Morgunblaðið - 21.05.1967, Síða 12

Morgunblaðið - 21.05.1967, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MAI 1967. Gestur Guðfinnsson: HVALFELL L Hvalfell í Botnsdal er tiltölu- lega ungt fjall. Sköpunarsögu landsins hefur verið alllangt komið, þegar það varð til. Þyr- illinn og Múlafjallið eru t. d. bæði eldri, sama er að segja um Botnsdalinn, sem áður virðist hafa náð miklu lengra til norð- austurs heldur en nú. Við til- komu þessa fjalls hafa orðið miklar landslagsbreytingar á þessum slóðum, sem hverjum náttúruskoðara mundd þykja nokkurs um vert að kynnast. í fyrsta lagi hefur myndazt stöðuvatn í kvosinni ofan við fellið, sem til skamms tíma hafði það m. a. sér til ágætis að vera dýpsta vatn l'andsins eða þangað til Öskjuvatn varð til upp úr 1875. í öðru lagi hefur orðið þarna til foss í ánni, sem fellur úr vatninu, hæsti foss á íslandi, og er það að vísu nokkuð til að státa af. í þriðja lagi er fjall- ið hinn ákjósanlegasti útsýnis- staður, ber enda allmiklu hærra en nágrannafjöllin, Múlafjallið og Þyrillinn. Öll þessi umsköpun hefur verið um garð gengin löngu áður en fslandsbyggð hófst. Engar sögur fara þó af fjallinu á fyrstu öldum Islands- byggðar og er þess hvergi getið í landnámssögunni sérstaklega, enda þótt minnzt sé á Hvalfjörð og Botnsdal. Líklega dregur Hvalfell nafn af lögun sinni, minnir á hval. Aftur á móti er að finna í göml- um bókum miklu skáldlegri skýringu á nafngiftinni, en hún er í stuttu máli á þá leið, að hvalur, kallaður Rauðhöfði, grandaði báti af Hvalfjarðar- strönd, og fórust þar tveir syn- ir prestsins í Saurbæ. f hefndar- skyni teymdi klerkur hvalinn upp eftir Botnsá, sem þó getur naumast hvalfær talizt, að manni sýnist. „En þegar inn kom í gljúfrið sem áin rennur um fram af Botnsheiði þá urðu þrengslin svo mikil að allt skalf við þegar hvalurinn ruddist áfram, en þeg- ar hann fór upp fossinn hrist- ist jörðin umhverfis eins og í mesta jarðskjálfta. Af því dregur fossinn nafn og heitir síðan Glymur og hæðirnar fyrir ofan Glym eru síðan kallaðar Skjálf- andahæðir. En ekki hætti prest- ur fyrr en hann kom hvalnum alla leið upp í vatn það sem Botnsá kemur úr og síðan er kallað Hvalvatn. Fell eitt er hjá vatninu og dregur það einnig nafn af atburði þessum og er kallað Hvalfell. Þegar Rauð- höfði kom í vatnið sprakk hann af áreynslunni að komast upp þangað og hefur síðan ekki orðið vart við hann, en fundizt hafa hvalbein mjög stórkostleg við vatnið og þykir það vera sögu þessari til sannindamerkis. Hvað sem sannleiksgildi þess- arar sögu líður, þá téí ég vel ómaksins vert að eyða einni dag- stund á þessum slóðum, ganga á Hvalfell og að Hvalvatni, og enginn skyldi láta hjá líða að heilsa upp á Glym og horfa nið- ur í árgljúfrin miklu vestan við fellið,, má vera að mönnum skilj- ist þá, að Saurbæjarklerkur vandaði Rauðhöfða lítt leiðina. Ég mun nú hér á eftir lýsa nokkuð gönguleið um þessar slóðir og því, sem fyrir augu ber, en haga þó ferðinni dálítið öðruvisi en klerkur forðum. En áður en lengra er farið, held ég væri rétt að gera sér grein fyrir landslaginu í stórum drátt- um og drepa á nokkur söguleg atriði. II. Inn af Hvalfirði liggja tveir grösugir dalir, Brynjudalur og Botnsdalur, sá síðarnefndi norð- ar. Milli þeirra er Múlafjall. Upp af því er Hrísháls og Hrísháls- vegur svokallaður milli dalanna. Fyrir botni Botnsdals eru Botns- súlur, myndarleg fjallahvirfing, hæsti tindur þeirra er 1095 m og er venjulegasta gönguleið á hann frá Svartagili í Þingvalla- sveit, en hnúkurinn, sem næstur er Botnsdal, er litlu lægri eða 1089 m og liggur vel við að ganga á hann úr Brynjudal eða Botnsdal upp svonefndan Sand- hrygg. Af Botnsúlum sér vel um allan suður- og vesturhluta landsins. Norðvestur af Botnsúl- um er svo Hvalfell. Það er all- miklu lægra eða 848 m á hæð Milli Botnsúlna og Hvalfells heitir Hvalskarð. Þaðan kemur Hvalskarðsá og sameinast hún Botnsá niðri í dalnum rétt aust- an við túnið í Stóra-Botni. Botns- á á hinsvegar upptök sín í Hval- vatni og fellur í hrikalegum gljúfrum niður í dalinn vestan Glymur í Botnsá. Útsýni frá Hvammsvík. Þyrill lengst t. v., þá Hvalfell, Múla fell og Botnssúlur. við fellið, Hvalfellið er gróið nokkuð uppeftir, vaxið skógar- kjarri og lyngi, en síðan taka við berar móbergsklappir og grjótskriður. Neðan til er hlíð- in sundurskorin af djúpum gil- skorningum og bera tungurnar milli þeirra sérstök nöfn. Þær eru fjórar talsins og heita, tal- ið frá Botnsá: Einitunga, Breiða- tunga, Mjóatunga og Ásmundar- tunga, sem er syðst og næst Hvalskarðsá. III. í Landnámu segir svo: „Maðr hét Ávangr, írskur at kyni. Hann byggði fyrst í Botni. Þar var þá svá stórr skógr, at hann gerði þar af hafskip ok hlóð þar, sem nú heitir Hlað- hamarr.“ Vandfenginn mundi nú skipa- viður í Botnsdal, þótt enn sé að vísu skógarkjarr í dalnum, hins vegar hefur örnefnið Hlaðhamar varðveitzt fram á þennan dag, er það sunnan við Botnsvoginn. All- fjölfarin leið var lengi milli Hvalfjarðar og Þingvallasveitar um Botnsdal og meðfram Súlum sunnanverðum, en síðan um Öx- arárdal, og heitir Leggjabrjótur. Er hún nú aflögð með öllu, en þetta er hin skemmtilegasta gönguleið. Það má kallast létt verk og löðurmannlegt að ganga á Hval- fell, sé miðað við hin erfiðari fjöll landsins, enda leiðin fær hverju barni, ef rétt er farið. Við skulum nú rölta þetta í ró- legheitum og gefa okkur um- fram allt góðan tíma. Við hefj- um gönguna við túnið í Stóra- Botni, en þangað er ökufært. Við göngum niður að Botnsánni vestan við túnið og yfir ána á göngubrú, en síðan gamla götu- troðninga, unz við komum að Hvalskarðsá rétt ofan við áa- mótin. Þar förum við yfir hana. Hún er venjulega vatnslítil og auðvelt að stikla hana á steinum. Síðan liggur leiðin upp Ásmund- artungu, við troðum okkur gegn- um skógarkjarrið eins og þaul- vant skógarfé og stefnum beint á fjallsöxlina suðaustanverða. Þetta er alveg torfærulaus leið og ekki sérlega brött. Þegar upp er komið er sjálfsagt að blása vel mæðinni og líta í kringum sig, flestum þykir útsýnið harla frítt, þótt ekki sé það ákaflega mikið. Hvalfell er móbergsfjall að mestu leyti, bungumyndað og mosagróið nokkuð að ofan. Eins og ég gat um í upphafi máls míns, er þetta ungt fjall, að því er virðist. Við erum hér stödd á mótum ungrar og gamallar jarðmyndunar. Svo er að sjá sem Botnsdalurinn hafi einhverntíma náð allmiklu lengra til norð- austurs en nú. Á ísöld, þegar dal- urinn var fullur af jökli, virðist hafa orðið gos í dalnum undir jöklinum og hlaðizt upp þetta móbergsfell um þveran dalinn. Þegar aftur hlýnaði og jökla leysti af þessum slóðum, hefur síðan myndazt þarna djúpt stöðuvatn ofan við fellið. En það heitir nú Hvalvatn og er eins og áður segir annað dýpsta vatn landsins um 160 m þar sem það er dýpst. IV. Margt kemur í hugann, þar sem maður situr á kolli Hval- fells, lætur líða úr sér og horfir út á Hvalfjörðinn, langan og mjóan. Utan við Þyriisnesið rís Geirhólmi úr sjó, hvítur af fugla- driti. Hann kannast margir við úr Harðar sögu og Hólmverja. Þeir fóstbræðurnar, Geir Grims- son og Hörður Grímkelsson úr Neðra-Botni settust að í hólm- anum ásamt konu Harðar, Helgu Haraldsdóttur jarls á Gautlandi og tveim sonum þeirra ungum, Grímkatli og Birni. Höfðu þeir með sér flokk manna og rændu bændur í héraðinu og urðu illa þokkaðir. Segir sagan, að „átta tigir manna annars hundraðs váru í Hólmi, þá er flestir váru, en aldri færri en á inum átta tigi, þá er fæstir váru.“ Þess má geta, að býlin í Botnsdal, sem nú heita Litli-Botn og Stóri Botn, hétu þá Neðri-Botn og Efri-Botn. Þar kom, að lands- menn gerðu samtök um að ginna Hólmverja úr eynni með því að heiba þeim griðum og fullum sáttum. Létu þeir ginn- ast einn af öðrum og voru allir drepnir jafnótt og þeir komu á land. Loks eru ekki aðrir eft- ir en Helga og synir hennar tveir. Hefur hún nú uppgötvað svik landsmanna. „Hon hug.sar nú sitt mál. Þat verðr nú henn- ar ráð, at hon kastar sér til sunds ok leggst til lands ór Hólminum um nóttina ok flutti með sér Björn, son s'inn, fjögra vetra gamlan, til Bláskeggsár, ok þá fór hon móti Grímkatli, syni sínum, átta vetra göml- sundit þá, ok flutti hann til lands. Þat heitir nú Helgusund, Þau fóru um nóttina upp á fjall frá Þyrli ok hvíldust í skarði því er nú heitir Helguskarð. Hon bar Björn á baki sér, en Grímkell gekk.“ Þetta er sjálf- sagt lygasaga, en jafngóð fyrir því. Að áliðnu sumri árið 1402 kom út skip í Hvalfirði, líklega við Hrafneyri. Skipið átti Ein- ar nokkur Herjólfsson. Það þóttu löngum góð tíðindi, þeg- ar skip kom af hafi hlaðið alls- konar varningi. Hins vegar varð þessi skipkoma íslending- um lítið fagnaðarefni eða happaatburður. Með Einari fluttist sem sé drepsóttin mikla, sem síðan hlaut nafnið Svarti- dauði. Það var einmitt í Botns- dalnum, sem hinir fyrstu urðu sóttinni að bráð. Svo segir i Vatnsfjarðarannál: „Þá kom út plágan í Hvalfirði. Kom í Hval- fjörð Einar Herjólfsson. Var á því skipi sótt mikil. Sló þegar sóttinni á landsfólkið með mannfalli. Andaðist séra Óli Svarthöfðason og 7 sveinar hans í Botnsdal, þegar hann reið frá skipinu.“ Það er álit fræði- manna, að þriðjungur eða helm- ingur landsmanna hafi látizt úr drepsóttinni. V. En hverfum nú frá sögum og sögnum, þótt af nógu sé að taka, því að enn er löng leið fyrir höndum og ekki til setunnar boðið. Við höldum nú austur af fjallinu og niður í Hvalskarð. Satt að segja er þetta dálítið óhnöggleg leið, allbrött grjót- hlíð með klettabeltum og urð- arköstum, og þótt hún sé vel fær hverjum sem er, þá draga allir andann léttara, þegar nið- ur er komið. Enda er maður þá kominn að Hvalvatni og er þar sléttar grundir og lyngflesjur undir hlíðinni. Þarna má finna blóðrauða brúska af vetrar- blómi snemma á vorin, en það er einna fyrst á ferðinni allra íslenzkra blómjurta og verður stundum illa úti í vorkuldun- um, þótt harðgert sé. Hvalvatn er allstórt vatn og veruleg landslagsprýði. Við austurenda þess skagar dálítill móbergs- Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.