Morgunblaðið - 28.05.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MAf 1967.
BÍLALEIGAN
- FERÐ-
Dogrgjald kr. 350,-
og pr. km kr. 3,20.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGIMÚSAR
SKfPHOtTI 21 SÍMAR 21190
eftirlokun &!mí 40381
p5lMl I-44-44
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldl.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Síml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
x. -.-JB//A IffGAJt
RAUOARARSTlG 31 SÍMI 22022
Fjaðrir, fjaðrablöð. hljóðkútar
púströr o.fl varahlutir
I margar gerðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Suni 24180.
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
fíuðmundar Péturssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 12002 - 13202 - 13602.
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrl.
og Einar Viðar, hrl.
Hafnarstræti 11 — Simi 19406.
Fiskibótoi
Seljum og leigjum fiskibáta
af öllum stærðum. Talið við
okkur um kaup og sölu fiski-
báta.
Skipasalan og skipaleigan,
Vesturgötu 3, símj .3339.
Skíðaskólinn
í Kerhngaíjöllum
Simi 10470
mánud. — föstud. fcl. 4—6t
laugard. IdL I—3.
Ít Fræga fólkið
í fréttaspeglinum
Vegna bréfanna frá
Gammi og H.H., sem birzt hafa
í þessum dálkum, um siúður-
sagnasíður dagblaðanna, hefur
gamall kunningi Velvakanda
sent honum eftirfarandi bréf
ásamt þremur „fréttum", sem
hann hefur „þýtt“.
,,)Heiðraði Velvakandi!
í>etta voru orð í táma töluð
hjá þeim Gammi og H.H. Nú
hef ég ákveðíð að drýgjá tekj-
ur mínar með því að þýða á
íslenzku ýmislegt úr heims-
fréttúnum, sem á örugglega
erindi við alla íglendinga í viss
um dálkum dagblaðanna. Ég
ætla að setja á stófn "þýðingar-
miðstöð, sem beitir „Frægt
fólk ri fréttaspegli nýja tím-
ans“, óg géta dagblöðin keypt
hjá mér nýjustu glúðursögur
af heimsfrægu fólki á vand-
aðri íslenzku fyrir 375 kr.
hverja 25 cfálksentimetra. Ti'l
þess að enginn dragi nú í efa
þýðingarhæfileika mína, sendi
ég þér hér með þrjú sýnis-
horn:
Hooley prinsessa
bjargar sér
Á dögunum var Hooley
prinsessa af Sandvíkureyjum
og Hawai stödd á góðgerðar-
samkomu I þýzku stórborginni
Berlín. Hún var mætt i tungl-
fölum Dior-kjól með rækjulit-
um blómstrum á barminum
(„hinnhvelfdasti i Norður-
rose, og hann ætti að vita,
álfu“, segir Porphyr Rub-in-
hvað hann syngur í tálknun-
um!). En viti menn! (og kon-
ur!): mæta ekki bæði her-
togaynjan af Shakewell og hin
yndislega belgíska fyrrverandi
nunna dægurlagasöngkona á
heimsmælikvarða Fleur de
Con í samskonar rækjubleikju-
mánafölum kjólum!
Ég þarf ekki að segja ykkur,
að Miss Hooley varð alveg óð.
En sú litla hefur mörg bein 1
nefinu. Hún einfaddlaga tók
kokkteilolívu á tannstöngli og
stakk honum í kjólinn á milli
tvíburanna yndislegu og skart
aði þessu einfalda en hugð-
næma og hrifnæma skarti
framan í gestum allt kvöldið
og varð númer eitt 100% sem
al'lir fréttaljósmyndarar og
tizkuspæjarar þyrptust í kring
Um og varð hreihlega drotrtn-
ing kvöldsins! Sniðugt, ekki
satt! Og hver segir svo að fólk
með blekfblátt blóð í áeðahnút-
unum sé úrkynjað og ósniðugt?
Gott hjá þeirri
gömlu!
. Josebella Sabbattini, 74
ára gömul eioh'leyp rúmlega
miðaildra afasystir Gophia
Horen, sem (gophia) hefur nú
loks fengið löglega staðfestan
3. hjónaskilnað sinn við Guffy
the Guy (metsöluplatan „I
kill me if you take me on the
beach, chérie“) í Leghorn og
Naples í suðurhluta Evrópii-
álfu og þarfafleiðandi um leið
giftingu sína með þeldökku
knattspyrnu-hetjunni og hand-
boltakappanum og gítarspilar-
anum Bombino frá Rio (þið
vitið, í Brazil), sem giftust i
rómantíska fjallasmábænum
(þar sem örðugt er um andar-
drátt a.m.k. vegna hávísin'da-
lega sannaðs loftléttleika)
Santi Eva í Mið-Mexico á Skt.
Claus-hátíðinni sem haldin var
skv. kathölskum siðvenjum um
jólaleytið sl. ár, hún, þ.e. Jose
belle Sabbattinl, 74 ára göm-
ul etc., átti um daginn að skera
fyrstu sneiðina að þriggja feta
og sex þumlunga hárri rjóma-
sprautaðri tertunni, sem búin
hafði verið til í tilefni af þvi
tilefni, að yngri systir Goffíu
Hóren var að ganga 1 það
heilaga með sínum elskandi
ektamaka Lars Montgomery-
Bitta-Knull G:son Jánson von
and zu Ekelmaker (hann ku
vera hertig!) frá Stockholm-
Sweden (bær í Svíþjóð).
Sú gamla var „alveg I
klessu“, svo að notað sé vont
mál einu sinni. Hundruð heims
frægra persónuleika, sem hafa
meira og minna afgerandi
á’hrif á dómnefndina í Cannes
(í amthéraðinu Sydkysten í
Frakklandi) voru viðstödd og
störðu á hana. En sú gamla var
eigi af eigin baki dottin og
reddaði heila málinu! Hún
stökk upp, svo að sá 1 ilsóla
henni, eins og Snorri segir í
Kjalnesingasögu um Gizur
gullrass, og höggvaði hausinn
af marsípanbrúðgumanum er
staðsettur hafði verið efst á
tertuna gððu (búna til í
Kóngsins Kaupinhafn!) um
leið og hún sagði með sínu
heillatöfrandi brosi:
Þar liggur hann!
Alilir viðstaddir veltust vit-
anlega um af hlátri lengi á
etfir, og ekki minnkaði gaman-
semi og léttleiki viðstaddra,
þegar Branco Sinistra skóp
nýja kátínu, þegar hann æpti
yfir hina 14 ára gömlú, lítið
eitt mátúlega feitlögnu hálf-
nöktu, silkimjúku og snjóhvítu
öxil löglegrar (nú) eiginkonu
sinnar, Baby-Clit: Bara að
hann liggi ekki lengi einn!
Með andríki sínu hafði hinn
hálaunaði heimsfrægi (88 ára)
söngvari enn einu sinni skapað
kátínu í röðum allra við-
staddra, sem þarna voru stað-
settir. Meira að segja jafnvel
líka þjónarnir (aTlir frá Max-
im‘s) brutust út í gleðilátum
og dyraverðirnir brustu í bros
í kampana,
it Hoover-ryksugan
Off afkomendur
hinna fornu
Rómverja
Hinn lítið eitt feitlagni
44 ára gamli kastaníubrún-
hærði miðaldra viðskiptamað-
ur Joe di Cavo segist vera mest
í öngum sínum af öllu fóiki í
veröldinni. Á dögunum keypti
hann með afborgunum í hinni
sólríku Kyrrahafsstrandborg
1 Ameríku San Fransisco ryk-
sugu sem vera skyldi brúð-
kaupsgjöf handa elztu dóttur
hans Bellissima sem er hár-
greiðslukona og menntun og at
vinnu og ætlaði nú að ganga
í það heilaga með yfirrakara
Bobby Brunello, sem loks
þorði að láta hina miklu spurn
ingu detta út úr sér, þegar þau
voru stödd undir kastaníutrján
um í almenningsgarðinum i
San Fransisco, einum al-róm-
antískasta stað veraldarinnar
segja sérfræðingar en ráð-
stefnustað vasaþjófa segja gár
ungarnir. Joe sem er viðskipta
maður á eigin fótum keypti
ryksuguna (Hoover) í fjölsölu
stórhýsi nákvæmlega tveimur
og hálfum mánuði fyrir hið
væntanlega brúðkaup elztu
dóttur hans, sem heitir Brello-
sima, og sem er hárgreiðslu-
kona að menntun og atvinnu.
Byrjaði hann strax að bo^ga
inn á viðskipareikning sinn og
ryksugunnar i afborgunardeild
inni, en yfirfærði í hrifningu
auignablikshugarvímunnar ryk
suguna yfir á nafn Brundi-
bello tilvonandi heittelskaðs
tengdasonar síns.
En margt fer öðru vísi en
ætlað er, segir hið forna spak-
mæli hinna fornu Rómverja,
og sannast það nú heldur bet-
ur illilega á aumingja Jo da
Clivo, afkomenda binna fornu
Rómverja. Nákvæmlega eftir
þrjá mánuði og þrjár vikur 1
ektastandinu sprakk allt í háa
loft, og tengdamútter gamla
(ekta „Italiano“, — þið fattið)
með kústprikið á lofti og með
það ríðandi á hrygglengju yf-
irrakarans, Buddy Brondi-
bello, rak hinn áður svo ham-
ingjusama i sjöunda himnl
brúðguma út.
Nú er alit logandi I mála-
vafstri og málaferlum og heill
hellingur af lögfræðingum púl-
ar nótt og dag 1 mörg hundr-
aða blaðsíðna kæruskjala-
búnka. Sem sannir afkomend-
ur hinna fornu Rómverja beita
allir lagaflækjum til að fá ryk
suguna.
Og nú er hin brennandi
spurning sem brennur svo
ákaft á vörum og bökum a/llra
sannra afkomenda hinna
sönnu, fornu Rómverja í hinni
svo ákaflega sólbrenndu Kyrra
hafsstrandarborg, San Fran-
ziskó: Hver fær ryksuguna
(Hoover)?
Joe di Crvó, tengdamútter,
herra yfirrakari Bobby Belli,
eða Bellisína, sem er yfirhár-
greiðsludama að menna og at-
vinnu og sannur afkomandi
hinna fornu Rómrverja?
MAXICROP
ÞANGVÖKVI
Fyrir öll blóm.
100% lífrænn.
Fæst í flestum blómabúðum.
Húseignirnar
Baldursgata 3 og
Bergstadastræti 46,
eru til sölu með tilheyrandi eignarlóðum. í báðum
húsunum er alls 11 íbúðir.
Nánari upplýsingar gefur
Sn>Ttivöruvcrzlun
i fullum gangi er til sölu.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga sendi nöfn sín og
símanúmer til afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 10.
júní merkt: „Verzlun — 601“.
Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins
Mýja fasteignasalan
Laugavegi 12, sími 24300
og að kvöldinu sími 18546.
óskar eftir að ráða aðstoðarstúlku frá 1.' júní n.k.
til starfa á rannsóknarstofu.
Upplýsingar veittar í síma 23240 eða á stofnuninni.