Morgunblaðið - 09.07.1967, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.07.1967, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1987. SUNIVUFERÐIR til sólarlanda Vinsœlar ufanlandsferðir með íslerszkum fararstjórum Margra ára reynsla og ótvíræðar vinsældir tryggja farþegum okkar snurðulaust ferða- lag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðirnar, viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Á síðasta ári komu yfir 1500 ánægðir farþegar heim úr SUNNU-ferðum. Það sem af er þessu ári hafa yfir 500 nýir farþegar tekið þátt í hópferðum okkar til útlanda. Við auglýsum sjaldan, því ánægðir viðskipt avinir komnir heim úr vel heppnuðum og skemmtilegum SUNNU-ferðum eru okkar bezta augiýsing. Nú þegar er upppantað í margar ferðir og fá sæti laus í flestum hi nna. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn Brottfarardagar: 16. júlí — 30. júlí — 13. ágúst — 27. ágúst — 3. sept. — 17. sept 12 dagar — Verð kr. 11.800.— Þessar stuttu og ódýru ferðir gefa fólki tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborg- u.'. Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. M illjónaborgin London, tilkomumikil og sögu- tueg höfuðborg heimsveldis, með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam, heill- a>.Ii og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og svo „Borgin við suudið“, Kaupmannahöfn, þar sem íslendingar una sér betur en víðast á erlendri grund. Borg í sumarbúningi með Tívolí og ótal aðra skemmtistaði. Þar er hægt að framlengja dvöl í ferðalok. Þessi stutta og ódýra ferð he fir átt vaxandi vinsældum að fagna með hverju ári. f fyrra voru farnar fimm slíkar ferðir og komust færri en vildu. Fararstjórar: Jón Helgason, Jón Sigurbjörnss on og Gunnar Eyjólfsson. París — Rínarlönd — Sviss Brottför 18. ágúst. — 17 daga ferð. — Verð kr. 17.650.00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin svo til óbreytt í sjö ár, og jafnan við miklar vinsældir, cnda fólk komið heim með óbrotgjarnar endu rminningar. Fólki gefst hér tækifæri til að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu, í rólegri ferð. Flogið er til Parísar og dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumarda ga. Frá París er flogið til Sviss, skroppið í skemmtiferð suður yfir fjallaskörðin til ftalíu. Frá Sviss er farið fljúgandi til Rínarlanda, og dvalið fjóra daga við Rín í Rúdesheim, einum frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar er „Vínhátíðin“, þar sem drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir um Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtilegum farþega skipum. — Fararstjóri: Jón Helgason. Edinborgarhátíðin Brottför 26. ágúst. — 7 daga ferð. Verð kr. 7.210,00. Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í sex ár og jafnan fullskipuð. Fara all- margir árlega, enda er Edinborgarhátíðin m ikilfenglegasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er mjög fögur borg og ánægjul egt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmtiferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvölina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson, leikari. Ítalía — septembersól Brottför 8. september. — 21 dagur. — Verð kr. 21.300,00. Þessi luxusferð er mun ódýrari en aðrar hliðs tæðar ferðir, vegna hagkvæmra viðskiptasam- banda SUNNU á Ítalíu. — Flogið til Milano og ekið þaðan um fegurstu byggðir ttalíu, með 3—4 daga viðdvöl í þessum borgum: Feneyjum, hinni „Fljótandi borg“ ævintýra, söngs og sögu. Umferðin líður fljótandi um skurðina frægu, milli skrauthalla og hótela. Florenz, hin fagra höfuðborg listanna á miðöldum ttalíu. Róm er u helgaðir fimm dagar, því þar er margt að sjá. Frá Róm liggur leiðin suður um Napoli, Pompei til Sorrento hinnar undurfögru borgar við Capriflóann. Skroppið er út til Capri. Eftir ök uferðir um fegurstu byggðir ttalíu kemur að því ævintýri ferðarinnar að sigla með einu gl æsilegasta hafskipi heims, risaskipinu Michel- angelo (63 þús. smál að stærð) og ganga á land í Cannes á frönsku Riverian og aka síðan til Nizza, þar sem dvalið er síðustu daga ferða rinnar. Frá Nizza er flogið heim með viðkomu í London, þar sem hægt er að framlengja ferðina, ef óskað er. Fararstjóri: Thor Vilhjálmsson, rithöfundur. Ítalía og Portugal. Brottför 2. október 21. dagur. — Verð kr. 25.8 60. Þetta er luxusferð fyrir þá allra vandlátustu. Beztu fáanleg hótel og glæsilegasta hafskip ítala Raffaello, sem er 43. smálestir að stær ð. Ferðatilhögun: Flogið til London með þotu og þaðan til Lissabon. Dvalið þar í Lissabon, flogið þaðan til Madeira og síðan siglt með hinu glæsilega hafskipi í sjö daga til Kanaríeyj a, Gibraltar, Palma de Mallorca, Sikileyjar og Napoli. Þaðan ekið meðfram Napoliflóanum til hins undurfagra baðstrandarbæjar Sorrento og dvalið þar nokkra daga. Þaðan ekið til Napoli og Rómar og dvalið í Róm í fjóra daga. Flogið frá Róm til Feneyja og dvalið þar tvo daga og loks flogið til London og dvalið þar tvo daga, áður en flogið er heim. Hægt er að framlengja dvölina í London. Þegar hafa margir pantað í þessa fyrirhuguðu ferð þó auglýst sé n ú í fyrsta sinn. Plássið er takmarkað og pantið því snemma. — Fararstjóri Jón Helgason. Ævintýraferðin til Austurlanda Brottför 7. október. — 21 dagur. — Verð kr. 23.700,00. Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vins ælu ferðum SUNNU á ævintýraslóðir Austur- landa, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim undrum og furðum, sem fyrir augun ber. Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í tvo daga. Flogið til Beirut. Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austurlöndum nær. Heimsóttir persneskir teppasalar í fríhöfninni. Frá Beiru t er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökkum Nílar. Frá Kairo er flogið til Jerusale m, dvalið í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Biblíunnar. Frá Jerusalem er flogið til London og hægt að framlengja dvöl, ef óskað er. — Fararstjóri: Guðni Þórðarson. Heimssýningin í Montreal og New York Brottfrardagar: 27. júlí og 14. sept. 14 dagar kr. 12.800. UPPSELT. Heimssýningarárið er kjörið til að heimsækj a Ameríku. Við fljúgum í þotum Pan American til New York og þaðan til Montreal þar se m dvalið er eina viku, heimssýningin skoðuð og litið á náttúruundur Kanada. Síðan dvali ð aðra viku í New York, þar sem fólki gefst kostur á margs konar skemmtun og ferð til W ashington. 1 ferðinni 27. júlí gefst kostur á að heimsækja íslendingabyggðir í Manitoba, Winnipeg -og vera á hátíðahöldum íslendinga- dagsins að Gimli. — Fararstjórar: Jón Helgas on og Guðni Þórðarson. Skemmtisiglingin 16. ágúst með m/s Volker- freundschaft (áður Stocholm). 16 dagar. — Bergen — Oslo — Kaupmannahöfn — Amsterdam — London. Farþegar eru beðnir að vitja farseðla sinna sem allra fyrst, svo hægt verði að ráðstafa aftur þeim plássum, sem kynnu að losna. Mallorka — London Brottfarardagar: 20. júlí — 3. ágúst — 17. ágúst — 31. ágúst 14. sept. — 28. sept. — 12. okt. — Verð frá kr. 9.600. Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og London getum við haft svona ódýrar vegna þess að vin- sældir þeirra leyfa að teknar séu heilar flugvélar á leigu, sem flytja farþegana á milli áfangastaða og hótelin gefa SUNNU beztu fáanlegu kjör vegna þess að skrifstofan semur um fyrir rúmlega 100 gesti yfir árið, til margra ára. Búið er í tvær vikur á glæsilegum baðstrandarhótelum með einkasundlaugum og baði með hverju herbergi aðeins 7 km. frá miðri höfuðborginni Palma. Mallorca er vinsælasti ferða- mannastaðurinn í Evrópu í dag, enda fær fólk þar allt sem hugurinn girnist, sól, náttúrufegurð og fjölbreytt skemmtanalíf, góð hótel og góðan mat. Á heimleiðinni er stanzað dag í London. Innifalið í verði ferðar eru flugferðir, ferðir milli flugvalla og hótela, gisting og þrjár máltíðir á dag á Mallorca og gisting og morgunverður í London. Þið fljúgið með íslenzkri flugvél beint til Mallorca á 7 tímum og njótið leiðsagnar og aðstoðar ágæts íslenzks fararstjóra og skrifstofu okkar á Mallorca. Þið getið valið um dýrðlega aðbúð á beztu hótelum í þremur verðflokkum, eða dvöl í luxusíbúð- um og getið fengið bíl með. Nú þarf enginn lengur að fara til Kaupmannahafnar til að komst ódýrt til Mallorca með „billeg- um“ skrifstofum dönskum og taka alla þá áhættu, sem því fylgir. íslenzkar ferðir hæfa íslendingum bezt, því við gerum okkur ekki ánægða nema með það bezta. Fararstjóri: Njörður P. Njarðvik. Kaupmannahöfn (Ilamborg) — Edinborg 14. september. — 10 dagar. — Verð kr. 6.900.00. Þessi ódýra og vinsæla haustferð var farin í fyrsta sinn í fyrra. Ferðin er svona ódýr vegna þess að SUNNA leigir flugvél til ferðarinnar. Dvalið í hinni glaðværu Kaupmannahöfn, skroppið í tvo daga til Hamborgar og stanzað í sólarhring í Edinborg á heimleiðinni. Þó þessi ferð sé nú auglýst í fyrsta sinn eru margir búnir að panta af þeim, sem voru með í fyrra. Fararstjórar: Jón B Gunnlaugsson og Helgi Jónsson. I SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Flogið lengstu Ieiðirnar og ekið eingöngu þar sem landslagsfegurð er mest. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu sem reynt hafa SUNNU-ferðir og velja þær aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið. Biðjið um ná- kvæma ferðaáætlun og pantið snemma, því yfirleitt komast aldrei allir sem vilja í SUNNU-ferðir. Það eru ferðir, sem fólk getur treyst og síðast en ekki sízt. — SUNNA auglýsir aldrei ferð, sem ekki er farin. Hótel okkar á Mallorca. SUIMIMA Ferðaskrifstofan Bankastræti 7. — Símar 16400 og 12070.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.