mætar mínútur. Svo eru vakt irnar svc/ óreglulegar að við getum ekki tekið þátt í neinu selskapslífi, spilaklúbbum eða öðru slíku, vaktirnar ganga fyrir öllu. Við verðum meira að segja stundum að fá sér- stök frí til að láta ferma eða skíra. I slíkum tilfellum kem ur alltaf einhver félaginn til hjálpar. Jafnvel þegar þeir eiga frí- vakt geta slökviliðsmenn ekki verið „óhultir" á heimilum þeirra er bjalla sem getur glumið hvenær sem er sólar- hringsins og kallað þá til aukastarfa. Þau aukastörf lesandi góður gætu jafnvel orðið til að bjarga húsi eða þinni fjölskyldu. Við talstöðina 24 tima á sólar hring. Þegar minnzt er á loft- skeytastöðina I Gufunesi, hýrnar yfir þeim sem ferð- ast um landsbyggðina að stað aldri, og þeir eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa hrifningu sinni og þakklæti fyrir þau störf sem þar eru unnin. Þar sitja menn við talstöðvar 24 tíma á sólarhring og afgreiða endalausan straum af skila- boðum og hjálparbeiðnum sem berast að úr lofti, af láði eða legi. Gufunes, er ein og flestir vita, fjarskiptamiðstöð. Hún annast flugþjónustu, skipa- þjónustu og svo viðskipti við bifreiðar sem kunna að vera dreifðar víðs vegar um land- ið. Unnið hefur verið að um- fangsmiklum umbótum á fjar skiptaútbúnaði fyrir viðskipti við flugvélar og skip, og nú er röðin komin að endurbót- um á fjarstýrisútbúnaði fyrir bílviðskipti sem lengi vel voru rekin sem eins konar til raunastarfsemi. Bjarni Gísla- son, stöðvarstjóri í Gufunesi segir okkur að einn maður sé á „bílvakt" allan sólarhring- inn og hafi ærið nóg að starfa Um páska og aðrar hátíðar þegar fólk flykkist út úr bæn um, aukast annirnar um allan helming og því venjulega sett ur annar maður til aðstoðar. Það munu vera um 400 bílar á fslandi sem hafa talstöðv- ar svo það liggur í augum uppi að eitthvað gengur á þeg ar þeir eru flestallir á ferð- inni í einu. Og það eru ekki bara bílstjórarnir sem njóta góðs af þessari þjónustu. Um helgar hringir jafnan fjöldi fólks til að spyrja frétta af einhverjum ferðahóp. Og það var sérstaklega mikið um þetta nú um páskana, þar sem veður var svo slæmt að flestir ferðamannahópar lentu í einhverjum hrakningum. — Stöðvar bílanna eru ekki nægilega sterkar til þess að við getum náð sambandi við þá hvar á landinu sem er, segir Hákon Bjarnason, varð- stjóri. En þetta er eins og ein stór fjölskylda og allir eru hjálpsamir. Skilaboðin eru látin ganga bíl frá bíl út um landið þar til þau komast á ákvörðunarstað. Við getum nefnt tvö dæmi um þjónustu stöðvarinnar í Gufunesi, nú um páskana. FÍB bifreið á Hellisheiði kallaði hana upp og sagði að fjöldi bifreiða sem í voru m.a. konur og börn, væri fastur þar í snjó- sköflum. Gufunes kom skila- boðunum til Slysavarnafélags ins og fólkinu var bjargað. Þýzkur maður fannst stór- slasaður skammt frá Skafta- felli í Öræfum. ann var bor- inn heim að bænum. Þar var simasambandslaust, en þar var staddur Guðmundur Jón- asson með nokkra af lang- ferðabílum sínum. Hann hef- ur að sjálfsögðu talstöð og kallaði Gufunes strax upp. Gufunes sendi svo skilaboðin áfram til réttra aðila og nokkru síðar var sjúkraflug- Framhald á bls. 21. Lögreglumennirnir sem stöðvuðu bifreiðar og sneru þeim aftur til bæjarins. F.V. Reynlr Sveinsson, Steinþór Nygaard, Tómas Hjaltason og Snjólfur Pálmason. Slökkviliðsmennirnir Sveinn Ólafsson og Ágúst Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.