Morgunblaðið - 31.05.1967, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 31.05.1967, Qupperneq 19
MORGTJNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1967. 19 — Rœtt við Þór Vilhjálmsson, prófessor, sem skipar 12. sœti á framboðslista Sjálfstœðisflokksins í Reykjavík Þ Ó R Vilhjálmsson, pró- fessor, skipar 12. sæti á framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík við alþingiskosningarnar, sem fram eiga að fara 11. júní nk. Hann er 36 ára gamall og á að baki langt og mik- ið starf í röðum ungra Sjálfstæðismanna. Þór er kvæntur Ragnhildi Helga- dóttur og eiga þau 3 börn. Mbl. átti nýlega samtal við Þór Vilhjálmsson um kosn ingarnar, kosningahorfur og þau mál, sem hann hef- ur einkum fjallað um og fer þetta viðtal hér á eftir: Hvað finnst yður um kosnr Ingahorfurnar? Sjálfstæðisflokkurinn ætti að vinna nokkur þingsæti af andstæðingum sínum, ef fylg- ið fer eftir málefnastöðunni. >að er hins vegar eðli okkar lýðræðislegu stjórnarhátta, að við vitum ekkert með vissu, fyrr en að kjördegi loknum. Nú er þessi óvissa óvenju mikil, bæði vegna þess, hve knappur meirihluti viðreisn- arflokkanna hefur verið á Al- þingi og vegna klofningsins í Alþýðubandalaginu. Við Sjálf stæðismenn megum ekki rugla saman vonum okkar og veruleikanum, heldur verðum við að gera okkur ljóst, að veruleg óvissa er um úrslit kosninganna og óvíst, hvernig aðstaða flokksins á þingi verð ur að þeim loknum. Uppbót- arsætum er úthlutað eftir reglum, sem leitt geta til ó- væntrar niðurstöðu. Þetta ættum við í Reykjavík að gera okkur ljóst. Við eigum ekki von á, að fulltirúafjöildi' okkar hér í borginni sé í neinni hættu, en við skulum muna, að hvert reykvískt at- kvæði þarf að koma til skila. Styrkleiki okkar hér og í hin- um stóru kjördœmunum, ekki sízt R'eykjaneskjördæmi, kann ásamt ófyrirséðum og óvænt- um smábreytingum í hinum fámennari kjördiæmum að ráða úrslitum um meirihluta á Alþingi. Þér segið, að Sjálfstæðis- flokkurinn ætti • skilið að vinna nokkur ný þingsæti. Hver er ástæðan? Aðalástæðan til þass, að ég fylgi Sjálfstæðisflokknum og hef starfað í honum í rúm- lega 20 ár, er hinn hugsjóna- legi grundvöllur hans. Hann er eini íslenzki stjórnmála- flokkurinn, sem afdráttar- laust vill byggja þjóðfé- lag framtíðarinnar á hinni vestrænu menningararfleifð án þess að slaka á kröfum til frelsis og lýðræðis, hvort sem slíkar undansláttarkröfur eru gerðar í nafni sósíalisma eða hentistefnu, eins og Fram- sóknarflokkurinn er talsmað- ur fyrir. Að sjálfsögðu er það þessi trú á meginstefnu flokksins, sem er aðalástæð- an til þess, að mér finnst hann eiga aukinn þingstyrk skilinn. En við þetta bætist árang- ur viðreisnarstefnu síðustu ára, sem mér finnst að þjóð- in ætti að þakka með því að auka fylgi Sjálfstæðisflokks- ins. Ég er ekkí hagfræðingur og satt að segja finnst mér margt í pólitíkinni skemmti- legra en efnahagsmálin. Eng- inn getur þó annað en fylgzt með og dáðst að því, sem áunnizt hefur. Tvennt er mikilvægast í mínum augum: Það meginatriði viðreisnar- innar að auka efnahagsfrelsið í þjóðfélaginu, bæði fyrir neytendur og framleiðendur, og í öðru lagi samningarnir um stóriðju í.Straumsvík og við Mývatn og um orkuver við Þjórsá. Þetta var stefnu- breyting, sem mér finnst jafn djarfleg og nauðeynleg og á- kvörðunin um aðild að Atl- antshafsbandalaginu var 1949. Við þetta er svo því að bæta, að kosningar eru ékki einungis haldnar til að þakka eða lýsa vantrú á því, sem gert hefur verið. Auðvitað eru þær fyrst og fremst til að kjósenduir geti sagt fyrir um það, sem við á að taka. Sjálfstæðisflokkurinn hefur markað sína stefnu í lands- fundarályktuninni frá því í apríl, sem nú er búið að sér- Þór Vilhjálmsson prófessor prenta og er víst verið að dreifa um allt landið. Megin- atriðið er jáikvæð stefna, sem miðar að stöðugum menning- arliegum og efnahagslegum framförum. Yður finnst margt í stjórn- málunum skemmtilegra en efna'hagsmálin. Já. Einu sinni ætlaði ég að verða hagfræðingur, en hætti við það eftir eins árs undir- búning hjá þeim þekktu sparnaðarsérfræðingum Skot- um og sneri mér að lögifræð- inni. Mesta persónulegt á- hugamál mitt á stjórnmála- sviðinu er íslenzk stjórnskip- un. Við höfum, held ég, ekki haft hana nógu mikið í sviðs- ljósi stjórnmálanna, ekki hugsað nógu mikið um lýð- ræði okkar, stöðu Alþingis, hlutverk stjórnmálamanna og sérfræðinga í þjóðfélaginu og ábyrgð okkar sjálfra á stjórn landsins. Einstök mál, sem þetta svið varða, hafa raunar verið á dagskrá, allt frá kjör- d-æmamálinu og til launa- kjara opinberra starfsmanna, sem hér eru ekki ómikilvæg, en ennþá hygg ég að á skorti um almennan skilning á mik- ilvægi þessa sviðs fyrir fram- vindu mála í landinu. Þér hafið, einnig unnið að því að fjalla um skólamál á vegum ungra Sjálfstæðis- manna. Samtök ungra Sjáifstæðis- manna létu fyrir nokkru fara fram svolitla athugun á viss- um atriðum varðandi skóla- mál. í minn hlut kom að gera grein fyrir því, að hve miklu leyti væri um sérfræði- Framhald á bls. 31. Frambjóðendur hafa orðið íslenzkir skólar adlagist nýjum þjóðfélagsháttum Haðldór Laxness: Heimur Prjdnastofunnar Samið vegna leikstjóranám- skeiðsins norræna sem stendur nú yfir í Rvík. ÞÐTTA leikrit, Prjónastofan Sólin, er fult af alls'konar nú- itímahelvíti; þó eru þeir Marx og Freud iátnir eiga sig. Heimablöð hér töldiu að leikrit- ið væri ós'kiljanlegt og fult af duilhyggju, og þráspurðu hvar’ felumyndin væri í þessu. Höf- undurinn hélt því fram að sínu leyti að í leikritinu væri verið að skoða hvers'dagslega hluti. Fiestir hilutir, sem eru til sýn- is í leiknum, koma víst fáum ieikhúsgestum á óvart útaf fyrir sig; varla orðræður leiks- ins heldur; alt nokkurnveginn Iklassiskt á yfirborðinu. Mann- félag sem þarna er birt virðist ekki seilast yfir landamæri hjvunndagslegrar raunsæi, nema tæplega er með öllu ljóst hvort þetta er vellferðarríiki ellegar algert auðvaldsþjóðfélag, eða hvort um er að ræða einhverja útgáfu af marxistaríki eða ríki þar sem skníngilegir afturrétt- ingar hafa hrifsað til sín völd; kanski einhver blanda. En þó flestir atburðir séu lítt samdir að föstu munsitri fer varla hjá því að leikurinn minni suma áhorfendur ónötalega á að þeir hafi einihverntíma komið híng- að áður (déja vu kalla sálfræð- ingar það víst). Hverskonar pláss er þetta? Það er heimur Prjónastofunnar og síðan ekki sögunna meir. Og hver er gángur leiksins? Að upphafi leiks er ljóst að það er heldur en ekki farið að sliá í þennan heim. Þó til sé kvadd- ur ýmiskonar liðsaúki sitt úr hverri áttinni, þá halda lokin áfram að vera á næstu grös- um. Fegurðarsamkepnin og Örkumlamiannafélagið eru komin í hár saman. Styrjöld- in skellur á. Þessi heimur geingur upp fyrir elidi. Og einsog í öllum styrjöldum, er aðeins einn sigurvegari: nætur- galinn. Lokaatriðið gerist dag- inn eftir ragnarök þegar einn og sérihver finnur sálarmaka sinn um aldir alda. Næturgal- inn er að sýngja, — það er reyndar aðeins íslenzkur þröst- ur; en þetta er Himnaríiki og tjaldið fellur. Hkki þarf að kvarta yfir því að Prjónastofan skelli skolleyr- run við goðsögnum eða dæmi- sögum sem mönnum eru hug- sitæðar, hverjum úr sinni 'helgri bók: sagan af fátækum og ríkum; um ást og trygð; um penínga og fegurð; um kærleik og meðaumkvun — alt á sama stað, og ekki má gleyma guðspjöllum um frelsun íheimsins; fátt þó sem menn hafa ekki margheyrt áð- ur. Hvernig stóð þá á því að sumia meðal éhorfenda rak í rogastans? Og ihvað var þarna sem erti sum blöð? Miður rétttrúuð meðferð á húsgángsmóbífum og ögn af- brigðileg útitekt á siðakertin’U gæti hafa valdið því að ein- stöku maður fyrtist við. Þó leikuriinn sé raunsæilegur, þé eru fæstir hlutir þar á „rétt- um“ stað. Sjónarhornið skiftir má'li í þessu leikriti, ef til vill hefur því verið hnikað til um nokkrar gráður frá venju. Ein- stöku áhorfanda hætti að standa á sama í miðri setníngu, og þó alt væru sjólfsagðir hlutir sem sagt var, dró niður í honium hláturinn, svo leik- dómarar fóru að halda að Framhald á bls. 14 Rúrik Haraldsson og Helga yaltýsdóttir í hiutverkum sinum í „Prjónastofunni Sólin“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.