Morgunblaðið - 01.07.1967, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1967.
11
Sigríður J. Magnússon
einkuð. Skyldi tðflu þessari kom
ið fyrir á góðum stað í anddyri
hússins."
Málaferli
— Hvað olli því að bygging-
arframkvæmdirnar drógust svo
mjóg á langinn?
— Árið 1956 var búið að gera
teikningu sem fékkst samþykkt,
en fyrri teikningar höfðu alltaf
verið of stórar. í>egar byrjað
var að grafa grunninn var lagt
lögbann við byggingafram-
kvæmdum, sem byggt var á
ákvæði í gömlu afsalsskjali, þar
sem svo kvað á, að á þessari lóð
mætti einungis byggja „villu-
byggingu“. Hófust þá málaferli
sem stóðu í 5—6 ár og urðu stofn
uninni mjög kostnaðarsöm, þar
eem byggingakostnaður m.a.
hafði hækkað gífurlega á þessu
timabili.
Árið 1962 hófust framkvæmd-
ir af fullum krafti, þótt þær
gengu ekki eins vel og við höfð-
um vonast ef tir í fyrstu. Kom
Sveinbjörns Jónssonar, hrl., sem
verið hefur lögfræðingur henn-
ar frá upphafi og unnið henni
ómetanlegt starf. Einnig vil ég
nefna gjaldkerana, Svafa Þórleifs
dóttir hefur átt sæti í fram-
kvæmdastjóminni frá stofnun
hennar 1945. Hún gegndi gjald-
kerastörfum til ársins 1959 að
Oddrún Ólafsdóttir tók við þeim.
Hafa þær báðar leyst af hendi
mikið og gott starf.
Mikilsverður áfangi
— Eruð þið ekki ánægðar
með þennan áfanga?
— Jú. Við höfum eignast sama
stað fyrir kvennasamtökin. A
þriðju hæð hússins er félagsheim
ili Kvenfélagasambandsins og
Kvenréttindafélagsins. í kjallara
hafa Húsmæðrafélag Reykjavík-
ur og Kvenskátafélagið aðsetur
sitt. Þar er einnig góður fundar-
salur með tilheyrandi eldhúsi,
sömuleiðis hárgreiðslustofa,
geymslur og húsvarðaríbúð. Það
er í fundarsalnum sem listsýn-
ingin er nú og ætlunin er að
leigja salinn til fundarhalda að
vetrinum en til sýninga að sumr
inu og hugsa ég að þar bæti úr
brýnni þýrf. Það hefur þegar
sýnt sig að húsnæði fyrrgreindra
samtaka hefur komið í góðar
þarfir.
— Það er trúlega í mörg horn
að líta þegar svona miklu fyrir-
tæki er hleypt af stokkunum af
„frjálsu framlagi“, er ekki eitt-
hvað sem enn vantar hjá ykk-
ur?
Frú Sigríður brosir við er hún
svarar þessari spurningu — Ekki
er því að neita að þrátt fyrir
margar góðar gjafir sem okkur
hefur borizt er enn ýmislegt sem
vantar upp á að Hallveigastaðir
geti orðið það góða félagsheimili
sem nafninu ber. Má þar nefna
t.d. öll eldhúsáhöld í sambandi
við fundarsalinn. ,
En okkur hafa hlotnast margar
góðar gjafir. Sú allra stærsta
þeirra er vandaður flygill frá
vestur-íslenzkum konum, en frú
Marja Björnsson safnaði fé til
kaupa á honum í kvenfélagi
Unitara-safnaðarins í Winnipeg.
Eina listaverkið sem stofnunin
á er höggmynd eftir dr. Melittu
Urbancic er hún þegar sýningin
var haldin í Þjóðleikhúsinu á sin
um tíma. Nú ætlar frú Urbancic
að gefa okkur annað listaverk
en það er gifsmyndin, sem eiraf
steypa er af í anddyri Fæðingar-
deildar Landsspítalans. Annars
lét ein listakonan sem á verk á
sýningunni núna orð um það
1948.
falla að íslenzkar listakonur ættu
að prýða Hallveigarstaði með
listaverkum sínum.
— Það er von okkar, að HaU-
veigarstaðir eigi eftir að sýna í
framtíðinni að þessi barátta ís-
lenzkra kvenna fyrir sínu eigin
félagsheimili hafi ekki verið til
einskis og geti þrátt fyrir allt, ein
hvern tíma orðið samastaður fyr
ir ungar stúlkur ef þess kann að
gerast þörf, þegar stofnunin verð
ur orðin svo öflug að hún fái
„ráðið sér sjálf“.
Hér er sýnishorn af listvefnaðinum á sýningunni, sem haldin
var í Listamannaskálanum
Fundur í Kvenréttindafélaginu.
þar margt til svo sem skortur á
verkamönnum og fjárhagsörðug-
leikar. Hurfum við þá að því
ráði að leigja út mikinn hluta
hússins til þess að geta komið
byggingunni upp. Leitað var til
ýmissa aðila og endalokin urðu
þau að Borgardómaraembættið
leigði 1. og 2. hæð hússins til 12
ára. Að þeim tíma liðnum von-
umst við fll að eiga húsið skuld-
laust. — Hvað þá tekur við, ráða
þeir, sem þá. lifa, sagði frú Sig-
ríður.
— Nefna mætti fjölda fólks,
sem hefur lagt stofnúninni lið,
en verður ékki farið út í það
hér. Þó vil ég geta sérstaklega
lögfræðings stofnunarinnar,
Tilkyniiing
FRÁ IIJÚKRUNARSKÓLA ÍSLANDS.
Viðtalstími skólastjóra fellur niður í júlímánuðL
Intemational Scout
Getum afgreitt nokkrar bifreiðar strax
með liagstæðum kjörum.
Aðalumboð:
Öxull hf.
Suðurlandsbraut 32 — Sími 38597.
f næstum 100 ár
tóbak hinna vandlátu
” natural ”
píputðbak
úrvals tóbaksblanda,
sem vert er að reyna
ilmandi
píputóbak