Morgunblaðið - 18.05.1967, Side 1
'l SÍDUR
54. árg. — 108. tbl.
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Yuri Gagarin:
Sovézkum geim-
ferðum frestað
— meðan Soyuz-slysið verður rannsakað
Moskvu, 17. mai (AP-NTB)
SOVÉZKI geimfarinn Yuri A.
Gagarin, sem fyrstum manna var
skotið út í geiminn í geimskip-
Inu „Vostok-l“ hinn 12. apríl
1961, segir í viðtali í dag við mál
gagn æskulýðsfylkingarinnar í
Moskvu Komsomolskaya Pravða,
að engar tilraunir verði gerðar
með mannaðar geimferðir í Sov-
étríkjunum á næstunni. Verður
öllum tilraunum frestað um
óákveðinn tíma meðan rannsak-
aðar eru ástæður og orsakir
Konstontín
isrSnði
blóðbnði
IAÞENU 17. maí (NTB). •
Konstantín Kolías, forsætisráð-
herra Grikklands, sagði á fundi
tneð fréttamönum í Aþenu í dag
að Konstantín konungur hefði
komið í veg fyrir blóðbað í land
Inu með því að mynda núverandi
ríkisstjóm etftir byltingu hersins
fainn 21. april sl.
„Hann vissi alls ekkert um
Ibyltinigaráiormin. Það get ég
persónulega staðfest, því ég vissi
heldur ekkert um þau“, sagði
Kolías. „Konungurinn hafði um
það að velja að snúast gegn
öfurstunum og valda blóðhaði í
landinu, eða að skipa ríkisstjórn
tog vinna eins og honum var
unnt að hagsmuiium landsins".
Athyglisvert er að ástandið virð
ist eðlilegt í höfuðihorginni nú,
teðeins tæpum mánuði eftir bylt-
inguna. Bandarískir ferðamenn
ffóðra þar dúfurnar, gangstétta-
Veitingasölurnar eru þéttsetnar,
BÖmuleiðis naeturklúbharnir, og
tfáir hermenn sjást á ferli.
Kolías kvaðst sannfærður um
að þjóðin hefði sætt sig við að-
Btæðurnar. Það væri jafnvel svo
komið, að margir vinstrisinnar
hefðu lýst sig ánægða með þró-
Unina.
„Við vorum að falli komnir.
Ef herinn hefði ekki gripið i
taumsana, hefði Grikkland neyðst
til að segja sig úr Atlantshafs-
bandalaginu, það hefði orðið
kommúnískt ríki“, sagði hann.
slyssins hlnn 24. apríl sl. þegar
geimskipið „Soyuz-l“ steyptist
stjórnlaust til jarðar og varð
geimfaranum Vladimir Komarov
að bana.
„Tiilraunir með nýja gerð Soy-
uz-geimskipa verða ekki gerðar
fyrr en rannsókn slyssins er lok-
ið, allar aðstæður kannaðar, og
nýja gerðin reynd í mannlausum
geknferðum“, sagði Gagarin.
„Þetta tekur að sjálfsögðu lang-
an tíma“.
Gagarin neitaði þeim orðrómi
að Komarov hafi fundizt á lífi í
Mið-Asíu eftir að útför hans var
gerð á Rauða torginu í Moskvu
hinn 26. april. Aðrar sögusagnir
henma að Kiomarov haii sézt í
Tékkóslóvakíu.
„Hversu gjarna sean við öll
vildum trúa því að Komarov
væri á lífi, og fá að sjá hann
brosa, verðum við að horfast í
augu við sannileikann“, sagði
Gagarin.
Varðandi síðustu geimferð
Komarovs sagði Gagarin: „Koma
rov vann störf sín afburða vel
alía ferðina. Hann skýrði aldrei
frá neinni bilun á tækjum geim-
skipsins. Sama kemur einnig
fram í þeim upplýsingum, sem
sjótfivirk mælitæki skipsins
sendu til jarðar“.
Þegar „Soyuz-l“ kom inn í
gufuhvolfið á leið til lendingar,
varð sambandslaust við það.
Þetta þótti hinsvegar ekki neins
ills viti, þvi það sama hefur gerzt
í öllum tilraunum Sovétríkjanna
til þessa, sagði Gagarin. Þegar
hér var komið fylgdust radar-
stöðvar á jörðu niðri með ferðum
geimskipsins. Sást þar að skipið
Framhald á bls. 31
Sóldýrkendur í Reykjavik njóta sólarinnar í góðu skjóli fyrir norðan gjóstrinu í Sundlaug Vest-
urbæjar.
Krafa Egypta:
Gæzlulið SÞ hverfi á brott
- svo það verði ekki fyrir ef til hernaðarátaka kemur!
Kaíró og New York, 17. maí I í löndunum fyrir botni Mið-
(AP-NTB) jarðarhafs veðna stöðugra
MIKIÐ hættuástand ríkir nú I árekstra Sýrlands og ísraels.
Stefnir de Gaulle að
Hefur Arabíska sambandslýð
veldið farið þess á leit við U
Thant, að Sameinuðu þjóðirn
ar kalli heim gæzlulið sitt frá
landamærahéruðum ísraels
og Egyptalands svo lið þetta
verði ekki fyrir ef til hernað-
arátaka kemur.
U Thant, framkvæmda-
stjóri SÞ, lýsti því yfir í dag
í New York, að ástandið væri
mjög ískyggilegt, en ef Ara-
bíska sambandslýðveldið
héldi fast við kröfu sína um
brottflutning herliðs SÞ yrðu
samtökin að verða við henni.
Hefur framkvæmdastjórinn
farið fram á frekari útskýr-
ingu á kröfunni og boðað full
trúa þeirra ríkja, sem lánað
hafa hersveitir til gæzluliðs-
ins, á sinn fund í dag.
Yfirvöldin í Egyptalandi og
Jórdaníu tilkynntu í dag að
Framhald á bls. 31
aukaaðild Breta í EBE?
Fundur EBE-ríkjanna 29 maí nk.
París og London, 17. maí NTB
ÞEGAR æðstu menn ríkis-
Btjórna ríkja Efnahagsbandalags
ins koma saman á fund i Róm
seint í þessum mánuði, hefur de
Gaulle Frakklandsforséti í
byggju að gera ákveðna tilraun
í því skyni að fá fundarmenn til
þess að fallast á það sjónarmið,
að Bretland sé ekki nógu langt
á vcg komið til þess að ganga í
bandalag^ð. Var þetta haft eftir
heimildum nákomnum forset-
anum í dag.
De Gaulle forseti er þeirrar
skoðunar, að hin dökka mynd,
sem hann dró upp á þriðjudag
á þá leið, að Bretland sé ekki
enn fært um að gangast undir
þær skyldur, sé niðurstaða, er
æðstu menn rikisstjórna annaTra
ríkja Efnahagsbandalagsins hafi
einnig komizt að, að minnsta
kosti Vestur-Þýzkalands og fta-
líu. En de Gaulle er ekki talinn
hafa neina von um, að honum
muni takast að sanmfæra önnur
ríki innan EBE um, að það sé
tilgangslaust að hefja viðræður
um inngöngu Breta í bandalag-
ið.
Álitið er, að de Gaulle muni á
fundi æðstu manna EBE-ríkjanna
sem hefjast á hinn 29. maí nk„
mælast eindregið til þess, að á
fundinum náist samkomulag um,
að brezka stjórnin verði fengin
til þess að fallast á að ganga að
nýrri tegund aukaaðildar, sem
sérstaklega verði samin með
Bretland fyrir augum og að þetta
muni verða hagkvæmasta lausn
in á þessu máli.
Framhald á bls. 31
Stúdentaóeirð-
ir i Madrid
Madrid, 17. maí (NTB)
STÚDENTAB vi» Madrid-há-
skóla efndu til mótmælaaðgerða
í dag í tilefni þesa að nokkrir
Ieiðtogar þeirra hafa verið hand-
teknir. Tóku stúdentarnir mynd-
ir af Franco hershöfðingja, rifu
þær í tætlur, spýttu á þær og
kveiktu í þeim.
Um 1.500 stúdentar úr félags-
fræðideild skólans komu saman
til mótmælafundar, en að fund-
inum loknum ruddist fjöidi
stúdenta inn í skrifstofu deildar
forsetans, brutu þar rúður, veltu
um húsgögnum og rifu niður
mynd af Fr-anco, sem hékk þar
uppi. Að því loknu héldu stúd-
entarnir til skrifstofu rektors
hrópandi ýms slagsorð og kröfð-
ust þess að lögreglunni væri
þannaður aðgangur að háskóla-
svæðinu.
Þegar stúdentarnir höfðu lok-
ið aðgerðum á skólalóðinni,
héldu þeir út á nærliggjandi
götur og reyndu að trufla um-
ferð um þær. Voru þá nokkur
hundruð lögreglumanna send á
vettvang til að hrekja stúdent-
ana inn á háskólasvæðið. Beittu
lögreglumenn kylfuin á þá,
sem til náðist.