Morgunblaðið - 03.05.1967, Side 16

Morgunblaðið - 03.05.1967, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 1967. L Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingar: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: í lausasölu kr. Áskriftargjald kr. 105.00 Hf. Árvakur, Reykjavík. .Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Þorbjörn Guðmundsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. 7.00 eintakið. á mánuði innanlands. MENNINGARRÍKI L 17. Landsfundi Sjálfstæð- isflökikisins var samþykkt að vísa til miðstjórnar flokks- ins sérstakri ályktun um menningarmál, sem Mbl. birti í heild sl. fimmtudag, en þar eru sett fram í 11 lið- um aitriði, sem Landsfundur- inn telur úrbóta þörf á. Það er grundvallaratriði í þeirri stefnuyfirlýsingu Landsfundarins um menning- armál, sem í þessari ályktun fellst, að hvers kionar stuðn- ingur við bókmenntir og list- ir verði enn aukinn frá þvá sem nú er og þess sé gætt að sá srtuðningur verði til þess fallinn að efla frjálsa list- sköpun og listtúlkun í land- inu. Er þetta þáttur í megin- stefnu Sjálfstæðisflokksins og markmiðum. Veigamikið atriði í menn- ingarmálaályktuninni er á- bending um nauðsyn bættrar aðstöðu til íslenzkrar bóka- gerðar, en bókaútgáfa hér á landi á í ýmsum efnum í vök að verjast. í því sam- bandi er bent á afnám tolla á efni og vélum til bókagerð- ar og bókum með íslenzkum texta. Ennfremur er bent á þá leið til eflingar innlendri bókaútgáfu, að almennings- bókasöfn í landinu kaupi hið minnsta eitt eintak af hverri nýútkominni bók íslenzks höfundar. Á sviði leiklistar er bent á nauðsyn þess að lögum um Þjóðleilkhús verði breytt á þann veg, að Þjóðleikhúsráð verði kosið til ákveðins tíma, t.d. fjögurra ára í senn, og valdsvið þess tekið til endur- skoðunar. Ennfremur er sett fram sú hugmynd, að komið verði á fót leiiklistanskóla á vegum ríkisins og er til þess setlast að hann verði fram- haldsskóli, sem taki við nem- endum leikskóla Þjóðleik- hússins og Leilkfélags Reykja víkur. Á tónlistarsviðinu er í fyrsta lagi lagt ti'l að Sinfóníu hljómsveit íslands verði gerð að sjálfstæðri stofnun með eigin stjóm, og í öðru lagi að kannaðir verði möguleikar á aðild íslands að kynningar- miðstöðvum, sem starfa víða um lönd til útbreiðslu er- lendra tónverka. í ályktun þessari er lögð áherzla á að reist verði svo fljótt sem unnt er veglegt hús fyrir Listasafn ríkisins og jafnframt verði stutt að efl- ingu listasafna úti um land með því m.a. að Listasafn rík- isins leggi þeim til að láni eða gjöf ýmis myndilistar- verk í samráði við Listráð og að tiilhlutun þess. Lagt er til að gangskör verði gerð að því að helztu sögustaðir landsins verði frið aðir og auðkenndir þannig, að almenningur geti fræðst um sögu þeirra og áhrif á ör- lög og menningu þjóðarinn- ar. Stefnt er að því að lög um Menningarsjóð og Mennta- málaráð verði tekin til end- urskoðunar með það fyrir augum að auka megi stuðn- ing við vísindi, bókmenntir og listir. Sérstök áherzla er lögð á athugun á því hvernig efla megi kynningu íslenzkra lista, innanlands og utan og einnig sérstaMega um styrki til að þýða íslenzkar bók- menntir á erlend mál og kynna þær erlendis. Jafn- framt beri að auka ferða- og vinnustyrki til listamanna og fræðimanna. Loks er lagt til að ráðstaf- anir verði gerðar til þess að búa í 'haginn fyrir íslenzka kvikmyndagerð. Með ályktun þessari hefur Sjálfstæðisflökburinn sýnt að hann hefur lifandi áhuga á eflingu og útbreiðslu ís- lenzkra lista og menningar. Nauðsynlegt er að stórauha fjárframlög ríkis til menn- ingarmála á næstu árum. Sú fjárfesting skilar góðum arði og stuðlar að því að halda hér uppi fyrirmyndar menn ingarríki. ASHKENAZY CJovézki píanóleikarinn ^ Vladimir Ashkenazy er íslendingum að góðu kunnur. Hann er kvæntur ágætri ungri islenzkri listakonu og hefur margoft komið hingað til lands, m.a. til hljómleika- halds. Hann er nú staddur hér á landi í slíkri heimsókn. Það er mikið efamál, hvort fslendingar hafa fyllilega gert sér grein fyrir þeirri vin áttu og hlýhug, sem þessi mikiihæfi listamaður sýnir landi. Vladimir Ashkenazy er ar með tíðum heimsóknum og hljómleikahaldi hér á landi. Vladimir Ashknazy er nú talinn einn fremsti, ef ekki fremsti, píanóleikari yngri kynslóðarinnar í heim- inum í dag. Hann er í hópi örtfárra beztu píanóleikara veraldar. Fyrir slíkum mönn um standa allar dyr opnar. Þeir eru eftirsóttir meðal stór þjóða um heim allan. Það sýnir mi'kla hógværð og sérstakan vinarhug í garð íslenzku þjóðarinnar, að Slíkur listamaður í fremstu röð skuli ítrekað koma til smáþjóðar á borð við íslend- inga til h'ljómleikahalds og ferðast í sama skyni til fá- UTAN ÚR HEIMI Vladimir Komarov með konu sinui og dóttur. Myndin var tekin skömmu fyrir dauða geimfarans. Sovézka geimferðaslysið seink- ar geimferðaáætlunum Rússa EINHVER mestu tíðindi sl. viku utan úr heimi voru vafa laust hið hörmulega slys, er sovézki geimfarinn Vladimir Komarov fórst með geimfari sínu, Soyuz I. Slysið kom sem reiðarslag, því áður hafði verið tilkynnt, að allt hefði gengið að óskum með för geimfarans. Afleiðingar þessa slyss eru að sjálfsögðu ófyrirsjáanlegar, en liklegt má telja, að slysið verði til þess að seinka öllum frekari áætlunum sovézkra visinda- manna á svið geimferða. Vladimir Komarov var þekktur sem þögull og stutt- orður maður, sem hafði að baki sér afar mikla reynslu varðandi flugferðir, en hann var aðeins 15 ára gamall, er hann fynst sat við stýrisvöl- inn á flugi. Hann var fyrsti sovézki geimfarinn til þess að fara tvisvar sinnum í geimferð. Smávægilegur hjartasjúkdómur hafði hins vegar næstum komið í veg fyrir það, að hann færi nokkru sinni 1 geimferð. Varð það 18 mánuðum áður en hann lagði upp í fyrri geimferð sína, sem farin var í október 1964. Læknar töldu þá, að hjartsláttur hans væri oi óreglulegur og skipuðu honum að taka sér algera hvíld í sex mánuðL Yfirmönnum hans á sviði geimferða þótti þetta of lang ur tímL sem myndi falla nið- ur, en Komarov taldi þá á að gefa sér annað tækifæri. Vladimir Komarov var fæddur 16. marz 1927 í Moskvu. Hann innritaðist í sérstakan skóla flughersins vorið 1942, þá 15 ára gamall, en þá var styrjöldin við Þjóð verja 1 algleymingi. Eftir styrjöldina varði hann fimm árum við nám í Shukovsky- háskólann, sem er tæknihá- skóli, er sovézki flugherinn starfrækir. Komarov var kvæntur og átti tvö börn, 15 ára gamlan son og 9 ára gamla dóttur með konu sinni Valentinu. Hann var mjög áhugasamur um sínum í það að lesa bæk- um allt varðandi geimferðir og varði miklu af frístund- ur um það efni. Hann mat hins vegar fjölskyldu sína mjög mikils og kunni ekki hvað sízt bezt við sig í nær- veru konu og barna. Dauða Komarovs ber að í fyrstu geimferð, sem Sovét- ríkin framkvæma á rúmlega tveimur árum og almennt er talið, að slysið muni verða til þess að seinka geimferða- áætlunum Sovétríkjanna um nokkurn tíma, að minnsta kosti fleiri mánuði. Geimfar Komarovs, Soyuz I., er talið vera þyngsta geim farið, sem sovézkir vísinda- menn hafa nokkru sinni skot ið á loft með manni innan- borðs. Gert er ráð fyrir, að geimferðin nú hafi verið framkvæmd í reynsluskyni fyrir enn umfangsmeiri til- raun og að margir aðrir geim farar myndu fara á loft á eftir Komarov. Var jafnvel tailið, að níu sovézkum geim- förum yrði skotið upp hverju á eftir öðrum og yrði maður í þeim öllum. En eftir það, sem gerzt hef ur, er vafasamt, jafnvel þó að fleiri geimskot hafi verið ráðgerð, að þau verði fram- kvæmd, fyrr en vísinda- menn hafi komizt fullkom- lega til botns í hvað það var, sem slysinu olli. Þetta kann að koma í veg fyrir, að sov- ézkir vísindamenn hætti á fleiri geimskot á þessu ári. Apollo-slysið í Bandaríkj- unum í janúar sl., er þrír geimfarar biðu bana, hefur orðið til þess að seinka áætl- unum Bandaríkjamanna um að senda mannað geimfar til tunglsins og ekki er ólíklegt, að slyisið nú, hafi sömu af- ieiðingar í för með sér í Sov- étríkjunum. Þetta er í annað sinn, sem mannað geimfar Sovét- manna verður fyrir óhappi í lendingu. Síðast er mönnuðu sovézku geimfari var skotið á loft, sem átti sér stað fyrir tveimur árum, biluðu lend- ingartæki geimfarsins, Vosk- hod-2, en í því voru tveir geimfarar. Annar þeirra, Pavel Bel- ayev tók þá sjálfur að sér stjórn geimfarsins og lenti því með lagni í furuskógi nærri 1250 mílur frá hinum upprunalega fyrirhugaða lendingarstað. mennra staða úti úm Tandið. íslendingar þakka yiadimir Ashikenazy þann sérstaka vin áttuvott, sem hanin sýnir þeim með þessu. Með komum sínum hingað hefur hann auðgað menningarlíf þessar- ar fámennu og að mörgu leyti einangruðu þjóðar. Hann hef ur gefið þegnum smáþjóðar kost á að kynnast þvá bezta í heiminium á þessu sviðL. Hann mun jafnan velkommn til íelands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.