Morgunblaðið - 03.05.1967, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 03.05.1967, Qupperneq 31
MUKUUNBL.Atílö, MIÖVTKUDAGUR 3. MAI 1967. 31 ' Myndin sýnir glöggt þá miklu ös, sem var í afgreiðslu Sparisjóðs alþýðu fyrsta daginn, sem bann starfaðL (Ljósm. Sv. Þorm.) Tæpar 5 millj. lagðar inn fyrsta daginn EINS og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu tók Sparisjóð- ur alþýðu til starfa sl. laugar- dag, en sparisjóðurinn er til húsa að Skólavörðustíg 16. Var gífurleg ös í afgreiðslu spari- sjóðsins frá því hann var opn- aður á laugardagsmorgun og all an tímann, sem opið var á iaug ardag. Á fyrsta starfsdegi Sparisjóðs alþýðu voru stofnaðir við sjóð- inn urn þrjú hundruð reikning- ar. Innlegg í sjóðinn á þessum degi námu alls tæpum milljónum króna. fimm Frá réffarhöldunum í máli skipsfjórans: Lofaði áfengi ef Minni ös var í afgreiðslu Sparisjóðs alþýðu í gær, er blaðið hafði samband við spari- sjóðsstjórann, Jón Hallsson. Utgerðin telur seinni töku Brands ólögmæta Skiptar skoðanir um málið EIGENDUR brezka togarans Brandurs GY 11, Deepsea Fish- eries Ltd, segjast munu fara fram á við brezku ríkisstjórnina að hún „mótmæli harðlega" eins og það er orðað. Mótmælin fel- ast í þvi að togarinn hafi verið tekinn á úthafinu. Talsmaður útgerðarinnar sagði að íslendingar hefðu eng an rétt á að skipta sér af brezku skipi utan landhelgi, jafnvel ekki þótt tveir lögregluþjónar væru um borð í togaranum. „Við munum fara fram á hörðustu aðgerðir, sem unnt er að hafa í framrni" sagði tals- maðurinn. Fréttirnar af stroki Brands hafa verið forsíðufrétt- ir brezka blaða m.a. í London Evening Standad. Um svipað leyti og togarinn Brandur var tekinn annað sinni var rússneskur togari staðinn að mentum ólöglegum veiðum við Hjaltlandseyjar. Var hann flutt ur til hafnar í Lerwick. Reginald Paget, þingmaður fyrir brezka verkamannaflokk- inn reyndi á mánudag að vekja máls á Brandsmálinu og að fá dagskrá neðri málstofunnar breytt vegna þessa máls. Forseti deildarinnar, Horace King sagði að þessi viðburður þyrfti ekki slíkrar meðferðar við, að breyta þyrfti dagskrá málstofunnar. Mbl. hafði í gær tal af Páli Aðalsteinssyni í Grimsby og sagði hann að brezkir útgerðar- menn í Grimsby væru leiðir yf- ir þessu máli, og teldu, að ef málinu hefði verið lokið á föstu dag, hefði þetta aldrei komið fyrir. Hann sagði, að hægt hefði verið að kveða upp dóm, því að alltaf hefði verið unnt að áfrýja honum, og þannig hægt að komast hjá þessu leiðinda- máli. Slík mál hefðu vanalega fengið afgreiðslu á tveimur dög um. — Útgerðin hefur ekki mót- mælt þessari handtöku, eins og komið hefur fram á nokkrum stöðum, en á hinn bóginn hef- ur hún mótmælt því að skipið skyldi ekki losað, þar eð hún hafði boðizt til að setja trygg- ingu til þess að skipið losnaði. Hægt hefði verið að dæma í málinu á eftir. Vegna mótmæla útgerðar Brands GY-11 í Grimsby, að ísl. varðskipi hafi verið óheimilt að taka togarann fyrir utan ís- lenzka lögsögu, sneri Mbl. sér til hæstaréttarlögmanns eins hér í bæ, og spurði hann álits á þessu atriði. — Eftir að hafa velt málinu fyrir mér í skjótheitum, sagði hann, finnst mér þetta nokk- uð hæpin fullyrðing. Togarinn var staðinn- að ólöglegum veið- um hér í íslenzkri lögsögu, og hann strýkur á brott áður en rannsókn málsins er lokið. — Togarinn er hér í .Reykja- vík settur undir gæzlu löggildra gæzlumanna, sem gat ekki farið fram hjá skipstjóranum. Þeim var haldið nauðugum í læstum klefa til að þeir geti ekki gegnt skyldu sinni. Og á meðan fyr- irskipar skipstjórinn, að siglt skuli út úr íslenzkri höfn, með falsað nafn og númer, og án siglingarljósa, sem hvort tveggja er brot á alþjóðalögum og gert til þess að blekkja íslenzka strandgæzlu. Við verðum þvi að ætla að íslenzkt varðskip hafi fulla heimild til að sækja lög- gæzlumennina um borð í togar- ann, hvar sem hann er staddur út á reginhafi, og færa togar- ann aftur til hafnar, þaðan sem hann hafði strokið ólöglega, til að ljúka rannsókn á máli skip- stjórans. RÉTTARHÖLD út af stroki brezka togarans Brands hófust klukkan 13 í gærdag. Fyrstur kom fyrir réttinn Bjarki Elías- son yfirlögregluþjónn, sem lagði fram skýrslur þeirra Þor- kels Pálssonar og Hilmars Þor- bjömssonar, lögregluþjónanna tveggja sem voru um borð í togaranum. Gunnar H. Ólafsson, skipherra á Sif skýrði í stuttu máli frá tilraunum til að stöðva togarann. Þá voru þéir Þorkell og Hilm- ar yfirheyrðir og eru viðtöl við þá annars staðar í blaðinu. Þess má geta hér að þegar lögreglu- þjónarnir brutustu út úr klefa skipstjórans og skipuðu honum að snúa við, hélt hann því fram að eldur væri í lestum skipsins og yrði hann því að fara með það út á sjó. Hann neitaði að þiggja hjálp slökkviliðs úr landi og kvaðst heldur ekki geta stopp að á ytri höfninni því þá myndi hann stofna fjórum herskipum NATO sem lágu þar í hættu Þorkell spurði Ármann Krist- insson, sakadómara, hvort sér væri heimilt að leggja fram skaðabótakröfu vegna áverka sem hann kvaðst hafa hlotið um borð. Þórarinn Björnsson, skip- herra á Óðni gerði grein fyrir töku togarans og Jón Wium, stýrimaður, sem fór um borð ásamt fleiri varðskipsmönnum, greindi frá því að hann hefði þá verið vopnaður tveimur og hefði látið lögregluþjónana fá aðra þeirra. Loftskeytamaður togarans var kallaður fyrir og kvaðst hann hafa verið sofandi og ekkert vitað um þá ákvörð- un skipstjórans, að strjúka. Hann kveðst ekki hafa vakn- að þegar Hilmar og Þorkell brutust út úr klefa skipstjórans, og aðeins einu sinni haft sam- band við skip áður en Óðinn náði þeim. Það var að beiðni Newtons, en bróðir hans var skipstjóri á því skipi. Bátsmað- ur togarans kvaðst hafa verið klefanum með lögregluþjónun- um, og fylgt þeim eftir þegar þeir brutust út. Hann heyrði eitthvað minnst á eld í vélar- rúmi, sagði hann. Hann kvaðst hafa vitað um flóttatilraunina frá upphafi og heyrt að skip- stjórinn hefði lofað viðbótar brennivínsskammti ef allt gengi vel. Hann gat þess að þeir hefðu fengið ströng fyrirmæli um að leggja ekki hendur á lög- regluþjónana. Tveir hásetar voru næst kallaðir fyrir. Ann- ar þeirra kvaðst ekkert hafa vit að um flóttann, en hinn kvaðst hafa fylgst með öllu saman og verið lengst af í brúnni. Hann hafði heyrt talað um eld í vél- arrúmi. Fleiri voru ekki teknir til yfirhejrrzlu. Ármann Krist- insson, sakadómari, sagði við Morgunblaðið að réttarhöldun- um yrði ekki haldið áfram fyrr en eftir hádegi í dag. Saksókn- ari hefði fengið málsskjölin frá því í gær til meðferðar, Þegar liggur fyrir kæra á hendur skip stjóranum fyrir ólöglegar veiðar innan landhelgi en í dag verð- ur honum líklega birt framhald3 ákæra vegna flóttatilraunarinn- ar og hann síðan yfirheyrður. Prentaraverkfall í Fserey|una — og ókennilegur undirgangur í sjó PRENTARAR í Færeyjum hafa lagt niður vinnu og mörg dag- blöð munu ekki koma út með- an á verkfallinu stendur. Þó má vera að út komi „14. septem- ber“ og „Dimmalætting" sem hafa í sinni þjónustu nokkra ó- félagsbunda prentara. Krefjast prentarar 17% launahækkunar, en vinnuveitendur vilja ekki gangast inn á meiri hækkun en sem nemur 9.3%. Vikulaun fær eyskra prentara eru nú 420 krón ur (ísl. kr. 2.600.00). íbúar í V&g á Suðurey hafa ekki haft svefnfrið undanfarnar þrjár vikur vegna ókennilegs hávaða og undirgangs í sjó út af eyjunni, sunnudágskvöld og fram á mánudagsmorgun gekk svo mikið á að rúður titruðu og dyr hrukku opnar. Sérfræðing- ar telja að hér geti tæpast ver- að um jarðhræringar að ræða, því Færeyjar séu utan þess svæðis á hafsbotninum sem vanda á til slíks og þar er ekki talið að séu líkur á grjóthruni eða sigli á hafsbotninum. Ekki er þarna heldur að sjá reyk eða hraunrennsli og því tæpast von á að þarna rísi færeysk Surts- ey, en V&g-búum er hætt að standa á sama um ósköpin. Bankarán í Svíþjóð Ránsfengur 8,3 millónir ísl. króna Stokkhólmi, 2. maí (NTB) Skrif- stofa útibús „Skandinaviska Banken“ í Tumba, skammt frá Stokkhólmi, var rænd um helg- ina og höfðu ránsmenn á brott Hulltogari rakst á ísjaka — Tveir nýir Framhald af bls. 32. fallskosningu af Alþingi: Sveinn Benediktsson, formaður, Jóhann G. Möller, varaformaður, Sig- urður Ágústsson, ritari, Eysteinn Jónsson og Þóroddur Guðmunds- son. Stjórn Síldarverksmiðja rik- isins er kjörin til þriggja ára í senn og rennur kjörtímabil nú- verandi stjórnar út við lok þessa árs. Akureyri, 1. mai: — Hulltog- arinn Loch Doon OONH 101 rakst á ísjaka á Skagagrunni seint í gærkvöld með þeim af- leiðingum, að 20 hnoð á bak- borðskinnungi neðan sjólínu slitnuðu og plötur beygluðust. Þegar í stað kom svo mikill leki að skipinu, að dælur þess höfðu ekki undan svo að það hélt taf- arlaust til Akureyrar og kom hingað kl. 9 í morgun. Var neta- lestin þá full af sjó. Brunaverðir fóru strax um borð í togarann með þrjár dælur, sem samtals dældu rúmlega 1000 lítrum á mínútu, en þær gerðu ekki betur en að hafa við lekan- um. Voru þá fengnir til frosk- menn, er strengdu nautshúð utan á skipshliðina yfir skemmdinni og fór þá sjórinn smálækkandi í skipinu. Ætlunin er að gera við togar- ann hér til bráðabirgða. Sv. P. Akureyri, 2. maí: — 1 kvöld var togaranum Loch Doon siglt upp í fjöru og hann látinn stinga stefni við land til að auðvelda viðgerð. Sv. P. með sér í reiðufé og öðru verð mæti sem næst einni milljón sænskra króna, eða jafnvirði 8,3 milljóna íslenzkra. Þjófarnir brutu sér leið inn bankann úr aðliggjandi íbúð úti bússtjórans, en hann var ekki bænum yfir helgina. Höfðu þeir haka að vopni og eggjárn ýmis og virðist hafa gengið sæmilega greiðlega að brjóta upp dyrnar að bankanum. Inn komnir tóku þeir fyrst úr peningakassanum 120 krónur sænskar en síðan jafnvirði þrjátíu þúsund sænskra króna í erlendum gjaldeyri. Að svo búnu gripu þeir haka sína og brutu upp um 500 af geymslu- hólfum bankans, þar sem geym voru ýmis verðmæti bæjarbúa, bæði reiðufé, hlutabréf, skulda bréf, skartgripir, silfur — og bréf, skuldabréf, silfur- og gull- munir og annað eftir þvl. Er leið að kvöldi þriðjudags var lögreglan enn jafnnær um ránið. — Frumprent Framhald af blaðsíðu 10. blaðsins frá árinu 1925, en þá byrjaði hún að koma út, til árs- ins 1962 seld. Er lesbókin bund- in í samstætt skinnband og er vel með farin og hrein. Þá verð- ur boðin upp Árbók Ferðafélags fslands, verkið allt frumprentað og í skinnbandi. Ennfremur verður seld öll árbók Fornleifa- félagsins og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Er hér um að ræða frumprent þeirrar bókar, en það er fáséð. Alls verða 115 númer á bóka- uppboðinu í dag, og auk áður- talinna bóka má nefna frumút- gáfu af Barni náttúrunnar eftir Halldór Kiljan Laxness, en sú bók kom út 1919, í verum eftir Theódór Friðriksson I-II, Hand- bók fyrir hvörn mann, eftir Magnús Stephensen, — bókin er gefin út í Leirárgörðum 1812, íslendingasögur 1-38 gefnar út af Sigurði Kristjánssyni, Um Garðyrkjunnar Nauðsyn og Nyt- semi, eftir Bjarna Arngrímsson og er sú bók gefin út í Kaup- mannahöfn 1820, Almanak Þjóð- vinafélagsins 1875-1966, bundið og með flestum kápum, Óður einyrkjans eftir Stefán frá Hvita dal, tölusett og áritað eintak, Úr landssuðri eftir Jón Helgaso, pró- fessor, fyrsta útgáfa, gefin út 1939. Einnig verða seldir nokkrir fágætir pésar og rit, og má nefna sem dæmi um slíkt blað er nefn- ist Láki. Voru það tvö fræg ís- lenzk skáld er hófu útgáfu þessa blaðs, á skólaárum sínum 1919. Af því komu út aðeins tvö tölu- blöð. Eru þau eintök er seld verða á uppboðinu hrein og vel með farin. - - BADMINTON Framhald af bls. 36 Tvíliðaleikur: Þeir sörau gegn Guðm. Guðjónssyni og Heiðari Ragnarssyni 15:1 og 18:14. Hin mikla þátttaka í yngri flokkum gai mótinu sérstakan svip og nú virðisf badminiton- íþróttin fyrst að vera að grípa verulega um sig og mótin me3 skemmtilegum svip.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.