Morgunblaðið - 01.07.1967, Side 4

Morgunblaðið - 01.07.1967, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967. BÍ LALEICAN - FERÐ - Daggjald kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. SÍMI 34406 SENDUM imagnúsar skipholti21 símar21190 eftir lokun simi 40381' Hverfisgótn 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald. Bensín innifalið í leigugjaldl. Síiwi 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. /7=*B/UKl£/*AM RAUOARARSTlG 31 SlMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki Útvarps- og sjónvarpstæki Suðurlandsbraut 12. Sími 81870 (næg bílastæði). - Hítasala Stationbílar Plymouth Valiant árg ’66 Fond Faloon árg. ’68. Mjö góðir og vel með farnir bílar. Til sýnis og sölu í dag. ' JímiHI. VÖKULJÍ Hringbraut 121 Sími 10600 ^^CHRYSLER INTERNATIONAL -U Þrösturinn í Nökkvavogi „Reykjavík 6/6 ’67. Komdu sæll, Velvakandi góð- ur! Ég á heima í Nökkvavogí. Þar er lítill garður, sem ég elska að róta í. Oft hafa bless- uð börnin klifrað yfir girðing- ar og blómabeð. Einnig hafa þau slitið blómin mín. En þetta finnst mér allt fyrirgefanlegt, því að þetta eru bara krakkar, og krakkar eru alltaf krakkar. ' En nú er eitt: Þr.as'tá'rparað, sem hefir verið að fljúga, hoppa og tína maðka, rétt við hönd mína, þegar ég er að róta 1 moldinni eða að vökva garð- inn. Þau eru búin að gera falLegt hreiður í tré, sem snýr út að götunnL Og nú er hún sezit í hreiðrið. Hvort eggin eru kornin veit ég auðvitað ekkL en hún situr kyrr, þótt blessuð börnin, strákar á aldrinum 5—7 eða 8 ára, séu að hrista greinar trésins eða henda stein- um upp í tréið, til að reyna að fæla blessaðan fuglinn af. Vilt þú Velvakandi góður, biðja alla foreldra við Nökkvavog, sem eiga drengi á 5—8 ára aldri, að tala við þá og segja þeim, hve dásamlegt er að fylgjast með fuglunum, og hve gaman það er fyrir mennina að fuglarnir skuli treysta okk- ur svona vei, að þeir skuli vilja ala upp unga sína alveg við glugga okkar. Dýravinur". Velvakanda þykir leitt, að birting bréfsins skuli vegna mistaka hafa dregizt svo lengi, en bréfið er dagsett 6. júní sl. — Vonandi hafa ungarnir kom- izt úr eggjunum og á legg. — Annars er alltaf leitt að heyra um svona ónáttúru krakka — að vilja drepa smjáfugla, sem leita á náðir okkar. Eða er þetta e. t. v. bara hið frum- stæða veiðimannseðli. — Þessi mynd fylgdi bréf- inu. ^ Eiga Fáksfélagar götuna? A. Ó. skrifar: Reykjavík 16. apríl 1967. „Kæri VelvakandL Ég er einn þeirra manna, er búa> í nánd við sikeiðivöll Fúks- félaga í Reykjavík. Um hverja helgi, allan ársins hring, er stanzlaus umferð reiðmanna um göturnar hér í hiverfinu. Svo hefur einnig verið undan farin ár, en heldur hefur þetta „hestamannasport“ aukizt en hitt. Geysileg slysahætta stafar af þessari umferð reiðmanna um sömu götur og bifreiðarnar aka, en hún er næsta lítil miðað við það, er knapar þessir þeysa ofurölvi í kolsvarta myrkri og hafa enga stjórn á skepnunum, en misþyrma þeim aftur á móti með fantalegum sviptingum o. fl. Ekki á þetta þó við um suma þeirra manna, er þetta sport stunda, enda er meðferð þeirra á skepnunum og tillitssemi í umferðinni til fyrirmyndar. Á síðasta ári tók lögreglan upp þann hátt, að loka aðaigötu hverfisins fyrir allri bílaum- ferð, jafnvel svo að íbúar hús- anna komust varla heim til sín, enda töldu reiðmennirnir sig ekki þurfa að víkja úr vegi á þessum „einkavegi“ sínum. Síðustu framkvæmdir þeirra Fálksféiaga eru á þá lund að láta útbúa skilti með svohljóð- andi áletrun: REIÐGATA. Öll óviðkomandi umferð bönnuð. LÖGREGLAN. Stendur skilti þetta á vegin- um jafnt á virkum dögum sem helgum. Þurfi svo einhver íbúi hverfisins að aka þennan veg- arspotta láta margir reiðmann- anna all dóigslega og neita að víkja úr vegi, án þess að bíl- horn séu þeytt, enda veigra menn sér við að hræða skepn- ^Hidc Kcafaraúrin margeftirspurðu komin ásamt mörgum öðrum tegundum af Mido-úrum. MAGNÚS ÁSMUNDSSON, úra og skartgripaverzl. Ingólfsstræti 3. urnar meira en þörf er á. Nú langar mig til að gera fyrir- spurn til viðkomandi yfirvalda, hvort þessir hestamenn greiða einhvern vegaskatt fyrir hesta sína sem réttlæti að loka ak- braut þeirri, sem ég og aðrir bíleigcndur greiðum skatt til viðhalds og endurbóta á. Einnig væri ekki úr vegi að lögreglan og dýraverndunarfé- lagið geri sína rráðstafanir til að koma í veg fyrir þann hrotta skap og misþyrmingar á sak- lausum málleysingjum, er blasa við íbúum Blesugrófar meiri- hluta ársins. A. Ó. ★ Öryggi í kvik- myndahúsum Kæri VelvakandL Ég brá mér í Laugarásbíó laugardag fyrir nokkru sá þar svo vinsæla mynd, að húsið var yfirfullt. Sæti mitt var fyrir ofan þverganginn, sem komið er á strax og tröppurnar úr forskálanum upp í áhorf- endasalinn eru að baki. Rétt áður en deyfa átti ljósin fyrir sýninguna, sé ég hvar fólk kem ur með stóla, sem leggja má saman, og raðar sé á þvergang- inn endilangan. Var fólk þetta um 10—15 manns. Ekki held ég að þetta fólk hafi verið neinum til óþæginda og í hlé- inu lagði það stólana saanan upp við lágan vegg, sem var fyrir framan það. En ég gat ekki varizt þeirri hugsun hvort öryggi allra áhorfenda væri ekki stefnt í tvísýnu með þessu. Hvað myndi sike ef kviknaði í húsinu? Ér ekkd hætta á, að þetta fólk, sem er þá næst út- göngudyrum myndi stökkva á brott og gleyma í hræðslú sinni að leggja saman stóla sína, sem síðan myndu þvælast fyrir öðrum hræddum áhorfendum, valda oifsaihræðslu í húsinu, fallL beinbrotum og undir- troðslum. Hætta á íkviknun er að vísu ekki mikil, en með óhöppum er þó reiknað og verð- ur ávallt. að hafa í huga Samkomuhús eru einu sinni teiknuð og byggð þannig að fólk eigi sem greiðasta leið um þau út úr þeim í hættutilfell- um. Yfir útgöngudyrum loga stöðugt ljós meðan sýning stendur. Það má ef til vill kalla smámunasemi að láta sér detta í hug að meina fólki þessu að- gang þótt það hafi ekki náð í miða, en hér verður að athuga þá hugsmuni, sem vegast á. Annars vegar skemmtun nokk- urra manna af bíósýningu og hins vegar líf og limi hundraða sýningargesta. Ég hel'd að betna væri að þessir aukagestir færu bara á næstu sýningu. Bíógestur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.