Morgunblaðið - 01.07.1967, Síða 10

Morgunblaðið - 01.07.1967, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967. Útgefandi: Landssamband Sjálfstœðiskvenna Ritstjéri: Anna Bjarnason ÞÓTT nýtt og veglegt stórhýsi sé tekið í notkun þykir það varla orðið fréttnæmt nú á tímum, en eitt er samt það stórhýsi, sem tekið var í notkun, sem vert er eð minnast sérstaklega, en það cr hið veglega „kvennaheimili“, Hallveigarstaðir. — Var húsið formlega tekið í notkun á kvennadaginn 19. júni sl., og var þann dag opnuð vegleg listsýn- ing á verkum íslenzkra list- kvenna. Vegna mikillar aðsókn- ar hefur verið ákveðið að sýn- ingin verði opin til sunnudags- kvölds, en ráðgert hafði verið að henni lyki í gærkvöldi. Nú, þegar Hallveigarstaðir !hafa verið teknir í notkun hefur nær 50 ára gamall draumur orð- áð að veruleika, því einmitt um þessar mundir eru liðin um 50 ár frá því að fyrsti formaðuir Bandalags kvenna, frú Steinunn H. Bjarnason, tók að rita um byggingu fundarheimilis og kvennaheimili fyrir kvennasam- tökin í blað Ingu Láru „19. júní“. Nú er heimilið risið af grunni, <— að vísu hefur fyrirkomulagi þar verið breytt frá því sem ráð gert var í upphafi og fannst okk- ur tilhlýðilegt að kynna Hallveig arstaði nokkuð og rifja upp nokk (ur atriði úr sögu þeirra fyrir les i ' [ Hallveigarstaðir Larigþráður draumur íslenzkra kvenna um sama- stað fyrir félagsstarfsemi sína hefur rætzt Samtal við Sigríði /. Magnússon for- mann framkvœmdanefndar endum okkar og hittum því að *náli frú Sigríði J. Magnússon, fyrrverandi formann Kvenrétt- indafélagsins og núverandi for- mann framkvæmdastjórnar Hall yeigarstaða. yar gefin lóð *— Hver voru eiginlega fyrstu tildrögin að stofnun Hallveigar- etaða? — Segja má að það hafi verið frú Steinunn H. Bjarnason sem vakti fyrst máls á tillögunni í Hallveigarstaðamálinu, en hún var fyrsti formaður Bandalags kvenna. Skrifaði hún margar greinar um málið og því var hreyft á ýmsum fundum Banda lagsins og almennum kvenna- Éundum. Var þetta um og fyrir 1920, en þá var, eins og kunnugt er, mikill baráttuhugur í íslenzk um konum. Þær höfðu fengið «ömu stjórnarfarsleg réttindi og karlar 1915 og höfðu þá m.a. haf- Sð fjársöfnun til byggingar C&ndsspítalans. Árið 1923 gaf Alþingi lóð við Undargötu undir fundarhús. íiMun það hafa verið fyrir atbeina Jírú Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. 'jVar þá farið að tala við hin #msu kvenfélög og fjársöfnun Jiafin. Stofnað var hlutafélag og i^íhdutabréf seld á 25 kr. stk. Gengu konurnar svo ötullega iram í fjársöfnuninni að þær •kiptu bænum í hverfi eftir göt um og fóru víst nálega í hvert hús. Um 1930 hafði safnast gildur sjóður, en þá fannst forráðakon- um félagsins að hentugra væri að skipta á lóðinni við Lindargötu og fengu í hennar stað hornlóð- ina á horni Garðastrætis og Öldu götu. Þá festu þær kaup á horn- inu Túngötumegin, sem aðal- byggingin stendur við, — að mig minnir á 28 þús. kr. — Rn eftir því sem árin liðu og ekkert ból- aði á framkvæmdum fór fjár- söfnun að ganga dræmt. Það var reyndar ekki fyrr en 1943 sem máiið tók verulegan fjörkipp og var þá kosin, fjáröflunarnefnd hjá Bandalagi kvenna. Var frú Guðrún Jónasson fyrsti formað- ur hennar. Arnheiður Jónsdóttir tók við formennsku fjáröflunar- nefndarinnar að frú Guðrúnu lát inni. Núverandi formaður nefnd arinnar er frú Guðrún Heiðberg. Hafði nefndin mörg spjót úti til fjáröflunar, m.a. byrjaði hún á að hafa kaffisölu fyrir almenn- ing, sem margir hafa síðan tek- ið upp, handavinnu- og listiðn- aðarsýningar voru haldnar m.a. sýning í Þjóðleikhúsinu á meðan það var í byggingu og stór sýn- ing í Listamannaskálanum 1948. Laufey Vilhjálmsdóttir sem vann ötullega í mörg ár að málefnum Hallveigarstaða, teiknaði upp- drátt að silfurskeið, Hallveigar- staðaskeiðinni, sem smíðuð var í Þýzkalandi og seldist upp á skömmum tíma. Nú hefur skeið- in verið smíðuð á ný og seld víða. Hlutafélagið Ieyst upp — Árið 1945 var samþykkt að leysa upp hlutafélagið og húsið gert að sjálfseignarstofnun. Þá var kosin framkvæmdanefnd skipuð 9 fulltrúum; 3 frá Kven- félagasambandi íslands, 3 frá Kvenréttindafélaginu, ríki og bær, sem árlega styrktu stofnim- ina með fjárframlagi áttu sinn fulltrúann hvor og Alþýðusam- band Islands 1 fulltrúa. Fyrsti formaður nefndarinnar var Stein unn H. Bjartmars, síðan Guðrún Pétursdóttir, þá Kristín L. Sig- urðardóttir og nú seinustu árin hefur Sigríður J. Magnússon ver- ið formaður nefndarinnar. — Þá þótti sýnt að byggingar- leyfi fyrir eins stóru húsi og ákveðið hafði verið í upphafi, með gistiherbergjum og öllu til- heyrandi, fengizt ekki á þessari lóð. Var þá horfið að því máli að byggja skrifstofu og fundar- hús fyrir konur. Var þá þeim aðilum, sem hlutabréf áttu 1 félaginu skrifað bréf og gefinn kostur á að fá endurgreitt hluta- fé sitt með vöxtum, eða hvort þeir vildu gefa stofnuninni féð. All margir höfðu gefið fé til her- bergja, þá oft til minningar um einhverja látna konu og fannst framkvæmdastjórninnf, er nú skyldi breytt um fyrirkomulag á stofnuninni, að rétt væri að gefa fólki kost á að fá þetta minningarfé endurgreitt, en eins og segir í bréfi framkvæmda- stjórnarinnar frá 7. júlí 1961? „... .ef einhverjir létu samt sem áður fégjafir sínar renna til stofnunarinnar, að þá skyldi gerð eirtafla með nöfnum gefenda og nöfnum þeirra, er gjöfin var til- Þessi mynd var tekin er fjáröflunamefnd Hallveigarstaða gerði sér dagamun og fór saman í leikhúsið að afloknum 100. fundl sínum. Fremst á myndinní má greina forustukonur Hall- veigarstaða, frú Guðrúnu Jónasson, Steinunni H. Bjaraason og fleiri mætar heiðurskonur, sem vinna að málefnum stofnunarinnar. '

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.