Morgunblaðið - 02.09.1967, Side 1
24 SÍÐUR
54. árg. — 197. tbl.
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
BRETAR
RÝNDIR
Sameinuðu þjóðunum.
New York, 1. sept. AP—NTB
NÝLENDUMÁLANEFND Sam-
éinuðu þjóðanna samþykkti i
dag gagnrýni á brezku stjórnina
GAGN-
HJÁ SÞ
fyrir ákvörðun hennar um að
láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu á Gibraltar um framtíð
nýlendunnar. Einnig var sam-
þykkt yfirlýsing frá nefndinni
þar sem harmað er að samninga-
Viðræður Breta og Spánverja um
Gibraltar skuli hafa farið út um
þúfur.
Tillöguna um gagnrýni á
Breta fluttu fulltrúar íraks,
Chile og Uruguay, og hafði Cara
don lávarður, fulltrúi Breta, lýst
tillöguna mjög hlutdræga og al-
gjört frávik frá hefðbundnum
reglum Sameinuðu þjóðanna.
Framh. á bls. 23
Svo sem frá hefur verið skýrt í fréttum urðu hörkuátök úti
fyrir kinverska sendiráðinu í London fyrir nokkrum dögum,
Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri; önnur af
kínversku sendinefndinni á tröppum hússins, syngjandi lof-
söngva um Mao og vígorð gegn brezkum heimsveldasinnum —
hin úti á götunni, er við áttust brezkur lögregluþjónn og
ónafngreindur Kínverji.
Novotny boöar
strangari aga
— í Tékkóslóvakíu
Prag, 1. sept. NTB — AP.
ANTONIN Novotny, forseti
Tékkóslóvakíu, hefur boðað
aukinn kommúnískan aga í
landi sínu og gefið frjálslynd-
um öflum ljóslega til kynna,
að ekki verði við unað neins
konar kröfur um tilslakanir.
Novotny sagói í ræðu í dag, að
friðarhreyfingar, kæruleysi og
léttúð hefðu magnazt í Tékkósló-
slóavakíu, jafnvel náð til skóla-
kerfisins og uppeldis barnanna,
auk þess sem trjálslyndi breidd-
ist út óðfluga. Væri nauðsynlegt
að berjast gegn öllum slíkum
ósóma. ..Lýðræði og frelsi verður
að setja takmörk", sagði hann.
„í sósíalistísku ríki er óhugsandi
Framh. á bls. 23
Ungu sovézku rithöfundarnir dœmdir:
Bukovsky hlaut 3ja ára f angelsi
De/one og Kustsjov I árs skilorðsbundið
Moskvu, 1. sept.
NTB — AP.
f DAG var kveðinn upp dóm-
ur í máli ungu sovézku rithöf-
undanna þriggja, sem fyrir
nokkru voru handteknir í
Moskvu. Vladimir Bukovsky,
sem játaði að hafa stjórnað
ólöglegum mótmælaaðgerðum
á Púskin-torginu í Moskvu,
var dæmdur í þriggja ára fang
elsi, en hinir tveir, Vadim
Delone og Evgeni Kustsjov
í eins árs fangelsi, skilorðs-
bundið. Þeir voru þegar látn-
ir lausir og munu ekki þurfa
að afplána refsingu nema því
aðeins þeir verði sekir fundn-
ir öðru sinni um sömu brot.
Haft er eftir góðum heimiid-
um, að Bukovsky muni
áfrýja dómi sínum.
Ekkert var sagt um dóminn
af opinberri hálfu, né í blöð-
um eða útvaxpi enda hefur
hvergi verið minnzt á rétt-
arhöldin, sem staðið hafa yf-
ir í þrjá daga. Erlendum
fréttamönnum var ekki leyft
að vera við dómsuppkvaðn-
inguna en nokkrir menn, er
þar voru viðstaddir sögðu
þeim frá því, sem við hafði
borið. Ekki fengust nánari
fregnir af því, sem gerðist,
þar eð lögreglan kom á vett-
vang og bægði mönnunum
burt. Einnig tjáði hún frétta-
mönnum, að þeim væri betra
að hafa sig á brott.
Fyrr í dag höfðu tveir
Rússar verið handteknir, þar
sem þeir höfðu gert sig seka
um að ræða við vestrænu
fréttamennina um réttar-
höldin. Kváðust báðir vera
rithöfundar og eins og hinir
dæmdu aðilar að SMOG-
ólöglegum samtökum ungra
rússneskra rithöfunda. Ekki
er vitað, hvert var farið með
ungu mennina, en annar
þeirra a.m.k. veitti verulega
andspyrnu er hann var hand-
tekinn.
Kosningarnar í S-Vietnam nálgast:
RÆNTÍ
— tugir sœrðir og aðrir felldir í vax-
andi hryðjuverkaherferð kommúnista
Saigon, 1. sept. AP-NTB.
Hryðjuverkastarfsemi
kommúnista í Suður-Vietnam
fer vaxandi eftir því sem nær
dregur forsetakosningunum,
sem fram eiga að fara á
sunnudag. Þær eru kommún-
istum sár þyrnir í augum og
heyja þeir baráttuna
gegn þeim að mestu
á þrennan hátt; með því að
skjóta niður úr launsátri
óbreytta borgara í Saigon, að
sprengja upp brýr og vegi
víðsvegar um landið og með
því að ráðast á þorpin og taka
gisla, með það fyrir augum
að fæla fjölskyldur þeirra frá
þátttöku í kosningunum. Bú-
izt er við, að hryðjuverkin
nái hámarki á laugardag og
kosningadaginn sjálfan en
víðtækar ráðstafanir hafa
verið gerðar til þess að
tryggja, að kosningarnar geti
tarið fram með skipulegum
hætti.
Áköfust er hryðjurverkastarf-
semi kommúnista í norðurhéruð
um landsins. Þar hafa þeir rænt
að minnsta kosti á þriðja hundr-
að manns síðustu dagana, þar af
65 manns í dögun í morgun, er
sveit skæruliða réðst á þorpið
Kim Nam nokkra kílómetra frá
Da Nang. Komu þeir að þorps-
búum sofandi, vöktu þá og skip
uðu þeim út. Síðan söfnuðu þeir
saman öllum karlmönnum þorps
ins, þar á meðal þorpsstjóranum
og höfðu á brott með sér. Senni-
legt er talið, að þeim verði hald
ið sem gislum unz kosningarn-
Framh. á bls. 23
Aþenu, 1. sept. NTB — AP.
HERSTJÓRNIN í Grikklandi
hefnr tilkynnt, að bannið við því,
að fleiri en fimm manneskjur
komi saman, muni framvegis
ekki gilda, þegar um sé að ræða
JOHNSON, Bandaríkjaforseti,
heimilaði í dag, að ein milljón
lesta af hveiti yrði send til Ind-
lands, til viðbótar því, sem
Bandaríkjamenn þegar hafa sent
þangað til þess að forða Ind-
verjum frá hungursneyð. Þá
hafs alls verið sendar þangað
2,5 milljón lesta og jafnvel búizt
við, að 500.000 lesta verði leyfðar
að auki.
sérstaka atburði í fjölskyldum,
svo sem brúðkaup og jarðarfar-
ir. Ennfremur verður hér eftir
leyft að skipuleggja fyrirlestra
svo fremi þeir séu ekki stjóm-
málalegs eðlis.
VIÐ BRÚÐKAUP
OG J ARÐARF ARIR
4
— mega vera fleiri en fimm
4»