Morgunblaðið - 06.05.1967, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.05.1967, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1967. 19 Fallegusiu hestar á íslandi fara utan Brúðargjafir Margrétðr kron- prinsessu og Henris prins sigla með Gulllfossi í dag Halldór Gunnarsson situr á Stjörnu, en Pétur Hjálmsson Perlu, þessum úrvals gæðingum, sem í dág fara utan m I Gulifossi til að verða brúðargjafir krón prinsessupars Dana. „VIÐ fáum kannski aldrei eins hross á íslandi", sagði Gunnar Bjarnason klökkur, þegar hann kynnti fyrir blaðamönnum hryssur tvær, gullfallegar, sem afráðið er að íslenzka þjóðin færi Mar- gréti, krónprinsessu Dana og unnusta hennar Henri prins í brúðargjöf, þegar þau ganga í hið heilaga 11. júní n.k. Við erum stödd su'ður á Bessastöðum, þegar Gunnar mælir þessi orð, og við tök- um undir með honum, að þetta eru úrvals gæðingar, þessar tvær hryssur, sem í dag halda með Gullfossi utan á Danaslóð, sem verðugar gjafir þjóðarinnar í norðri. Við spyrjum í fákænsku: Hvers vegna að gefa hryss- ur?“ Gunnar á svarið á taktein- um: „Vegna þess, að aðallinn vill ríða heilum hrossum. Er- lendir höfðingjar kaupa hryss- ur, kaupa helzt ekki geld- inga, eða a.m.k. borga þá mun lægra verði. Ásgeir, forseti vor, sem sjálfsagt er alinn upp við hestamennsku, eins og vel flestir íslendingar fram á þennan dag, sagði, þegar hann sá Sjtörnu þessa fallegu jörpu hryssu frá Sauðérkróki, að þetta væri fallegasti hest- ur, sem hann hefði séð á ís- landi. Og sú jarpa hefur eitthvert frfðasta hesthöfuð á íslandi, með stjörnu í enni, enda er nafn hennar Stjarna. Og þessar brúðkaupsgjafir verða altýgjaðar. Hnakkur og beizli eru gerð af söðlasmiðn- um Þorvaldi Guðjónssyni, en svipurnar af Kjartani Ás- mundssyni allar silfurbúnar". „Segðu okkur nú frá kyni þessa úrvalsgripa". „Já, ég var valinn til að velja þessi hross, en hugmyndina að gjöfinni átti Forseti íslands. Stjarna, sú jarpa, er frá Jóni Jónassyni á Sauðárkróki. Fað ir hennar er Nökkvi frá Hólmi í Skaftafellssýslu, en móðirin leirljós hryssa frá Sauðárkróki af Svaðastaða- ætt, það er sem sagt alveg Vatnajökull á milli kynjanna. Hin, sú hvíta, heitir Perla frá Markholti í Mosfellssveit, eign frú Ólafar Gísladóttur. Faðirinn er einnig Nökkvi, svo að þær eru hálfsystur, en en móðir Perlu er leirljós hryssa frá Hofsstöðum í Skaga firði, og einnig af Svaðastaða kyni. Þær eru 6 vetra báð- ar. Þegar þessi góðhross koma til Danmerkur, mun taka á móti þeim Gunnar Jónsson verkfræðingur, sonur Jóns heitins Benediktssonar tann- læknis. Hann varð svo snort- inn af búskap hér á íslandi, að hann keypti með aðstoð móður sinnar frú Ellenar, smábúgarð við Hilleröd, og er Gunnar sjálfur mikill og góð- ur reiðmaður. Hann mun taka við hryssunum, þjálfa þær og hugsa um þær, þar til þær verða afhentar sem brúð kaupsgjöf. Yfirleitt er siður að tilkynna með fyrirvara, hverjar eru brúðgjafir þessa fyrirfólks, t.d. ætla Norð- menn að gefa hjónunum einn afbragðs bát, siglara mikinn. Það sagði mér bóndakona í Borgarfirði, þegar hún frétti um gjafir þessar, að þetta væri næst því að gefa handrit. Við eigum ekki nema bænda- menningu, og þar urðu hand- ritin til, og næst þeim koma íslenzku gæðingarnir. Mér finnst þessi gjöf þýða óskaplega mikið fyrir íslenzku hrossaræktin.a.“ „Hvernig myndir þú lýsa þessum hrossum, Gunnar?“ „Jú, því er auðsvarað, þetta eru úrvalsgóðir töltarar, þær eru geðljúfar, viljagóðar, hreingengnar. Sú hvíta, Perla, er klárhross með tölti, en sú jarpa, Stjarna, hefur allan gang. Ég myndi segja, að sú hvíta væri betri fyrir útlend- inga en sú jarpa er, það sem íslendingar nefna, úrvals gæðingur. Þarna á Bessastöðum var stödd eigandi Perlu, frú Ólöf Gísladóttir í Markholti. Við snerum okkur til hennar og spurðum, hvernig henni hefði orðið við, að láta þetta hross af hendi? Ólöf svaraði af bragði: „Það er óskaplega sárt, fblaldið var þar á ofan fært mér af manni mínum í sængurgjöf, þegar ég eignaðist Guðrúnu okkar, sem jafngömul er Perlu. Þetta er svo afar viðkvæmt. Af hverju fara þeir ekki eitt- hvað annað að leita? Ég er búin að hafa mikla gleði af Perlu gegnum árin, og Guð- rún okkar hefur tekið sér- stöku ástfóstri við hana. En undir niðri er ég stolt yfir, að hún skyldi verða fyrir valinu“. „Og, þú Pétur Hjálmsson, bóndi Ólafar, þykir þér ekki skarð fyrir skildi?“ „Ekki er annað hægt að segja, en það er þó bót í máli að ég á son undan Perlu. „Og sá á væntanlega væn- legan föður?“, spyrjum við í grandaleysi. „Segja má það“, segja hjón in bæði. „Þetta var ástar- barn, og er ekki altlaf sagt, að þau börn séu fegurst? Fað- irinn var raúðblesóttur fóli frá Ási í Vatnsdal, og þar á ofah eigum við tvö hálfsyst- kini hennar". Og Gunnar Bjarnason bæt- ir við: „Þegar maður hugsar til hrossa, sem ekki eru föl, ekki eru til sölu fyrir nokk- urn pening, þá er eins og verið sé að slíta sálina úr brjóstum manns, eins og börn séu frá manni tekin. Og þannig er með þessar hryss- ur. Og þá má bæta því við, að Ingvi Antonsson bústjóri hér á Bessastöðum, hefur hugsað um hryssurnar að undan- förnu af einskærri alú'ð og natni, þjálfað þær af kunn- áttu og lagni“. Og að svo töluðum orðum Gunnars, yfirgáfum við þessa góðhesta, sem eftir eiga að bera sóma fslands til er- lendra þjóða, og stórhöfð— ingja og sú mun hér raunin á, eins og með gjöf Eiríks frá Brúnum, að sómi íslands lætur ekki á sér standa I þvílíkri brúðargjöf. — Fr. S. Myndin er tekln á lilaðinu á Bessastöðum. Talið frá vinstri: Halldór Gunnarsson, stud theol. heldur í Stjörnu, Stjarna, Pétur. Hjálmsson, búnaðarráðun autur í Markholti, frú Ólöf Gisla dóttir fyrrverandi eigandi Stjörnu, Sigurður Thoroddsen, stud, jur., Stjarna, Ingvi Antons son bústjóri og Gunnar Bjarnason. Veizlukaffi og skyndihappdSræfti - VETTVANGUR Framhald af bls. 14 er um nýbygginar. í haust var tekinn í notkun hjá okkur mynd- arlegur barna- og unglingaskóli; þá tók til starfa í fyrsta sinn landsprófsdeild. Er það til mikils hagræðis fyrir Bolvíkinga. Við komumst í vegasamband við fsafjörð 1949, og þar með var einangrun okkar rofin. Það þyk- ir nú mörgum sá vegur vera hálfgerður tröllavegur, þar sem hann liggur svo að segja utan í fjallinu, en sem betur fer hefur ekki verið mikið um slys á hon- um, utan eitt. Svo höfum við lít- inn flugvöll, sem minni flugvélar geta lent á, en notum annars flugvöllin á fsafirði, og þaðan fáum við daglega póst. — Hafið þið ekki átt í erfið- leikum með höfnina hjá ykkur, — brimbrjótinn? Hvernig miðar því máli? — Jú, höfnin hefur verið okk- ur ákaflega dýr og hefur eigin- lega gleypt mest af fjármagni okkar. Það sorglega var, að því sem unnið var að sumrinu til við brimbrjótinn, skolaði hafaldan burt veturinn á eftir. En nú er loksins búið að „stöðva" þetta og ekkert skemmzt af því sem unnið hefur verið. Og við Bol- víkingar erum bjartsýnir um að fá þessa lífæð okkar fullgerða, nú er sett hafa verið ný hafnar- lög. — Á síðasta ári var undir- búin malbikun á einni aðalgöt- unni hjá okkur, en fjármagn reyndist ekki nóg, þegar höfnin var búin að fá sitt. — Hvað geta stór skip lagzt að bryggju hjá ykkur núna? — Það geta þó nokkuð stór skip bomiB til okkar núna, þang- að hafa komið t. d. Fellin, Árnar og Jöklarnir. — Ríkir eklki bjartsýni meðal Bolvíkinga? — Óhætt er að fullyrða, að við Bolvíkingar erum bjartsýnir og lítum björtum augum til framtíðarinnar og kosninganna. Hnfnarfjörður Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins er í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29. Skrifstofan verð- ur opin frá kl. 9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess að koma þangað og gefa upplýsingar varðandi kosning- arnar. I Sími skrifstofunnar er 50228. KVENNADEILD Borgtfirðinga- félagsins hefur kaffisölu og skyndihappdrætti eins og und- anfarin ár sunnudaginn 7. maí 1 Tjarnarbúð kl. 2:30 til fjár- öflunar starfsemi sinni, sem aðallega er í því fólgin að senda jólagjafir til aldraðra héraðs- búa, sem hér dvelja á elli og hjúkrunarheimilum. Þess má geta að fyrir síðustu jól sendi deildin út 85 jólapakka. Kvenna deildin hefur nú starfað í þrjú ár, og er aðalmarkmið hennar að safna sér í sjóð til líknar- mála, og þegar elliheimilið rís í Borgarfirði mun hún eftir því sem fjárhagur hennar leyfir leggja sinn skerf til þeirra stofn- unar. Margt smátt gerir eitt stórt, og nú heitum við á alla þá sem góðan málstáð vilja styðja, að koma í Tjarnarbúð á sunnu- daginn kemur, drekka gott kaffi með gómsætum kökum og girni- legu brauði og njóta ánægju- stundar í góðum félagsskap.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.