Morgunblaðið - 31.03.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1967.
31
Piitur og stúlka frumsýut
i dag á Selfossi
ítilefni af 10 ára afmœli leikfélagsins þar
Selfossi, 30. marz.
A ÞESSU ári munu vera liðin
10 ár frá því að regluleg leik-
listarstarfsemi hófst á Selfossi,
og í því tilefni mun Leikfélag
Selfoss frumsýna alþýðusjón-
leikinn „Piltur og stúlka“ eftir
Emil Thoroddsen, sem saminn
er eftir samnefndri skáldsögu
Jóns Thoroddsen. Leikstjóri er
Jónas Jónasson.
Piltur og stúlka er annað
verkefni félagsins á þessu leik-
ári, og verður leikritið frum-
sýnt í dag. Aðalhlutverk er í
höndum ungra leikenda, þeirra
Þóru Grétarsdóttur og Ragnars
Magnússonar. Með önnur stór
hlutverk fara, Kristinn Helga-
ENN hefur fiskveiðiflotanum
bætzt nýtt glæsilegt fiskiskip
Ásberg RE-22, eign útgerðar- /
fyrirtækisins fsbjörninn hér i /
Reykjavík. Ásberg er fjórða /
skip fsbjarnarins. en fyrr í J
vetur kom Ásgeir, en Ásberg \
er systurskip Ásgeirs, bæði 1
byggð í Hollandi, 315 tonna i
skip. — Ásberg er hið full- i
komnasta skip að öllum út- í
búnaði og vélum. Á leiðinni í
heim hreppti það vonsku /
veður. Skipstjóri á Ásberg er J
Björn Jónsson (Björnssonar J
frá Ánanaustum). Fyrsti stýri \
maður er Guðbjörn Jónsson, i
sem var um skeið skipstjóri í
á bv. Sigurði og fyrsti vél- /
stjóri er Eggert Einarsson, er \
áður var vélstjóri á einum i
ísbjarnarbátanna, Ásþóri. Sem l
kunnugt er, er hinn þjóð- /
kunni athafnamaður Ingvar \
Vilhjálmsson, framkvæmda- i
stjóri fsbjarnarins. í
(Ljósm. Mbl. Sveinn Þorm.). 7
son, Erna Jakobsdóttir, Kristján
Jónsson, en alls eru leikendur
22, og hefur leikfélagið reynt
eftir föngum að vanda sem mest
til þessarar sýningar. Forleikur
leiksins verður leikinn af Skúla
Halldórssyni, og leikmyndir eru
gerðar af Sigfúsi HalldórssynL
Sem framhald á þessari upp-
setningu á „Pilt og stúlku'* hef-
ur stjórn félagsins ákveðið að
stofna styrktarsjóð með það
fyrir augum að efla starfsemi
á þann veg að koma á fót leik-
listarnámskeiðum vor og haust,
sem yrði svo, er fram líða
stundir, vísir að leiklistarskóia
á Selfossi. — Óiafur.
arfélaga í Reykja-
nesumdæmi
AÐALFUNDUR Samtaka sveit-
arfélaga í Reykjanesumdæmi
verður haldinn laugardaginn 1.
apríl n.k. kl. 14 í samkomuhús-
inu á Garðaholti í Garðahreppi.
Auk aðalfundarstarfa mun
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri, flytja erindi um frum-
varp að nýjum skólakostnaðar-
lögum, sem nú liggur fyrir Al-
þingi. Síðan verða frjálsar um-
ræður um málið. Allir sveitar-
stjórnarmenn í umdæminu eru
velkomnir á fundinn.
LelðiéUlng
I FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um húsbruna á Vopnafirði urðu
þau mistök að húsið var sagt
brunatryggt fyrir 470 þúsund
krónur, en átti að vera 826 þús-
und. Þetta leiðréttist hér með.
Fugl að fram kominn í olíu.
- HRAFNSÖNDIN
Framhald af bls. 32.
urlegt tjón að ræða, því að
segja má að ógerlegt sé að
hreinsa olíu af ströndum til
fullnustu. Má því búast við
olíumengun á ströndunum ef
til vill í áratugi. Þá mun þör-
ungagróður vera í hættu sem
allar lífverur og augljóst er
að dýralíf mun ná sér eftir
árabil, þó fuglum fækki að
mun.
Olían getur haft áhrif á
ýmsar íslenzkar fuglategundir
og er sérstaklega vitað um
eina tegund, hrafnsöndina
(melanitta nigra), sem heldur
sig á þessu svæði á vetruna.
Hrafnsöndin er frekar sjald-
gæf og er til víðar en á ís-
landi, en íslenzki stofninn,
sem verpir við Mývatn telur
1000 pör. Ekki er unnt að
segja með vissu hvort honum
verður útrýmt — og fer það
mikið eftir því hve víða olí-
an fer, hve mikið fall verður í
stofninum.
Fleiri íslenzkar tegundir
geta verið þarna, þótt ekki sé
vitað um það með vissu. T.d.
getur verið þarna eitthvað af
íslenzkum lunda. Er því ekki
Spilakvöld
í Garða- og
Bessastaða-
hreppi
Sjálfstæðisfélag Garða- og
Bessastaðahrepps heldur spila-
kvöld mánudaginn 3. apríl í sam
komuhúsinu Garðaholti. Byrj að
verður að spila stundvíslega kl.
21.00.
Þetta verður þriðja kvöld i
þriggja kvölda keppni. Þrenn
kvöldverðlaun verða veitt. Fél-
agar mætið vel og takið með
ykkur gesti.
unnt að segja hvort skarð
verður höggvið í lundastofn-
inn. Sömu stofnar frá mörg-
um löndum fara á þessar slóð
ir, sem olían er á en ekki er
gott að segja um það hvaða
stofnar verða verst úti.
Reynslan verður að skera
úr um þetta — sagði dr.
Finnur Guðmundsson að lok-
um — en nauðsynlegt er að
herða enn til muna eftirlit
með olíuflutningum og gæta
meiri varúðar, hvort sem um
land eða sjóflutninga er að
ræða. Hráolía sem þessi er nú
orðin heimsvandamál.
- FLUGSLYS
Framhald af bls. 1.
sem aðstoðarsaksóknari Garri-
sons frá 1964—1966, er hann
iagði af sér. Skjólstæðingur
hans, Lewallen var flugmaður,
en það var David Ferrie einnig.
- OLÍUSKIP
Framhald af bls. 1.
50 smábátar dældu í dag efna-
upplausn í sjóinn meðfram strönd
inni, og lengra úti voru stór
herskip við sama starfa. í dag
hefur verið unnið að því á
mörgum stöðum og höfnum með
fram ströndinni að leggja varn-
argarða fyrir hafnar og ármynni,
til að hindra að olían reki þar
inn. Umfangsmesta aðgerðirnðar
á þessu sviði áttu sér stað milli
Wighteyjar og lands, til að hindra
að olían reki inn á Solentfjörð-
inn.
9 franskir sérfræðingar og
stjórnarstarfsmenn komu í dag til
Cornwall til að kynna sér á-
standið þar og ræða við brezka
björgunarmenn. Menn þessir eru
í nefnd, sem franska stjórnin
skipaði fyrir nokkrum dögum til
að gera ráðstafanir til varnar,
ef svo færi að olían ræki upp
að frönsku ströndinni, en hætta
er í því innan 8 daga, ef vind
ur og straumur haldast óbreytt.
Fregnir frá Danmörku herma
að danska fyrirtækið Anti Oil
frá Horsens í Danmörku hafi gert
brezku stjórninni til'boð um að
hreinsa alla olíu af brezku
ströndunum fyrir upphæð, sem
nemur 3,2 milljónum sterlings-
punda. Efnið, sem Danirnir hyggj
ast nota er verksmiðjuleyndar-
mál, og hefir ekki verið gefið
upp. Búist er við að brezka
stjórnin taki afstöðu til máls-
ins á næstu dögum.
1 fréttastofufregnum segir að
málaferli um hver bera eigi kostn
aðinn af olíuhreinsuninni og öllu,
sem þessum atburði fylgir, muni
án efa standa árum saman. Álit
ið er að allur kostnaðurinn við
hreinsunina á næstu árum muni
ekki nema undir 8 milljónum
sterlingspunda eða 960 milljónum
ís. kr. Mesta tjónið og það sem
erfiðast er að meta er tekjutap-
ið fyrir íbúana á þesum slóðum,
en samkv. upplýsingum sam-
bands brezkra ferðaskrifstofa
hafa 6 milljónir manna eytt sum
arleyfum sinum á þessum bað-
strandarsvæðum undanfarin ár.
Auk þes er hætta á að olía reki
austur, en á baðströndum þar
dvelja árlega 8 milljónir manna
að sumri til.
Fiskimenn á svæðinu eru mjög
uggandi um efnablöndurnar sem
dælt er á olíuna kunni að drepa
Svo sem gctiff var í fyrsta Mbl., sem kom út eftir páska gerffi brezki togarinn Sisapon frá
Fieetwood mikinn usla í netum báta, sem voru aff veiffum á Breiffafirffi um 25 milur und-
an Skor. Þessa mynd tók einn skipverjinn af Andra BA frá Bíldudal, Jóhannes Þór Magnús-
son af togaranum, er hann togaffl yfir netatrossur bátanna. Á myndinni má sjá trollvírinn aft-
ur meff bakborðinu og er greinilegt aff skipiff er að toga.
Nýtt skip
Aðalfundur
Samtaka sveit-
fiskinn á miðunum þarna fyrir
utan, en talsmaður stjórnarinn-
ar segja að styrkleiki þeirra eigi
ekki að geta orðið fisktofninum
skaðlegur. Fiskimennirnir benda
aftur á móti á að mikið magn
af dauðum fiski hafi flotið upp
undan ströndinni. Rannsóknir á
málinu hafa enn ekki leitt í ljós
hvort það eru efnablöndurnar
eða olían, sem hefur orsakað
dauða fiskanna.
~ ÍSJAKAR
Framhald af bls. 32.
jakar. Innan um í ísbreiðunum
voru myndarlegir jakar sem virt
ust standa nokkuð djúpt og fer
ekki á milli mála að þessi ís er
hættulegur skipum í myrkri og
siglingaleiðin fyrir Horn vart fær
nema í björtu, enda þótt hvergi
sé um verulega samfelldan is að
ræða. í víkunum nyrzt á Horn-
ströndum var talsvert mikið um
ís og auk þess grunnt undan.
Skammt fyrir vestan Horn-
bjarg sáum við flutningaskip á
norðurleið og fór það fremur
grunnt. Allur er ísinn á þessum
slóðum minni um sig en var fyr-
ir einum tveimur árum þegar
mikið ísrek var hér út af norð-
anverðum Vestfjörðum og stórir
jakar bárust langt inn í ísafjarð-
ardjúp og í firði og víkur.
Flogið var umhverfis Horn-
bjarg og síðan yfir Jökulfirði og
var nokkur lagnaðarís þar inni
en annars var djúpið spegilslétt
og gáraði varla sjóinn langt út
á haf.
Var síðan flogið til fsafjarðar
og lent þar eftir mjög ánægju-
lega klukkustundar flugferð.
H. T.
- VALUR GÍSLAS.
Framhald af bls. 3
leikstjóri. Eiginlega er ákaf-
lega gott að leika í leikritum
eftir Ibsen og Strindberg,
hlutverkin eru svo leikræn.
Það er eins og þessi hlut-
verk losi um leiklistarhæfi-
leikana, rétt eins og hæfi-
leikar stækki og breikki,
verði dýprL þegar maður fær
tækifæri til þess ag glíma
við hlutverk þeirra.
Auðvitað er mér minnis-
stætt hlutver mitt í Föðurn-
um eftir Strindberg, máski
er það eitt hið eftirminnileg
asta hlutverk, sem ég hef
leikið. Einnig séra Manders
í Afturgöngunum og Helmer
í Brúðuheimili Ibsens, en þar
lék ég á móti Tore Segelcke.
Þá þótti mér einnig mjög
gaman að leika Eydalín lög-
mann í íslandsklukkunni, og
núna síðast Jón gamla í
Lindarbæ. Það var ákaflega
merkilegur „karakter“.
JÚ, i hinum einþáttungi
Matthíasar Jóhannessen lék
ég lík, og eiginlega leik ég
líka lík, í Loftsteininum,
a.m.k. annað slagið. Það er
í rauninni ákaflega þreytandi
að leika lík, þótt ég að vísu
fái svona stundum aff hvíla
mig í Loftsteininum innan
um alla kransana, en það er
erfitt að deyja og leika dáinn
mann, sem þó er ekki dáinr,.
Ég myndi segja, að Loft-
steinninn væri komedia meff
tragisku ívafi.
Einhverntima i leiknum
segi ég, að það eigi ekki að
káfa á deyjandi manni, að
mér finnst eftir 40 ára .leik-
feril, að ég sé ekkert að
deyja, enda er ég aðeins 65
ára gamall. Leiklistin hefur
verið mín ástmey, jafnlengL
og ég vona, að okkur semji
jafnvel eftirleiðis og hingaff
til.“
Við krvöddum Val Gíslason
með hamingjuóskum á vör-
um, fikruðum okkur niður
bratta stigana í bakhýsi Þjóð-
leikhússins, þaðan, sem aðal-
leikararnir eru til húsa og
vonum, að Valur Gíslason
eigi eftir að skemmta Reyk-
víkingum í þessu leikriti eins
og í hinum öðru mörgu leik-
ritum, sem hann hefur leikið
í á 40 ára leiklistarferli sín-
um. — F. S.