Morgunblaðið - 03.05.1967, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.05.1967, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAl 1967. > BÍLALEIGAN FERÐ S/MI 34406 Bensín innifalið í Ieigugjaldi. SENDUM BILA LEIBA MAGNÚSAR SKIPHOLTI 21 SÍMAR21190 eftii lokun slmi 40381 "7 S1M1 1-44-44 \mm Hverfisgötn 103. Sími eftir iokun 31160. LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldl. Sími 14970 BÍLALEIGAN VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. 4 /-=*á//lJK IFIGAM IrtsuLmM? RAUOARÁRSTÍG 31 SlMI 22022 Austurstræti 16. Sími 19866. Fjaðrlr. fjaðrablöð. hljóðkútar púströr o.fl. varahlutir I margar gerðir bifreiða. Bílavörubúðin FJÖBRIN Laugavegi 168. — Sum 24180. ★ Holurnar í göt- unum Þ.E.J. skrifar: „Kæri Velvakandi! Nú er hafin hin árlega her- ferð gegn holum, og á ég þar við holurnar á malbiki höfuð- bwgarinnar. Þegar viðgerð fer fram á götu þarf að loka henni á meðan, og eykur þetta um- ferðaröngþveitið, og þótti þó flestum nóg fyrir. Hygg ég að aldrei hafi göturnar verið jafn illa farnar eftir vetur eins og nú. Það er vafalaust mörgum erfiðleikum bundið að malibika hér á landi þannig að það end- ist vel, og eru þeir ekki öfunds verðir, sem stjórna þurfa því verki. Helztu óvtnína má nefna frostið og keðjurnar og nagla- dekkin. Lúmskur grunur læð- ist þó að manni að þeir Kári og keðjurnar eigi sér dygga samherja, og á ég þar við hina mjög svo afkastamiklu púka hérlendis: fljótvirknina O'g óvandvirkina. Er þetta áber- andi, þegar maður ber saman gatnagerðina hér og víðast hvar erlendis, jafnvel þar sem veðráttan er svipuð eða verri en okkar. Að vísu má nefna, okkar viðgerðamönnum það til afsökunar, að þeir hafa úr lé- legu efni að vinna þar sem grágrýtið er, en það drekkur í sig vatn og molnar auðveld- lega. Víðast annars staðar, þar sem ég hefi séð til, eru notuð tinna eða granít. En þetta afskar ekki allt. Okkar menn virðast allt of sparir. á bikið í blöndunni svo að mal- bikið verður fljótlega „þurrt“ og molnar þá úr þvl Nú eru notaðar stórtækar og tljótvirk- ar vélar, sem xeggja malbikið í ræmum og væri ekki n?ma gott eitt um það að segja, ef vel væri gengið frá samskeyt- unum, en mikið vantar a að svo sé gert. Víðast hvar eru þar djúpar raufar, sumstaðar svo slæmar að tekur í stýrið á bíl ef framhjól lendir ofan í. Vatn leitar svo auðVitað í þess- ar raufar og þegar frýs spreng- ir ísinn malbikið upp. Erlendis eru slík samskeyti fyllt upp með biki og er furðulegt að slíkt skuli ekki vera gert sér. Áberandi er hvað malbikið brotnar síður í brekkum en á jafnsléttu, og virðist þetta benda til þess að vatnshalli þurfi að vera meiri á vegunum. Að vísu er hvimleitt að aka á götum, sem hafa mikinn halia til beggja hliða, en öllu leiðin- legra er að aka á mjög holótt- um ejja bættum vegi. Ýmislegt fleira mætti að sjálfsögðu tína til, en ég flýti mér nú að taka það fram, að ég er bara gramur bíleigandi, sem ekki hefur hundsvit ft gatnagerð. En þvi miður virð- ist, 1 fljótu bragði, að segja mætti eitthvað svipað um gatnagerðamenn okkar, en vel má vera að þeir hafi einhverjar skýringar á hvers vegna þeim tekst svona illa til í faginu sínu, og væri mjög fróðlegt að heyra þær. Efast ég ekki um, Vel- vakandi góður, að þú myndir láta þeim í té pláss nokkurt í þessum dálkurn þínum. Skyldi maður þá ætlast til að það væri kærkomið tækifæri fyrir þá til að útskýra fyrir okkur útsvars- og skattgreiðendum þá erfið- leika, sem þeir eiga við að etja, því enginn efast um að því enginn efast um að þeir vilja gera sitt jaezta. Þ.E.J.". ★ Finna verður or- sökina Vissulega er nauðsynlegt að komist verði að orsök hinna miklu skemmda á götunum, og trúlegt er að engu einu sé þar um að kenna. Það er verkefni fyrir sérfræðinganna að kom- ast að hinu sanna og birta nið- urstöður sínar. Þegar leikmenn ræða málin fully rðir einn þetta og annar hitt. Fyrir nokkrum dögum kom t d. maður að máli við Velvakanda og sagði að nagladekkin vaeru mesti skað- valdurinn. Það væri vegna þess að á þeim væri ekið all- an vetufinn, hvort sem þeirra væri þörf eða ekki — og marg- ir bíleigendur notuðu þau all- an ársins hring. Boltinn og börnin Sárgramur Hafnfirðingur skrifar okkur bréf þar sem hann finnur mjög að framkomu húseiganda nokkurs og lög- reglunnar við 10-12 ára börn, sem höfðu verið í boltaleik og urðu fyrir því ó'happi, að bolt- inn þeirra lenti inn á lóð ná- ungans. „FVrniri klifruðu ekki yflr grindverk, þegar þau ætluðu að fara ná í boltann til að skemma ekki neitt“ skrifar hann, „heldur tóku á sig stór- an krók og fara að hliðinu. En þá er húseigandinn hlaupinr. út og búinn að ná boltanum. Fer hann með hann inn og hringir 1 lögregluna. Börnin stóðu álegndar og biðu, þar sem þeim fannst þau ekkert hafa gert af sér“. Bréfritarinn segir að lögreglu þjónarnir hafi hlustað á mál lóðareiganda, en þegar börnia ætluðu að útskýra sína hlið ft þessu máli hafi þeir aðeins spurt hver ætti boltann og nafn telpunnar, sem gaf sig fram sem eiganda, verið skrif- að upp og henni sagt, „að hún gæti komið niður á stöð og náð í boltann sinn þangað". Bréfritari sagði, að telp- unni hafi orðið svo mikið um þetta, að hún hefði lagt á flótta og komið hágrátandi heim. Bréfritari minnir á að börn séu alltaf börn, koma verði fram við þau sem slík. Þau verði að geta litið á lögregluna sem verndara. Hafi þau brotið af sér verðus að gera þeim það skiljanlegt á nærfærinn hátt. Að lokum óskar bréfritarf eftir því að boltanum verði skilað, því litla stúlkan muni ekki hætta. sér á „stöðina“ til þess að vitja hans. Kópavogur Stúlka óskast til afgreiðslustarfa hálfan daginn frá kl. 1. Upplýsingar gefnar í verzluninni kl. 6—7 í dag. Verzlunín Lúna Þinghólsbraut 19. Bezl ú auglýsa í Morgunbl. Afgreiðslustarf Stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax í eina kjötverzlun okkar. Nánari uppl. á skrifstofunni Skúlagötu 20. Sláturfélag Suðurlands HIIPPDRIEtll SÍBS Dregið á föstudag Athugið að umboðin eru lokuð á fimmtudag EnDURflVJUfl IVflUR n hAdeci DnniinnDncs!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.