Morgunblaðið - 03.05.1967, Page 17

Morgunblaðið - 03.05.1967, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR S. MAl 1967. 1T Ávarp til íslenzku þjóðarinnar frá þingi Æskulýðssambands íslands: Ný þjóöhátíð — Breyttur þjðöbúningur FULLTRÚAR landssamta'ka æskunnar á sameiginlegum vettvangi þeirra, þingi Æskulýðssambands íslands, vekja athygli íslenzku þjúðariinnar á því að í heimi síminnkandi fjarlægða, aukinmar samvinnu og heiilavænlegrar sam- ihjálpar eiga sérkenni þjóða stöðugt erfiðara uppdráttar, sé ekki að gætt og á móti spyrnt. Ísland hefur nú í rúman aldarfjórðung verið í alfaraleið og eimangrun þjóðarinnar er liðin tíð. Bendir þróun undan- farinna ára ákveðið tii þess að samstarf þjóðanna muni etóraukast á komandi árum. Þessari þróun fagna fulltrúar landssamtaka æslkunnar og hvetja ákveðið til auikinnar þátttoku íalands í aliþjóðlegri samvinnu og samhj'álp þjóð- anna. Samhliða því er hvatt til eflingar þjóðarvitundar og varðveizlu þjóðlegra sérkenna, eða aðlögunar sem sem svo á við. □ □ Á þessari stund skai minnst á tvö atriði: í fyrsta lagi að íslenzkt þjóðhátíðarthald hefur ekki þá reisn né þann þokka, sem vera skyldi. í öðru lagi að íslenzki þjóðbúningurinn er að hverfa af •jónarsviðinu og mun innan fánra ára, ef ekki verður að góð, verða látið annað en safn- og kistugripur. Fulltrúar íslenaku æskulýðssamtakanna hvetja þjóðhátíðarnefndir til að vanda undirhúning þjóð- hátíðanhaldsins og þær stefni jafnframt að því að þjóð- bátíðin verði fjöibreytt, þannig að hún beri ekki sama svip árum saman. hvetja almenning til að leggja sitt af mörkum á komandi árurn, þannig að Menzk þjóðhátíð megi verða þáttur í að efla heilbrigða þjóðenriskennd og verða lands- mönnum til sannrar ánægju. tovetja konur, yngri sem eldri, sem þess eiga kost, að bera íslenzka þjóðbúninginn, þegar við á, þannig að hann megi fremur verða einkenni þjóðhátíðardagsins, en margt það annað, sem undanfarið hefur sett svip sinn á hátíðahöldin. Fuiltrúar íslenzku æskulýðssamtakanna á sameigihleg- um vettvangi þeirra, þingi ÆSÍ samþykkja. að Æ9Í stofni þjóðhátíðanefnd ungs fólks, sem setji fram hugmyndir um NÝJA ÞJÓÐHÁTÍÐ fyrir aldar- fjórðungsafmæli lýðveldisins 1969, og verði nefndinni aetlað að móta blæ þjóðhátíðarhalda í framtíðinni. að í sumar leiti ÆSÍ tifl. nokkurra álkveðinna samtaka og stafnana um að skipa fulltrúa í dómnefnd fyrir landssamkeppni á vegum Æskulýðssambandsins, þar sem leitað verði eftir hugmyndum um nýjan íslenzk- an þjóðbúning við hæfi nútímalkonunnar. Verði með því hindrað að íslenzkur þjóðbúningur kvenna hverfi af sjónarsviðinu og verði eingöngu safngripur. — Söguleg akvörðun Framhald af bls. 1 flokksins, og Jeremy Thorpe, leiðtogi Frjálslynda flokksins, tóku til máls að lokinni yfirlýs- ingu Wilsons, og fögnuðu á- kvörðun stjórnarinnar. Hinsvegar voru ekki allir flolkksbræður Wilsons á einu máli um aðild Breta að EBE, og lýsbu tveir þingmenn Verkamannaflokksins, þeir Michael Foot og Emanuel Shinwell, yfir eindreginni and- stöðu við ákvörðun stjórnarinn- ar. Kvaðst Shinwell ætla að berjast ötullega gegn áðild. Michael Foot spurði forsætisráð herrann hversvegna hann héldi að Frakkar væru fúsari til að ▼eita Bretum aðild að banda- laginu nú en fyrir fjórum árum. Svaraði Wilson því til að það væri ekki sitt mál að meta hver ▼iðbrögð Frakka yrðu, en hins- vegar kæmi elkki til greina að Bretar lítillækkuðu sig á neinn hátt til að gerast aðilar. í Briissel voru í dag fundir ráðherranefndar Efnaihagsbanda lagsins, og var þar skýrt frá á- kvörðun brezku stjórnarinnar. Ekki var málið tekið til umræðu, en ráðherrarnir ræddu allir við fréttamenn að fundi loknum, nema Maurice Couve de Murville utanríkisráðherra Frakklands, sem ekkert vildi til málanna leggja á þessu stigi. Joseph Luns, utanrfkisráðherra Hollands, kvaðst álíta að Wilson hefði valið heppilegan tíma til að taka þessa mikilvægu álkvörð un. Pierre Harmel, utanríkisráð- herra Belgíu, sagði að ákvörð- un Breta væri einn ánægjuleg- asti atburður, er gerzt hetfði í Evrópu í mörg ár. Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur Þýzka- lands, sagði i Bonn að hugsan- leg aðild Breta að EBE skapaði ný tækifæri til einingar Evrópu °g tryggði aðstöðu álfunnar gagn vart stórveldunum tveimur í austri og vestri. Taldi ráðherr- ann sennilegt að Danmörk og írland fylgdu í kjölfar Bretlands og ósfcuðu eftir aðild að Efria- hagsbandalaginu á næstunni, en að önnur ríki Fríverzlunarbanda- lagsins bíði átekta. í Briissel er talið að ■ umsókn Jan Eric Skappel, fulltrúi Norðurlanda í alþjóðastjórn Lions-hreyfingarinnar, kom hingað til lands fyrir siðustu helgi og sat ársþing Lions-hreyfingarinnar hér sl. sunnudag. Skappel hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum innan Lions-samtakanna og verið sæmdur nokkrum heiðursverð- launum þeirra. Á meðan hanndvaldist hér heimsótti hann m. a. Geir Hallgrímsson borgarstjóra, í fylgd stjórnar íslenzku Lions-hreyfingarinnar. Mynd þessi var tekin við það tækifæri. Talið frá vinstri: Hjörtur Hjartarson, Einvarður Halivarðssou, Jan Eric Skappel, Geir Hailgrímsson og Benedikt Antonsson. umdæmisstjórL Úperan flytur Ástardrykkinn ettir Donizetti. Áskrifendasýningar fang merkt óperan, í pósthólf 412. síðari hluta maí EENS og kunnugt er stofnuðu nýlega nokkrir þekktir söngvar- ar hér í borg óperuflokk, sem hefur hlotið heitið „Óperan" og hófu þegar undirbúning að sýn- ingum á óperum eftir Haydn, Offenbach, Donizetti og Carl Or£L Óperan mun hefja starfsemi sína seinni hluta þessa mánaðar og tekur þá til flutnings óper- una „Ástardrykkurmn“ eftir Donizetti og verða einsöngvarar Hanna Bjarnadóttir, Eygló Vikt- orsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Kristinn Hallsson og Magnús Jónsson. Stjórnandi verður Ragnar Björnsson en Guðrún Kristinsdóttir og Ólafur Vignir Albertsson munu leika hljóm- sveitarhlutverkið á tvö píanó. Framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn Gunnar Egilsson, klarin- ettleikari I Sinfóníuhljómsveit íslands. Munu aðeins verða fáar sýningar að þessu sinni, því sýn- ingum verður hætt um miðjan júní, en teknar upp aftur á n.k. hausti, ásamt nýjum viðfangsefn um. Ákveðið hefur verið að gefa þeim sem vilja gerast áskrifendur að sýningum óperunnar, kost á að skrifa nöfn sín á lista, sem liggja munu frammi í Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar og Bókaverzlun Lárusar Blöndal, eða senda nafn sitt og heimilis- Fyrir áskrifendur mun hver miði kosta kr. 170.00. Fyrirkomu lag áskrifendasýninganna verð- ur þannig í framkvæmd, að dregið verður um á hvaða sýn,- ingu áskrifendur fá sína miða og mun röðin breytast við hverja nýja sýningu, þannig að þeir, sem síðast fengu miða á sýn- ingu nr. 1 hljóta sýningu nr. 2 við næstu frumsýningu o.s.frv. Ef áskrifandi getur ekki mætt á sýningu sem honum er ætluð, verður reynt að breyta miða hans yfir á aðra sýningu. Sýningarnar munu fara fram í Tjarnarbæ og hefjast seinni Muta maí eins og fyrr segir og er því nauðsynlegt að áskriftir hafi borizt fyrir 13. maí n.k. Breta verði vart tekin til af- greiðslu á „toppfundi" banda- lagsins í Róm í lok þessa mánað- ar. Rannsókn á öllum aðstæðum tekur langan tíma, og Frakkar munu vilja kynna sér náið óskir Breta um undanþágur fár áikvörð unuim Rómarsamningsins í upp- hafi væntanlegrar aðildar, Jacques Verdoux, formaður utan ríkisnefndar franska þingsins, sagði í dag í þessu sambandi að Frakkar vildu gjarnan bjóða Breta velikomna í EBE. „Allt veltur á því hve mikilla breyt- inga Bretar óska á sumum grein um Rómarsáttmálans. Séu þær óskir lítilfjörlegar, munu Frakk ar vafalaust sýna skilning og vinna að sameiginlegum hags- munum ríkjanna“, sagði Verdoux „En ef hinsvegar Bretar hyggjast breyta grundvallaratriðum Róm- arsamningsins munu Frakkar sfcora á hin aðildarríkin að standa einhuga vörð um samn- inginn“. 1 frétt frá Kaupmannahöfn segir að Danir muni hefja samn inga um aðild að EBE um leið og Bretar. Kemur þetta fram í yfirlýsingu er Jens Otto Krag forsætisráðherra gaf að loknum fundi með utanríkisnefndinni í kvöld. Forsætisráðherrann kvaðst fagna ákvörðun Wilsons og brezku stjórnarinnar, og lýsti því yfir að hann mundi á rnorg- un ræða við fulltrúa þingflokk- anna og fiá þá til að flýta um- ræðum um markaðsmiál, sem áttu að hefjast 17. maí. Sænslka stjórnin tilkynnti I Stokldhólmi í dag að hún væri reiðubúin til að hefja samninga um einhverskonar aðild Svía að EBE, sem samrýmst geti hlut- leysisstefnu landsins. Segir i til- kynningu stjórnarinnar að hún fagni ákvörðun Breta, og voni að hún beri árangur hið fyrstá. Aðild Breta skapi öðrum ríkjum Fríverzlunarbandalagsins til að hefja samninga við EBE með það fyrir augum að skapa efna- hagslega einingu Evrópu — L maí Framhald af bls. 1 Hsiao-ping, aðalritari kínverska kommúnistaflokksins, Tao-chu varaforsætisráðherra, og nofckrir aðrir háttsettir félagar í komm- únistaflokknum. f séstakri há- tíðaútsendingu sagði kínverska útvarpið að Mao foringi og stuðningsmenn hans, hefðu unn- ið öruggan sigur yfir Liu Shao- ohi forseta, sem hefði aðhyllzt kapítalíska stefnu. Fréttastofan Nýja Kína sagði f enskri útsendingu að hátíðahöld- in í Kína hefðu einkennzt ai ein- lægri ást þjóðarinnar á leiðtoga sínum Mao Tse-Tung og sam- stöðu um menningarbyltinguna. Sovétríkin Hátíðahöldin í Moskvu fóru fram á hefðbundinn hátt. Mikil hersýning var á Rauða torginu, en engar nýjar eldflaugar voru sýndar, enda búizt við mikilli vopnasýningu á 50 ára byltingar- afmælinu í nóvember nk. Andreij Gretsjko, hinn nýi varnarmála- ráðherra Sovétríkjanna, flutti að- alræðu dagsins á Rauða torginu, þar sem hann réðst harkalega á heimsvaldastefnu Bandaríkja- manna. Þá sagði ráðherrann, að afstaða Kínverja hindraði að hægt væri að binda endi á stríð- ið í Vietnam. Við þessi ummæli gengu kínversku sendifulltrúarn- ir burt af hátíðasvæðinu. Allir helztu ráðamenn Sovétríkjanna voru viðstaddir hátíðahöldin. Meðal vopna, gem sýnd voru mátti sjá 6 eldflaugar af sömu gerð og N-Vietnam notar gegn Bandaríkjamönnum. Pólland og Vestur-Þýzkaland Gómúlka, leiðtogi pólskra kommúnista í ræðu sinni harka- lega k hina nýju herforingja- stjóm 1 Grikklandi, svo og á hernaðaraðgerðir Bandaríkja- manna f Vietnam. Eftir ræðu hans réðust uim 300 ungmenni að griska og bandaríska sendiráð- irvu í Varsjá og köstuðu steinum í byggingarniar. Kurt Kiesinger kanslari V- Þýzkalands vísaði í ræðu sinni á bug staðhæfingum ýmsra A- Evrópuþjóða um að V-Þjóðverj- ar sæktu eftir hefnd eftir styrj- aldarósigurinn. Hann sagði að Berlín, sem hann kallaði „út- varðarstöð friðarins" óskaði eftir að vera tengiliður milli Austurs og Vesturs. Önnur lönd Um ein og hálf milljón manna tóku þátt í hátiðahöldunum í Japan um gervallt landið. Þar var eins og í öllum öðrum lönd- um heims krafizt lausnar á Vi- etnamdeilunni. Talsverðar óeirðir urðu í sam- bandi við 1. maí kröfugöngur víðsvegar á Spáni. 18 ára gamall stúdent særðist til ólífs af völd- um skotsárs, er hann hlaut f skothríð lögreglumanna á 300 hópgöngumenn í San Sebastian á N-Spáni. Á Norðurlöndum fóru hátíða- höldin fram með venjulegu sniði, og var mikil þátttaka í hópgöng- um og útifundum. Notvotny, forseti Tékkóslóvak- íu sagði í ræðu í Prag 1. maí, að ef Vestur-Þjóðverjar fengju yfirráð yfir kjarnorkuvopnum, myndu Tékkar gera slíkt hið sama. Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar í Hong Kong, vegna 1. maí og m. a. voru engin banda- rísk herskip í höfninni þar, en þau eru venjulega 6—7, vegna viðhalds og vistatöku og til aS hvíla sjóliða. Engin hátíðahöld voru í tilefni dagsins í Júgóslavíu. Á Kúbu fór Fidel Castro, forsætisráðherra f fararbroddi fyrir 250 þúsund hópgöngumönnum. Aðalræðuna flutti kúbartski hermálaráðherr- ann, og er það í fyrsta skipti síð- an Castro tók við völdum, að hann er ekki aðalræðumaður 1. maí. Talsverðar óeirðir urðu I Amsfcerdam og þurfti lögreglan að beita kylfum. Var hér aðal- lega um að ræða síðhærða unglinga, sem eru á móti korv- ungsfj ölskyldunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.