Morgunblaðið - 15.07.1967, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.07.1967, Qupperneq 17
MORGUiNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1967 17 —Skotlandsbréf Framlhald af 'bls. 15 svaraði því' til, að þetta væri ekki nema eðlilegt. Það væri svo miklu ódýrara og auðveld- ara að senda þessar litlu hænur á sýningu heldur en stóru kyn- in. Verðlaunin á stóru kynin væru lág í krónutölu, en send- ingarkostnaður mikill, og það væri tap á því að senda þau á sýningu, þó að verðlaun næðust á þau. En það mætti senda 5 dverghænur í kassa, sem tæki aðeins 1 hana af þungu kjöt- kyni. Það var annars furðulegt að sjá öll þau afbrigði af hænsnum, sem þarna gaf á að líta. Það ■voru bardagahænsni, þar sem hanarnir eru með gríðarstóran spora, hárbeittann. Eftirlitsmað - urinn gat þess, að hanaat væri nú bannað með lögum, en væri öðru hvoru háð enn ólöglega. Þarna voru líka hænsni með kamb, sem var eins og hnúður í laginu og alveg á stærð við hænu egg. Sum hænsnin voru með hár í stað fiðurs, sum með langan ennistopp, sem náði la.ngt niður fyrir auglu, sum með alia negnbotg ans liti, og þannig mætti lengi telja. Eftirlitsmaðurinn gat þess, að það mætti þykja gott, ef 20 egg fengjust úr hænunni á ári hjá sumum þessum kynjum, og þau væru flest til einskis nýt nema til að senda þau á sýning- ar. Hrossakynin sum eru svipaðs eðlis. Hross eru lítið sem ekkert notuð við landbúnaðarstörf hér lengur, og sum kynin, sem sýnd voru, eru fyrst og fremst rækt- uð til skemmtunar. En þó að sum þeirra séu til lítilla hag- nýtra nota, fást af þeim tekjur til landbúnaðar, því að hesta- mennska er mikið stunduð hér og mikið selt af hrossum til kaupstaðarbúa. Jafnvel Shet- landshesturinn, sem er minnsti Ihestur í heimi, er mjög vinsæil krakkahestur og er seldur út um allan heim. Notagildi sumra búfjárkynja sýningaratriði Þó að mikið beri á því-, hve mikið er lagt upp úr útliti grip- anna á þessum sýningum sýning ardaginn, er þó þróunin að stefna í þá átt að meira sé lagt upp úr notagildi sýningargrip- anna. Það eru einkum svínarækt endur, sem hafa riðið á vaðið þar, og á Hálandasýningunni var deild, sem svínakynbótanefnd Bretlands stóð að. Þar var sýnt, hversu mikils virði það væri fyr ir svínaræktendur að eiga völ á kynbótagöltum, sem hefðu stað- ið sig vel í prófun á prófunar- stöð. Reyndin er líka sú hér á landi, að kynbættu svínin eru ókynbættum svínum það framar, að það getur skilið á milli taps og gróða, hvort bóndinn á völ á kynbættu svínunum á sínu búi eða ekki. Þessa sömu þróun má Hka markja í sambandi við mjólkur- kýr, !þar sem svo er nú komið, og val nau a til framræktunar í stofninum byggist áð verulegu leyii á þeim nautum, sem hafa skarað fraim úr í afkvæmarann- s óknum. Það kernur líka í ljós, að sýn- ingarnar sem slíkar hafa orðið lílil sem engin áhrif á það, hvaða naut eru valin til kyn'bóta á sæð ingarsiöðvunum. Það sem ræður úrsli um þar, er það hvort naut- ið, sem um er að ræða, gefur upp og ofan mjólkurlagnari kýr heldur en önnur naut, sem notuð eru samtimis. Það komu líka fram bending- ar um það á þessari sýningu, að þróunin stefndi í sömu átt hvað viðl mur kjötfr.amieiðslu á naut gripum. Bændur hér vilja vita, hvaða vax rítihraða þeir eiga að reikna með á þeim kálfum, sem þeir æl'a að ala til slátrunar. Því hr-ðar sem kálfurinn vex, þeim mun fyrr nær hann viðunandi faliþunga, og þeim mun minna frðuv eyðist í hann til viðhald:'. A" þessum sökum fer notkun h:. 'rrs hci ’nkynja tii kjötfram leiðslu stórum þverrandi hér í landi, og nú framleiða Bretar helminginn af öllu sínu nauta- kjöti á mjólkurkúakyni, sem er þungt, stórvaxið og nythærra heldur en nokkurt annað mjólk- urkyn í landinu. Þetta kyn er svartskjöldótta Láglandskynið, sem hér er kallað British Friesian. Áróður fyrir öðrum kynjum, bæði til mjólkurframleiðslu og kjötframleiðslu er mikill, en hér ræður úrslitum, hvað hagkvæm ast er fyrir bóndann. Hann fer eftir því, hvort kýrin gefur hon um arð. Þess vegna hafa þung kyn frá Englandi, sem lítils hafa verið metin til þessa, vakið á sér. at- hygli nýlega fyrir það, hve þung föll fást af blendingum undan þeim, og hve vaxtarhraði blend inganna er mikill. Þessi kyn eru m.a. Devon og Red Lincoln, og það er talið til tíðinda, að upp- lýsingar liggja jafnan fyrir um það á sýningúm, hve hratt hver sýningargripur af þessum kynj- um hafi vaxið á ákveðnu tíma- bili ævinnar. Þá er miðað við vöxt við venjulegar fóðrunarað stæður. Sum ræktunarfélög hoída- kynja í landinu hafa séð sitt óvænna og eru farin að fram- kvæma vextarhraðarannsóknir á sínum kynjum með það fyrir aiugum að mæta samkeppni við stórvöxnu kynin. Það hefur stundum heyrzt hér þó að ekki sé það 'haft í há- mæli, að kýr af þéttvöxnustu holdakynjunum mjólki svo illa, að ef kálfar undan þeim.eigi að verða sýningargripir, þá verði að venja þá iundir kýr af mjólk- urlagnari kynjum, til þess að framförin verði nógu góð. Það er líka tekið fram í við- tali við „Scotsman" í sambandi við sýninguna, að svarta Wales- kynið, sem er talið til blendings- kynja og hefur haldið innreið sina í Skotland, gefi mjög mik- inn vaxtaihraða á k'álfunum, og þeir kálfar ganga allir undir mæðrum sínum, segir í viðtai- inu. Nýjungar á sviffi véla og tækni Það eru færri vélasýnendur nú en í fyrra á sýningunni, og er fjármálaráðstöfunum og lánsfjár höftum stjórnarinnar kennt um. Það er líka tiltölulega fátt um verulegar sýjungar, en allmargt var sýnt af véhwn og tækjum, sem lítið eða ekkert hefur heyrzt um á Islandi. Það sem vakti sérstaklega at- hygli mína var fjárbað, sem sett er upp í gangi, og botninn í bað inu er í sömu hæð og gólfið í ganginum. Yfir baðinu eru síðan stútar, sem ýrt er baðlegi út yfir féð með háþrýstidælu, og eins eru stútar upp úr gólfinu á baðinu, sem gegnvæta kindina að neðan. Hægt er að reka 15—20 kindur Þarna er verið aff sýna, hvaff hægt sé aff taka Landroverinn á staff í brattri brekku aftur á bak. Einn krakki fékk aff sitja cófnaplöntunni og öðrum hlut- Formúlan fyrir blöndunni er sett inn í vélina fyrirfram, ag síðan þarf ekki að hugsa neitt um blöndunina, meðan næg efni eru fyrir hendi og meðan tekið er frá vélinni. Þessi vél er ætluð til notkun- ar við sjálfvirka svínafóðrun, en ekki er ósennilegt, að hún gæti komið að gagni við sumar minni fóðurblöndunarstöðvarn- ar, sem til eru í landinu — ef þær verða þá ekki að leggja upp laupana fyrir innfluttu blöndun um. Eins var sýnd frumgerð að vél, sem á að geta grisjað fóður rófnaakra og skilið eftir eina plöntu í stað og þá vitanlega rófnaplöntu og ekki illgresi. Það er ljótsnæmt tæki, sem er uppl- staðan í þessu áhaldi, og grein- armunur er gerður á ljósinu frá i í hverri ferff. inn í baðið í einu, og þær eru látnar vera í úðuninni í 1—2 mínútur. Þægilegur útbúnaður er til að opna fyrir fénu og hleypa því út, og einn maður getur séð um böðnunina, því.að féð gengur vel inn í 'baðið, með an úðinn er ekki á. Frárennsl- ið úr baðinu rennur í þró, sem er lægri en sjálft gólfið, og þaðan er því dæl.t inn í kerfið aftur. Méð þessu móti nýtist baðlögur- inn vel. Þetta fjárbað hefur fengið silf urverðlaun Hálandafélagsins, og ef það reynist eins vel og af er látið, á það vafalaust erindi til ís lands. Það er sagt létt í meðför- um og á að vera auðvelt að flytja það á milli bæja. Dæluna er hægt að tengja við aflúrtak- ið á dráttarvél. Verð á baðinu með dælu til að tengja við drátt arvél er rúmlega 20.000 ísl. kr. Önnur nýjung, sem senilega getur komið að noturn við bú- skap heima er fjórhjólaður flutn ingavagn með vökvalyftu. Hann fæst bæði með skjólborðum úr tré og járni og með upp'hækk- uðum grindum. Hann er þannig gerður, að þegar beizlinu á hon um er lyft með vökvalyftu drátt arvélarinnar, lyftast framhjólin frá jörðu, en annars hvílir að- eins þungi beizlisins á dráttar- króknum. Þannig má auka eða minnka þungann á dráttarvél- inni eftir þörfum. Festingin á pallinum við grind ina er aftan við afturhjólin, svo að hægt er að lyfta pallinum mjög hátt að framan, þegar ver ið er að tæma ihann. Þeissi vagn er sagður notaður mikið við bú- störf hér í landi, en einnig mikið við vegagerð og efnisflutninga við ýmsar framkvæmdir. Hann tekur rúmlega 9 tonna hlass. Verðið er mismiunandi eftir því hvers konar skjólborð fylgja, eða frá rúmlega kr. 50.000 fyrir ein- földustu gerð upp í rúmlega kr. 60.000 fyrir dýrustu gerð. Það skal tekið fram, að það Áfen«isvarnarráð vill ráða erindreka í þjónustu sína. Umsóknarfrestur er til 30. þessa mánaðar. Nánari upplýsingar gefur áfengisvarnarráðunautur. ÁFENGISVARNARRÁÐ. BAÐHERBERGI88KAP4R FALLEGIR VANDAÐIR NÝTÍZKULEGIR verð, sem hér er gefið upp, gild ir hér í Skotlandi. Ég vil enga ábyrgð bera á því, að Iþað gildi á Íslandi. Þá voru sýndar vélar á sýn- ingunni, sem enu fullkomlega sjálfvirkar og er stjórnað með rafeindatækni. Meðal annars var þar fóðurblöndunarvél, sem nær í efnin í fóðurblönduna úr geym um, sem flutt er úr með sjálf- mælandi sniglum. Öll efni, sem þarf í blönd.una eru mæld í sniglum, og hraðinn á sniglinum úr hverjum geymi takmarkast sjálfkrafa af því hve mikið á að vera af viðkomandi efni í blöndunni. um, sem ljósgeisli frá tækinu kastast frá. Þá var sýnd tækni við að greina kartöflur frá steinum og öðrum aðskotalhliutum við flokk un á karötflum, og mættu Neyt endaisamtökin gjarnan standa undir kostnaði af tilraun með slíkt tæki. ★ Hér hefur verið drepið á all mörg atriði, sem ættu að gefa nokkra yfirsýn yfir sýninguna í heild. í sambandi við sauðfjárrækt- ina kom fram margt nýstárlegt, sem ekki hef.ur verið rúm fyrir hér, og verða því gerð nánari skil í annarri grein. Stefán Affalsteinsson. Kaupmenn — Innkaupastjórar Höfum fyrirliggjandi \LRDR\ V V Aurora toilett pappír-ilmborinn 48x2 rl. mislitar 24x2 rl. hvítar. Northern — trissue pappír andlitsþurrkur — ílmborið 48x100 pk. í ks. — mislitt. Northern Serviettur 48x80 pk. per ks. — Waxtex vaxpappír WAXTBX 48x100 fet pr. ks. ódýrar. Waxtex vaxpokar 24x75 pr. ks. — sterkir, — þægilegir. Northern Towels eldhúsrúllur — tvöfaldur pappír 36x1 rl. — mislitar 24x2 rl. — mislitar ERUM EINNIG umboðsmenn fyrir, og getum útvegað, B, DIXIE CUP pappamál, pappadiska, hnífa, gaffla og fl. Höfum einnig fyrirliggjandi serviettubox fyrir mjög ódýrar serviettur til nota fyrir kaffiteríur, mötu- neyti í fyrirtækjum og fl. staði. Flytjum einnig inn með stuttum fyrirvara peninga- skápa, eldtrausta og ódýra. REYNIÐ VIÐSKIPTIN. Heildsölubirgðir: , NEYZLUVÖRUR HF. Snorrabraut 50. Sími 12816 (9—12 f.h.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.