Morgunblaðið - 11.05.1967, Side 24

Morgunblaðið - 11.05.1967, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1967. UNDIR VERND fiimst tilefnið geta afskað þó að hún verði að bíða ofurlítið. — Það væri nú samt vont, ef maturinn skemmdist, sagði Mav is lágt. Davíð sagði, svo sem til sátta 1 málinu: — Jæja, eitt glas af sérríi verðum við að minnsta kosti að fá okkur, og við skulum lofa þér því, Mavis, að verða fljót að drekka það. — Gott og vel, Davíð. Þú drekkur þá glasið þitt með ung- frú Redmond meðan ég fer fram og segi frú Matilamd, að það verði einum fleira til kvöldverð ar. Hón talaði lágt og eins og hlýðin, en Paulu fannst engu að síður þetta líkast því sem hún vaeri að skipa Davíð fyrir. Enn fékk hún þá tilfinningu, að Davið ætti ekki heimilið sjálf- ur. Aðeins svæfi þar og borðaði. Þetta væri heimili Mavis, og væri rekið eftir hennar for- skrift. Þunginn, sem yfir hana hafði komið, jafnvel áður en þau voru komin inn, fór vax- andi. Og Davíð virtist einnig vera eitthvað niðurdreginn. — Vildirðu ekki fara upp og fara úr kápunni? sagði hann heldur en ekki neitt. Hún hristi höfuðið. — Nei, ég skil hana bara eftir hérna í forstofunni. Það er ekki svo langt síðan ég fór að heiman, að ég þarf ekkert að laga mig tiL Hann tók yfirhöfn hennar og hengdi hana, ásamt sinni eigin, í skáp undir stiganum, og fór síðan með hana inn í eetustof- una. Sérríið var þegar komið á borðið, og spegilfögur glös stóðu þar líka. Hann hellti í og rétti Paulu glasið. — Okkar skál, elskan mín! sagði hann. Jp I dag er K AFFIK YNNIN GIN í verzluninni NÓATÚN S F. við Nóatún frá kl. 9—6. O. JOHNSON & KAABER HF. Frá Ítalíu. Peysur, hanzkar, slæður. Glugginn Laugavegi 49. m Þau drukku úr glösunum, og svo kom hann og lagði arminn utan um hana. — Láttu þetta ekki á þig fá, elskan. Það verða dálítil við- brigði fyrir þau hérna — ég á við trúlofunina okkar. Þær bjuggust ekki við þessu, skil- urðu. — Nei, það má sjá, að þetta kemur þeim á óvart, sagði Paula. Hún sagði þeim, en bæði vissu mætavel við hverja var átt. Þegar Mavis kom aftur inn 1 stofuna, sleppti Davíð takinu af Paulu. Hann varð vandræðaleg- ur, næstum skömmustulegur, og aftur fannst Paulu hann vera eins og pörupiltur og Mav- is eins og geðvond móðir. — Það er allt í lagi, sagði Mavis, með brosi, sem var langt frá því að vera eðlilegt. — Frú Maitland hefur nógan mat, sem betur fer. Enda þótt hún náttúr- lega hefði viljað, að þú létir haha vita í tæka tíð. Það er allt- af dálítið óþægilegt að fá gest, svona alveg óviðbúið. — Afsakaðu, tautaði Davíð. Hann gekk að einum stóra giugganum og dró tjöldin fyrir hann, næstum ofsalega. Paula var orðin náföl af reiði. Hvern- ig dirfðist þessi manneskja að tala svona? Hvað var hún annað en þurfamaður á framfæri Dav- íðs? Boí-ðstofan var bakatil i hús- inu, en þar hafði þegar verið dregið fyrir gluggana. Þetta var skemmtileg stofa með góðum húsgögnum, en þó ekki sam- stæðum. En Paulu fannst bara núna, að þarna væri andrúms- loftið óviðkunnanlegt og fjand- samlegt. Davíð sendi stúlkuna í kjall- arann, eftir kampavínsflösku, en í stað þess að lífga upp mál- tíðina, var rétt eins og kampa- vínið gerði hana ennþá dauf- legri. Það var líkast því að vera með pappírshúfu við jarð- arför. Davíð gerði sitt bezta til að byrja með, en varð fljótt að þagna. Mavis, sem virtist vera orðin furðuvel hress aftur, hélt helzt uppi samræðum. Paula átt aði sig ekki á því fyrr en seinna, að orðræðurnar hjá Mavis voru mestmegnis spurningar. Hvar hafði Paula átt heima, áður en hún kom til borgarinn- ar? Nú, já, í Harton, þáð var skemmtilegt. Svo einkennilega vildi tiL að hún þekkti konu, sem átti heima rétt hjá Harton, frú Micklejöhn. Maðurinn henn ar var víst uppgjafamaður úr hernum. Hún hafði hitt þau hjón í Weybridge. Frúin var vist eitthvað lítilsháttar tengd Cooperhjónunum. Þekkti Paula þessi hjón? Já. Paula, sagðist hafa hitt frú Micklejohn. Hún minntist þess, að frúin sú var mikið í góðgjörðastarf- semi, en hundleiðinleg. Og kynnin voru ekki mikil, vegna þess að móður Paulu og frú Micklejohn hafði oftar en einu sinni lent saman út úr ýmisleg- um málefnum þorpsins. Hvar Paula hefði gengið í skóla? Nú, hún hafði gengið í dag skóla! Flestar stúlkur gengu í heimavistarskóla nú á dögum. Einhvern nafnkunnan heima- vistarskóla, vitanlega, eða, eða þá í einhvern framhaldsskóla er lendis. En vitanlega .... ef for- eldrarnir voru fátækir þá .... Mavis tókst að setja upp með- aumkunarsvip. — Það er svo erfitt fyrir stúlku, ef hún hefur ekki fengið almennilega skólagöngu, sagði hún, og Paula hefði getað rekið henni löðrung. Davíð hlaut að hafa látið þetta fram hjá sér fara, annars hefði hann komið henni til hjálpar? En það var eins og hann heyrði ekkert sem sagt var. Hann var með hörkusvip og leit ekki út fyrir að vera sérlega hamingju- samur, og ákafur elskandi, eins og fyrr um kvöldið. Þegar dró að lokum máltíðarinnar, sagði Paula: — Mig langar að fara upp og sjá Faith og Michael. Ég hef al- veg sérstakan áhuga á þeim nú orðið. Og mér fannst þau svo indæl strax þegar ég sá þau fyrst. — Því miður, þá getið þér alls ekki séð þau í kvöld, sagði Mav- is. — Enginn fær að koma inn í barnaherbergið eftir klukkan sjö, jafnvel ekki Davíð, ef hann kemur seint heim. Þér skiljið að ungfrú Wintergreen, fóstran þeirra er afskaplega lærð barn- fóstra. Hún elur börnin upp eft- ir nýjustu vísindalegum aðferð- um. Hún hefur meira að segja háskólapróf frá Oxford. •— Það hlýtur að gleðja börn- in afskaplega, sagði Paula. Hún gat ekki stillt sig um þessa sneið, en sá strax eftir því á eft- ir. Davíð leit á hana, hissa. En hún hélt bara áfram, af því að allt þetta andrúmsloft var farið að fara í taugarnar á henni: — Það er sjálfsagt ágætt fyrir börn að hafa sprenglærða fóstru með þróf frá Oxford, en sjálf vildi ég nú heldur hafa einhverja góð lynda fóstru til þess að ala þau upp undir minni stjórn. — Mér finnst ungfrú Winter- green hafa náð ágætum árangri með Faith og Michael, sagði Mavis kuldalega. — Finnst þér það ekki líka, Davíð? — Jú, jú, sagði hanrv. Loksins var þessari óhugnan-* legu máltið lokið. Mavis fór með Paulu upp i svefnherbergið sitt á eftir. — Það eru greiður og púður á snyrtiborðinu mínu, sagði hún. Paula tók nú fyrst eftir því, að herbergi Mavis var bezta svefnherbergið í húsinu. Stórt herbergi með ágætum húsgögn- um, sem etokert virtist hafa ver i« til sparað. Þetta skal verða herbergið okkar Davíðs, hugsaði hún, en samt var hún eitthvað lin í hnjánum. Hún fékk hjart- slátt og roðnaði. Mavis virtist vera eitthvað að bjástra í hin- um enda herbergisins en nú sneri hún sér snögglega við og sagði: ? — Þér verið að fyrirgefa, að ég varð ekki sem hrifnust fyrst, Einkaritari óskast Stúlka óskast til einkaritarastarfa á aðal- skrifstofum félagsins í Reykjavík frá miðjum júní n.k. Góð ensku- og dönskukunnátta nauðsyn- leg. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif- stofum vorum, sé skilað til skrifstofu starfsmannahalds, Hagatorgi 1, fyrir 20. maí n.k. Ibúð í Hlíðunum 3ja herb. íbúð á fyrstu hæð er til leigu frá 14. maí til 1. okt. og ef til vill lengur. Tiboð merkt: „2022“ sendist afgreiðsu blaðsins. Jarðfræðingur óskast Landsvirkjun óskar eftir að ráða jarð- fræðing eða mann með hliðstæða mennt- un. Námsmaður kemur einnig til greina. Umsækjendur hafi samband við skrif- stofustjóra Landsvirkjunar, er veitir nánari upplýsingar. Landsvirkjun Suðurlandsbraut 14, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.